Morgunblaðið - 15.05.1980, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1980
47
ToutkjóothaU Henrv Guldemont
oeJge
. v les
arneres
„ i. etles
medians
gommo
Forsíða bókarinnar. Eins og sjá má er mynd af Ásgeiri á for-
siðunni. Myndin er i litum.
Björgvin til
liðs við Fram?
KOMIÐ hefur fram að Björgvin
Björgvinssin, handknattleiks-
maðurinn góðkunni, hafi ákveðið
að koma til íslands á nýjan leik
cftir nokkurra ára dvöl hjá
þýska liðinu Grambke Bremen.
Björgvin lék sem kunnugt er
áður með Fram og Víkingi og er
margreyndur landsliðsmaður.
Hann hafði tekið þá ákvörðun að
hætta handknattleiksiðkun, en
hefur nú breytt um skoðun.
Mbl. hefur rökstuddan grun um
að Björgvin hafi í hyggju að ganga
• Fer Björgvin í Fram?
Michelin-golf..
MICHELIN-keppnin í golfi verð-
ur haldin á Hólsvelli við Leiru í
dag og hefst klukkan 9.00. Þetta
er 36 holu keppni og keppt bæði
með og án forgjafar.
.. og Bubnov-golf
BUBNOV mótið í golíi verður
haldið á Nesvellinum í dag og er
hér um 18 holu keppni að ræða.
16 bestu kylfingarnir leika síðan
einnar holu keppni. Mótið hefst
klukkan 10.00 og ræst verður út
til klukkan 14.00.
til liðs við sína gömlu félaga í
Fram og verði það ofan á, þarf
ekki að fara í neinar grafgötur um
hvers kyns liðsauka Fram fær þar
með. Það kann að ráða hér
nokkru, að Axel Axelsson, sem
leikið hefur með GW Dankersen
síðustu árin, er einnig á heimleið
og mun ætla sér að leika með
Fram eins og í gamla daga.
Samvinna Axels og Björgvins var
rómuð bæði hjá Fram og er þeir
léku saman landsleiki og verður
kærkomið að fá þá félaga aftur í
íslensku 1. deildina. — gg.
Stefán
aftur í
Víking?
MBL. HEFUR haft spurnir af því
að Stefán Halldórsson, landsliðs-
maður fyrrverandi í handknatt-
leik og fyrrverandi atvinnu-
knattspyrnumaður í Belgíu, hafi í
hyggju að ganga til liðs við sína
gömlu félaga í Víkingi á næstu
handknattleiksvertíð. Stefán hef-
ur leikið handknattleik og
knattspyrnu með Kristianstad
síðustu misserin við sérlega góðan
orðstír. _ gg
Kristjónsson
en ekki
Kjartansson
I MBL. i «ær var xreint frá þvf að
knattspyrnumenn Vals hefðu laut blómsveijf
á leiði fyrrum knattspyrnumanns úr Val
sem lést af slysförum í knattspyrnuleik árið
1933. Var saift að leikmaðurinn hafi heitið
Jón Kjartansson. Hið rétta er, að hann var
Kristjónsson o>í eru aðstandendur beðnir
velvirðinxar á mistókunum.
Ásgeir í hópi
hinna ósnertanlegu
Kafli um hann í nýútkominni bók um belgíska knattspyrnu
BLAÐAMAÐUR við blaðið La
Meuse-La Lanterne í Belgiu
Henry Guldemont að nafni hefur
nýlega gefið út bók um knatt-
spyrnumenn í Belgiu og fjallar
hún um varnar- og miðjuleik-
menn og heitir á frönsku: Les
Arriéres et les Médians, útgef-
andi Editions Gamma, Brússel. í
bókinni er sérstakur kafli um
Ásgeir Sigurvinsson, er ber yíir-
skriftina „Sigur de Reykjavík",
en „Sigur“ er nafn, sem höfundur
gefur Ásgeiri og mun hann
nefndur því sem leikmaður. Fer
þessi bókarkafli hér á eftir:
„Þegar það gerðist í leik Stand-
ard og Glenovan í undanúrslitum
bikarkeppni U.E.F.A. 1979—80, að
Ernst Happel kallaði „Sigur“ út af
leikvellinum eftir klukkustundar
leik, ætluðu áhorfendur á Sclessin
leikvelli varla að trúa sínum eigin
augum. Aldrei fyrr hafði það
gerst, að Ásgeir Sigurvinsson væri
kallaður úr leik. Þjálfarinn frá
Vínarborg hafði tekið ákvörðun,
sem enginn þjálfari á undan
honum hafði tekið. „Sigur" hefur
nefnilega um nokkurra ára skeið
verið talinn næstum ósnertan-
legur hjá Standard, eins og Rens-
enbrink og Hann hjá Anderlecht
eða Boskamp hjá R.W.D. Molen-
beek.
Sigurvinsson er óumdeilanlega
driffjöðurinn í liði Standard.
Hann er laginn við að færa sér í
nyt góð tækifæri og reynist oft
„tromp" leikmaður, þegar hann
beitir vinstra fætinum. Hann ótt-
ast ekki að skjóta úr þröngri stöðu
í mark af 30 metra færi, en hann
er einnig sá maður á Sclessin velli,
sem gengur næst brotlegu mörk-
unum.
Almennt finnst mönnum, að
„Sigur“ hafi dvalist lengi hjá
okkur hér í Belgíu, og þó var hann
aðeins 24 ára við lok keppnistíma-
bilsins 78—79, þegar hann undir-
ritaði nýjan 3 ára samning. Nokk-
ur félög höfðu sýnt áhuga á að
klófesta hann, þeirra á meðal
Anderlecht, Frankfurt og Ajax.
