Morgunblaðið - 11.09.1980, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1980
23
BÓKHLAÐAN Á ÍSAFIRÐI 60 ÁRA:
Dreifbýlisverslun
býr við þrengri kjör
en þéttbýlisverslun
BÓKAVERSLUN Jónasar Tóm-
assonar á ísafirði er 60 ára um
þessar mundir. en það var
Jónas Tómasson tónskáld otr
orKanisti á ísafirði sem opnaði
búð sina hinn 20. ágúst 1920.
Rak Jónas Bókhlöðuna. eins og
hún er jafnan kölluð meðal
ísfirðinga. i yfir 30 ár. en þá
tók sonur hans, Gunnlaugur
Friðrik, við rekstrinum. Er
Bókaverslun Jónasar Tómas-
sonar nú eina bóka- og ritfanga-
verslunin á ísafirði, en um
skeið rak Helgi Guðbjartsson
bókabúð, sem Matthias Bjarna-
son alþingismaður keypti og
rak þar til fyrir nokkrum
árum.
Bókhlaðan var fyrstu árin til
húsa að Aðalstræti 26a, en
siðan 1928 hefur hún verið að
Hafnarstræti 2.
— Fjórir kaupmenn hér í
miðbænum tóku sig saman og
létu byggja húsasamstæðuna
Hafnarstræti 2, 4 og 6, en þeir
voru ásamt föður mínum Þórður
Jóhannsson úrsmiður og klæð-
skerarnir Einar Guðmundsson
og Kristján Trygg\'ason, upp-
lýsti Gunnlaugur er Mbl. spjall-
aði stuttlega við hann á dögun-
um. — Þetta þóttu miklar fram-
kvæmdir hér og notuð ýmis ný
tækni að því er mér hefur verið
tjáð. Til gamans mætti nefna
tölur um byggingarkostnað, sem
var í fyrstu áætlaður um 30
þúsund krónur fyrir Hafnar-
stræti 2, en varð 60 þúsund
krónur áður en yfir lauk og hefði
faðir minn trúlega ekki ráðist í
þessar framkvæmdir hefði hann
vitað hversu mikill kostnaðurinn
yrði.
Ritfangalager var upphafið
Upphaf Bókhlöðunnar var það
að Jónas Tómasson keypti
sumarið 1920 gamlan lager af
ritföngum af Oddi Guðmunds-
syni kaupmanni, sem rak um
skeið ritfangaverslun, en áður
hafði Guðmundur Bergsson
póstmeistari verslað með þenn-
an varning. Bætti Jónas við
bókum og opnaði verslun sína
sem fyrr segir hinn 20. ágúst
1920. Milli 1930 og 1940 flutti
hann inn orgel og fleiri hljóðfæri
frá Þýskalandi og víðar og gekk
sú hljóðfærasala allt fram undir
stríðið. Þarna kom til tónlistar-
- segir Gunnlaug-
ur Jónasson
áhugi Jónasar, en hann stofnaði
Sunnukórinn á ísafirði, átti sinn
þátt í stofnun Tónlistarskóla
Isafjarðar og var tónskáld þar
fyrir utan.
Bókhlaðan er ekki elsta versl-
unin á Isafirði, kringum alda-
mótin voru þar starfandi ýmis
fyrirtæki, m.a. Bökunarfélag Is-
firðinga, sem nýlega hefur hætt
starfsemi sinni og finna má þar
ennþá gamlar búðir eins og
Björnsbúð og Gamla bakaríið og
fleiri, sem enn eru í fullu fjöri.
Og nefna má nafn fyrstu af-
greiðslustúlku Bókhlöðunnar,
Kristínar Magnúsdóttir, sem
enn lifir á ísafirði, en þau eru
orðin allmörg, sem staðið hafa
við afgreiðslu í Bókhlöðunni
gegnum árin. En Gunnlaugur
hefur orðið áfram og ræðir
verslunarreksturinn:
Bókhlaða og Sporthlaða
— Við seljum bækur, pappírs-
vörur, ritföng og skrifstofu-
áhöld, skólavörur og ljósmynda-
vörur og síðustu árin höfum við
smám saman bætt við okkur sölu
í hvers kyns íþrótta- og útilífs-
vörum. Hefur sú deild tekið æ
meira rými í versluninni og sl.
haust var opnuð sérstök deild í
húsnæði við hlið Bókhlöðunnar,
Silfurtorgi 1, og þar sem nafnið
Bókhlaðan er orðið mönnum hér
tamt í munni varð að ráði að
nefna hina nýju deild Sporthlöð-
una.
