Morgunblaðið - 03.05.1980, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 03.05.1980, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MAÍ1980 35 Valdimar Björnsson skrifar frá Minnesota: íslenzkt líf og listir ofarlega á baugi íslenzkt líf og listir hafa verið efst á baugi hér í Minnesota nýlega. Fyrst um miðjan marz- mánuðinn, má segja virkilega að frú Ragnhildur Helgadóttir, fyrrv. alþingismaður, kom sá og sigraði í fyrirlestrum á ráðstefnu sem helguð var Norðurlöndum. Þá, í lok mánaðarins, 29. marz, hófst ferðalag tónlistar-þremenning- anna í Minneapolis, fyrsti áfang- inn í túrnum þar sem farið verður um Bandaríkin og Kanada, frá hafi til hafs. Þátttakendum, þeim Sigfúsi Halldórssyni tónskáldi, Guðmundi Guðjónssyni einsöngv- ara og Bill Holm, kennara við Háskóla íslands árlangt, sem syngur, spilar og les ljóðin sín, var fagnað af fjölda áheyrenda. A undan þessum opinberu mannamótum, skaust hingað Þorkell Sigurbjörnsson, tónskáld og píanó-kennari til að hitta framámenn í tónlistinni fyrir íslands hönd, út af þátttöku í „Scandinavia Today"- athöfnum, árið 1982. Á meðan eru nokkrir hér um slóðir að velta fyrir sér ferðalagi til New York næstkom- andi haust, er „Viking“- sýningin verður haldin þar í borg, með þátttöku allra Norðurlanda á veg- um American Scandinavian Foundation, þar sem Magnús Magnússon, sjónvarpsstjarna úti í Englandi, er með í ráðum. Þorkell biskupssonur var að kanna gamlar slóðir í skyndi- heimsókn hér, þar sem hann fékk sínar gráður í tónlistinni við Hamline University í St. Paul, Minnesota og Illinois-háskólanum í Urbana. Hann skrapp um leið til Seattle að ræða við tónlistarleið- toga þar. Fékk hann ágætar und- irtektir hjá Minneapolis Symph- ony Orchestra, St. Paul Chamber Music Orchestra, og samsvarandi tónlistarfrömuðum í Seattle. Lof- orð kom frá þeim öllum um að æfa íslenzka tónlist til flutnings 1982. Á því ári verða helgaðir Norður- löndum skemmtiþættir af mis- munandi tagi á samkundum í New York, Minneapolis og St. Paul, Minnesota, Houston, Texas, Seattle og Washington. Ragnhildur Helgadóttir fékk verðskuldað lof fyrir framkomu sína á ráðstefnu sem Augsburg College í Minneapolis hélt 14. og 15. marz, „Contemporary Issues: Scandinavia and America", með áherzlu þá daga á stöðu kvenfólks í ýmsum greinum á Norðurlönd- um. Sem fyrrverandi formaður Norðurlandaráðs og rúm 15 ár sem alþingismaður á íslandi, hafði frú Ragnhildur margt fram að færa um aðstöðu kvenna á öllum Norðurlöndum. Hérlendar konur fluttu ræður um kvenréttindin í Bandaríkjun- um og í Svíþjóð og Noregi, helst, en frú Ragnhildur kom með mik- inn fróðleik, ekki eingöngu um ísland í aldaraðir, heldur um Noreg, Danmörku, Svíþjóð og Finnland um leið. Hún var með þýðingarmiklar tölur um þátttöku kvenna á ýmsum sviðum í öllum þessum löndum; fyrirlesturinn var hnitmiðaður og allt rökstutt, og á lýtalausri ensku. I fyrirspurna- tímum og frjálsum viðræðum, varð fólk hissa á orðaforða og hagleik frú Ragnhildar á ensku, og gat hún brugðið sér yfir í „skandi- navisku" fyrir þá sem það best hentaði. í þeim fáu blöðum sem koma út enn á Norðurlanda- málum, með enskt innihald í