Morgunblaðið - 03.05.1980, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MAÍ1980
Minning:
Andrés Karlsson
frá Kollsvík
Fæddur 5. nóvember 1901
Dáinn 20. apríl 1980
Fundum okkar Andrésar
Karlssonar bar fyrst saman úti á
miðjum Patreksfjarðarflóa um
hádegisbil í júlí 1961.
Þann dag var einstök blessuð
blíða um allan sjó en ekki að sama
skapi gott fiskirí, og við félagar á
Klukkutindi suðum kjötsúpu á
meðan suðurfailið bar okkur í
áttina fyrir Blakk ásamt annarri
trillu skammt sunnanundan; á
henni var einn mann að sjá. Fyrir
matinn kipptum við að trillu
þessari og spurðum frétta, buðum
síðan bátsverjanum til súpunnar
með okkur. Bátnum Farsæli var
tyllt við Klukkutind og um borð
smeygði sér höfðingi skipsins,
smiður þess, eigandi og áhöfn í
einni persónu, skakarinn Andrés
Karlsson frá Kollsvík.
Þetta varð drjúglöng máltíð,
henni lauk ekki fyrr en út af
Kollsvíkinni sunnanverðri, því
gesturinn var hressilegur og
margfróður, kunni skil á allri
náttúru þessa landshluta bæði
dauðri og lifandi, til lands og
sjávar, og fannst auðsæilega ekk-
ert eðlilegra en að ræða við
aðkomustráka að sunnan eins og
væri þeir gamalreyndir færa-
menn. Um tvöleytið kulaði og þá
fór fiskur að gefa sig til svo
Andrés kvaddi, snaraði sér yfir í
Farsæl og setti út færi.
Fundum okkar bar oft saman
þetta sumar og hið næsta, bæði á
miðum og í landi, og það var
ánægjulegur kunningsskapur, en
síðan lágu leiðir Klukkutinds-
manna til annarra verka en skak-
útgerðar fyrir vestan.
Tíminn líður svo til sumarsins
1969. Þá er undirritaður allt í einu
kominn á Patreksfjörð við þriðja
mann og við bönkum upp á hjá
Andrési Karlssyni frá Kollsvík:
Gætum við fengið að búa til um
þig kvikmynd fyrir sjónvarpið?
Þessari undarlegu og fyrirvara-
lausu beiðni hafði Andrés undir-
eins gaman af. Hún höfðaði beint
til greindar hans, barnslegrar
einlægni og forvitni. Merkileg
fyrirgreiðsla forsjónarinnar færði
okkur svo nákvæmlega það veður,
sem til þurfti. Afraksturinn varð
heimildamyndin ANDRÉS. Ein og
sér er það mynd um Andrés
Karlsson. En almennt er hún um
íslenska sjónenn af aldamóta-
kynslóð, uppvöxt þeirra og ævi-
skeið, viðhorf og skapgerð. Vand-
fundinn hefði verið í hlutverkið
betri fulltrúi þessa hóps. Og með
þessum hætti lagði Andrés óvænt
land undir fót. Hann fór í róður
sinn einskipa á Farsæli frá öllum
sjónvarpsstöðvum á Norðurlönd-
um og því mátti kynnast af eigin
raun handan hafsins hversu um-
svifalausa samsvörun almennir
áhorfendur fundu í þessum hóg-
væra, sjálfum sér samkvæma ein-
fara og erfiðismanni að vestan.
Nú er Andrés Karlsson allur.
Ævi hans endaði á þeim slóðum,
sem hann átti hvað oftast leið um
í landi. Ferðum hans á Farsæli er
lokið, en hafi trú hans reynst rétt
kunna önnur för að hafa beðið
hans, þau er ferja vegmóða yfir
stríðar rastir milli ókunnra
stranda. Það fylgja honum kveðj-
ur, með þökk fyrir ógleymanlega
viðkynningu og samverustundir,
frá færakörlum og kvikmynda-
gerðarmönnum að sunnan.
