Morgunblaðið - 03.05.1980, Síða 16

Morgunblaðið - 03.05.1980, Síða 16
16 Síðustu sjjn- ingar á Ovitum Þjóðleikhúsið: I dag kl. 14 eru Óvitarnir sýndir á stóra sviðinu, en í kvöld kl. 20 verður 5. sýningin á Smalastúlk- unni og útlögunum. Á morgun, sunnudag, verða Óvitarnir sýndir í síðasta sinn nú í vor kl. 15 og kl. 20 er 75. sýning á Stundarfriði. Leikfélag Reykjavikur: Aukasýning á leikritinu „Er þetta ekki mitt líf“ verður í kvöld kl. 20.30 í Iðnó. Miðnætursýning á „Klerkar í klípu" verður í Austur- bæjarbíói kl. 23.30, í næst síðasta sinn. Sunnudagskvöld kl. 20.30 er Hemmi á fjölunum í Iðnó og eru fáar sýningar eftir. Á Litla sviðinu verður aukasýn- ing á Kirsiblómi á Norðurfjalli á morgun kl. 16. Leikbrúðuland: Sýnir „Sálina hans Jóns míns“ á Kjarvalsstöðum í dag og á morgun kl. 15. HESTAR Firmakeppni Fríks 80 í dag FIRMAKEPPNI Fáks 1980 fer fram á Viðivöilum í dag. Keppt er í þremur flokkum, unglinga inn- an 16 ára aldurs, kvennaflokki og karlafiokki. Unglingar eiga að mæta kl. 13, konur kl. 14 og karlar kl. 15. Dómar hefjast strax og þeir fyrstu mæta. Stefnt er að því að velja í úrsiit um 10 hesta í hverjum flokki, en fimm fyrstu keppendur í hverjum flokki vinna til viður- kenningar. Þulir verða leikararnir Klemens Jónsson, Bessi Bjarnason og Gísli Alfreðsson. Félagshesthús Fáks við Víðivelli verða opin gestum og fulltrúum þátttökufyrirtækja frá kl. 14 til kl. 17. Lúðrasveit unglinga úr Árbæ leikur frá kl. 15.30 til 16.30. Minigolfgarðurinn opnar eftir vetrarhlé UM helgina opnar Valbjörn Þorláksson Minigolfgarðinn að Skólavörðustig 45 að nýju eftir vetrarhvild. Minigolfið verður í sumar opið frá klukkan 11.30 til 23 á virkum laugardögum og opið klukkan dögum en á sunnudögum 13-23. í Minigolfgarðinum eru 15 brautir með ólíkium hindrun- um. Garðurinn hefur notið mik- illa vinsælda jafnt hjá ungum sem öldnum og margir hafa fengið golfbakteríuna í garðin- um hjá Valbirni. Á myndinni má sjá unga og áhugasama drengi í minigolfinu og Valbjörn fyigist með. MYNDLIST Sýningu Gísla lýkur í Háhóli Á SUNNUDAGSKVÖLD lýkur sýn- ingu Gísla Sigurðssonar i sýn- ingarhúsinu Háhóli á Akureyri. Þar sýnir Gísli 40 olíumálverk, máluð á síðustu árum, og sjást tvö þeirra hér: Skáldatími (til vinstri) og Við Reykjavíkurhöfn. Viðtökur Akureyringa hafa verið stórkostleg- ar, sagði Gísli, en þetta er sjöunda einkasýning hans og um leið sú fyrsta norðanlands. „Athyglisvert er einnig," sagði Gísli ennfremur, „hversu Akureyringar eru bæði áhugasamir og opnir fyrir myndlist. Og ekki aðeins Akureyringar; þarna kom fólk frá Húsavík, af Dalvík og Svalbarðsströnd og bændur úr Eyjafirðinum." Kór Ytri-Njarðvíkur- kirkju með tvenna tónleika í dag mun kór Ytri- Njarðvíkurkirkju halda tvenna tónleika í Ytri- Njarðvíkurkirkju kl. 14.00 og í Háteigskirkju, Reykjavík kl. 17.00. Á efnisskrá eru „Missa Brevis" í B-dúr K.V. 275 eftir W.A. Mozart fyrir kór, einsöngvara og strengja- sveit og „Stabat Mater" eftir Antonio Vivaldi fyrir altsöngkonu og strengja- sveit. Einsöngvarar verða Si- grún Gestsdóttir, Ragnh- eiður Guðmundsdóttir, Guðmundur Sigurðsson og Halldór Vilhelmsson. Stregjasveit aðstoðar. Stjórnandi er Helgi Brag- ason.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.