Verðið, sem sett var upp, var 27
milljónir belgískra franka (eða um
416 millj. ísl. kr., innskot). Það bar
þess órækt merki, að Standard
ætlaði sér að halda í Ásgeir á
miðjunni.
Með réttu var hann kynntur á
Sclessin leikvelli sem arftaki
Wilfried Van Moer ...
Hann var uppgötvaður af
Raymond Goethals í leik Islands
gegn Belgíu (1—1) í U.E.F.A.
-keppni unglingaliða í Viareggio
1973, en þá var „Sigur" maðurinn
bak við mark Islands. Goethals lét
Roger Petit framkvæmdastjóra
Standard vita af þessum mjög
efnilega leikmanni. „Sigur“ hrfði
þá þegar gengið undir próf hjá
skoska félaginu Glasgow Rangers,
en honum fannst, að skoska
knattspyrnan, sem honum þótti of
hörkuleg, ætti ekki við sig.
Hann var fljótur að samlagast
Sclessin. Eftir andlát föður hans
flutti móðir hans til Liége og býr
þar með honum. Bróðir hans, sem
er varnarleikmaður, leikur einnig
utan Islands og er búsettur í
Belgíu."
— afrek sem ekki er á færi meðalmanna
Keppnistímabilinu í Hollandi
er nú lokið og væntanlega taka
leikmenn sér þar einhverja hvíld,
þó varla verði hún eins löng og
þeir vildu gjarnan. Sem kunnugt
Enn tapar
ENSKA liðið Arsenal tapaði í
gærkvöldi fyrir spænska liðinu
Valencia í úrslitum Evrópu-
keppni bikarhafa. en leikurinn
fór fram í Brússel. Hefur Arsenal
þar með tapað tveimur úrslita-
leikjum á 5 dögum, en vart þarf
að minna á tapið gegn West Ilarn
á laugardag. Ekkcrt mark var
skorað á venjulegum ieiktima, né
í framlengingu, en i vítaspyrnu-
keppni sem fór siðan fram, skor-
aði Valencia 5 mörk gegn 4.
Leikur liðanna þótti frekar
slakur og Arsenal heldur skárra
liðið ef nokkuð var. Markverðirnir
vörðu meistaralega hvor sitt
markið í fyrri hálfleik, en í þeim
síðari hafði Jennings síðan lítið að
gera, starfsbróðir hans, Pereira,
hins vegar heldur meira.
Eftir framlengingu fengu liðin
síðan 5 víti hvort lið. Brady og
Kempes brenndu þá báðir af, en
þeir Talbot, Sunderland, Stapleton
og Hollins skoruðu fyrir Arsenal
og þeir Solsona, Pablo, Éonhof og
Castelanos fyrir Valencia. Var þá
er á ísland einn leikmann i
hollensku knattspyrnunni, Pétur
Pétursson, sem hefur í vetur
haslað sér völl sem einn skæðasti
framherji Evrópu. Talar það sínu
Arsenal!
enn jafnt, 4—4. Var þá haldið
áfram þar til öðru liðinu mistókst
og stóð ekki á því, Aries skoraði
fyrir Valencia og síðan varði
Pereira glæsilega gott skot frá
Rix...
Landsliðs-
þjálfarinn
til Póllands
JÓHANN Ingi Gunnarsson, lands-
liðsþjálfarinn í handknattleik, fer
utan á næstunni og er ferðinni
heitið til Póllands, þar sem hann
mun dvelja um tveggja vikna
skeið með pólska landsliðinu sem
verður um þær mundir í æfinga-
búðum. Mun Jóhann Ingi m.a.
fylgjast með liðinu í þremur
landsleikjum gegn Tékkum. Sem
kunnugt er þjálfar góðkunningi
Islendinga, Janus Cherwinski, lið
Póllands.
máli að hann varð í öðru sæti í
keppninni um markakóngstitil
Hollands, auk þess sem hann var
allt keppnistímahilið meðal
markhæstu manna Evrópu.
Pétur hóf keppnistímabilið með
miklum látum og skoraði í tíu
fyrstu leikjum sínum. Var hann
um tíma langmarkhæstur. Síðan
veiktist kappinn eitthvað og átti
nokkra rólega leiki, auk þess sem
hann missti nokkra leiki úr. Undir
lok keppnistímabilsins fór hann
að skora aftur og lauk keppnis-
tímabilinu með 22 mörk í deild-
arkeppninni. Feyenoord komst
auk þess í þriðju umferð UEFA-
keppninnar og í þeirri keppni
skoraði Pétur 4 mörk, þar af sína
fyrstu og til þessa einu þrennu
sem hann hefur gert í alvöruleik
með Feyenoord. Gerðist það í
heimaleiknum gegn Malmö í 2.
umferð og fengu íslenskir knatt-
spyrnuáhugamenn að skoða afrek-
ið í þáttum Bjarna Fel. Feyenoord
er komið í úrslit bikarkeppninnar
í Hollandi þar sem liðið mun
glíma við Ajax, sjálfa meistarana.
Til þessa hefur Pétur skorað 4
mörk í bikarkeppninni og gæti
hugsanlega bætt við þá tölu. Pétur
hefur því skorað 30 mörk á
keppnistímabilinu, sem er stór-
kostlegt afrek hjá jafn ungum og
tiltölulega óreyndum knatt-
spyrnumanni og hann er. Hvernig
verður hann þegar hann nær
toppnum? Ætla má að hann geti
enn bætt sig til muna.