Hvernig gengur verslunar-
rekstur úti á landsbyggðinni?
— Að undanförnu hefur verið
rætt um vandamál dreifbýlis-
verslunarinnar bæði i blöðum og
á fundum hjá hinum ýmsu
samtökum kaupmanna og víst er
að dreifbýlisverslun býr að
mörgu leyti við þrengri kjör
heldur en verslun í þéttbýli.
Kemur þar fyrst og fremst til að
vörubirgðir þurfa að vera meiri,
en veltuhraðinn er jafnframt
minni, en í dýrtíðinni er sífellt
erfiðara að halda við stórum
lager þegar langt líður á milli
þess að varan er pöntuð.
Þarfir neytandans jafnmiklar
Nefna má að núna er ég að
panta ákveðna tegund af páppír,
sem ég gerði siðast fyrir sex
mánuðum og er hann nú 18%
dýrari heldur en núverandi út-
söluverð þessa pappírs án sölu-
skatts. Hins vegar eru þarfir
neytandans jafnmiklar hvort
sem um er að ræða 100 menn eða
tiu þúsund, vöruvalið þarf að
vera svipað. Verslunum ber að
framfylgja settum reglum um
álagningu og birgðahald, sem
sníða þeim nokkuð þröngan
stakk þegar svona er í pottinn
búið og er álitamál hvort ekki
eigi að endurskoða þessar reglur,
ef menn hafa þá ekki þegar
breytt þeim í reynd. Búðir úti á
landi geta ekki leyft sér að hafa
eins mikla sérhæfingu og búðir í
þéttbýli, en þó verðum við að
reyna að hafa flest það sem
menn þurfa á að halda. Við
þyrftum í rauninni að hafa eins
mikið úrval af ritföngum og
Penninn í Reykjavík og eins
mikið af bókum og verslun
Sigfúsar Eymundssonar, en slíkt
er að sjálfsögðu ekki hægt í
þessu tilviki. Við þessa erfiðleika
bætist við síma- og flutnings-
kostnaður svo nokkuð sé nefnt
og öll innkaup verða jafnan erfið
þegar um svo miklar fjarlægðir
er að ræða. Þá má benda á það
að söluskattur af flutnings-
kostnaði er lagður við vöruverð
úti á landi og rennur drjúgur
hluti af veltu verslunar úti á
landi umfram þéttbýlisverslanir
til ríkisins.
Auka þarf lánafyrirgreiðslu
Almennt er viðurkennd nauð-
syn verslunar í atvinnulífi dreif-
býlisins og eru þess dæmi er-
lendis að slík verslun sé styrkt.
Ég vona að til þess þurfi ekki að
koma hér á landi, en þessi
þröngu kjör þurfa m.a. kaupfé-
lögin að glíma við. í þessu
sambandi mætti velta fyrir sér
hvort ekki væri hægt að aðstoða
nokkuð hér með því að dreifbýl-
isverslun hefði aðgang að hag-
kvæmum lánum til að bæta
rekstur sinn bæði starfsmönnum
og viðskiptavinum til hagsbóta,
segir Gunnlaugur einnig.
Þannig mætti halda áfram að
ræða um vandamál dreifbýlis-
verslunar, en hér verður látið
staðar numið og Gunnlaugur
hefur lokaorðið:
— Ég hef ánægju af þessu
Gunnlaugur Jónasson og Anna Gunnlaugsdóttir við afgreiðslu i
Bókhlöðunni.
Jónas Gunnlaugsson verslunarstjóri i Sporthlöðunni.
Vegfarendur glugga í skreytingu þar sem afmælisins er getið.
starfi og áhuga fyrir því, við
umgöngumst marga og kynn-
umst mörgum og held ég að
svona starf sé ólíkt fjölbreyttara
og meira lifandi en skrifstofu-
starf þar sem alltaf eru sömu
andlitin. Við komumst í snert-
ingu við mannlífið í bænum og
vona ég bara að við getum átt
ánægjuleg samskipti við bæjar-
búa og gesti áframhaldandi og
vil ég þakka þeim viðskiptin á
liðnum árum.
