Morgunblaðið - 27.07.1980, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JÚLÍ 1980
23
*
Attræður:
Pálmar ísólfsson
Við verðum víst að trúa kirkju-
bókinni sem telur Pálmar áttræð-
an um þessar mundir — nánar
tiltekið 28. júlí.
Sögur segja Pálmar nær því að
vera annars heims a.m.k. einu
sinni, en sigurinn var Pálmars og
hann sneri heim á Þórsgötuna
sprækur sem fyrr. Símaskráin
segir Pálmar hljóðfærasmið, sem
út af fyrir sig segir ekki mikið, því
margir eru kallaðir. Pálmar er
reyndar einn af mörgum ágætum
bræðrum sem að vísu eru greinar
af víðfrægri ætt sem kennd er við
tónlist og aðrar listir, og verður að
viðurkennast þótt ættin sé ekki
húnvetnsk. Ekkert af þessu segir
þó neitt endaniegt um manninn
sem kynntur er sem hljóðfæra-
smiður í símaskránni.
Hljóðfæraleikarar eru kannske
ekki alltaf sammála innbyrðis,
fremur en er um aðra sambæri-
lega hópa. Eitt er það þó sem
tónlistarmenn hafa aldrei deilt
um, en það er ágæti Pálmars sem
hljóðfærastillara. Ég veit ekki
hvort allir lesendur þessarar
greinar átta sig á þýðingu þessar-
ar samstöðu tónlistarmanna varð-
andi Pálmar. Hljóðfæraleikarar
hafa litla samúð með slæmri
hljóðfærastillingu og eiga höfund-
ar slíkra verka auðvelda leið upp
að háborðinu. Öndvegissæti við
þetta borð hafa tónlistarmenn
afhent Pálmari fyrir löngu og þar
hefur Pálmar verið sjálfkjörinn
forseti í áratugi. Kollega Pálmars
sagði eitt sinn um hann að sem
hljóðfærastillari væri hann „un-
ik“, að svo er hafa bæði erlendir og
innlendir hljóðfæraleikarar
sannreynt og staðfest við ótal
tækifæri. þrátt fyrir áttatíu árin
er heyrn Pálmars ennþá „unik“ og
hæfileikinn til þess að fá hljóð-
færið til þess að hljóma býr enn í
sál hans. Ég undirritaður hef orð
Pálmars sjálfs fyrir því að hann
geti ekki hugsað sér að setjast í
helgan stein á meðan fæturnir eru
færir um að flytja hann að
hljómborðinu. Um leið og við
hljóðfæraleikarar sendum Pálm-
ari afmælisóskir ásamt þakklæti
fyrir stemminguna vonum við að
langt sé í hinn helga stein og að
lappirnar gleymi ekki því hlut
verki sínu að flytja Pálmar þang-
að sem hans þörf er mest enn um
mörg ókomin ár. Síminn er 13214
og ef ekki svarar í dag þá er von til
þess að á morgun heyrist úr
hinum endanum svarað dimmum
hægum rómi, já —.
Með bestu óskum.
Ragnar Björnsson.
Niðjamót í
Hróarsdal
ÆTTARMÓT niðja Jónasar
Jónssonar bonda og smáskammta-
læknis, sem bjó í Hróarsdal í
Hegranesi, Skagafirði, verður
laugardaginn 9. ágúst.
Ættarmótið hefst klukkan 12.30
með guðsþjónustu að Ríp og verð-
ur síðan fram haldið í Hróarsdal.
Þeir, sem hafa hug á því að gista,
þurfa að hafa með sér viðleguút-
búnað og matföng.
AUDIOVOX
Vantar þig vandað h/jómtæki / bí/inn?
AUt tH hljómfhítnmgs fyrir:
HEIMILID — BÍL/NN
OG
DISKÖ TEKIO
D i •
INdOÍO
ARMULA 38 'Selmúia megin* 105 REYKJAVIK
SIMAR: 31133 83177 POSTHOLF 1366
vvow/
Verksmiðjuútsala
Skipholti 3, sími 29620
Fatageröin Bót h.f.,
Skipholti 3.
Verksmiðju-
útsala
Einstakt tækifæri fyrir verzlunarmannahelgina.
Buxur á alla fjölskylduna úr denim, flauel, kakhi og
ull. Úrval af bútum.
Oft hefur verksmiöjusalan verið góð í Bót, en nú
slær hún öll met.
Opiö frá 9—6.
Fatagerðin BÖT