Morgunblaðið - 03.05.1980, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 03.05.1980, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MAÍ1980 Margþætt starf- semi Evrópu- ráðsins: EVRÓPA, EÍNNiG ÞíTT HEiMKYNNI m.a. að ýmaum félags- og heilbrigð- ismálum, mennta-, menningar-, umhverfis-, íþrótta- og æskulýðs- málum, laga- og dómsmálum og eru þær kostaðar af Evrópuráðinu. í þessum nefndum á ísland sæti og taka nefndarmenn þess virkan þátt í störfum nefndanna. A sviði lögfræði og samvinnu innan Evrópuráðsins á sviði rétt- arfars hefur verið haldið áfram viðleitni í þá átt að samræma lagasetningu aðildarríkjanna og auka upplýsingastreymi. Þá er sér- staklega fjallað um afbrotamál og refsirétt en nú liggur fyrir Alþingi til staðfestingar samningur um varnir gegn hryðjuverkum. Að fé- lagsmálum er starfað innan Evr- ópuráðsins og er ísland virkur aðili að félagsmálasáttmála Evrópu. Þá hafa mennta- og menningarmál frá upphafi verið viðfangsefni Evrópu- ráðsins og sett hefur verið á stofn A myndinni eru frá hægri: Jón Sæmundur Sigurjónsson deildarstjóri, Jón Thors deildarstjóri, Unnar Stefánsson viðskiptafræðingur, Sigriður Thorlacius lögfræðingur, Berglind Ásgeirsdóttir blaðafulltrúi utanrikisráðuneytisins, Niels P. Sigurðsson sendiherra og Þorvaldur Garðar Kristjánsson alþingis- maður. Ljósm. Mbl. Kristján. Evrópudaguriim á mánudaginn 5. maí HINN árlegi Evrópudagur verð- ur mánudaginn 5. maí næstkom- andi. í tilefni dagsins hefur þess verið farið á leit við sveitarfélög- in að flagga með íslenska fánan- um eða Evrópufánanum og minn- ast dagsins með þeim hætti öðr- um sem tilefni gefst til. Þetta er í 15. skipti sem dagur þessi er haldinn hátiðlegur í aðildarríkj- um Evrópuráðsins, en markmið dagsins er að minna fólk á samstarf rikjanna og á þann árangur sem náðst hefur á ýms- um sviðum, sem snertir almenn- ing í löndunum. Starfsemi Evrójauráðsins er mikil og margþætt. A vegum ráðsins starfar ráðherranefnd, en í henni á sæti einn fulltrúi frá hverju aðild- arríki, þannig að þar eru áhrif hvers ríkis tryggð, án tillits til stærðar. Á vegum ráðsins starfar einnig ráðgjafarþing, en afþví þingi eiga sæti þingmenn, kjörnir eða tilnefndir af þingum aðildarríkj- anna. Islendingar eiga þrjá fulltrúa á ráðgjafarþinginu, en fulltrúar þar eru alls 170 talsins. Á vegum ráðherranefndarinnar starfar fjöldi nefnda, sem vinna að hinum ólíkustu málum. Nefndirnar starfa ráð sem fjallar um samvinnu á sviði menningarmála. Einnig lætur Evr- ópuráðið æskulýðsmál til sín taka og stofnsett hefur verið í Strass- borg æskulýðsstofnun og æsku- lýðsmiðstöð, en ísland á fulltrúa í stjórn æskulýðsstofnunarinnar. Þá lætur Evrópuráðið heilbrigðismál til sín taka, umhverfismál og nátt- úruvernd og bæjar- og sveitar- stjórnamál. Núverandi fulltrúar Islands hjá Evrópuráðinu eru þeir Ólafur Jóhannesson utanríkisráð- herra sem sækir ráðherrafundi, Níels P. Sigurðsson sendiherra og Helgi Gíslason sendiráðunautur, en vettvangur þeirra er ráðherra- nefndin þar sem ísland á einn fulltrúa, eins og áður gat. Fulltrúar Islands í ráðgjafarþinginu eru Þorvaldur Garðar Kristjánsson al- þingismaður, Guðmundur G. Þórar- insson alþingismaður og Ólafur Ragnar Grímsson alþingismaður, en þeir eru aðalmenn. Varamenn eru Kjartan Jóhannesson alþingis- maður, Pétur Sigurðsson alþingis- maður og Ingólfur Guðnason al- þingismaður. Auk þessara sækja fjölmargir íslenskir sérfræðingar fundi ýmissa nefnda á vegum Evrópuráðsins. Gunnar Egilson klarinettleikari, Halldór Haraldsson píanóleikari og Pétur Þorvaldsson sellóleikari æfa verk Atla Heimis Sveinssonar fyrir tónleikana, en þeir verða í Bústaðakirkju kl. 17 á morgun sunnudag. Kammersveit Reykjavikur: Vetrarstarfinu lýkur með tónleikum á morgun KAMMERSVEIT Reykjavíkur lýkur um helgina sjötta starfsári sinu og heldur á sunnudag kl. 17 tónleika i Bústaðakirkju. Verður á þessum síðustu tónleikum sveitarinnar á þessu starfsári leikin tónlist eftir Egil Hovland, Atla Heimi Sveinsson og Johannes Brahms. Starfsemi Kammersveitar Reykjavíkur hefur gengið nokkuð vel, þetta er að mörgu leyti erfitt starf, en ánægjulegt engu að siður, sagði Gunnar Egilson er