Morgunblaðið - 15.05.1980, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MAI 1980
27
HVALVERTÍÐIN heíst að venju um næstu mánaðamót. Unnið er af fullum krafti við að gera
hvalbátana klára, en fjórir bátar verða gerðir út á veiðarnar eins og undanfarin ár. Einnig er
undirbúningur í fullum krafti í hvalstöðinni í Hvalfirði. Myndin var tekin við Reykjavíkurhöfn í dag.
Ljósm. Mbl. Kristján.
Efni í Hrauneyjafosslínuna:
Heildarf járhæð til-
boða 2200 milljónir
ÚTBOÐ á efni í 220 kv
Hrauneyjafosslínu voru
auglýst í desember 1979.
Efnið, sem hér um ræðir
er: stál í möstur, boltar,
stagvír, leiðari og einangr-
ar. Tilboð í einangra og
leiðara voru opnuð 14.
marz s.l., en í stál, bolta og
stagvír 21. marz.
Tilboðin hafa nú verið yfirfai;in
og standa nú yfir viðræður við
lægstbjóðendur um afhendingu á
áðurnefndu efni, en þau eru:
Eucomsa, Spáni, stálturnar;
Balestri, Ítalíu, boltar; Fical,
Frakklandi, stagvír; Gránges Met-
allverken, Svíþjóð, leiðari; Cera-
ver, Frakklandi, einangrar.
Heildarfjárhæð tilboða miðað
við gengi á opnunardegi er 2200
milljónir.
I janúar s.l. voru auglýst útboð
á undirstöðum fyrir fyrstu_þrjá
verkhluta Hrauneyjafosslínu. Til-
boð voru opnuð 7. marz s.l. og
hefur þegar verið samið við lægst-
bjóðendur, eins og fram hefur
komið í Mbl. Þeir eru: Vörðufell
h.f. fyrir verkhluta 1, Ræktunar-
samband Flóa og Skeiða og Vörðu-
fell h.f. fyrir verkhluta 2 og
Aðalbraut h.f. fyrir verkhluta 3.
Heildarfjárhæð verksamninga
er 930 m.kr.
Eftir er að bjóða út undirstöðu-
byggingu fyrir verkhluta 4 og 5.
Arnarflug bæt-
flugliðum
Hreinn við eitt verka sinna.
Sýnir 70 lista-
verk á Akranesi
Akranesi. 14. maí.
ir við
„VIÐ verðum að fara út í þessa
fjölgun á starfsmönnum vegna
samnings okkar um leiguflug í
Jórdaníu i sumar, en til þess
flugs höfum við tekið á leigu
flugvél frá Bandaríkjunum,
Boeing 707,“ sagði Halldór Sig-
urðsson hjá Arnarflugi er Mbl.
innti hann eftir ástæðum þess að
Á TÍMUM hækkandi orkuverðs
er sifellt verið að leita leiða til að
spara orku og í því sambandi
kynntu Philipsverksmiðjurnar
hollenzku fyrir skömmu nýja
gerð af ljósaperum, svokallaða
„SL“-peru, sem sögð er eyða
aðeins um fjórðungi þeirrar raf-
orku sem venjuleg, sambærileg
pera þarf, auk þess sem hún á að
endast fimm sinnum lengur.
Þrátt fyrir svo litla orkuþörf er
ljósmagnið ekki minna en í vénju-
legum perum sem framleiddar
hafa verið á undanförnum árum.
Þessi nýja „SL“-pera er í raun
_______SL*t8
*M9O0km*ni22QV'-50Hí
Arnarflug auglýsti í gær eftir
flugmönnum, flugfreyjum og
flugvirkjum til starfa hjá fyrir-
tækinu.
„Við ætlum að ráða til okkar 20
nýjar flugfreyjur til að taka þátt í
þessu leiguflugi og því er ekki um
framtíðarvinnu að ræða nema úr
rætist með enn frekari verkefni.
og veru smækkuð útgáfa af svo-
kölluðum „fluorescent“-perum,
sem einungis hafa verið til langar
og sívalar í stór ljós.
Varðandi flugmennina hefur enn
ekki verið ákveðið hversu margir
verða ráðnir, en þeir sem verða
ráðnir munu fara í að fljúga minni
vélum félagsins á innanlandsleið-
um og þeir flugmenn, sem flogið
hafa þeim í vetur, fara svo á
leiguþotuna, þeir fara reyndar í
þjálfun á hana til Bandaríkjanna
innan skamms.
Það er ennfremur ekki ljóst
ennþá hversu margir flugvirkjar
verða ráðnir, én þeir flugvirkjar,
sem unnið hafa hjá félaginu í
vetur við viðhald, munu fara sem
flugvélstjórar á leiguvélina og þeir
sem ráðnir verða munu fara í
viðhaldið hér,“ sagði Halldór
ennfremur.
Þá sagði Halldór að sama gilti
um flugmennina og flugvirkjana
og með flugfreyjurnar, að ekki
væri um trygga vinnu að ræða
eftir að leigutímanum í Jórdaníu
væri lokið. Það myndi ráðast á
næstu vikum og mánuðum.
