Morgunblaðið - 03.05.1980, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MAÍ1980
3
Aðalfundur Eimskipafélagsins:
Rekstrartap 46
milljónir króna
Afskriftir rúmlega 2 milljarðar
í RÆÐU stjórnarformanns Eimskipafélags íslands Halldórs H.
Jónssonar, á aðalfundi félagsins í gær kom fram að heildartekjur
félagsins á árinu 1979 voru 20.167 millj. kr., en höfðu árið áður numið
14.411 millj. kr. Tap varð á rekstri félagsins að upphæð 45,7 millj. kr.,
þegar tekið hefur verið tillit til allra rekstrargjalda ársins: liðanna
fjármagnstekjur og fjármagnsgjöld og opinberra gjalda vegna
rekstursins á árinu 1979. Afskriftir ársins námu 2.155 millj. kr.
Þá gerði Halldór grein fyrir því,
að ársreikningar lægju nú fyrir í
verulegu breyttu formi og jafn-
framt hefði reikningsskilareglum
verið breytt verulega. Gerði það
samanburð ársreikninganna fyrir
árið 1979 og 1978 erfiðan. Hann
sagði þó rétt að benda á, að tap
ársins hefði orðið verulega meira,
ef gert hefði verið upp eftir hinum
eldri aðferðum. Hefði tap ársins
þá orðið um 700 millj. kr. Er í
meginatriðum hægt að bera þá
tölu saman við afkomuna árið
1978, en tap það ár nam 565 millj.
kr.
Þetta er annað árið í röð sem
tap verður á rekstri félagsins og
sagði Halldór að svo gæti ekki
haldið áfram, ef unnt ætti að vera
að endurnýja skipastól þess og
ráðast í nauðsynlegar fram-
kvæmdir. Þá sagði Halldór: „Að
stærstum hluta má rekja lélega
afkomu ársins 1979 til tvenns.
Annars vegar til vinnustöðvunar
farmar.na, sem stóð samfleytt í 8
vikur á háannatíma félagsins, og
síðan yfirvinnubanns farmanna,
sem dæmt var ólöglegt. Hins
vegar má rekja þennan taprekstur
til mikillar tregðu stjórnvalda til
að heimila eðlilegar hækkanir á
þeim flutningsgjöldum skipafélag-
anna, sem háð eru verðlagseftir-
liti, en þær hækkanir ættu að vera
í samræmi við hækkanir olíu-
verðs, launa- og annars rekstrar-
kostnaðar."
Halldór sagði að úr hefði rætzt í
rekstri félagsins er verðlagsyfir-
völd heimiluðu hækkanir á farm-
gjöldum í júlí sl., og að reksturinn
hefði staðið undir sér síðari ár.
Heildareignir Eimskipafélags-
ins í árslok voru 24.290 millj. kr.
Skuldir félagsins til skamms og
langs tíma, heima og erlendis,
námu 15.023 millj. Eigið fé félags-
ins er því 9.268 millj. kr. eða 9,3
milljarðar.
Þá sagði Halldór: „Ég vil vekja
athygli á því, góðir fundarmenn,
að efnahagur Eimskipafélagsins
er traustur og stendur föstum
fótum."
Stjórnarkjör
Úr stjórn áttu að ganga þrír
menn, Axel Einarsson, Indriði
Pálsson og Thor R. Thors en þeir
voru allir endurkjörnir. Stjórn
félagsins hefur skipt með sér
verkum: Halldór H. Jónsson for-
maður, Ingvar Vilhjálmsson,
varaformaður, Thor R. Thors, rit-
ari og Axel Einarsson gjaldkeri,
Pétur Sigurðsson, Indriði Pálsson
og Halldór E. Sigurðsson.
Halldór H. Jónsson stjórnarformaður og Hörður Sigurgestsson
forstjóri Eimskipafélags íslands. Ljósm. ói.K.Mag.
Valdimar Indriðason varaþingmaður:
Var ekki að leggja bless-
un mina yfir ríkisstjómina
Mun þó verja hana falli meðan
ég sit í þingsæti Friðjóns
Endurnýjun skipakosts Eimskipafélagsins felur í sér að áhersla
verður lögð á kaup skipa af þessari gerð þar sem svokölluð RoRo
aðferð verður ráðandi.
