Morgunblaðið - 15.05.1980, Page 48
Síminn á ritstjórn
og skrifstofu:
10100
Jfloríjunblflbib
FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1980
Síminn
á afgreiðslunni er
83033
Rekstrarafgang-
ur Seðlabankans
1,2 milljarðar
ARANGURSRÍKARI bar-
átta við verðbólguna heíur
undanfarin ár ekki reynzt
samrýmanleg ýmsum öðr-
um markmiðum, sem menn
hafa viljað keppa að, en þó
fyrst og fremst kröfum um
kaupmátt, atvinnustig og
opinber útgjöld. Eigi betri
árangur að nást í fram-
Verzlaði
í Frihöfn-
inni fyrir
Vh m. kr.
MAÐUR, sem rekur verk-
fræðifyrirtæki í Rhiad í
Saudi-Arabíu, Nasser al
Rashid að nafni, kom til
Keflavíkurflugvallar í gær-
morgun í einkaþotu sinni á
leið til New York. Þotan, sem
er af gerðinni BAC 111, tekur
um 160 farþega, en hún er
innréttuð sem íbúð fyrir eig-
andann. Með honum í þotunni
var kona hans.
í Fríhöfninni í Keflavík
keypti Arabinn postulín, ilm-
vötn og tvo kassa af dýru viskíi
fyrir um eina og hálfa milljón
kr. Mun hann hafa vantað
smágjafir til að gefa kunningj-
um við komuna til New York.
Arabinn er væntanlegur aftur
til Keflavíkur á bakaleið.
tíðinni verður að afla al-
mennari skilnings á því, að
nokkru verði til að fórna
um tíma, ef koma á verð-
lagsþróun hér á landi niður
á viðunandi stig. — Þannig
mæltist Jóhannesi Nordal,
seðlabankastjóra í ræðu,
sem hann flutti á ársfundi
Seðlabankans í gær. Ræðan
er birt í Morgunblaðinu í
dag.
I ræðu, sem formaður banka-
ráðs, Ingi R. Helgason, hélt,
kom fram að rekstrarafgangur
bankans varð á árinu 1979
1.246,9 milljónir króna, en þá
höfðu 25,5% vextir af eigin fé
verið færðir til gjalda og námu
þeir 618 milljónum. Eigin sjóð-
ir bankans að frátöldum geng-
isreikningum námu í árslok
4.785,6 milljónum og er þar
meðtalið stofnfé, 100 milljónir
og arðssjóður, 388 milljónir
króna. Höfðu þessir sjóðir
hækkað um 1.999,8 milljónir
króna á árinu.
Rekstrarkostnaður Seðla-
bankans nam 1.255 milljónum
króna og eru laun þar með
talin, en aukning þeirra varð
40% frá árinu 1978.
A ársfundinum flutti banka-
málaráðherra, Tómas Arnason,
einnig ræðu og lýsti hann
þeirri skoðun sinni, að banka-
kerfið væri nú orðið bæði of
dýrt og of stórt. Þrátt fyrir það
hefði ríkisstjórnin ekkert um
það mál sagt í málefnasamn-
ingi sínum. Kvaðst hann
mundu taka þetta mál upp í
ríkisstjórninni.
Kolbeinsey — myndin var tekin 1978. Danir viðurkenna ekki Kolbeinsey sem grunnlínupunkt
íslenzkrar eínahagslögsögu en missir Kolbeinseyjar minnkar lögsöguna um 9.400 ferkílómetra.
Sjá frétt á bls. 2.
Landlæknir um frumvarp um aðbúnað á vinnustöðum:
Miklir smíðagall-
ar á írumvarpinu
ÞRÁTT fyrir ýmis jákvæð atriði
frumvarpi til laga um aðbúnað,
hollustuhætti og öryggi á vinnu-
stöðum, sem verið er að samþykkja
á Alþingi. eru að mati landlæknis
miklir smíða-gallar á frumvarp-
inu, sem hafa í för með sér verra
eftirlit en nú cr. Þetta kemur fram
í grein sem Ólafur ólafsson land-
læknir hefur sent Morgunblaðinu
(sjá bls. 23), en þar skýrir hann
frá því að hann og Ileilbrigðiscft-
iriit ríkisins hafi rætt frumvarpið
við þingnefndir. „Á tillögur okkar
hefur ekki verið hlustað," segir
landlæknir og upplýsir enn-
fremur, að ekki hafi verið leitað
álits heilbrigðisnefndar og sveit-
arfélaga, en frumvarpið skipti
þessa aðila miklu máli.