HREINN Elíasson, listmálari,
opnar sýningu í Bókhlöðunni við
Heiðarbraut í dag, en á sýning-
unni verða 70 verk, olíuverk,
mósaik og pastelmyndir.
Verkin eru öll unnin á síðustu
tveimur árum. Hreinn hóf mynd-
listanám í Myndlistaskólanum ár-
ið 1954. Hreinn hélt síðan áfram
námi í Handíðaskólanum árin
1958—1960 og síðar í Hamborg og
Glasgow veturna 1961—1962.
Þetta er tíunda einkasýning
Hreins, en auk þess hefur hann
tekið þátt í fjölmörgum samsýn-
ingum.
Álit nefndarinnar:
Ríkið greiði Skúla á Laxa-
lóni 96,5 milljónir í bætur
Nefndin hefur ýmislegt við þátt emb-
ættis og framkvæmdavalds í huga
NEFNDIN, sem Alþingi fól það verkefni að meta tjón Skúla
Pálssonar á Laxalóni, og frá var skýrt í Mbl. í gær, leggur til að hið
opinbera bæti tjón hans með því að greiða honum 69,5 milljónir
króna. Að sögn Árna Gunnarssonar aiþingismanns er augljóst af
skýrslunni, að nefndin hefur ýmislegt við þátt embættis- og
framkvæmdavalds i máli þessu að athuga. Lýst er baráttu Skúla i
fiskeldismálum um þriggja áratuga skeið og þrautseigju hans þrátt
fyrir margvíslegan andbyr og takmarkaðan skilning stjórnvalda. Á
einum stað í skýrslunni segir svo: „Hvernig það hefur mátt gerast að
regnbogasilungsstofn Skúla Pálssonar hafi verið að mestu inni-
lokaður og i sóttkví nærfeilt þrjá áratugi er vægast sagt
torskiljanlegt og um leið áminning fyrir framtíðina.“
Niðurstöður nefndarinnar eru
annars þessar:
Hið opinbera bæti Skúla Páls-
syni það tjón, sem hann hefur
þegar orðið fyrir og mun verða
fyrir vegna sjúkdómsvandamála
þeirra, sem upp komu í stöðinni
að Laxalóni á árunum 1976—’77
með eftirfarandi fjárhæðum:
• 30,2 milljónir króna, sem er
áætlað tjón vegna missis á
hrognasölu.
► 5,2 milljónir króna, sem er
áætlað tjón vegna fellingar á
um 100 þúsund ársgömlum
regnbogasilungsseiðum, fram-
lagður kostnaður eingöngu.
32 milljónir króna, sem er
áætlað og metið framlag miðað
við sanngjarna skiptingu að
dómi nefndarmanna á tjóni
vegna skerðingar á laxaseiða-
framleiðslu árið 1979—’80.
• 2,1 milljón króna vegna bygg-
ingar á girðingu að Laxalóni
samkvæmt tillögum Sigurðar
Helgasonar fisksjúkdóma-
fræðings. Reiknað er með
byggingu girðingarinnar árið
1981.
Auk þessa verði Skúla Pálssyni
veitt lán til þess að tryggja
eðlilega uppbyggingu þess áfanga
fiskræktarstöðvarinnar að
Þóroddsstöðum, sem gerð hefur
verið grein fyrir. Lánið verði eigi
með óhagstæðari kjörum en þeim
sem í gildi eru hjá Fiskræktar-
sjóði.
Þingsályktunar-
tillagan
Nefndin, sem vann að skýrslu-
gerðinni, var kosin á Alþingi á
grundvelli þingsályktunar, sem
samþykkt var 20. maí 1979.
Þingsályktunin hljóðar svo:
Alþingi ályktar: 1. Skipuð verði
þriggja manna nefnd, sem falið
verði að vinna að eftirfarandi
verkefnum. Að meta það braut-
ryðjandastarf, sem Skúli Pálsson
hefur unnið við eldi á regnboga-
silungi hér á landi, að meta tjón
það sem kann að verða vegna
niðurskurðar á regnbogasil-
ungsstofni Skúla Pálssonar, þar
til nýr stofn er orðinn kynþroska
og arðbær, að meta verðmæti
stöðvarinnar að Laxalóni með
það fyrir augum að Alþingi sam-
þykki að ríkið festi kaup á henni,
að gera tillögur um byggingu
fiskræktarstöðvar að Þórodds-
stöðum II í Ölfusi og hvernig þar
megi halda áfram þeirri fiskrækt,
sem nú er í Laxalóni.
2. Væntanlegur kostnaður
vegna máls þessa verði greiddur
úr ríkissjóði.
í nefndinni áttu sæti dr. Jónas
Bjarnason, Kristján Gíslason og
Jón Kr. Sveinsson. Þeir skiluðu
skýrslunni til forseta Sameinaðs
Alþingis, sem síðan framsendi
hana til landbúnaðarráðherra og
dreifði henni til þingmanna.
„SLt4-peran frá Philips:
Endist fimm
sinnum lengur