Morgunblaðið - 03.05.1980, Síða 17
HVAÐ ER AÐ GERAST I RÆNUM
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MAÍ1980
TÓNLEIKAR
Tvennir nemenda-
tónleikar Nýja
tónlistarskólans
TVENNIR opinberir nemenda-
tónleikar skólans verða i Félags-
heimili Fóstbræðra sunnudagana
4. mai kl. 4 og 11. maí kl. 5.
Með tónleikum þessum lýkur
öðru starfsári skólans, en starf-
semi hans hófst haustið 1978. Sú
nýbreytni var tekin upp í skólan-
um að hljóðfærakennsla fer að
hluta til fram í hóptímum og
hefur það fyrirkomulag gefið góða
raun. Á tónleikunum tvo næstu
sunnudaga koma fram nemendur
úr hinum ýmsu deildum skólans
og meðal þeirra fyrstu nemend-
urnir úr söngdeild skólans. Eru
það nemendur Sigurðar Demets
Franzsonar, en Sigurður hóf
kennslu við skólann sl. haust.
Tónleikarnir í Félagsheimili Fóst-
bræðra eru öllum opnir meðan
húsrúm leyfir. Skólastjóri Nýja
tónlistarskólans er Ragnar
Björnsson.
,JVorrœn vefjalist“
síðasta sýningarhelgi
SÝNINGUNNI „Norræn vefja- eftir listamenn frá öllum Norð-
list“ sem staðið hefur yfir á urlöndum, þar af taka sjö íslend-
Kjarvalsstöðum, lýkur á morg- ingar þátt í sýningunni. Nokkur
un. verkanna hafa þegar selst. Sýn-
ingin er opin bæði í dag og á
Um 100 verk eru á sýningunni morgun frá kl. 14—22.
Rally-keppni fyrir byrjendur
BIFREIÐAÍÞRÓTTAKLÚBBUR
Reykjavikur heldur rally-skóla
um helgina. Þar verða byrjend-
um kenndar undirstöðureglur í
rally-keppni og leiðbeint um
hvernig slík keppni fer fram.
Æfinga-rally verður haldið á
morgun í framhaldi af rally-
skólanum. Lagt verður af stað frá
Trésmiðjunni Víði við Smiðjuveg í
Kópavogi kl. 12.00.
Þegar hafa ellefu þátttakendur
skráð sig til keppninnar sem
verður 245 km löng. Eknar verða
gamalkunnar rally-leiðir um
Reykjanes og í nágrenni Reykja-
víkur. Keppnin er með því sniði að
skilyrði er að annar keppandinn sé
nýliði, en hinn má hafa tekið þátt
í rally áður, en verður nú að skipta
um hlutverk, þannig að hafi hann
verið ökumaður áður verði hann
nú leiðsögumaður, og öfugt.
KVIKMYNDIR
Kvikmynda-
fjelagið sýn-
ir tvœr mynd-
ir um helgina
KVIKMYNDAFJELAGIÐ sýnir í
dag og á morgun tvær kvikmynd-
ir. í kvöld, laugardagskvöld,
Kameliufrúna, kvikmynd frá
1936 með Gretu Garbo.
Og á morgun kvikmyndina Abe
and suberabe, mynd byggð á
rannsóknum vísindamannanna
Desmond Morreys, Konrad Lorenz
og Jane Goodall þar sem þeir gera
samanburð á þjóðfélagi manna og
dýra. Þessi mynd er nýleg, en
báðar myndirnar eru amerískar.
Sýningarnar eru í Regnbogan-
um og hefjast báða dagana kl.
19.10.
Vorboðum
fagnað í
fuglaskoð-
unarferð
ÚTIVIST gengst fyrir fugla-
skoðunarferð suður á Garð-
skaga og Básenda á morgun kl.
13.00. Einnig verður gengið um
Vogastapa, fyrir þá sem það
vilja.
Fararstjórar í ferðinni verða
Haraldur Jóhannsson og Jón I.
Bjarnason. Farið verður frá B.S.Í.
að vestanverðu. Þetta er ferð
fyrir alla fjölskylduna, fjöru-
ganga með viðkomu í gamla
vitanum og Básendum. Mönnum
er ráðlagt að hafa sjónauka
meðferðis.
Á myndinni er Friðrik Sigur-
björnsson i einni fulgaskoðunar-
ferð Útivistar, með æðarblika,
sem bjargað var úr netadræsu.
Ljósm. J.I.Bj.
TÓNLIST
Skólahljóm-
sveit Grínda-
víkur í Festi
Skólahljómsveit Grinda-
víkur heldur tónleika í Fé-
lagsheimilinu Festi í dag,
laugardag kl. 14.00
Á efnisskránni eru bæði
innlend og erlend lög og
ungir einleikarar koma
fram.
Eftir tónleikana efnir sveit-
in til kaffisölu til styrktar
tónleikafarar hljómsveitar-
innar til Vestmannaeyja um
næstu helgi.
Tónlistarmennirnir ungu
eru 22 að tölu og stjórnandi
Jón E. Hjaltason.
MÁLVERK
Katla með uppboð
Kiwanisklúbburinn Katla i
Reykjavik heldur málverkauppboð
að Hótel Loftleiðum, Vikingasal, i
dag, laugardag, og hefst það kl. 3
e.h. — Málverkin verða til sýnis
sama dag kl. 10—13.
Boðin verða upp verk eftir 30
listamenn, þ.á m. tvær frumteikn-
ingar frá Palestinu eftir Jóhann
Briem og seríu-mappa af myndum
frá 1926—1956 eftir Finn Jónsson.
Ágóðanum verður varið til að
skapa aðstöðu fyrir fjölfatlað fólk,
þar á meðal hjólastólafólk, til þess
að stunda veiðiskap við Elliðavatn.
Hefur Reykjavíkurborg úthlutað
svæði við vatnið i þeim tilgangi.
TÓNLEIKAR:
Burtfarartónleik-
ar í Kópavogi í dag
HÓLMFRÍÐUR Sigrún Bene-
diktsdóttir sópransöngkona held-
ur tónleika á sal Tónlistarskóla
Kópavogs að Hamraborg 11, 3.
hæð í dag kl. 14.00. Undirleik
annast Guðrún Anna Kristins-
dóttir, pianóleikari.
Hólmfríður Sigrún er að ljúka
burtfararprófi, en hún hefur
stundað einsöngsnám við Tónlist-
arskóla Kópavogs hjá Elísabetu
Erlingsdóttur í 5 ár og jafnframt
því verið skólastjóri Tónlistarskól-
ans á Húsavík s.i. 4 ár.
Á efnisskránni eru m.a. sönglög
eftir Pál ísólfsson, Leif Þórarins-
son, Schumann og Wolf.