auknum mæli síðari árin, hafa verið greinar þar sem aðalefni ræðu Ragnhildar hefur verið tekið upp, og hefur fólki sem áhuga hefur á þessum málum fundist fengur að. Hið gamla máltæki, að „skemmta sér konunglega", átti sannarlega við um tónlistarkvöld- ið í Minneapolis 29. marz. Af ásettu ráði var degi hinnar árlegu „Samkomu" Heklu- kvenfélagsins í Minneapolis og St. Paul breytt til þess að geta notið komu þeirra þriggja, Sigfúsar Halldórssonar, Guðmundar Guðjónssonar og Bill Holm. Samkomur þessar hafa alltaf verið frekar vel sóttar í meira en hálfa öld, en nú var nýtt met slegið — nokkuð á þriðja hundrað manns viðstatt á Rich- field Community Center, 70sta gata og Nicollet Avenue í Minne- apolis. Kaffi og veitingar, náttúru- lega, á eftir — rúllupylsa, vínar- terta, kleinur og annað góðgæti. Gail Magnússon setti samkomuna sem formaður Heklu—klúbbsins; er hún vestur-íslenzk, dóttir Guð- Ragnhildur Helgadóttir mundar heitins Guðmundssonar tannsmiðs, upprunalega frá Gimli, og Ingibjargar konu hans, fædd líka í Nýja— íslandi — var Sig- tryggur Jónasson, „faðir Nýja- íslands" ömmubróðir Ingibjargar. Gail, sem hefur vakið orð á sér sem listmálari sjálf, er gift Braga Magnússyni, og var faðir hans, Magnús Pétursson í mörg ár kennari á Akureyri; Ingibjörg Magnúsdóttir hjúkrunarfræðing- ur í Reykjavík er systir Braga. Eftir háskólamenntun hér, hvarf Bragi aftur til íslands þar sem hann var kennari um tíma, og voru hann og Gail gefin saman á Akureyri af séra Pétri Sigur- geirssyni. Björn Björnsson, ræðismaður íslands í Minnesota, kynnti þátt- takendur, með hlýjum þökkum áheyranda, flutti þakkir nefndinni á íslandi sem gerði þessa miklu ferð hljómlistarmannanna mögu- lega, þar á meðal séra Braga Friðrikssyni, Árna Bjarnarsyni og Heimi Hannessyni. Jón Ásgeirs- son sem kominn var til Winnipeg rétt áður en ferðalagið hófst, var mættur, og fór með sem nokkurs konar „impressario" með skemmtikröftunum allan túrinn. Þá tók Bill Holm við með skemmtilegt rabb um ársdvöl sína á íslandi; hann fór úr lipurri ræðumennsku í ekta „ragtime“ píanóleik, og flutti líka órímað ljóð eftir sjálfan sig, ort á íslandi, einmitt um tungumál íslendinga og „slettur" Vestur-íslendinga fyrstu árin, þar sem vantaði algerlega orð yfir allt sem gæti heitið nýtízkulegt. Guðmundur Guðjónsson söng lög eftir Sigfús Halldórsson, og tónskáldið sjálft spilaði undir, lögin alla leið frá „Litla flugan" og „Tondeleyó" að „Afadrengur" og „Þegar vetrarþokan grá“. Storm- andi lófatak og bravó-hróp hylltu þá Sigfús og Guðmund og var hrífandi stemmning yfir öllum. Samkoman var talin með þeim albeztu sem hafa verið í sögu Heklu-klúbbsins, ekki eingöngu með aðsóknina heldur líka ágæti skemmtiatriða. Spáir þetta góðu um framkomu „músík-mannanna" og undirtektir sem þeir munu fá í túrnum um rúmlega 20 bæi og Sigfús Halldórsson borgir víða í Kanada og Banda- ríkjunum. Chicago og Los Angeles féllu því miður úr dagskrá, þar sem Chicago-landar voru nýbúnir með þorrablót sitt, og sambönd ekki fáanleg í tæka tíð í Los Angeles. Bæklingur var fáanlegur á staðnum um þá sem komu með skemmtunina og um ýmis styrkt- arfyrirtæki á íslandi, og