Ólafur Ólafsson rekur síðan
nokkra megingalla frumvarpsins í 7
töluliðum. Hann segir að sam-
kvæmt frumvarpinu skuli samið
um starfsskilyrði og starfshætti á
vinnustöðum milli aðila vinnu-
markaðarins. Um það segir land-
læknir: „Það ber að hafa í huga, að
Fjórum dönskum sjómönnum bjargað um borð í Fjallfoss sunnan við Færeyjar:
„Björgunin gekk mjög vel og
mennirnir blotnuðu varla“
FJALLFOSS, skip Eimskipafélags íslands, bjargaði í fyrrinótt
áhöfn danska flutningaskipsins Jesper frá Korsör um 70 mílur
suðaustur af Færeyjum. Skyndilegur leki kom að þessu 760 lesta
skipi og sökk það um klukkan 4 í fyrrinótt. Þremur skipverjanna
og skipshundi var bjargað úr gúmmíbjörgunarbát um borð í
Fjallfoss, en skipstjórinn vildi ekki yfirgefa skip sitt fyrr en útséð
væri um að þvi yrði bjargað. Kom hann á litlum gúmbáti yfir í
Fjallfoss skömmu áður en danska skipið sökk. Skipstjóri á
Fjallfossi er Helgi Steinsson.
Fjallfoss
Gott veður var á þessum slóðum
í fyrrinótt, þokuslæðingur, hægur
vindur en nokkur undiralda. Að
sögn Jögvans Arge, fréttaritara
Morgunblaðsins í Færeyjum,
sendi skipið út neyðarkall um
klukkan 00.30 í fyrrinótt þar sem
leki var þá kominn að skipinu og
sjór streymdi inn í vélarrúmið.
Tjaldur, skip færeysku Strand-
gæzlunnar, lagði þá af stað til
móts við danska skipið, en um
klukkan 4 fékk Strandgæzlan til-
kynningu frá Fjallfossi um að
skipverjunum fjórum hefði verið
bjargað um borð í Fjallfoss og
danska skipið Jesper væri sokkið.
Helgi Steinsson skipstjóri á
Fjallfossi sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að þeir hefðu
séð neyðarblys um klukkan hálf-
þrjú í fyrrinótt. — Að sjálfsögðu
tókum við strax stefnu á blysið og
komum fljótlega að gúmmíbjörg-
unarbáti með þremur mönnum í.
Er við höfum tekið þessa skip-
verja á Jesper og skipshundinn
um borð sögðu skipverjarnir okk-
ur, að skipstjórinn væri enn um
borð. Skipið var ekki langt undan
og er skipið var orðið sigið að
aftan og farið að halla í stjór kom
skipstjórinn yfir til okkar á litlum
gúmbáti. Við lónuðum þarna í
kring þar til klukkan var orðin 4
og þá sökk danska skipið.
— Þeir sögðu okkur að skipið
hefði slegið úr sér og ekki veri
hægt að ráða við neitt, en það
mun hafa verið smíðað árið 1965
og hafði verið í því að flytja fisk
milli Englandsstranda og Fær-
eyja. Það var á leið frá Færeyjum
er óhappið varð og var alveg tomt.
Við heyrðum aldrei neyðarkall frá
skipinu, sáum aðeins neyðarblys-
ið. Þarna var ekkert annað skip í
grennd og og fyrir færeyska
björgunarskipið var um 7 tíma
sigling á staðinn.
— Björgunin gekk mjög vel og
það er varla hægt að segja að
mennirnir hafi blotnað, sagði
Helgi Steinsson að lokum, en
Fjallfoss er á leið til Rotterdam
og er væntanlegur þangað á
morgun.
sjúkdómur, er hlýzt af atvinnu er
og verður heilbrigðisvandamál og
verður því ekki læknaður með
samningum.“
Þá segir landlæknir, að sam-
kvæmt lögunum komi heilbrigðis-
yfirvöld hvergi nærri mótun stefnu
í atvinnuheilbrigðismálum, en
starfa einungis sem ráðgefandi
aðili. Á þann hátt sé verið að kljúfa
stóran þátt heilbrigðismála frá
heilbrigðisgeiranum í landinu, sem
eitt af fáum hefur sérstakt
heilbrigðisráðuneyti. Þá segir Ólaf-
ur að stjórn og eftirlit
atvinnuheilbrigðismála verði undir
miðstýrðri stjórn í Reykjavík, sem
hafi lögregluvald í vissum málum
og telur hann fáránleg atriði í
frumvarpinu um vinnutíma ung-
linga.
Landlæknir telur að um aft-
urkipp í þessum málum verði að
ræða, ónýt verði reynsla hundruð
manna víða um land og miðstýrð
stofnun í Reykjavík muni ekki ráða
við málin til hlýtar. Frumkvæði
heilsugæzlustöðva verði afnumið og
gert ráð fyrir samningum við þær
um þjónustu. Hér sé því verið að
koma á fót tvöfaldri heilsugæzlu,
sem nágrannaþjóðirnar hafi slæma
reynslu af. Að lokum segir Ólafur
Ólafsson landlæknir að umbætur í
atvinnuheiibrigðismáium á Islandi
hafi ekki strandað á skorti á
lagasetningu, heldur fjármagni,
stuðningi vinnuveitenda og laun-
þega við þá aðila, sem um málin
hafa fjallað.
Rúmlega áttræð-
ur hjólreiðamað-
ur mikið slasaður
RÚMLEGA áttræður hjól-
reiðamaður varð fyrir bifreið
á mótum Reykjavíkurvegar og
Arnarhrauns í Hafnarfirði og
slasaðist hann alvarlega og
varð að gangast undir aðgerð í
Borgarspítala m.a. vegna inn-
vortis blæðinga.