„ÞAÐ vita allir, hvernig ég sit
þarna, að ég er varamaður fyrir
Friðjón Þórðarson og má hver
líta á það sem vill, hvort ég get
gengið þvert á það, sem hann er
búinn að ganga frá áður en
hann fer, án þess að binda mig á
nokkurn hátt. Ég held, að fæstir
hefðu gengið þvert á það,“ sagði
Valdimar Indriðason, varaþing-
maður Friðjóns Þórðarsonar
dómsmálaráðherra, en Valdimar
greiddi atkvæði með tekjuskatts-
frumvarpi ríkisstjórnarinnar
aðfaranótt 1. maí og tryggði þar
með framgang laganna, þar sem
aðeins eitt atkvæði skildi á milli,
frumvarpið var samþykkt með
20 atkvæðum gegn 19. Við hjá-
setu Valdimars hefði frumvarpið
fallið á jöfnu.
Morgunblaðið spurði hann þá,
hvort hann væri stuðningsmaður
þessarar ríkisstjórnar og svaraði
hann þá: „Það liggur ekkert fyrir,
en ég mun verja hana falli á
meðan ég sit í sæti Friðjóns. Ég
held að menn muni skilja það. I
raun var ég settur þarna mjög
óvænt í ákaflega mikinn vanda,
sem enginn átti von á fyrr en um
nóttina. Þá var ekkert annað
fyrir mig en taka ákvörðun, að
gera upp við sjálfan mig, og mig
einan, hvað væri réttast að gera.
Ég taldi mig vera að svíkja
Friðjón Þórðarson fjarverandi, ef
ég hefði gert það á annan hátt en
þennan. Það taldi ég ekki hlut-
verk mitt þarna, en með þessu er
ég þó ekki að leggja blessun mína
yfir þessa ríkisstjórn. Með þessu
fór ég eftir minni beztu sam-
vizku."
Gjörbylting fyrirhuguð
á skipakosti Eímskips
AÐ UNDANFÖRNU hefur verið unnið að endurskoðun á skipastóli
Eimskipafélagsins og hvaða flutningaaðferðir yrðu hentugastar fyrir
rekstur félagsins á næstu árum. Liggja niðurstöður þessara athugana
fyrir. Hefur stjórn félagsins rætt þær og markað sér stefnu, sem fram
kom i ræðu Halldórs H. Jónssonar stjórnarformanns félagsins á
aðalfundi þess í gær. í aðalatriðum er stefnumörkunin eftirfarandi:
1. Endurnýjað verður með fjöl-
skipum og/eða ro/ro-skipum. Að
líkindum verður aðaláherslan lögð
á fjölskip þar sem ro/ro er ráðandi
aðferð.
2. Skipum í áætlunarsiglingum
mun fækka og þau stækka. Stefnt
er að því að sama skip sigli á fleiri
hafnir en nú er, en ferða- og
viðkomutíðni skipanna verður
óbreytt.
3. Notkun gáma af ýmsum gerð-
um mun aukast og jafnhliða notk-
un afkastameiri lestunar- og losun-
artækja, þ.e. stórra lyftara, krana,
dráttartækja og dráttarvagna.
Gert er ráð fyrir verulega aukinni
notkun frystigáma.
4. Byrjað verður á endurnýjun
skipa fyrir meginlandsleið. Jafn-
framt verður núverandi skipakosti
á Skandinavíuleið breytt með því
að taka önnur skip félagsins sem
betur henta til siglinga á þeirri
leið. Einnig verður stefnt að end-
urnýjun skipa á þessari leið með
nýjum skipagerðum.
5. Áhersla verður lögð á að sem
mest af útflutningi sé flutt í
áætlunarskipum til að auka nýt-
ingu skipanna og halda niðri flutn-
ingsgjöldum.
6. Áhersla verður lögð á að veita
alhliða flutningaþjónustu, þannig
að félagið taki að sér í vaxandi
mæli að sjá um flutning vöru alla
leið frá framleiðanda, eða seljanda,
í vöruhús kaupanda á áfangastað.
