Morgunblaðið - 15.05.1980, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MAI 1980
+
Konan mín
GUÐRÚN SIGURÐARDÓTTIR
andaðist 13. þ.m. á heimili sínu að HJallavegi 56, Reykjavík.
Ingvar Ingvarsson.
+
Eiginmaður minn og faöir okkar,
BJÖRN JÓHANNSSON,
fyrrum vegaverkstjóri,
Geitlandi 43,
Reykjavík
er látinn.
Ingigeröur A. Kristjánsdóttir,
Kristjana Björnsdóttir,
Kristján Björnsson,
Agnes Björnsdóttir.
t
ÞORBJÖRG EINARSDÓTTIR
frá Bakka
Akranesí
lést í Landakotsspítala 14. maí.
Systkini hinnar látnu.
+
Stjúpmóðir okkar,
ANNA SIGRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR,
Njörvasundi 32,
andaöaist á Heilsuhæli N.L.F.Í. í Hverageröi, þriðjudaginn 13. maí.
Guöríður Steinsdóttir,
Árni Steinsson.
+
Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi,
ÁSTVALDUR HELGI ÁSGEIRSSON,
Gnoöarvogí 68,
veröur jarðsunginn föstudaginn 16. maí kl. 15.00 frá Fossvogs-
kirkju.
Ásta Ágústsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Faöir okkar, tengdafaöir og afi
GUDBRANDUR TÓMASSON,
Borgarnesi,
veröur jarösunginn laugardaginn 17. maí kl. 14.00 frá Borgarnes-
kirkju.
Birgir Guöbrandsson,
Siguröur Guöbrandsson, Helga Þorkelsdóttir,
Sigríöur Guðbrandsdóttir, Þorvaldur Ólafsson,
Gísli Guðbrandsson, Guöbjörg Ólafsdóttir,
Sigursteinn Guðbrandsson, Kristín Þóröardóttir,
Margrét Jónsdóttir
og barnabörn.
+
Utför
KRISTÍNAR GUÐRÚNAR BJARNADOTTUR,
frá Heiöi á Síöu,
sem lést 7. maí veröur gerö frá Prestbakkakirkju á Síöu
laugardaginn 17. maí kl. 3 e.h.
Ferö frá Umferðarmiöstööinni kl. 8 f.h.
Fyrir hönd aöstandenda Róga Bjöfk Þorbjarnard6ttjr
Bjarni Gottskálksson.
+
Bróöir minn,
SIGURJÓN GUÐMUNDSSON
frá Hólakoti
veröur jarösunginn frá Eyvindarhólakirkju laugardaginn 17. maí kl.
14.30.
Sigfús Guðmundsson
og vandamenn.
Bróöir okkar og fósturbróöir
PÁLL PÁLSSON,
Þuríöarbraut 5,
Bolungarvík,
veröur jarösunginn frá Hólskirkju í Bolungarvík, laugardaginn 17.
Sigriður Pálsdóttir,
Jóhann Pálsson,
Siguröur Pálsson.
Guðlaugur Sigurðs-
son — Minning
Fæddur 10. nóvember 1913
Dáinn 4. maí 1980
Það var föstudagur 2. maí 1980.
Það hafa verið hlýindi og mjög
gott veður um Austur- og Norður-
land. Allt er svo fagurt, jörðin
grænkar og sumarið virðist vera
komið en á skammri stund breyt-
ast veður í lofti, aftur komin
norðanátt og kaldir loftstraumar
leika um landið. Það syrtir víðar
að en í okkar fögru náttúru. Vinur
minn Guðlaugur Sigurðsson er
heima hjá sér og segir við konu
sína að hann sé hálflasinn og ætli
að fara að leggja sig. Það líður
nokkur stund, kona hans fer að
athuga hann og finnur hann
liggjandi á gólfinu, hann er með-
vitundarlaus. Hann er fluttur til
Neskaupstaðar og þar andast
hann 4. maí. Sorgin leggst þungt
yfir ástvini hans sem vonlegt er.
Fallinn er góður og elskulegur
eiginmaður og faðir. Okkur finnst
stundum erfitt að skilja þegar
menn fara svo skyndilega og á
góðum aldri, en Guð, sem öllu
ræður, sér hvað er best og verði
hans vilji.
Guðlaugur var dagfarsprúður
maður, góður verkmaður hvort
heldur Var á tré eða járn, hann var
mjög góður smiður og vann mikið
fyrir sitt byggðarlag. Hann var
hreppsnefndarmaður og í stjórn
Kaupfélags Fáskrúðsfjarðar.
Hann var í skólanefnd og safnað-
arformaður Búðakirkju og með-
hjálpari í mörg ár. Hann var mjög
söngelskur maður, enda var hann
fremstur í stjórn kirkjukórsins.
Ég, sem þessar línur rita, þekkti
hann best í gegnum áhuga hans á
söng. Við áttum þar leið saman og
var gott að vera með honum, hann
var svo lagvís, traustur og öruggur
þar sem og annars staðar. Ég
minnist elskulegra og góðra
stunda sem við áttum saman, og
sungum við þá oft við ýmis
+
Útför mannsins míns, fööur, tengdafööur, afa og langafa
BALDVINS SIGURÐSSONAR
Drápuhlíö 31
fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 16. maí kl. 14 e.h.
