Morgunblaðið - 03.05.1980, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MAÍ1980
19
Framboð Vigdísar Finnbogadóttur:
Stuðningsmenn opna að-
alskrifctofu í Reykjavik
STUÐNINGSMENN Vigdísar Finn-
bogadóttur til forsetakjörs hafa opnað
aðalskrifstofu sína að Laugavegi 17 í
Reykjavík.
I aðalframkvæmdanefnd eru: Svala
Thorlacius lögfræðingur og Tómas
Zoega framkvæmdastjóri, sem eru
forsvarsmenn fyrir nefndina, Gunnar
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Starfsmannafélags ríkisstofnana,
Grétar Þorsteinsson, formaður
Trésmíðafélags Reykjavíkur, Ingólfur
Þorkelsson skólameistari, Jónas Jóns-
son búnaðarmálastjóri og Þór Magn-
ússon þjóðminjavörður.
Ritnefnd stuðningsmanna Vigdísar
skipa: Gunnar Stefánsson bókmennta-
ráðunautur (áb), Guðríður Þorsteins-
dóttir, lögfræðingur og formaður jafn-
réttisráðs, Helgi Pétursson tónlistar-
maður og ritstjóri, Sigríður Erlends-
dóttir BA í sagnfræði og Sveinn Skorri
Höskuldsson prófessor. Forstöðu-
maður skrifstofunnar er Svanhildur
Halldórsdóttir og með henni starfar
álitlegur hópur annarra stuðnings-
manna.
Framkvæmdanefndir eru þegar
komnar á stofn í ýmsum landshlutum
og hafa skrifstofur verið opnaðar bæði
á Selfossi og í Neskaupstað.
(Fréttatilkynning).
Framboð Alberts Guðmundssonar:
Framkvæmdanefnd kjörin
fyrir Hveragerði og Ölfus
SÍÐASTLIÐINN miðvikudag
efndu stuðningsmenn Alberts
Guðmundssonar til fundar í
Hveragerði.
Þrjátíu manns sóttu fundinn og
voru málin rædd, og lagður var
grundvöllur að kosningastarfinu í
Hveragerði og í Ölfusi.
Þau hjónin Albert Guðmunds-
son og Brynhildur Jóhannsdóttir
sátu fundinn og ávörpuðu fund-
argesti.
I framkvæmdanefnd fyrir
Hveragerði og Ölfus voru kjörin:
Magnús Agústsson, Jónas
Björnsson, Helgi Þorsteinsson,
Pálína Kjartansdóttir, Bjarni
Snæbjörnsson, Þorsteinn Matth-
íasson, Ingimar Sigurðsson í
Fagrahvammi og Emilía Friðriks-
dóttir, Fagrahvammi.
(Fréttatilkynning)
Albert og Brynhildur i Hveragerði.
„Trú og skáld“ í Skálholti
NÚ UM helgina er haldinn í Skálholti fundur eða ráðstefna um efnið
„Trú og skáld“, en það verður sérefni næsta tölublaðs Kirkjuritsins
sem gefið er út af Prestafélagi íslands. Fundurinn hófst í gærkvöldi,
og lýkur á morgun, sunnudag.
Að sögn séra Bernharðs Guð-
mundssonar var átta skáldum og
rithöfundum boðið til fundarins,
auk hóps guðfræðinga og nokk-
urra bókmenntafræðinga. Dr.
Gunnar Kristjánsson flutti viða-
mikið inngangserindi um trúarleg
viðfangsefni í skáldskap sem í
breiðustum skilningi í íslenskum
bókmenntum. Þá lesa skáldin og
rithöfundarnir upp úr verkum
sínum og síðan eru umræður og
samtöl manna á milli um efnið.
Bernharður sagði skáldin sem
þarna eru um helgina vera á
ýmsum aldri og með ólíkan bak-
grunn. Þarna væri fyrst og fremst
um það að ræða að menn hittust
og ræddu þessi mál á breiðum
grundvelli, en það sem fram kæmi
eða hluti þess yrði síðan birt í
Kirkjuritinu.
Ingólfur Guðbrandsson forstjóri, Björg Jónsdóttir og Hilmar Jónsson veislustjóri á Hótel Loftleiðum.
v Ljóvsm. Mbl. Emilía.
Itölsk sýning og skemmtun á Loftleiðum:
ítalskt vor á íslandi
ÍTÖLSK ferðamálayfirvöld
ásamt Ferðaskrifstofunni Útsýn
og Hótel Loftleiðum efna til
fjölbreyttrar dagskrár að Hótel
Loftleiðum dagana 8.—11. þ.m.
Straumur ferðamanna eykst
stöðugt til ítaliu, enda er hún
eitt vinsælasta ferðamannaland
heimsins sakir náttúrufegurðar,
listar sinnar og sögu. Ferða-
skrifstofan Útsýn hefur haldið
uppi reglubundnu leiguflugi til
Ítalíu sl. 6 ár við miklar vinsæld-
ir, og yfir 10 þúsund íslendingar
hafa gist baðstrandarbæinn
Lignano, auk þeirra. sem valið
hafa aðra áfangastaði i landinu
og t.d. tekið þátt i skipulögðum
kynnisferðum um Ítalíu eins og
List og Saga.
Á blaðamannafundi sem hald-
inn var í tilefni „ítalska vorsins"
skýrði Ingólfur Guðbrandsson
forstjóri Utsýnar frá dagskrá
þeirri sem boðið verður upp á á
ítölsku vordögunum.
