Morgunblaðið - 26.08.1980, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 26.08.1980, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1980 35 Þorsteinn á Hrólfsstöðum var yfirlætislaus maður og lítt fyrir það gefinn að láta á sér bera. Hann var talsverður skapmaður, en stilltur vel, dagfarsprúður og viðmótshlýr. Oftast var hann glaður og léttur í lund, gaman- samur og glettinn, án þess að græsku kenndi nokkru sinni hjá honum. Heiðríkur svipur hans vitnaði ótvírætt um hjartað sanna og góða, sem í barmi hans bjó. Vorið 1970 fluttu þau Þorsteinn og Margrét á Hrafnistu í Reykja- vík og dvöldu þar upp frá því. Þorsteinn bar aldurinn vel og klæddist fram á síðasta dag. Hann verður jarðsunginn í dag frá Fossvogskirkju. Eiginkonu hans, Margréti ömmusystur minni, dætrum og fjölskyldu þeirra og eftirlifandi systkinum sendi ég mínar innileg- ustu samúðarkveðjur og bið þeim öllum blessunar Guðs í bráð og lengd. Björn Jónsson. Þau voru nokkuð mörg sumrin hér á árum áður sem ég dvaldist í skjóli móðurömmu minnar og hennar fólks að Sólheimum í Blönduhlíð. í þann tíð voru þrír atburðir nokkurn veginn árvissir og í mínum augum stóð af þeim ámóta ljómi og af sjálfri jólahátíðinni. Númer eitt var að fá að fara einsamall alla leið út að Hrólfh- stöðum í eins konar orlofsferð. í annan stað voru það töðugjöldin heima í Sólheimum og síðast en ekki síst Ásgarðshátíðir hennar Lilju á Víðivöllum, en um þær samkomur mætti skrifa langt mál. Hrólfsstaðarferðir mínar voru eiginlega hálfgerðar heimsreisur þar sem við vorum einir á ferð Gráni gamli og ég, hann einhvers staðar á þrítugsaldrinum og ég um eða innan við tíu ár. Takmark ferðalagsins var að heimsækja þau Möggu og Steina frænda minn og heimasæturnar þrjár. Á Hrólfsstöðum var ég eins og prinsinn í ævintýrunum. Ég var allt í einu orðinn að heimsnaflan- um sem allt snerist í kring um. Húsfreyjan bar fram súkkulaði og rjómafroðu ásamt hrokafullum diskiim af alls kyns tertum og bakkelsi. Dæturnar léku við mig og sýndu mér gullin sín. Sam- komuhaldið þarna heima á Hrólfsstöðum komst svo á há- punkt þegar Steini frændi lagði frá sér amboðið og bað mig að heyra sig út undir bæjarvegg. Sem við sátum frændurnir norðan undir vegg í samfélagi við baldursbrár, sóleyjar og fífla og hann sagði mér sögur, kenndi mér nöfn á fjöllum og kennileitum og jafnvel endursagði heilu kaflana úr Sturlungu, þá gerðist tvennt í sama mund: Mér fannst ég verða dálítið fullorðinn og ég skynjaði fjörðinn fagra sem hringleikahús þar sem persónur og atburðir mótuðust í huga mér og eru mér enn í Ijósu minni. Það var aldrei lærdómshroki í frásögninni hjá Steina frænda. Hverju orði í ræðunni fylgdi ylur og væntum- þykja og það fór raunar aldrei á milli mála að fjörðurinn með fjöllunum, dölunum, bóndabýlun- um snotru og flatlendinu grösuga var hans heimur og þar undi hann sínum hag. Nú er hann Steini móðurbróðir minn og sparifrændi allur. Hann hallaði sér útaf að kvöldi þess 15. ágúst sl. og sofnaði svefninum langa. Hann var kominn á tíunda aldurstuginn, blindur og þreyttur, m.a. vegna fötlunar, sem hann átti við að búa frá tólf ára aldri, en hugsunin var skír og klár. í mínum huga var Steini frændi hamingjumaður og við hlið eigin- konu sinnar Margrétar Rögn- valdsdóttur naut hann lífsins til hinsta andartaks. Um leið og ég sendi eftirlifandi ættingjum og vinum frænda míns samúðarkveðjur, þá er vissa mín sú, að fjörðurinn fagri norðan fjalla, fagni syninum hreinlund- aða, sem var alla tíð með hugann einhvers staðar í grennd við Mæli- fellshnjúk og Glóðafeyki. B. Bjarman. Fangelsið að Litla-IIrauni. Betrunarvist eða refsivist Alltaf hvarflar í huga minn aðstaða þeirra ógæfubarna, sem nefnast fangar og afbrotamenn. Örlög þeirra voru mér svo tengd í vetur. Og enn betur sannfærist ég um, að þar á svonefnd refsi- vist að vera úr sögunni sem fortíðarfyrirbrigði vanþróaðra þjóða og