Morgunblaðið - 26.08.1980, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 26.08.1980, Blaðsíða 27
Henryk Jankowski, kaþólski biskupinn i Gdansk, tekur i hönd Leszeks Walesa, leiðtoga verkfallsmanna, og blessar hann. Myndin er tekin á sunnudag. (Símamynd AP) Hópur verkíailsmanna i Gdansk les kröfur þær, sem settar hafa verið fram af hálfu verkamanna, en þeim var dreift á fjölrituðum blöðum, sem hengd hafa verið upp víða. Við uirnurn iyrstu lotuna44 Varsjá, 25. áRÚst. AP. EDWARD Gierek, formaður pólska kommúnistaflokksins, tilkynnti I gær I sjónvarps- ávarpi til þjóðarinnar að stjórn- völd myndu koma til móts við verkfallsmenn og ræða kröfur þeirra. Áður hafði verið gefin út tilkynning um miklar breyt- ingar á skipan stjórnarnefndar- innar og ríkisstjórnarinnar. Meðal annars var Edward Babi- uch forsætisráðherra rekinn úr starfi ásamt þremur aðstoðar- ráðherrum. Ennfremur voru yf- irmenn upplýsinga- og áróðurs- deildar ríkisins og sjónvarps- og útvarpsstöðvarinnar reknir úr starfi. Nokkrar tilfærslur voru gerðar á stöðum annarra nefndarmanna og ráðherra. Er litið á aðgerðir þessar sem siðustu tilraun Giereks til að reyna að koma á eðlilegu - segja verkfallsmenn í Póllandi eftir fyrsta fund sinn með pólskum stjórnvöldum ástandi i landinu og binda enda á verkföllin. Ræðum allt nema stjórn- arskrárbreytingar í sjónvarpsávarpi sínu sagði Gierek að ríkisstjórninni hefði mistekist að vinna traust al- mennings og ekki náð tökum á efnahagsvanda þjóðarinnar. „Við höfðum reiknað með því að geta rétt við efnahag landsins á nokkrum árum. En almenning- ur hefur ekki stutt þessar áætl- anir okkar,“ sagði Gierek. Gierek sagði að stjórn sín gæti ekki fallist á þær kröfur sem verkfallsmenn gerðu um breyt- ingar á stjórnarskrá ríkisins. Ibúar Varsjár áhyggjufulíir Varsjá, 25. ágúst. AP. VEGNA verkfallanna í norð- urhluta Póllands, eru ibúar höfuðborgarinnar, Varsiár, mjög áhyggjufullir. Otti þeirra kemur fram í miklu hamstri á matvörum og kald- hæðnislegum skrítlum. Sykur, hveiti, hrísgrjón, brauð og dósamatur er á þrotum vegna þess að aldrei áður hefur fólk hamstrað mat- væli sem nú. „Ástandið versnaði til muna fyrir nokkrum dögum,“ segir húsmóðir ein í Varsjá. „í síðustu viku keypti fólk 10 kíló af öllu, en í dag er aðeins hægt að kaupa tvö kíló í einu. Brauð er oftast aðeins keypt fyrir einn dag í einu, en nú virðist hver og einn kaupa brauð til heillar viku í einu.“ Hún sagði, að venjulega tæki það sig um hálftíma að versla inn, en nú þyrfti hún að fá mann sinn og vinkonu í lið með sér, því að í hverri verslun væri að minnsta kosti hálf- tíma bið eftir afgreiðslu. Meðan fólkiö bíður í versl- ununum, drepur það tímann með því að segja skopsögur og hæðast hvert að öðru: „Hvers vegna kaupir þú svona mik- ið??“ Sumir brandararnir eru kaldhæðnislegir eins og þessi: „Veistu að þeir eru þegar farnir að klæða rússnesku hermennina í búning pólska hersins?" En það er fleira en matvæii sem skcrtir. Námsmenn, sem voru nýkomnir til Varsjár eftir mánaðar sumarleyfi, sögðu að mjög erfitt væri að fá bensín og í raun og veru væri skortur á öllum vörum. Hjón nokkur frá Moskvu, sem voru í verslunarferð fyrir pólska vini sína, voru mjög undrandi yfir litlu vörufram- boði. Sögðust þau hafa heyrt um að verkföll væru í norður- hluta Póllands, en þau vissu ekkert meira um þau. Ungur verslunareigandi í Varsjá segir: „Ég veit, að eldra fólkið gengur á milli búðanna og reynir að fá meira en þessi tvö kíló sem hver fær að kaupa. Það hræðist það, að verkföllin muni ná til Varsjár. Það veit ekki hvað um er að vera.“ Verkamaður, sem stóð í bið- röð fyrir utan bakarí eitt í Varsjá, sagði álit sitt á ástandinu afskaplega einfalt. „Þegar þú bruggar bjórinn, verður þú líka að drekka hann.