Kristín Siguröardóttir
Bergljót Baldvinsdóttir Arnþór Kristjánsson
Siguröur V. Baldvinsson
Hrafnhildur Baldvinsdóttir
Valborg E. Baldvinsdóttir Oddur Guðmundsson
Herdís D. Baldvinsdóttir Sveinn Ágústsson
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaöir og afi
EGILL ÞORGILSSON
fyrrv. skipstjórí
Fellsmúla 5
verður jarösunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 16. maí kl. 13.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuö.
Sigríður Guðmundsdóttir
Hólmfríöur Egílsdóttír Viðar Kornerup-Hansen
og barnabörn.
+
Faöir okkar
GUÐMUNDUR HELGI SIGFÚSSON,
fyrrum kaupmaöur og útgeröarmaöur,
Neskaupstaö
verður jarösunginn frá Norðfjaröarkirkju föstudaginn 16. maí kl.
14.00.
Sigfús Guömundsson
Jón Guömundsson,
Ólöf J. Guömundsdóttir
Friörik Guömundsson.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og
jaröarför konu minnar, móöur, tengdamóöur og ömmu okkar,
MARÍU SIGRÍÐAR ÓSKARSDÓTTUR,
Jóhannes Júlíusson,
Heimir Már Jóhannesson,
Helena Sig. Jóhannesdóttir,
Þorvaldur Þór Jóhannesson,
Skúli G. Jóhannesson,
Sigríöur María Jóhannesdóttir,
og barnabörn.
Smári Þ. Svansson,
Sigríöur Ólafsdóttir,
Guörún Siguröardóttir,
Pótur Hreinsson,
+
Innilegar þakkir til ykkar allra sem auösýnduö okkur samúö og
vinarhug viö andlát og útför sonar okkar og bróöur
ÞORIS BALDVINSSONAR,
Bergstaöastræti 43a.
Baldvin Sigurðsson, Halldóra Guömundsdóttir
og systkini hins látna.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö og vináttu, viö andlát og
útför sýstur minnar og mágkonu
RÖGNU SIGRÍÐAR BJARNADÓTTUR,
Mánagötu 20.
Anna Nordal, Guömunda S. Kristinsdóttir.
tækifæri. Það er margs að minn-
ast þegar maður lítur til baka og
það besta er þegar maður hefur
kynnst manni eins og Guðlaugi
með minningar sem ylja manni.
Guð blessi minningu hans. Hann
kvæntist 29. maí 1937 Jónínu
Hallsdóttur, sem lifir mann sinn.
Þau eignuðust átta börn sem öll
eru á lífi, myndarleg og elskuleg
börn, sem hafa komið sér vel
áfram í lífinu.
Ég votta konu hans og börnum
hjartans samúð mína og bið Guð
að vera með þeim á erfiðri stund.
Systkinum hans sendi ég kveðju
og bið Guð að blessa þau.
Stefán Guðmundsson
Valmennið Guðlaugur Sigurðs-
son er horfinn.
Kynni okkar öll voru á þann
veg, að mér er ljúft og skylt að
minnast hans.
Ætterni verður eflaust af öðr-
um rakið, en fyrir mér var nóg að
vita að hann var bróðir þeirra
miklu mannkostamanna Andrésar
og Einars í Odda.
Það ásamt kynningunni af Guð-
laugi var og er vissulega ærið nóg,
þeim sem til þekkja. 19 ára
stráklingur, sem á að fara að
kenna í fyrsta sinn og á feimnina
eina að athvarfi á stundum, þarf
vissulega á uppörvun og sam-
kennd annarra að halda.
Hvort tveggja fékk ég ríkulega
hjá Guðlaugi í Björk, og þannig
sett fram að mér duldist í engu, að
einlægnin og góðvildin réðu öllu.
Ekki síðra var hitt, að hann ræddi
við mig sem fullorðinn mann,
miðlaði mér af reynslu sinni og
ljúfmennsku og kom fram við mig
sem jafningja í öllu.
Það var ekki lítils virði, einkum
þegar ég fór að kynnast Fáskrúðs-
firðingum og því almenna viðhorfi
þeirra, að Guðlaugur í Björk væri
sá, er í öllu mætti á treysta.
Ekki ætla ég mér þá dul að lýsa
Guðlaugi eða rekja margvísleg
störf hans. Það var í kirkjukórn-
um sem leiðir okkar lágu saman
fyrst og það mátti hverjum ljóst
vera að hann unni sönglistjnni,
gaf sig henni á vald, var söng-
maður af lífi og sál. En hitt var
jafnljóst að hann unni kirkjunni
og var sanntrúaður maður svo sem
menn geta beztir og einlægastir
verið. Annars voru öll félags- og
menningarmál honum hugfólgin
og þar kom hann víða við sögu: I
hreppsmálum, í skólamálum, í
samvinnumálum svo eitthvað sé
nefnt.
Hann þótti hvarvetna hinn
ágætasti liðsmaður, það munaði
um það, ef Guðlaugur í Björk lagði
máli sitt liðsinni.
Á verklega sviðinu var hann
sannur völundur, við smíðar
hverskonar var ævistarf hans
bundið, af verkum hans voru
menn ósviknir.
En í mínum huga leiftrar þó
skærast af ljúfmennskunni og
hlýleikanum, sem aldrei fyrntist í
áranna rás.
Ég á Guðlaugi þökk að gjalda
frá byrjendaárum mínum í
kennslu á Fáskrúðsfirði. Sú þökk
verður aldrei goldin, en með þess-
um fáu línum kveð ég góðan dreng
að leiðarlokum með hugheilli
þökk.
Konu hans ágætri og börnum,
svo og öðrum aðstandendum sendi
ég innilegar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning hins hug-
umprúða þegns.
Hclgi Seljan