Morgunblaðið - 03.05.1980, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 03.05.1980, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MAÍ1980 BLÓM smst áf'7. VIKUNNAR Hr < UMSJÓN: ÁB. (§) DÍSARUNNI Syringa Margir hafa gaman af að rækta DÍSARUNNA (Syringa) og er ég ein af þeim. Mun ég nefna hér nokkrar tegundir sem ég rækta í garðinum mínum og hafa reynst vel. Sumar þeirra eru vel þekktar, aðrar ekki. Syringa Amurensis — Amúrsýrena mun hafa komið hinga til lands með fræi sem Furtcefa menntamálaráð- herra Rússa gaf á sínum tíma Skógrækt ríkisins er hún var hér á ferðalagi. Þetta er ágæt sýrena og falleg, virðsit harðgerð og er með rjómableika blómklasa. Kettir sækjast nokkuð eftir að naga greinarnar. Þegar ég var búin að standa í nokkru þófi við kettina, stakk ég grenigreinum í moldina í kringum stofninn og batt utanum. Þetta líkaði köttunum heldur illa og hef ég sýrenurnar mínar því nokkurn veginn í friði fyrir þeim. Syringa josikaea — ungverskur dísarunni — er harðgerður og fallegur með dökkfjólubláa blómklasa, hávaxinn runni eins og s. amurensis og kettir sækja einnig í hann. Syringa reflexa — bogasýrena, er svipuð en með stærri blöð og rauðbleik blóm, reglulega falleg og harðgerð. Syringa sweginzowi — kínversk sýrena, hávaxin með mjög fallegan og þéttan vöxt. Blómin eru bleikfjólublá. Harðgerð og skemmtileg. Syringa Anna — Runni sem mun kominn til Skógrækt- ar ríkisins frá konu norður í Hörgárdal, nánar tiltekið Önnu Einarsdóttur í Auðbrekku, og kennd er við hana. Sumarlegt á Héraði Syringa reflexa — bogasýrena — við hús ólafs K. Magnússonar blaðaljósmyndara við Melabraut á Seltjarnarnesi. Runninn hefur staðið þar um árabil, dafnað vel og blómstrað á hverju sumri ibúum hússins til yndis og ánægju. Anna í Auðbrekku mun hafa fengið þessa sýrenu frá N-Ameríku og er hún talin blendingur. S. Anna er falleg og blómviljug. Blómstrar bleikum blómum þegar á unga aldri. Blöðin eru mjó og er runninn allur fínlegur og spengilegur. Syringa vulgaris þrífst vel hér en vill ekki blómstra. Syringa chinensis (blendingur af S. vulgaris og S. persica) hefur ekki reynst mér harðgerð, en að vísu fékk ég lélega plöntu í upphafi en sýrena þessi er einhver sú allra fallegasta sem völ er á. Syringa pygmea er mjög lágvaxin, verður tæplega meira en 50 cm á hæð um hversu harðgerð hún er get ég ekki sagt enn sem komið er. Hún er falleg í blóma og klasarnir ljósfjólubláir. Syringa prestoniae (S. reflexa & S. villosa) blendingar framleiddir af Miss Preston í Kanada. Þetta eru fallegir runnar og virðast harðgerðir hér. Blómalitir breytilegir en sú sem ég á er með fjólurauð blóm. Að síðustu vil ég nefna Syringa josiflexa (S. reflexa x S. josikaea). Blendingar frá Kanada með bleikum eða ljóslilla blómum. Harðgerðar og fallegar. Nokkrar fleiri tegundir veit ég um í ræktun hér svo sem S. villosa, S. velutina og S. wolfi og eru sagðar góðar, en margar fallegar sýrenur eru alveg óreyndar hér ennþá, og er það verðugt verk að vinna fyrir góða garðyrkjumenn. St. ól. Ejolsstöðum, 28. april. Sumardagurinn fyrsti var að venju haldinn hátíðlegur hér á Egils- stöðum enda allt að vera sumarlegt hér á Héraði. Reyndar var brugðið út af venjunni að þessu sinni. Junior Chamber klúbburinn á Héraði stóð fyrir vetraríþrótta- degi á skíðasvæði Egils- staðabúa á Fagradal. Meðal annars fór fram snjóþotukeppni, sem var öllum opin yngri sem eldri og fengu allir verð- laun. Þá fór einnig fram vélsleðakeppni og varð sigurvegari Bjarni bak- ari Helgason. Ýmislegt fleira var til skemmtun- ar og var hátíðin vel sótt. Tónskóli Fjótdalshér- aðs hélt sína árlegu vortónleika s.l. laugar- dag 26. apríl. Allir nem- endur skólans komu fram á tónleikunum, sem voru fjölsóttir að vanda. Skólastjóri Tónskólans er Magnús Magnússon og kennari Árni ísleifsson. Hér með fylgja nokkr- ar myndir frá lífinu hér á Egilsstöðurr Þær sýna skrúðgöngu á sumardag- inn fyrsta, stangaveiði- menn æfa sig, svip- myndir eru frá tónleik- unum og loks sjást nokkrir Egilsstaðabúar hvíla lúin bein og þiggja veitingari. — Jóhann

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.