Morgunblaðið - 26.08.1980, Side 40

Morgunblaðið - 26.08.1980, Side 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1980 >4K> V M0RgUK/-,~v' MreiNU V í' -íC-'í_ ________ cZ, Ast er... Hljómar fáránlega, en hann dreymir um að verða fakir! IL-14- ... að hugsa til hans áður en þú ferð að sofa. *TM R«g..U S Paf. Off — att rtght* r«Mrv*d • 1978 Los AngetM Tlmee Syndlcate ■1 Hvað ég geri? — Nú ég er þræll! Hann kvað þetta um daginn, eftir 77. áreksturinn! Óðal feðranna ... góð mynd EF ÞAÐ ER FRÉTTNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU U (.l,VS|\(. \ SIMIW KK: 22480 ©PIB COSPER m-- COSPER - . Lágmarkskurteisi er það eina sem ég fer fram á hér. — Og mundu, ég er atvinnuveitandinn þinn! Mér finnst Óðal feðranna að mörgu leyti góð mynd, og eiga erindi til okkar. Saga þessarar fjölskyldu, er í raun saga íslend- inga í einangrun og átthagafjötr- un verðbólgu og yfirvinnubasli sem engan endi tekur. Það má endalaust ræða einstök atriði myndar, en heildin skiptir megin máli. Mér finnst hún lofa góðu. Að myndin sé gerð fyrst og fremst til að seljast og sýni m.a. þess vegna mikið af fallegu lands- lagi, finnst mér í fyrsta lagi alls ekki rétt. Hitt ætti að vera okkur ánægjuefni, ef islensk kvikmynda- gerð (með íslensku landslagi eða án) nær að dafna og auka menn- ingu okkar og gæti þar að auki orðið okkur tekjubót, því ekki mun nú veita af. Unnandi islenskra kvikmynda. Það er undarlegt hve Seltirn- ingar hafa getað haldið bænum sínum hreinum. Þó er ein undan- tekning á því, en það er Mel- abrautin. Hún er í rauninni til háborinnar skammar, og þá sér- staklega fyrir utan Nesval. Það mætti halda að þessi gata væri aldrei sópuð eða hreinsuð á einn eða annan hátt, og er það dálítið furðulegt, þar sem þetta er ein aðalgata okkar Seltirninga. Því eins og við vitum flest verzla Reykvkingarnir oft hjá okkur í Nesvali um helgar. Nú vil ég hvetja forráðamennina til að taka sig til í andlitinu og sjá til að þetta verði lagfært hið skjótasta. • Framtíðar- ástand I vor sem leið hóf hitaveitan (?) framkvæmdir við Eyrarland á móts við Dalaland. Var gangstétt grafin upp á kafla og væntanlega einhverjar leiðslur kannaðar. íbú- ar í nágrenninu kipptu sér ekki mikið upp við þetta enda alvanir því að við eitthvað þurfi að gera. En nú eru liðnir um það bil þrír mánuðir síðan starfsmenn hófu aðgerðir á staðnum og ekkert hefur verið gert í allt sumar. Sem íbúa Fossvogshverfis langar mig að spyrja hvort þetta ástand eigi að vara mikið lengur eða hvort hér sé um framtíðarástand að ræða. 5248-4679. MYNDAMÓT HF. ADALSTHÆTI C — 8CYKJAVIK PftiNTMYNOAGEAO OFFSFT FILMUft OG ftlöTUft SlMI 17112 AUGlÝSlNGATEIKNISTOFA SlMI 2S810 Komu 190 manns í stað 50 til 60 VEGNA ferðar á vegum Ferðafé- lags íslands til gosstöðvanna v/Heklu 18. ágúst sl„ viljum við undirrituð, er vorum fararstjórar í umræddri ferð taka eftirfarandi fram: Þennan umrædda dag efndi Ferðafélag Islands til tveggja ferða á gosstöðvarnar. Voru þær ákveðnar um morguninn og auglýstar í út- varpi. Þar sem fleiri aðilar höfðu auglýst ferðir til Heklu sama dag, var áætlað að þátttakan yrði 40—60 manns, eða sem rúmaðist í einum stórum fólksflutningabíl. Allar áætl- anir, sem gerðir voru miðuðust við þann fjölda. I útvarpi og samkvæmt öðrum upplýsingum var talið bezt að virða gosstöðvarnar fyrir sér frá Selsundi eða nágrenni þess. Því var ákveðið að aka þangað, dvelja þar eða í nágrenninu nokkuð fram yfir mið- nætti og halda síðan áleiðis til Reykjavíkur. Þegar halda átti af stað frá Reykjavík kl. 19 reyndist fjöldi þátttakenda um 190 alls. Þá hefði verið viturlegast að hætta við ferð- ina, en hvernig hefði þeira, sem mættir voru litist á það? Hefðu allir verið því samþykkir? Nægur bíla- kostur var fyrir hendi, svo að ekið var af stað með þennan hóp í fjórum bílum. Þegar komið var að Selsundi var mjög lítið gos sjáanlegt í suðvestur- hlíðum fjallsins, en samkvæmt öll- um fréttum átti þar að vera mikið gos. Þá hefði verið skynsamlegt að hætta við gönguferðina, sem fyrir- huguð hafði verið og snúa rakleitt við til Reykjavíkur. En hvernig hefði fólki líkað það? Hefðu menn ekki mótmælt? Því var ákveðið að halda við fyrirhugaða áætlun í trausti þess, að hún gengi eftir. í þessari ferð voru þrautþjálfaðir göngugarpar, miðaldra fólk og smá- börn, sem þurfti að bera. öllum var það sameiginlegt að reyna að fá sem bezta sýn yfir eldsumbrotin. Því hröðuðu þeir dugtegustu sér af stað og náðu takmarki sínu. Öðrum veittist gangan miður eins og geng- ur, en eitt var ljóst frá byrjun, þessi hópur gat ekki átt samleið, til þess var hann of sundurleitur. Fólkið kom síðan til bílanna aftur eftir misjafnlega langan tíma. Eng- inn villtist og ekki þurfti að gera leit að neinum. Þegar síðustu fararstjór- arnir komu til baka voru allir komnir í bílana. Við skiljum vel að margir eru óánægðir með þessa ferð, og það erum við líka. Hún fór öðruvísi en ætlað hafði verið í upphafi. Við vonum að allir réttsýnir menn kynni sér þau atriði, sem við höfum nefnt hér að framan, og felli ekki sinn dóm fyrr en að því loknu. Það er ávallt vani okkar, þegar við þurfum að fara yfir tún, eða nálægt bæjum í gönguferð, að biðja forráða- menn um leyfi. En í þetta sinn gafst ekki tími til þess í tæka tíð. Við þökkum löggæslumönnum, sem dvöldu við Selsund og höfðu kveikt á ljóskösturum fólkinu til leiðbein- ingar og voru reiðubúnir til frekari aðstoðar, en sem betur fór reyndist þess ekki þörf. Með þökk fyrir birtinguna. Reykjavík 20. ágúst 1980. Einar Haukur Kristjánsson Tómas Einarsson Þórunn Þórðardóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.