7. Endurnýjun skipastólsins
mun hefjast á árinu 1980. Stefnt er
að því að skip af ofangreindum
gerðum verði tekin í notkun á
meginlandsleið á komandi hausti.
8. Gera má ráð fyrir, að þessar
breytingar fari að verulegu leyfi
fram á næstu tveimur árum. Kann-
að verði hverju sinni hvort endur-
nýjun fari fram með leigu, kaupum
á notuðum skipum eða með
nýsmíði skipa.
Sala á eldri skipum
og kaup á nýjum
Halldór H. Jónsson sagði í ræðu
sinni að félagsstjórnin hefði ákveð-
ið að setja þegar nokkur skip
félagsins á sölulista. Er ráð fyrir
því gert að framangreindar breyt-
ingar hafi í för með sér fækkun að
minnsta kosti fjögurra til fimm
skipa á næstu tveimur misserum
umfram þau skip, sem keypt verða
eða leigð.
Þá hefur verið ákveðið að fram-
angreind endurnýjun verði fyrst
um sinn gerð með kaupum eða
leigu á notuðum skipum eða skip-
um, sem smíðuð eru fyrir aðra
aðila. Nýsmíði kemur síðar til
greina.
Þrátt fyrir þessar breytingar
mun ferða- og viðkomutíðni skip-
anna ekki breytast né framboð á
flutningsrými minnka.
Fiskirækt í Kolku
og Hjaltadalsá
Sauðárkróki, 2. maí 1980.
AÐALFUNDUR veiði- og fiskiræktarfélagsins Kolku var haldinn
að Skúfsstöðum i Hjaltadal hinn 29. fyrra mánaðar. Gisli Pálsson
bóndi á Hofi i Vatnsdal, formaður Hólalax hf., mætti á fundinum
og gerði grein fyrir fyrirhuguðum framkvæmdum við klakeldis-
stöð á Hólum. Hún er nú á teikniborðinu hjá Guðmundi
Gunnarssyni i Reykjavik.
Á fundinum lagði Gísli fram
áætlun um nýtingu Hjaltadalsár
og Kolku með hafbeit á laxfiskum
í huga. Það er talið mjög áhuga-
vert fyrirtæki, og líklegt, að þar
sem vatn fiskeldisstöðvarinnar
rynni í Hjaltadalsá yrði endurh-
eimt fiska mjög há.
í samtali við fréttaritara Morg-
unblaðsins sagði Gísli, að á árinu
1981 yrði dreift um Kolku og
Hjaltadaisá allt að 100 þúsund
sumaröldum seiðum, en á næsta
ári, það er 1982, 100 þúsund
sumaröldum seiðum og 10 þúsund
gönguseiðum. Fljótlega færi svo
gönguseiðum fjölgandi, en þeim
sumaröldu fækkandi. Gönguseið-
in væru látin fara sjálfkrafa í
útitjarnir sem notuðu afrennsli
stöðvarinnar. Eftir fimm ár yrðu
árnar alllíflegar, en síðan færi
endurheimtan hraðvaxandi. Árn-
ar yrðu leigðar til stangveiði, en
sá lax sem kæmi að stöðvarvegg
nýttur sem söluvara eða sem
klakfiskur.
Fundurinn fól stjórninni ásamt
Gísla Pálssyni að beita sér fyrir
stofnun hlutafélags með áhuga-
mönnum úr Hólalaxi hf. til þess
að hrinda málinu í framkvæmd.
Formaður Veiði- og fiskiræktar-
félagsins Kolku er Sigurður
Þorsteinsson bóndi á Skúfs-
stöðum. — Kári.
Góður af li á Hellissandi
Hellissandi. 2. mai 1980.
HÉR er nú sem víðast annars
staðar komið þorskveiðibann, en
hér í Riíi var samtals landað
7.312 tonnum. En á sama tima í
fyrra voru það 5.326 tonn.
Þrír aflahæstu bátarnir eru
þessir: Hamar SH 224 er afla-
hæstur með 986 tonn, næstur er
Tjaldur SH 270 með 967 tonn og
þriðji er Rifsnes SH 44 með 920
tonn. — Rögnvaldur.