Mbl. ræddi stuttlega við hann um starf Kammersveitarinnar. — Starfið byggist á reglulegu tónleikahaldi yfir vetrarmánuðina og leggja hinir 14 félagar sveitarinnar alla vinnu sina fram endurgjaldslaust, en aðgangseyr- ir að tónleikum stendur undir föstum kostnaði við þá og má því segja að starfsemin standi og falli með áheyrendum. Gunnar taldi aðspurður að þeim hefði farið nokkuð fjölg- andi þessi ár, sem hlýddu reglu- lega á kammertónlist, en hins vegar væri að verða svo komið í tónlistarmálum okkar að fólk hefði vart undan að sækja tón- leika og væri mest um þá á vorin: — Þá eru flestir að skila vetrarstarfi sínu, kórar að syngja fyrir styrktarfélaga, og færa upp stórverk sem æfð hafa verið allan veturinn, skólarnir að halda nemendatónleika og svo mætti lengi telja og fólk þarf orðið að velja og hafna, því menn komast ekki yfir að sækja alla tónleika. Væri jafnvel full þörf á því að einhver aðili sæi um skipulagningu tónleikahalds hér á höfuðborgarsvæðinu. Félagar Kammersveitar Reykjavíkur gegna allir öðrum störfum og er því starfið í sveitinni viðbót við fullan vinnu- dag. Segir Gunnar að æfingar fari fram á kvöldin eða um helgar og á öðrum frídögum þegar menn geta mælt sér mót: — En til að stunda kammer- tónlist almennilega þyrfti auð- vitað að sinna því sem fullu starfi og það eru auðvitað engar aðstæður að hafa þetta að íhlaupastarfi. Einnig má benda á að við erum illa stödd hér í Reykjavík hvað varðar tónleika- sal, hér er ekkert hús sem er byggt sem tónleikahús og er það vissulega nokkur hindrun. Við höldum okkar tónleika í Bústaðakirkju, en þar er nokkuð góður hljómburður og við höfum mætt velvild kirkjunnar manna og svo er reyndar annars staðar þar sem við höfum fengið inni. En ekkert þessara húsa er byggt fyrir tónleikahald og þyrftum við að koma því inn hjá stjórn- málamönnum að nauðsynlegt væri að reisa hér tónleikahús, þá færi kannski eitthvað að ganga í málinu. En hvað með kammertónlist- ina sem slíka, leggið þið stund á hana af því ykkur sem t.d. leikið með Sinfóníuhljómsveitinni, finnst vanta hana þar? — Kammertónlistin hefur alltaf verið vanræktur þáttur hjá okkur og það mætti áreiðan- lega koma henni fyrir á hljóm- leikaskrá Sinfóníuhljómsveitar- innar, minni hópar úr hljóm- sveitinni gætu t.d. æft sérstak- lega kammertónlist fyrir ákveð- in tækifæri. Ég tel að allir tónlistarmenn verði að leggja nokkra stund á kammertónlist, hún gerir miklar kröfur til flytjenda, aðrar og kannski meiri kröfur en til hljómsveit- arvinnu. En þar sem svo mikill tími þarf að fara í brauðstritið hjá okkur fer ekki hjá því að kammertónlistin verði nánast tómstundastarf. Víðast hvar er- lendis sinna menn kammertón- listinni í fullu starfi og vonandi verður það einhvern tíma hægt hér. Uppistaðan í Kammersveit Reykjavíkur er strokkvartett og blásarakvintett, en auk þess skipa hana trompetleikari og semballeikari og kvað Gunnar vera hægt að ná yfir drjúgan hluta kammertónlistar með þessari hljóðfæraskipan. Á efn- isskránni eru verk eftir Egil Hovland, „Plutot blanche quaz- urée“ eftir Atla Heimi Sveinsson og strengjakvartett í B-dúr op. 18 eftir Johannes Brahms. Verk Atla Heimis sagði Gunnar að Den Fynske Trio hefði pantað hjá höfundi og tríóið frumflutt það á tónleikum í Danmörku og leikið það í Kópavogi, en segja mætti að nú væri það frumflutt í Reykjavík. Sagði Gunnar að verkinu hefði verið mjög vel tekið í Danmörku og það leikið mjög víða. Frá útifundinum á Lækjartorgi. Ljósm. Rax. Hátíðahöldin 1. mai FYRSTI maí var haldinn hátíðlegur viða um land að þessu sinni eins og venja hefur verið til undanfarin ár. Veður var hið besta og tókust háíðahöldin með ágætum. í Reykjavík voru haldnir þrir útifundir, auk kröfugöngu og annarra funda, en þátttaka í hátiðahöldunum var minni en oft áður. Á Lækjartorgi gengust fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Reykjavík, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja og Iðnnema- sambandið fyrir útifundinum. Þar fluttu ávörp Ásmundur Stefánsson, Guðmundur Árni Sigurðsson, Kristín Tryggvadótt- Útifundur Rauðrar verkalýðseiningar við Miðbæjarskólann.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.