“ Hann lofaði verkfallsmönnum því hins vegar að fram gætu farið lýðræðislegar og leynilegar kosningar til stjórna verkalýðs- félaganna. „Við viljum heyra sjónarmið fólksins í landinu áður en við tökum ákvarðanir varðandi vinnumarkaðinn," sagði Gierek ennfremur. „Við höfum þegar tekið skref í þá átt og erum reiðubúnir að ræða frekar við þjóðina, þar á meðal fulltrúa verkfallsmanna. Við erum reiðu- búnir að ræða kröfur þeirra, þó ekki þær sem ganga í berhögg við stjórnarskrá landsins," sagði hann. Gierek fór lofsamlegum orð- um um verkfallsmenn fyrir að halda stillingu sinni. „Við látum ekki blekkjast“ í Lenín-skipasmíðastöðinni, miðstöð verkfallsmanna, voru menn ekki ánægðir með ræðu Giereks. „Aðeins frjáls verkalýðsfélög geta fært okkur fullan sigur og gert okkur ánægð,“ sagði leiðtogi verkfallsmanna, Leszek Walesa, á fundi með verkfallsmönnum eftir að þeir höfðu hlýtt á ræðu Giereks. „Stjórnin blekkir okkur ekki, við gefum henni ekki tæki- færi til þess,“ sagði hann. Samt sem áður virtust sumir úr röðum verkfallsmanna vera ánægðir með ýmsar breytingar á skipan stjórnarnefndarinnar og ríkisstjórnarinnar. Virðast þeir helst vera ánægðir með að Stef- an Olszowski, fyrrum utanríkis- ráðherra, skuli nú vera kominn í sljórnarnefndina og einnig eru þeir ánægðir með nýjan forsæt- isráðherra, Jozef Pinkowski, sem tók við af Babiunch. í miklum pólitískum sviptingum í febrúar sl. var Olszowski vikið úr hárri stöðu innan pólska kommúnista- flokksins og honum fengin staða sendiherra í A-Berlín. Sumir fréttaskýrendur segja Olszowski líklegan til að taka við af Gierek mistakist að binda endi á verk- föllin. Vonbrigði Mieczyslaw Jagielski hélt til Varsjár á sunnudaginn, eftir að hafa átt fund með fulltrúum verkfallsmanna í Lenín-skipa- smíðastöðinni. Var það fyrsti fundur stjórnvalda með verk- fallsmönnunum. Á fundinum hélt Jagielski ræðu sem verk- fallsmenn voru ekki ánægðir með og sögðu að gagnger breyt- ing þyrfti að koma til ef samn- ingar ættu að nást. Jagielski lofaði efnahags- legum tilslökunum „að nokkrum tíma liðnum“ en sagði kröfu verkfallsmanna um launahækk- un sem nemur um 33.000 krónum íslenskum á mánuði, vera mjög óraunsæja. Jagielski gaf verkfalls- mönnum ekki góðar vonir um réttindi til að mynda frjáls verkalýðsfélög en sagðist samt skilja það að stokka þyrfti upp í reglunum um verkalýðsfélög. Mikill hluti fundarins fór í að ræða þær aðgerðir stjórnvalda að slíta öllu síma- og telexsam- bandi milli Varsjár og verk- fallssvæðanna. Um tíma leit út fyrir að fundurinn leystist upp vegna þeirra umræðna. Eftir fundinn var mjög óljóst hvert yrði næsta skref stjórn- valda, og verkfallsmenn voru ekki ánægðir með gang mála. „Þetta fór á annan veg en við höfðum búist við,“ sagði Walesa. En hann tók það jafnframt fram að hvað sem því liði, myndu verkfallsmenn ekki snúa aftur til vinnu sinnar fyrr en stjórn- völd kæmu til móts við kröfur þeirra. „Þrátt fyrir allt höfum við unnið fyrstu lotuna, stjórnvöld eru nú farin að ræða við okkur. Það gefur okkur aukinn styrk og sigurvonir." Kröfur verkf allsmanna Listi með 16 kröfum verkfallsmanna í Gdansk í Póllandi var gefinn út af hópi andófsmanna í Varsjá. Listi þessi fylgir hér á eftir: • Síma- og telexsambandi verði komið á á svæðinu kringum Gdansk. • Tryggð verði réttindi til verkfalla og öryggi verkfallsmanna tryggt. • Prentfrelsi og frelsi til að tjá sig í töluðu orði verði tryggt og ritskoðun afnumin. • Öllum pólitískum föngum verði sleppt. • Samningur Alþjóðasamtaka verkalýðsfélaga verði virtur að fullu en hann felur í sér heimild til starfsemi frjálsra verkalýðsfélaga. • Öllum trúfélögum verði heimilt að sækja messur. • Stjórnvöld hætti öllum afskiptum af starfsemi verkalýðsfélaga. • Þjóðin verði að fullu upplýst um efnahags- vanda Póllands og þannig tekið skref í átt til lausnar. Öllum stéttum í pólsku þjóðfélagi verði gert kleift að ræða áætlanir um umbætur. • Afnumin verði forréttindi þeirra sem starfa við öryggisþjónustu. Hætt verði rekstri verslana sem aðeins eru opnar lögregluþjónum og embætt- ismönnum á vegum kommúnistaflokksins. • Afnumið verði það kerfi að kjöt skuli aðeins selt í vissum verslunum á háu verði. • Innanlandsmarkaði verði fullnægt en útflutt aðeins það sem afgangs verður. • Upp verði tekin kjötskömmtun til að gera markaðinn stöðugri. • Laun hækki um 2000 zlotys (33.000 ísl. kr.) á mánuði til að vega upp á móti hækkuðu vöruverði. • Orlofsfé verði greitt á verkfallstíma. • Laun hækki í samræmi við hækkun vöruverðs. • Greint verði frá verkfallinu í útvarpi, sjón- varpi og blöðum og sagt frá stofnun verkfalls- nefndarinnar. rx»Tur MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1980 ÖXT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.