Hinrik Bjarnason
Sigrún Bernótusdóttir
Flateyri — Minning
Fædd 10. desember 1950
Dáin 25. apríl 1980
Margs er að minnast.
margt er þér að þakka.
Guði aé lof fyrir liðna tið.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin strið.
(V.Briem.)
Það var mikil sorg í litla
þorpinu okkar annan dag í sumri,
þegar sú harmafregn barst að
vinkona okkar elskuleg væri látin.
Við vissum það öll að hún var
mikið veik, en við trúðum aldrei
öðru en að henni myndi batna.
Allt var gert til að hjálpa henni og
kom lát hennar mjög á óvart. Nú
trúum við því að henni sé batnað
þar sem hún er hjá guði vorum
sem læknar öll sár.
Sigrún Bernótusdóttir var fædd
10. desember 1950, dóttir Róseyjar
Helgadóttur og Bernótusar Krist-
jánssonar. Sex mánaða gömul var
hún tekin í fóstur af þeim elsku-
legu hjónum, Elínu Kristínu
Bjarnadóttur og Hermanni Krist-
jánssyni. Þau hjónin voru barn-
laus og ólst Sigrún upp hjá þeim
sem þeirra eigin dóttir og var hún
augasteinninn þeirra og perlan.
Þann 27. desember 1969 gekk
Sigrún að eiga eftirlifandi mann
sinn, Þorstein Guðbjartsson frá
Hesti í Önundarfirði, og eiga þau
tvo syni, Hermann Björn, 10 ára,
og Helga, 3 ára. Sigrún átti dóttur
áður, Elínu Kristínu Skarphéðins-
dóttur, 12 ára, og er Þorsteinn
henni sem besti faðri.
Sigrún var mjög félagslynd
stúlka og mikið var notalegt að
koma í eldhúsið til hennar og
spjalla við hana. Oft var æði
margmennt þar og margt skrafað
og mikið hlegið. Sigrún starfaði
mikið í Kvenfélaginu Brynju. Var
hún mjög áhugasöm um að félagið
blómstraði og eru þær ófáar kon-
urnar, sem gengu í félagið að
hennar áeggjan. Það var líka
næstum alveg sama hvað gert var
í félaginu, alltaf var Sigrún með.
Ráðagóð, jákvæð og með ákveðnar
skoðanir sem hún var ekki féimin
við að láta í ljós. Sigrún var
söngelsk og söng í kirkjukórnum
um árabil. Nú í vetur, þegar hún
var langt leidd af þeim sjúkdómi,
sem dró hana til dauða, tók hún
þátt í að æfa söngva með nokkrum
konum í þorpinu, sem þær kenndu
svo í sunnudagaskólanum.
Sigrún lifir í minningu okkar
sem tápmikil og hjálpsöm stúlka.
Hún var vinur vina sinna, traust
og hlý, og inni fyrir sló viðkvæmt
hjarta, sem tók erfiðleika annarra
nærri sér.
Sárastur er söknuður ungra
barna, eiginmanns hennar og full-
orðinna fósturforeldra, sem sjá á
bak sinni elskulegu dóttur. Biðjum
við algóðan guð að styrkja þau í
sorg sinni.
— Blessuð sé minning hennar.
Kveðja frá Kvenfélaginu
Brynju, Flateyri.
+
Þökkum auösýnda samúö viö andlát og jaröarför eiginmanns míns
og fööur okkar,
KARLS JÓNASSONAR,
Eyrarbakka.
Sérstakar þakkir færum viö starfsfólki á A 6 á Borgarsjúkrahúsinu
fyrlr góöa aðhlynningu.
Fyrlr mína hönd og barna mlnna.
Aöalheiöur Gestsdóttir.
t
Innilegar þakkir sendum viö öllum þeim, sem auösýndu okkur
samúö viö fráfall og jaröarför
JÓNS SIGURÐSSONAR,
fyrrverandi bankafulltrúa.