Sjálfsagt má búast við því að
ísfirðingar og aðrir, sem erindi
eiga í Bókhlöðuna haldi áfram
að venja komur sínar þar, ef ekki
til að versla, þá ganga við í kaffi-
og matartímum eða á leið heim
eftir vinnu, til að líta í blöðin og
spjalla. Og á afmælisdaginn bár-
ust versluninni blóm og kveðjur
frá bæjarbúum og reyndar urðu
blómvendirnir svo margir, að
einhver, sem kom inn í verslun-
ina, spurði á hvað blómin væru
seld!
j.
Ármann Kr. Einarsson:
Du, som kom - ný ljóðabók
eftir Þorstein Stefánsson
Eins og kunnugt er starfar í
Danmörku útgáfufyrirtækið „Bir-
gitte Hövrings Biblioteksforlag",
sem eingöngu gefur út bækur eftir
islenska höfunda. Stofnandi for-
lagsins Birgitte Hövring bóka-
vörður og maður hennar Þor-
steinn Stefánsson rithöfundur
unnu á stuttum tíma þrekvirki á
sviði þýðinga íslenskra bók-
mennta, kynningu þeirra og út-
gáfu í Danmörku og fleiri löndum.
Eftir að Birgitte andaðist fyrir
2 árum tók Þorsteinn einn við
rekstri forlagsins. Nú skráir hann
fyrirtækið „BHB Icelandic world
literature".
Þorsteinn er mikill málamaður,-
en hann skrifar jöfnum höndum á
íslensku, dönsku og ensku. Bækur
Þorsteins munu verða orðnar alls
þrettán að tölu, og nær sama
fjölda bóka hefur hann þýtt eftir
íslenska höfunda, þar á meðal
mörg verk Ólafs Jóhanns Sigurðs-
sonar.
Þorsteinn er víða þekktur. Sög-
ur hans hafa komið út í mörgum
löndum. Auk Norðurlandanna má
nefna: Holland, Frakkland, Þýska-
land, Austurríki, Sviss, Ameríku,
Kanada, England, Rússland og
Búlgaríu.
Þorsteinn hefur skrifað skáld-
sögur, smásögur og leikrit og nú
hefur hann snúið sér að skáldskap
í bundnu máli. Á síðastliðnu ári
kom út fyrsta ljóðabók hans sem
ber heitið „Du, som kom“. Efni
sækir skáldið í eigin lífsreynslu,
ástir karls og konu, brothætta,
ljúfsára hamingju, sem erfitt er
að túlka í orðum, en er þó svo
sterk að hún lyftir Grettistökum.
Nú er komið út annað bindi
ljóðabálksins „Du, som kom“.
Bókin er 148 blaðsíður og skiptist í
8 kafla. Á kápusíðu bókarinnar er
getið ummæla danskra gagnrýn-
enda um fyrsta bindi ljóðanna og
eru þau nær undantekningarlaust
mjög lofsamleg. Þá er þess getið
Þorsteinn Stefánsson.
að 3. og síðasta bindi verksins
komi út á næsta ári.
Það er BHB Icelandic world
literature, sem gefur bókina út.
Á. E.
Deildakeppni
S.í. í
Munaðarnesi
DEILDAKEPPNI Skáksam
bands íslands hefst í Munaðar-
nesi helgina 19, —21. septomber
n.k. og verða þá tefldar fyrstu
þrjár umferðirnar.
í fyrstu deild keppa átta manna
sveitir frá Akureyri, Kópavogi,
Seltjarnarnesi, Hafnarfirði, Tafl-
félaginu Mjölni, A-sveit Taflfélags
Reykjavíkur og sveitir Skáksam-
banda Austurlands og Vestfjarða.
í annarri deild keppa sex manna
sveitir frá Keflavík, Akranesi,
Húsavík, Taflfélaginu hans Nóa,
Taflfélagi Hreyfils og B-sveit
Taflfélags Reykjavíkur.
\SIMISN Klí:
224BD vbí'
JHorcunblnbib