þá seld- ust líka þó nokkur eintök af Sönglögum Sigfúsar Halldórsson- ar og höfðu Sigfús og Guðmundur nóg að gera við að skrifa nöfn sín í bókina. Sá sem þetta ritar er marg- búinn að lofa sjálfum sér og öðrum að koma með fréttapistil, og hefur einn meiriháttar verið í smíðum lengi, beðið bara eftir myndum sem koma með seinna móti. En það fer að koma bráðum, með nægilegri ættfærslu! Á meðan má sannarlega koma innskot um „líðan manna og hold fjárs". Einmuna tíð má heita hér í Minnesota í vetur, samanborið við fjögra feta snjóskafla og stöðug kuldaköst um nær allan veturinn í fyrra. Hangið hefur um frost- markið og fyrir ofan það hér um slóðir, og snjólítið, með fólk vor- kennandi þeim sem orðið hafa fyrir virkilegri vetrarhörku, bæði austan okkar og vestan, og jafnvel í Suðurríkjunum. Margir frá Minnesota, og víðsvegar annars staðar að, sóttu samkomuna miklu 29. marz. Og má segja um íslendingabyggðina í Minneota og þar í grennd, að hún hafi kvatt með virðingu einn máttarstólpa Sankti Páls safnað- ar nýlega, er Sigríður Frost var jörðuð 26. febrúar. Hún hefði orðið 92 ára gömul núna í október í haust; fékk slag og sofnaði burt úr heimi eftir langan og gifturík- an æviferil. Sigga, eins og hún var ávallt kölluð, var dóttir Jóhannes- ar Halldórssonar Frost og Borg- hildar konu hans Kjartansdóttur, hún að sunnan og Jóhannes Þing- eyingur. Jóhannes Halldórsson, fæddur á Geitafelli í Aðaldal 9. september 1857, tók nafnið Frost skömmu eftir að hann kom til Milwaukee 1873; enskumælandi menn vissu að hann væri frá Islandi og tóku upp á því að kalla hann „Frosty". Hann lét það duga og tók sér Guðmundur Guðjónsson nafnið Frost sem ættarnafn. Var hann mágur Benedikts frá Auðn- um og þannig móðurbróðir Unnar Bjarklind — Huldu skáldkonu. Var Jóhannes leiðandi maður á frumbýlisárunum eftir að hann kom til Minneöta árið 1878; dó hann 1935, Borghildur á undan honum, 1932. Var Sigríður síðust sinnar kynslóðar og dóu á undan henni bróðir hennar, Charles, í Norður- Dakota; Ella, gift George Benson (Jörgen Björnsson Halla- sonar frá Fossgerði á Jökuldal); og Jónína Magnea, kölluð Jennie, fræðslumálastjóri í Lyon- héraði í suðvesturhluta Minnesotaríkis í mörg ár. Eru á lífi þrír synir og ein dóttir Ellu, eftirlæti Sigríðar frænku. Sigga — kölluðu þeir enskumæl- andi hana það, miskunnarlaust, eins og landar gerðu — var í fjölda mörg ár í söngkór Sankti Páls -kirkju, í kvenfélagsstarfsemi og tók virkan þátt í félagslífi sveitar sinnar. Hún var ör í hreyfingum, rösk, ákveðin, tryggur vinur vina sinna, ábyggileg og fórnfús, og syrgja hana allir sem þekktu. Sigga var við bókhald Stóru búð- arinnar í Minnesota — og hét verzlunin það, The Big Store, langstærsta verzlunin í þeim hluta ríkisins, en nú liðin undir lok og er að komast á laggirnar minjasafn í því stóra húsrými. Ólafur G. Anderson hét sá er stofnað Stóru búðina 1896, eftir það að hafa verið bóndi um tíma eftir komu sína frá íslandi 1879. Sigga byrjaði starf sitt við verzl- unina þó nokkuð eftir aldamótin og tók trygg þjónusta hennar við stofnunina yfir full 60 ár áður en hún hætti. Ólafur, stofnandi verzlunarinn- ar, tók með sér þegar