Morgunblaðið - 03.05.1980, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 03.05.1980, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MAÍ1980 5 Feðgin sýna á Snerru- lofti í Mos- fellssveit í DAG, laugardag, verður opnuð sýning á vatnslita- og olíumynd- um eftir feðginin Önnu Georgs- dóttur og Georg Vilhjálmsson. Sýningin er á Snerrulofti í Mos- fellssveit og stendur yfir i hálfan mánuð. Hún er opin á verzlun- artima á virkum dögum og um helgar. Aðalfundur og fyrirlestur AÐALFUNDUR Félags áhuga- manna um heimspeki verður hald- inn sunnudaginn 4. maí í Lögbergi kl. 13.00. Að fundinum loknum kl. 14.30 hefst fyrirlestur. Fyrirlesari verður Hannes Hólmsteinn Giss- urarson og nefnir hann erindi sitt „Er lágmarksríkið eitt réttlætan- legt“? Fyrirlesturinn fjallar um kenn- ingu bandarísks heimspekings, Robert Nozicks, um ríkið og rétt- lætið. Fjölmenni á aðalfundi Sjálfstæðis- félags Skaga- fjarðar SauAárkróki, 2. mai 1980. AÐALFUNDUR Sjálfstæðisfé- lags Skagfirðinga, en félagssvæði þess er Skagafjarðarsýsla utan Sauðárkróks, var haldinn þriðju- daginn 29. apríl síðastliðinn, í Sæborg á Sauðárkróki. Fjölmenni var á fundinum og sótti hann fólk víða að úr hérað- inu. Fundarstjóri var séra Gunnar Gíslason í Glaumbæ, fyrrverandi alþingismaður. Guðmundur Stefánsson bóndi á Hrafnhóli var endurkjörinn for- maður félagsins, og með honum í stjórn eru: Birgir Haraldsson bóndi Bakka, Páll Dagbjartsson skólastjóri Varmahlíð, Pálmi Rögnvaldsson bankamaður Hofs- ósi, Sólberg Steindórsson bóndi Birkihlíð. í kjördæmisráð voru kosnir Guðmundur Stefánsson, séra Gunnar Gíslason og Páll Dag- bjartsson. Þá voru kosnir 19 menn í fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Skagafirði. Undanfarið hefur verið unnið að endurskipulagningu félagsins, og hafa margir nýir liðsmenn bæst í hópinn. Engar ályktanir voru gerðar á fundinum, en í fjörugum umræðum kom fram mikill áhugi á að efla starf flokksins í hérað- inu. - Kári Afnám sér- stakra línu- og netasvæða SJÁVARÚTVEGSRAÐUNEYTIÐ hefur gefið út reglugerð, sem fellir úr gildi þau sérstöku línu- og netasvæði, sem sett voru í janúar sl. á Selvogsgrunni og út af Garðskaga. Fellur úr gildi bann við togveiðum á þessum svæðum 4. maí. Hannes Jónsson sendiherra í Moskvu: Sendiherrarnir sneypt- ir vegna frumhlaupsins Hannes Jónsson sendiherra. „ÞAÐ VAR aldrei á það minnst að ég yrði ekki viðstaddur hátiðahöldin hér í Moskvu 1. maí,“ sagði Hannes Jónsson sendiherra íslands í Sovétríkj- unum i samtali við blaðamann Morgunblaðsins i gær, er hann var spurður hvort ekki hefði komið til álita að hann yrði fjarverandi hátíðahöldin 1. mai eins og sendiherrar flestra rikja Atlantshafsbandalagsins. „Það var orðrómur á gangi hér í Moskvu um að einhverjir Nato- sendiherranna myndu ekki mæta,“ sagði Hannes ennfremur, „vegna þess að þeir töldu að í skrúðgöngunni yrðu herfylki. Það var orðrómur um þetta. Eg taldi mig hafa vissu fyrir því að þetta væri rangt, en beið hins vegar eftir því að einhver fyrir- mæli kæmu að heiman um að ég ætti ekki að taka þátt í hátíða- höldunum á Rauða torginu eins og venjulega. En það komu engin slík fyrirmæli. Eg beið einnig eftir að heyra eitthvað frá Nató- sendiherrunum sjálfum um hvort samtök væru um þetta, en ekkert heyrðist frá þeim heldur. Eg heyrði því hvorki neitt frá sendiherrum Natóríkjanna hérna beint né frá utanríkisráðu- neytinu heima. Engin fyrirmæli komu um að ég ætti ekki að haga mér eins og yenjulega. En viðtek- in venja er að allir sendiherrar í Moskvu eru þarna á Rauða torg- inu 1. maí.“ Hannes sagði jafnframt, að orðrómurinn um að þarna ætti að fara fram hersýning hefði verið algjörlega úr lausu lofti gripinn. Engir „hermenn tóku þátt í hátíðahöldunum sem her- rnenn" sagði hann, „þetta var aðeins skrúðganga fólksins yfir Rauða torgið eins og venjulega. Hersýningin er hins vegar alltaf 7. nóvember." Hannes sagði, að viðstaddir hefðu verið „margir Natósendi- herrar, ég var ekki eini Nató’- sendiherrann þarna. Þarna voru franski sendiherrann, gríski sendiherrann og sá tyrkneski, og ef til vill voru fleiri, þó ég hafi ekki hitt þá.“ — Þú hefur ekki séð ástæðu til að hafa frumkvæði að því að tala við utanríkisráðuneytið í Reykjavík, eða við önnur sendi- ráð í Moskvu, þar sem ljóst virtist að óljóst var með þátttöku sendiherranna? „Nei, vegna þess að ég vissi allan tímann, ég hafði það góðar upplýsingar sjálfur, að þarna yrði engin hersýning. Ég þurfti því ekkert á því að halda að kanna málið, en beið hins vegar eftir því að heyra að heiman ef þeir vildu ekki að ég færi. En ég vissi að þetta yrði friðsamleg skrúðganga verkalýðsins sem kæmi hernaði ekkert við. Því fannst mér engin ástæða til að snúa mér heim og spyrja hvað ég ætti að gera.“ — Hefur þú eitthvað heyrt skýringar hinna sendiherranna eftir þetta, hvers vegna þeir voru ekki viðstaddir? „Ég hef ekki heyrt aðrar skýr- ingar en þennan orðróm er ég vitnaði fyrr til, og ég held að þeir séu yfirleitt heldur sneyptir yfir þessu, þetta hafi verið frum- hlaup," sagði Hannes Jónsson sendiherra að lokum. BLÓMAFRAMLEIÐENDUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.