samfélaga, þótt auðvit- að verði að takmarka frelsi þeirra, sem brjóta gegn samfé- íaginu, meðan hjálp eða lækning fer fram. Það er gert við alla sjúka, sem leita á vegu hins opinbera til hjálpar og er auðvit- að eðlileg ráðstöfun. Þó verður öll slík frelsisskerðing að vera undir yfirskriftinni betrunar- vist og allt að stefna að tak- marki gæfu og heiila bæði við- komandi einstaklingi eða afbrot- amanni og um leið því samfélagi, sem elur hann og óttast hann. Fyrst vil ég minna á þá fjarstæðu og hneyksli, sem ríkir í okkar annars ágæta samfélagi hér á íslandi. En það er aðstaðan gagnvart geðsjúkum afbrota- mönnum. Þar erum við á algjöru miðaldastigi svo minna mætti á íran eða einhver svipuð miðald- amyrkur nútímans. Sjúklingur í fangaklefa, já, allslausri „cellu“ án alla hjúkrun og læknisaðstoð er ægilegri tilhugsun en flesta gæti grunað. Óskiljanlegast er þó af öllu, að geðlæknar og geðsjúkrahús og þeir, sem þar ráða, skuli geta neitað þessum aumustu allra um aðstoð, mót- töku og aðhlynningu nú á 20. öld í okkar allsnægtalandi. Er þetta löglegt athæfi? Skora ég á alla, sem þarna eiga hlut að máli, með dómsmálaráðuneytið í broddi fylkingar, sem er raunar um leið kirkju mála — og þá líknarmála — æðsta valdsvið á íslandi, að gera þar strax algjöra yfirbót og byltingu til hins betra. En svo eru allir hinir. I örstuttri grein „við glugg- ann“ minn er ekki um full skil að ræða til bendingar um betrun- arvistir. Samt vil ég minna á þrjú atriði hér. Gæti kannske síðar gert hverju þeirra nánari skil. Þótt ýmislegt þyki að í Ameríku, og einmitt nú hina síðustu áratugi komið fram ströng gagnrýni á aðbúð fanga og fangelsin þar, þá má þaðan fá hin fegurstu fordæmi. Hið fyrsta er nefnt: „Fangelsið, sem gefur föngun- um nýja framtíð": En það er fangelsið, sem heitir „Butnerbúðirnar" í North Caro- lína. Þar er ekki langt síðan vistmenn voru sendir til nauð- ungarvinnu, hlekkjaðir saman vi6 gluggann eftirsr. Árelius Níelsson undir eftirliti vopnaðra varð- manna. En nú er þessari refsi- vist snúið í hina áhrifamestu betrunarvist. Þar eru nú engar girðingar, engir múrar, verðir né byssur, — ekki einu sinni lim- gerði að sögn. Fangar búa í hvítmáluðum, einnar hæðar hús- um og búðirnar eru á hæð með útsýni til allra átta. Þarna eru nálægt 100 vistmenn hverju sinni. Flestir á aldrinum 16—25 ára. Afbrot eru ýmisskonar, allt frá smávegis innbrotum til morða. En flestir eru á frumstigi síns afbrotaferils og svonefndir síbrotamenn eru varla sendir þangað. „Éngar hömlur. Engin innilok- un,“ er yfirskrift. Og takmarkið er frjáls og dáðríkur samfélags- þegn að nýju. Náið samband við umhverfið og samfélagið tilheyr- ir dagskránni. Kirkjugöngur, leikhúsferðir, „skógartúrar“ og skemmtikvöld, íþróttir og heim- sóknir í skóla og menningar- stofnanir eru dagleg viðfangs- efni auk fjölbreyttra starfa við jarðrækt og iðnað og samband fanga við ættingja sína og fjöl- skyldur eftir hætti. Auðvitað er þetta allt undir eftirliti úrvals- manna og kvenna og allt sem frjálslegast. Þessi starfsemi hófst fyrir nær þrem áratugum undir forystu fágæts mannvinar, sem hét Jim Waite og var þá um fertugt. Þetta hefur gefið mjög góða raun. Þótt flestir séu fullir beizkju og haturs við komu sína í búðirnar, þiðnar sá klaki yfir- leitt bráðlega. Segja má, að mjög fáir bregðist því trausti, sem þeim er sýnt, og verði á ótrúlega skömmum tíma dugandi þegnar þjóðfélagsins. Reynt er að út- vega öllum starf við hæfi áður en þeir hverfa á braut úr búðun- um. Eina hegning, sem þarna þykir eftirminnileg, er sú að enginn, sem strýkur, er tekinn aftur til baka nema einu sinni, ef hann kemur þá sjálfur og biður afsökunar. Það næsta til að byggja upp betrunarvist er „Stóri bróðir- inn“, sem svo er nefnt. Það er raunar miklu eldra fyrirbæri í fangelsismálum,- Það var stuttu eftir síðustu aldamót, að nokkrir menntamenn tóku sig saman að stofna „Stórubræðrasamtökin”. Þeir gefa kost á því, að taka að sér afbrotadrengi úr hælum og fangelsum. Veita þeim umsjá og vináttu og yfirleitt allt, sem stuðlað getur að góðu uppeldi. Drengimir eru á aldrinum 10— 16 ára, en geta verið eldri, þótt það sé talið erfitt. Fangaverðir og forstjórar uppeldisstofnana hafa samband við einhvern úr samtökum „bræðranna" og út- vega þeim „litla bróður". Takmarkið er: Aðstoð við afbrotaunglinga. Hún hefur bjargað hundruðum þúsunda frá ógæfu og afbrotum og er talin meðal merkustu hjálparstofnana í heimi. Ekki veit ég samt til, að hún hafi starfað hér á íslandi eða verið stofnuð opinberlega. Fátt er for- eldralausum og heimilislausum hollara, en eignast slíkan leið- toga og verndara, sem „Stóri- bróðirinn" getur verið. Samt var Oscar Clausen sannarlega slíkur bróðir, enda brautryðjandi i fangahjálp hér á landi. Eina ráðið, sem „Stórabróð- urnum" er alltaf gefið, er eitt- hvað á þessa leið: „Reyndu ósköp rólega að veita drengnum vináttu þína, með alúð og fórnarlund, finna áhuga- mál hans og kynnast fjölskyldu hans, ef hún er einhver." Sem betur fer eiga Butnerbúð- irnar óbeina hliðstæðu í aðbúð fanga eða afbrotamanna hér á landi en þar á ég við „Skilorðs- eftirlitið", sem heldur hundruð- um utan fangelsa, sé miðað við lengri tíma, útvegar vinnu og aðstöðu, gefur góð ráð og veitir allskonar aðstoð. Þar lagði Clausen grunninn. En andi og kraftur slíkrar handleiðslu þarf að komast inn á fangelsin sjálf og leitast við að tæma þau, gera þau óþörf ,í stað þess að byggja sífellt fleiri og stærri. Segja má einnig, að Vernd gegni að vissu leyti hlutverki „Stórubræðr- anna“. Og er þar enn arftaki Oscars Clausens, með Þóru Ein- arsdóttur í fararbroddi. Næsta og stærsta verkefnið til að breyta refsivist fangelsanna er, að stofna nokkurskonar hjálparstöð í anda Clausens og Þóru, sem væri líkt og „sæluhús“ á heiðinni eða leiðinni milli fangavistar og samfélagsins. Þar yrði tekið á móti öllum að lokinni afplánun, áður en þeir fengju fullt athafnafrelsi í sam- félaginu. Það væri eins ákveðin skylda miðað við dóma eins og fangavistin sjálf. Gæti verið tnisjafnlega langur tími eftir aðstöðu og þroska afbrota- manna, en varla styttri tími en mánuður. Þar væri þeim leið- beint um atvinnu og íbúðir eða verustaði, haft samband við fjöl- skyldur og vini þeirra. Gerðar áætlanir um efnahag og litið eftir, að þeir peningar, sem þeim hafa áskotnazt í fangavist eða þeir áttu frá fyrri tíð, væru notaðir á heppilegan hátt til að grundvalla góða framtíð eða styðja til átaka, meðan leitað er atvinnu og samastaðar. En ann- ars vill oft fara svo, að peningar án eftirlits og góðra ráða, verða fremur til freistinnar og falls í umsvifum og óskum hins ný- fengna frelsis. Svona eftirlits- stöð á leiðinni til gæfu og gengis að nýju er algjörlega nauðsyn- legur hlekkur milli þeirra ólíku aðstæðna, sem fangavist og frelsi hafa í för með sér. Hún og stofnun hennar, sem allra fyrst í algjöru samstarfi við „Skilorðið" annars vegar og „Vernd" hins vegar, er langt um nauðsynlegri en ný og stærri fangelsi, sem nú er talað um og óskað eftir. Væri rétt á málum haldið, og þær fórnandi hendur og góðvild, sem nú þegar hefur sýnt sig hjá einstaklingum og félögum sbr. starf „Verndar" og fangahjálpar fyrr og síðar, tekið til samstarfs, myndi framtíðin sanna, að við Islendingar þurfum ekki fleiri fangelsi. Ekki sízt ef betur yrði búið að heimilum og reynt að takmarka áfengisneyzlu og eit- urnautnir, sem fylla fangelsi frjálsra þjóða öllu öðru fremur, einnig hér. Brennivínið fyllir fangelsin. Sköpum íslenzku þjóðinni skil- yrði til framtíðar án afbrota. Burt með alla refsivist. Gefum ógæfubörnum samfélagsins kost á skynsamlegri betrunar- vist. Þar skal valinn — útvalinn maður skipa hvert starfssvið föðurhöndum og móðurum- hyggju. Rvík, 10.7.1980 Árelius Nielsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.