byrjað var, Sigurjón bróður sinn — kallaður J.S. Anderson — og Sigurð Ander- son, sem var reyndar Vigfússonar Andréssonar úr Vopnafjarðar- heiði; Sigurður og Eiríkur Stefánsson kennari í Reykjavík, systkinasynir. Ólafur var einn af sex Búastaðasystkinum, sem flutt- ust öll vestur 1879. Hann var Arngrímsson, og tók það fólk Andersons-nafnið. Faðir Ólafs — dó Ólafur, aðeins 44 ára gamall árið 1903 — var Arngrímur Ey- mundsson og móðir hans María Ólafsdóttir. Fræddist Sigfús Hall- dórsson, tónskálið, um þetta ætt- fólk við komuna til Minneapolis, þar sem honum var sagt að hann ætti frekar marga ættingja í kirkjugarðinum rétt fyrir sunnan Minnesota. Arngrímur Eymunds- son var afabróðir Sigfúsar — bróðir, náttúrulega Sigfúsar Eymundssonar sem kom suður frá Vopnafirði, varð ljósmyndari í Reykjavík og stofnaði Bókaverzl- un Sigfúsar Eymundssonar. Sigfús sagði kunningjum í Minneapolis er för þeirra hljóm- listarmanna byrjaði, að hann væri búinn að heyra miklu meira um skyldleika sinn við þann fræga nafna, Sigfús Eymundsson, núna síðari árin heldur en nokkurn tíma í bernsku. Hann hafði sjálf- sagt aldrei heyrt talað um allt skyldfólkið sem fór til Minneota — og reyndar var lítið sem ekkert samband milli Sigfúsar bóksala og ættingja hans hér úti. Samt var systir Sigfúsar, Helga Eymunds- dóttir með Búastaðasystkinunum þegar þau fóru vestur og er hún jörðuð í Minneota. Börn Arngríms og Maríu fædd- ust á kotbæ sem fór í eyði — Hóll hét hann — í Hauksstaðatúninu í Vopnafirði, en heimilið var á Búastöðum í sömu sveit þegar flust var vestur. Ólafur var vel þekktur og í miklum metum, en það er einnig hægt að segja um hin systkinin. J. S. Anderson — og hét hann eiginlega Sigurjón — dó vestur við Kyrrahaf fyrir mörgum árum, giftur dóttur Runólfs frá Snjóholti í Eiðaþinghá, bónda á Gilsárteigi. Hann lét Cass Gilber teikna hús sitt í Minnesota, arki- tektinn sem teiknaði ríkisráðshús- ið í St. Paul — State Capitol bygginguna. Var það langstærsta og flottasta hús í bænum. Matúsalem varð fasteignasali í Minneapolis — E.M. Anderson. Ein systirin giftist Sigfúsi Run- ólfssyni — Frank R. Johnson — og áttu þau heima í mörg ár i Seattle; var Sigfús bróðir Jóns Runólfs- sonar skálds. Önnur systir varð kona Jóns Jósepssonar að austan, sem átti heima í Seattle í mörg ár eftir að þau fóru frá Minneota. Stefanía Arngríms var eina syst- irin sem hélt tryggð við Minneota; dó hún þar fyrir nokkuð mörgum árum, kona Bjarna Jones. Bjarni var Jónsson Rafnssonar frá Krossavík í Vopnafirði, missti foreldra sína ungur og ólst upp undir verndarvæng séra Halldórs prófasts Jónssonar á Hofi, fór með „stóra hópnum" til Minnesota 1879. Bjarni var við járnbrautar- vinnu, eins og margir aðrir fyrst um sinn, og Jónssonar nafnið brenglaðist í Jones hjá þeim enskumælandi og Bjarni lét það bara gott heita. Já, hefði hann bara þolinmæð- ina, þá gæti Sigfús tónskáld, með móðurætt sína úr Vopnafirði, lært mikið um ættfólk sitt í vestur- heimi, eins og Steinunn kona hans og Guðmundur Guðjónsson og Kristín kona hans munu vafalaust gera líka í túrnum mikla. Sæl á meðan!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.