Fjölþætt dagskrá
Um 20 ítalir munu koma til
landsins á næstu dögum til að
vinna að undirbúningi „ítalska
vorsins" og uppsetningu ferða- og
vörusýningar í tengslum við það.
Eru í þeim hópi ferðamálafröm-
uðir, tízkuhönnuður, matreiðslu-
menn og þekktir tónlistarmenn.
Það verður því suðræn stemmn-
ing ríkjandi á Loftleiðahótelinu á
þessum ítölsku vordögum, þar
sem reynt verður að bregða upp
ítalskri þjóðlífsmynd á íslenzkri
grund.
Sýning á ítölskum tízku-
og iðnaðarvarningi
Á næstu dögum verður sett upp
í Krystalssal Loftleiða sýnishorn
af þeim tegundum ítalsks iðn-
varnings, sem mest orð fer af, s.s.
tízkuvarningi ýmiss konar, skóm
og leðurvörum, húsgögnum, kera-
mik, leikföngum o.s.frv. Um 100
ítalskir framleiðendur taka þátt í
sýningunni, sem opnuð verður
formlega að kvöldi 8. maí og
verður síðan opin almenningi til
sunnudagskvölds 11. maí.
Veizluhöld með
ítölsku sniði
ítalskur matur og vín er orð-
lagt fyrir gæði. Það geta gestir
Loftleiðahótelsins sannreynt á
„ítölsku vordögunum", því að
matreiðslumeistarar frá einum
þekktasta matsölustað Feneyja
munu stjórna matseldinni. Lyst-
aukar verða veittir við komuna á
undan kvöldverði í Víkingasal.
Meðan gestir gæða sér á ítölskum
krásum og vínum fara fram
skemmtiatriði. Tízkufrömuður-
inn Roberto Beghi mun stjórna
sýningum á ítölskum tízkufatnaði
frá framleiðendunum Marchiol,
Piubello, Miola, Pierre Manteau,
Tellini og Dr. Job.
Frægir skemmtikraftar
ítalski tenórinn Pietro Batt-
azzo og sópransöngkonan Maria
Loredan ásamt píanóleikaranum
og hljómsveitarstjóranum Luigi
Toffolo munu skemmta gestum
með flutningi vinsællar tónlistar
úr ítölskum söngleikjum. Bæði
eru í tölu færustu söngvara ítala
í dag. Pietro Battazzo syngur
jöfnum höndum við frægustu
óperuhús Ítalíu, s.s. La Scala, á
Salzburg listahátíðinni, Grand
Metropolitan í New York eða
Colon í Buenos Aires, og Maria
Loredan hefur unnið mörg al-
þjóðaverðlaun söngvara og er
þekkt útvarps- og sjónvarps-
stjarna.
Land, þjóð og
þjóðhættir
„Italskt vor á íslandi" markar
tímamót í samskiptum þjóðanna,
því að jafnítarleg kynning á
Italíu hefur ekki áður farið fram
hér á landi. Aðstandendur sýn-
ingarinnar vænta þess að sem
flestir borgarbúar taki þátt í
henni með einhverju móti, bæði
með því að sækja hana og inn-
flytjendur ítalsks varnings eru
hvattir til að hafa hann sérstak-
lega í frammi í fyrirtækjum
sínum þessa daga, skreyta á
ítalska vísu og draga ítalska
fánann að húni.
Dagana 10. og 11. maí verður
Italía kynnt í máli og myndum
með kvikmyndasýningum í ráð-
stefnusal Loftleiðahótelsins og
sunnudaginn 11. maí verður sér-
stök barnahátíð síðdegis með
skemmtiatriðum og leikfanga-
happdrætti. Auk þess fá allir
gestir „vordaganna" ókeypis
happdrættisnúmer, sem dregið
verður úr í lokin og er vinningur-
inn ferð til Gullnu strandarinnar
Lignano fyrir tvo með Útsýn.
ir, Kristján Ottósson og Þorlákur Kristinsson. Fundarstjóri var
Thorvald Imsland.
Rauð verkalýðseining gekkst svo fyrir útifundi við Miðbæj-
arskólann, og Sameining fyrir fundi á Hótel íslandsplaninu, eða
Hallærisplaninu.
Á fundunum öllum voru flutt ávörp, og sungnir voru
baráttusöngvar, auk þess sem lúðrasveitir léku. Eftir fundina
var síðan boðið til kaffidrykkju á nokkrum stöðum með
hefðbundnum hætti.
Útifundurinn á Hallærisplaninu.
Frá opnu húsi i Valhöll fyrsta maí.
Myndina tók Ragnar Axelsaon.
Vel heppnuð 1. maí dagskrá í VaJhöll
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN Heimdallur, Hvöt og óð-
inn gengust fyrir opnu húsi i Sjálfstæðishúsinu
Valhöll hinn fyrsta maí.
Boðið var upp á kaffi og
meðlæti, og flutt ávörp i tilefni dagsins. Þótti þetta
nýmæli i starfsemi félaganna takast vel, að sögn
Mörtu Guðjónsdóttur á skrifstofu Hiemdallar, og
f jölmargt fólk lagði leið sina i Valhöll siðdegis.
Fyrir nokkrum árum var jafnan opið hús í Valhöll
fyrsta maí, en svo hefur þó ekki verið undanfarin ár,
meðal annars vegna flutninga og breytinga hjá
Sjálfstæðisflokknum. Nú er hins vegar ætlunin að
gera þetta „opna hús“ á fyrsta maí fastan lið í starfi
félaganna.
Ávörp fluttu þau Guðmundur H. Garðarsson,
Bárður Árni Steingrímsson og Björg Einarsdóttir.