Fyrir hönd aðstandenda,
Anna S. Þórarinsdóttir,
Ferjuvogi 17.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og
útför eiginkonu minnar, móöur, tengdamóöur og ömmu,
ÞORBJARGAR SIGURÐARDÓTTUR,
Sólheimum 18.
Andrés Finnbogason,
Þorsteinn Jónsson,
Elva Andrésdóttir,
Andrés Þorsteinsson.
+
Þökkum auösýnda hlýju og vinsemd viö fráfall eigfnmanns míns,
fööur okkar, tengdafööur, mágs og afa,
ÓFEIGS EIRÍKSSONAR,
bæjarfógeta og sýslumanns,
Akureyri.
Erna Sigmundsdóttir,
Rut Ófeigsdóttir, Hólmsteinn T. Hólmsteinsson,
Sigmundur E. Ófeigsson, Ófeigur örn Ófeigsson,
Soffía Ófeigsdóttir, Lérus R. Blöndal,
Guömundur Sigmundsson,
og barnabörn.
+
Eiginkona mín og móölr okkar,
ARNBJÖRG JÓNSDÓTTIR,
Laugarásvegi 75,
andaðlst 1. maí aö Hátúni 10 B.
Magnús Stefánsson
og börn.
+ Móöir okkar og tengdamóöir,
GUÐBJÖRG HALLGRÍMSDÓTTIR,
andaöist 1. maf.
Þorgeröur Bjarnadóttir, Gunnar H. Valdimarsson,
Hervör Jónasdóttir, Hallgrfmur Jónasson. Helgi Ágústsson,
+
ERLENDUR HELGASON,
arkitekt,
Ljósheimum 9, Reykjavfk,
lézt á Landspítalanum þann 20. aprfl. Jaröarförin hefur fariö
fram.
Atli Erlendsson,
Pála S. Árnadóttir,
Hjördfs Helgadóttir,
Unnur Helgadóttir,
Snorri Helgason.
+
Eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóöir og amma,
ÞÓRHILDUR B. HALLGRÍMSDÓTTIR,
Snorrabraut 35,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju, mánudaginn 5. maí kl. 3. e.h.
Þeir sem vildu minnast hinnar látnu, vlnsamlegast láti líknarstofn-
anir njóta þess.
Atli Þorbergsson,
Jóhannes Atlason, Lára Rafnsdóttir,
Þorbergur Atlason, Halldóra Helgadóttir,
Kristinn Atlason,
og barnabörn.
+
Útför móðurbróöur míns,
LÁRUSARJÓELSSONAR,
Elliheimilinu Grund,
sem andaöist aö kvöldi 25. aprfl, fer fram mánudaginn 5. aprfl kl.
10.30. í Fossvogskirkju.
Halley Sveinbjarnardóttir.
Faöir minn, + JÓHANN G. KRISTJÁNSSON,
frá Blönduósi, Grettisgötu 20 C,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, mánudaginn 5. maí kl.
1.30.
Fyrir hönd vandamanna,
Alda Jóhannsdóttir.
+
Þökkum sýnda samúö viö fráfall og útför,
HALLDÓRS SIGURÐSSONAR,
frá Efri-Þverá.
Sérstaklega viljum vlö þakka hjúkrunarfólki og læknum við
Sjúkrahúsiö á Hvammstanga, fyrir þá góöu umönnun er það sýndi
honum í löngum veikindum.
Sigrfóur Halldórsdóttir,
Hólmfríöur Löve,
Siguröur Halldórsson.
+
Hjartans þakkir færum viö öllum þeim sem sýndu okkur samúö og
vinarhug viö andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og
iangömmu,
SVEINSÍNU A. SIGURDARDÓTTUR,
Snældubeinstööum,
Reykholtsdal.
Jakob Magnúason,
Helgi Magnússon,
Siguröur Magnússon,
Kristfn Magnúsdóttir,
Herdfs Magnúsdóttir,
börn og barnabörn.
Svava Auöunsdóttir,
Ragnhildur Gestsdóttir,
Hrafnhildur Sveinsdóttir,
Arnoddur Tyrfingsson,
Guöjón Haraldsson,