Morgunblaðið - 11.09.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1980
5
FFSÍ óánægt
með vinnubrögð
ríkisstiórnarinnar
ÞRtR fulltrúar Farmanna- og
fiskimannasambands íslands
áttu fund með Gunnari Thor-
oddsen forsætisráðherra i
fyrradag og fluttu þeir honum
boðskap fundar formanna sam-
bandsfélaga FFSÍ. sem haldinn
var síðastliðinn laugardag. í
ályktuninni mótmælti fundur
FFSÍ „hugmyndum. sem felast
muni i hugmyndaskrá efna-
hagsmálanefndar ríkisstjórnar-
innar“ um að fiskverð hækki
ekki. Jafnframt mótmæltu full-
trúarnir vinnubrögðum ríkis-
stjórnarinnar, sem engin sam-
ráð hefði haft við FFSÍ, þrátt
fyrir ákvæði ólafslaga.
Fulltrúar FFSÍ voru Ingólfur
Falsson, forseti FFSÍ, Ingólfur
Ingólfsson, varaforseti, og Þórð-
ur Sveinbjörnsson, starfsmaður
Öldunnar, sem er eitt stærsta
félagið innan FFSÍ. Þeir afhentu
forsætisráðherra eftirfarandi
ályktun:
„Fundur formanna sambands-
félaga Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands, hald-
inn laugardaginn 6. september
1980, samþykkir að beina þeirri
kröfu til stjórnvalda, að þau
beiti sér fyrir því, að fiskverð
geti hækkað til jafns við al-
mennar launahækkanir.
Jafnframt varar fundurinn við
afleiðingum þeirra hugmynda,
sem felast munu í hugmynda-
skrá efnahagsmálanefndar rík-
isstjórnarinnar, og gera ráð
fyrir því, að fiskverð hækki ekki
hinn 1. október næstkomandi,
enda þótt laun allra stétta hafi
hækkað bæði vegna hækkunar
verðbóta, auk fyrirsjáanlegra
nokkurra grunnkaupshækkana.
Einnig lýsir fundurinn yfir
óánægju sinni yfir vinnubrögð-
um ríkisstjórnarinnar með tilliti
til ákvæða 2. kafla laga nr. 13 frá
10. apríl 1979 um stjórn efna-
hagsmála o.fl. og stefnuyfirlýs-
ingu núverandi ríkisstjórnar, að
ekki skuli hið minnsta rætt við
sjómenn, á sama tíma og vitað er
að viðræður hafa staðið við hin
ýmsu hagsmunasamtök í land-
inu. Vill sambandið af því tilefni
minna á nokkur þeirra hags-
munamála sjómanna, sem brýn-
ust eru og að stjórnvöldum snúa
...“ Síðan eru í ályktuninni talin
upp þau atriði er varða lífeyris-
sjóðamál, slysatryggingar,
launagreiðslur sjómanna í veiði-
bönnum og öryggismál sjó-
manna.
Gunnar Thoroddsen brást
ókvæða við, er þeir félagar höfðu
afhent honum plaggið, að því er
Ingólfur Falsson, forseti FFSÍ,
tjáði Morgunblaðinu. Hann kvað
Gunnar hafa fundið að því, að
sjómenn ályktuðu á grundvelli
blaðafregna, en fulltrúar FFSÍ
svöruðu því til, að fregnum af
hugmyndum efnahagsmála-
nefndar ríkisstjórnarinnar hefði
ekki verið mótmælt af stjórn-
völdum, auk þess sem önnur
hagsmunasamtök hefðu einnig
ályktað á sama veg. Því hefðu
menn enga ástæðu haft til þess
að tortryggja sannleiksgildi
fréttanna. Ingólfur Falsson kvað
ýmsar viðræður hafa átt sér stað
á bak við tjöldin vegna þessara
mála, þótt ekki hafi verið rætt
við FFSÍ, svo sem lög mæltu
fyrir um. Hann sagði, að sér
virtist sem stjórnvöld væru að
reyna að reka fleyg á milli
sjómannasamtakanna í landinu
og taldi hann að þar ættu þeir
Arnmundur Bachmann og Svav-
ar Gestsson hlut að máli.
