Morgunblaðið - 26.08.1980, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1980
11
Godod
eftir JOHANN
HJÁLMARSSON
áfram. Eins konar örlagavald-
ur verksins er Apal sem alltaf
vill sofa. Hann gerir sér grein
fyrir hvert stefnir, en gerir
ekkert til þess að koma í veg Að leiðarlokum: Gunnar Rafn Guðmundsson (Climando). Eggert
fyrir það. Hann vaknar öðru Þorleifsson (Apal) og Þröstur Guðbjartsson (Lögreglumaður).
Arrabals
er dauðinn
Umrenningarnir Mita og Climando: Guðrún Gisladóttir og Gunnar Rafn Guðmundsson.
hverju til að leggja á ráðin og
ráð hans eru til þess fallin að
koma félögum hans í vanda.
Önnur ráð virðast ekki vera til.
Arrabal hefur gaman af
orðaleikjum eins og fram kem-
ur í rökræðum Climandos og
Gamla flautuleikarans.
Spænskur uppruni hans segir
til sín í ljóðrænum súrreal-
isma sem bregður fyrir. Text-
inn er víða hnyttinn, ýmist
einfaldur eða margræður.
Mest áberandi meinlegt háðið.
í Þríhjólinu reynir mikið á
þann sem leikur Climando.
Hið barnslega og einlæga í fari
hans tókst Gunnari Rafni
Guðmundssyni að túlka, en
eitthvað skortir þó. Gunnar
Rafn hefur hvella rödd sem
getur orðið of há. Ég býst við
að þetta sé auðvelt að laga með
því að leikarinn gæti hófs,
enda ætti leikstjórinn að geta
bent honum á það.
Guðrún Gísladóttir er leik-
kona sem leikur á marga
strengi og átti hún auðvelt
með að setja sig inn í heim
Mítu sem gleðst þótt veröld
hennar sé að hrynja.
Viðar Eggertsson náði mjög
góðum tökum á Gamla flautu-
leikaranum, minnir á ösku-
tunnugramsara sem allar
borgir eiga nóg af.
Apal Eggerts Þorleifssonar
var gagnhugsað hlutverk.
Lögreglumanninn sem talar
annað mál en umrenningarnir
lék Þröstur Guðbjartsson og
dró upp sannfærandi mynd af
fulltrúa kerfisins, þ.e.a.s.
dauðans samkvæmt skilgrein-
ingu Arrabals.
Þríhjólið er dæmigert verk
sjötta áratugar.
Leikstjóri, ljósamaður og
leikmyndasmiður eiga ásamt
leikurunum þakkir skildar
fyrir hve upprifjun hins dap-
urlega andrúmsloftg þessa
tíma tekst vel. Þýðingin er góð,
en ívið hátíðleg á köflum.
Alþýðuleikhúsið:
ÞRIHJÓLIÐ
eftir Fernando Arrabal.
Þýðing: Ólafur Haukur Símonarson.
Leikstjóri: Pétur Einarsson.
Leikmynd og búningar: Grétar Reynisson.
Lýsing: Ólafur Örn Thoroddsen.
UMRENNINGAR Arrabals
minna um margt á umrenn-
inga Becketts. Þríhjól Arra-
bals var frumflutt 1958, Beðið
eftir Godod eftir Beckett 1953.
Hugsa mætti sér að þríhjól-
ið sé eins konar svar við Beðið
eftir Godod. Leikrit Becketts
endar á því að biðin heldur
áfram. Arrabal lætur „frelsi"
umrenninganna frá niðurlægj-
andi lífi birtast í komu lög-
reglunnar sem fer með tvo
þeirra í fangelsi, en ljóst er að
síðan verða þeir líflátnir. Hin-
ir sem eftir verða fá þríhjólið
og auk þess yfirhöfn og stígvél
sem hinir dauðadæmdu hafa
ekkert með að gera. Tveir
hverfa úr þessu lífi, tveir eru
hinir kátustu yfir framvind-
unni. Lífið er að vísu tilgangs-
laust, en þó ekki með öllu.
Umrenningar Arrabals eru
flestir þyrstir í að lifa, en
aftur á móti setur þreytan
mark sitt á umrenninga Beck-
etts.
Godod Þríhjólsins er enginn
Guð heldur dauðinn. Umrenn-
ingarnir sem kunna ekki mun
á réttu og röngu myrða mann
til þess að geta leigt hjólið
Lelkllst
fi
húsgögn
kynna
I ■fHllBfllHtMaifBHfllllP
Höfum opnað glæsilega húsgagnasýningu
í verzlun okkar að Langholtsvegi 111.
Gífurlegt úrval húsgagna á 800 fermetrum.
Við höfum m.a. byggt heila íbúð
á svæðinu sem gefur góða hugmynd um
hvernig raða má húsgögnunum.
Opið
frá kl. 9—9
í dag
Sýningin
stendur yfir frá
23. ág. — 7. sept.
-húsgögn
Símar 37010 — 37144