Morgunblaðið - 26.08.1980, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1980
HiiiiiiMiiiiM/MiiMiiiniiiMiiinMMmimnMnmMiii
| Fólk og fréttir í máli og myndum
Motorkross
í sviðsljósi
◄----------
ÞAÐ HEFUR vakið athygli í
nokkrum af siðustu knattspyrnu-
leikjunum i 1. deild, að vélhjóla-
kappakstur hefur verið á boðstól-
um í leikhléi. Hefur farið fram
meistaramót i „mótorkrossi" og i
hálfleik leiks Vikings og Fram
fór fram úrslitakeppni. Kepptu
þar 6 ógnar kraftmikil vélhjól og
verður að segjast eins og er, að
keppnin var æsispennandi og
mikið má vera ef íþrótt þessari
vex ekki fiskur um hrygg eftir
auglýsinguna sem hún fær af
þessu.
Heimir Barðason sigraði í
lokakeppninni og var honum
klappað lof i lófa af mórg hundr-
uð áhorfendum á Laugardalsvell-
inum. Sýnist vera snjallræði að
kynna á þennan hátt tiltölulega
lítt þektar iþróttagreinar. Mynd-
ina tók Kristinn ólafsson.
Kampakátir ÍR-ingar
—--------------►
LIÐ ÍR SEM SIGRAÐI í BIK-
ARKEPPNI FRÍ Á DÖGUNUM.
— Á þessari mynd er hinn vaski
hópur frjálsíþróttamanna og
kvenna úr ÍR sem sigraði í
Bikarkeppni FRÍ um helgina. en
Íað var níunda árið i röð að
R-ingar unnu bikarinn, og hlutu
þeir þvi þriðja bikarinn til eign-
ar. í aftari röð eru (f.v.): Þorvald-
ur Þórsson, Stefán Þ. Stefánsson,
Friðrik Þór óskarsson, Sigurður
Magnússon, Ágúst Ásgeirsson,
Jóhann Jóhannsson, Gunnar P.
Jóakimsson og Guðmundur Þór-
arinsson þjálfari. í fremri röð
eru (f.v.): Oddný Árnadóttir, Þór-
dis Gisladóttir, Bryndis Hólm,
Sigriður Valgeirsdóttir, Margrét
Óskarsdóttir, Katrin Atladóttir
og Guðrún Harðardóttir. Á
myndina vantar óskar Jakobs-
son og Lilju Guðmundsdóttur.
Ljósm. Hafsteinn Askarsson.
Bjórinn
hans
Simonsen
• Alan litli Simonsen rakst
óþyrmilega á það fyrir skömmu.
að það er ekki sama hvaða bjór
maður umgengst. Kappinn gerði
auglýsingasamning við bjórfyr-
irtæki nokkuð. Kom síðar i Ijós,
að danska knattspyrnusamband-
iö hafði nokkru áður gert sam-
ning við annað bjórfyrirtæki,
helsta keppinautinn. Nú stendur
til að velja ekki Simonsen i
landsliðið meðan hann er á mála
hjá umræddu bjórfyrirtæki...
• Það er varla hægt að segja hér, að góður biti fari i hundskjaft.
Svona eru ólátabelgir afgreiddir á knattspyrnuvöllum i Vestur-
Þýskalandi. Sýnist sitt hverjum um aðfarirnar, en bóka má þó, að
stráksi hugsar sig um tvisvar áður en hann stofnar til óláta aftur.
Nýr Péié
--------►
• Þessi peyji þykir minna á
engan annan en sjálfan Pele.
Enda er þetta enginn annar en
sonur knattspyrnugoðsins.
Strákurinn heitir Edson eins og
pabbi gamli. sem var einn besti
knattspyrnumaður allra tima.
Hvort að stráksi fylgir i fótspor-
in kemur i ljós, en hann þykir
efnilegur strax á kornunga aldri.
'i
I