Biskup íslands. dr. Sigurbjörn Einarsson. ásamt einum ortodoxu
biskupanna. Jóhannesi metropolitan frá Finnlandi.
Messað í Skálholti í kvöld
BISKUP íslands, dr. Sigur-
björn Einarsson syngur
messu í Skálholti í kvöld
klukkan 21, en þar þinga nú
hinir ortodoxu guðfræð-
ingar. Sr. Sigurður Pálsson
vígslubiskup og sr. Guð-
mundur Óli Ólafsson Skál-
holtsprestur þjóna fyrir alt-
ari ásamt biskupi. Heimir
Steinsson rektor predikar en
hinir ortodoxu gestir taka
mikinn þátt í guðsþjónust-
unni. Glúmur Gylfason ann-
ast organleik og leiðir söng.
Öllum er að sjálfsögðu boðið
að vera við kirkju og munu
um 7 biskupsvígðir menn
vera þarna viðstaddir.
Mönnum gefst og tækifæri
til að ræða við hina ortodoxu
gesti eftir guðsþjónustu.
Messan hefst sem fyrr segir
kl. 21 á fimmtudagskvöld.
[, VSIMIVN KK:
22480 kií1
„Anna á mig“
FORNLEIFAFRÆÐINGAR hafa í sumar verið við uppgröft að
Stóru-Borg undir Eyjafjöllum undir stjórn Mjallar Snæsdóttur.
Fundust þar margir merkilegir gripir, en þarna hefur staðið býli um
aldir. Um helgina kom i ieitirnar fagurlega útskorinn snældusnúður
og áletrun á honum virðist vera: „Anna á mig“. Hafa menn leitt getum
að þvi, að Anna. húsfreyja á Stóru-Borg, hafi átt gripinn og jafnvel
hafi Hjalti skorið hann út í einverunni i hellinum á siðari hluta 16.
aldar. Anna og Hjalti eru aðalsöguhetjurnar i sögu Jóns Trausta um
Önnu á Stóru-Borg.
íslenskir flugmenn
til Malaysíu?
FLUGLEIÐIR hafa undanfarn-
ar vikur annast þjálfun tíu
sænskra flugstjóra Fokker F-27
flugvéla. Eru það starfsmenn
sænska flugfélagsins Linjeflyg.
sem ráðnir hafa verið eða lánað-
ir til starfa hjá Malaysia Air-
line System. Meðai þeirra er
þjálfað hafa Sviana er Ingimar
Sveinbjörnsson flugstjóri hjá
Flugleiðum og var hann í gær
spurður hvort möguleiki væri á
störfum fyrir íslenska flug-
menn hjá áðurgreindu félagi.
— Einhver möguleiki er á því
að íslendingar geti fengið vinnu
hjá þessu flugfélagi í Kuala
Lumpur, en þó er það allt óljóst
ennþá, sagði Ingimar. — Þeir
hafa helst augastað á flugstjór-
um með langa reynslu og vilja
síður unga aðstoðarflugmenn, en
þó er hugsanlegt að þangað gætu
farið nokkrir menn, sagði Ingi-
mar einnig, en yfirflugstjóri
Malaysia Airline System kom til
Reykjavíkur á dögunum vegna
þjálfunar Svíanna og voru þá
þessar hugmyndir um íslenska
flugmenn viðraðar við hann.
Enn liggja ekki fyrir upplýs-
ingar hjá Flugleiðum um endur-
ráðningar flugmanna og kvað
Ingimar menn bíða niðurstaðna
áður en ákvarðanir væru teknar
í þessum málum.
PTOFRA-
Ryksugan sem svif ur
HOOVER Töfradiskurinn S 3005 er ryksuga sem vekur
undrun. vegna þess hve fullkomlega einföld hún er.
Sogstyrkurinn er ósvikinn frá 800 W mótor, og rykpokinn
rumar 12 litra, já 12 litra af ryki. HOOVER S 3005 er A
ennfremur léttasta ryksuga sem völ er á, hún liður umJ '
gólfið á loftpúöa alveg fyrirhafnarlaust
fyrir þig. svo létt er hún. ÆT
Verö kr.
122.780.-
S Egerléttust...
búin 800 W mótor
^og 12 lítra rykpoka
(Made in USA)
im
HOOVER er heimilishjálp