Morgunblaðið - 11.09.1980, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1980
27
Jens í Kaldalóni:
F óðurbætisskattur
og fíflalæti
Svo hart sem hin íslenska nátt-
úra — veðurfar, eldgos og hafís-
þök hafa frá örófi alda hrjáð
okkar íslensku bændastétt — pól-
itískir angurgapar hrellt hana og
misboðið með innantómu og rak-
alausu kjaftaþvaðri, — sem
ómenni væru á ómagajötu, —
árum saman og áratugum hafa þó
bændur þessa lands paufast af
þolgæði og þrautseigju mót hverj-
um brotfaldinum af öðrum til þess
sér og sínum að lífi halda, og talið
sig vera í þeirri stétt manna þessa
íslenska þjóðlífs, sem tilheyrði því
nafni, að teljast sem atvinnustétt
á borð við aðra þegna þessa lands,
að mega með erfiði sinna handa
skapa sér viðurværi til lífsins
þarfa.
Nærri því ekkert af þessu öllu
hefur þó jafn sárt undan sviðið og
þeim óhemju þjösnahætti, sem nú
í sumar var á sett, — af misvitrum
mannavöldum gert, — og á ég þá
við þá áþján sem í þeim fantalög-
um finnast, þá er að baki þeirra
var í laumi skreiðst með hinn
svokallaða fóðurbætisskatt.
Svo afdráttarlaust sem bændur
stóðu á móti þessari plágu, skyldi
þeim ckki sú frjálshyggja líðast,
og skyldi því sem þjófur úr skoti
skjótast að þeim úr launsátri, og
engan láta þar um vita fyrr en
áhlaupið var gert með valdbeit-
ingu „brýnnar nauðsynjar".
Allar þeirra bestu kýr, sem
áratugi tekið hefir upp að rækta í
þann munað að gefa góðan arð,
skal nú á einu bretti upp þurrkast,
þá af sér hafa holdin mjólkað, og
upp veslast af efnaskorti, — þá
enga næringu þær lengur fá til
samræmis þeirri framleiðslu, sem
gerðar eru þær fyrir, en þær einar
lífi halda, sem rúmlega mjólkað
geta kálfi sínum.
Hér eru svo fantaleg fíflalæti
innleidd í okkar aðra bestu at-
vinnustétt að undrun sætir, að
þegar í upphafi skuli ekki sú
uppreisn yfir gengið, að ekki verði
hjá komist niður að drepa þær
vanhugsuðu vitleysu gerðir, sem
jafnvel fábjánum flestum myndi
ofbjóða þær afleiðingar, sem af
gætu hlotist.
Þrautalending bænda nú er eng-
in önnur til, en að láta nú uppúr
miðjum september allar kýr
steingeldast, og halda í þeim, sem
ekki verður fargað í komandi
sláturtíð, — líftórunni í vetur sem
geldneyti væru, og mætti þá svo
fara, að einhver skynjaði afleið-
ingar þeirra gerða sem hér um
ræðir, og þá ekki síður finna gildi
þess, sem hinn magnþrungni
kostamatur mjólkurafurðanna
hefur á lífsþrótt og tilveru ungra
og aldna.
Slíkar einhliða háskagerðir sem
þessar eru í eðli sínu svo varasam-
ar, að víst gátu bændur sagt öllum
mjólkurbílum til fjandans að fara
tómum til baka, því mjólkin væri
þegar í flórinn farin, — og vatns-
dropann bláan þeir gætu sötrað,
sem að þessum verkum staðið
hefðu. Og enda þótt bændur séu
þolgóðir í margri raun, svo sem
ekki síður sjómenn þessa lands, —
þá skal enginn fyrir það loku
skjóta, að ekki gætu þeir orðið
þungir á bárunni þá að þeim er
vegið með jafn óverjandi óskamm-
feilni sem nú hefur gert verið.
Offramleiðsla verður á engan hátt
læknuð í neinni starfstétt með
slíku fári, — þar verður til að
koma mannleg dómgreind og heil-
brigð skynsemi.
Það fer enginn lifandi maður í
gustukaskyni einu saman að
kaupa mél fyrir 400 þúsund krón-
ur tonnið til þess eins að fólk fái
mjólk útá grautinn. Mjólk er ekki
hægt að framleiða frekar en aðra
vöru, nema í atvinnulegu tilliti, til
þess upp að skera lífvænlegt
lifibrauð þeim til handa, er að því
vinna.
Að ætla að bjarga grasköggla-
framleiðslu og smábændum með
skatti af fóðurbæti sem svo er með
okurverði orðinn, að enginn getur
keypt hann, eru tilgangslausir
hugarórar sem hvergi standast
heilbrigða dómgreind, og ef aðrar
aðgerðir stjórnunar framleiðslu-
mála okkar eru byggðar á svipuð-
um forsendum og fávizku, er ekki
von að vel fari.
Fyrir einn smábónda með 300
ærgildi = 15 kýr, sem gæfi kúnni 1
tonn af méli á ári, sem ekki
óhóflegt getur talist, kostar þessi
hækkun á mélinu hjá honum um
4,5 milljónir á ári. Með slíkri
spilamennsku þýðir ekki að reyna
til að vinna nokkurt geim. Það eru
sjálflögð niður spilin. Það segir sig
sjálft að engin leið er útúr þessum
ógöngum önnur en að bændur eru
neyddir til að láta kýrnar stein-
geldast nú á haustnóttum, og þar
með verða algert afurðatap og
mjólkurskortur. Þetta hefðu allir
skynibornir menn mátt fyrir-
fraam vita. Þetta jaðrar algerlega
við innflutningsbann á þessari
vöru, og að básúna sem hroða-
legustu vandræði, að við Islend-
ingar skulum fá niðurgreiddan
fóðurbæti, og telja það til þjóðar-
plágu jafnvel, er svo frámunalega
ógeðfellt hugarfar, og fásinna sem
að baki liggur, að furðu gegnir að
forráðamenn nokkurrar þjóðar
skuli svo úr rót slitnir úr tilveru
hins daglega lífs, svo sem við
hérlendir bændur búum við eitt
hið ótryggasta veðurfar, sem
nokkur mennsk þjóð verður við að
búa, óþurrka oft, kal og harðindi,
svo jafnvel liggur við á stundum,
að heilir landshlutar fari í auðn,
og er ekki lengra til að jafna en
síðustu haustnátta, þá heyskapur í
heilu héraði lá undir kafsnjó, þá
vetur var að genginn.
í Þjóðviljanum 22. júlí stendur
þetta: „Skattinum var aldrei ætlað
að vera tekjuöflunarleið fyrir einn
né neinn heldur var hann hugsað-
ur sem leið til að stjórna mjólkur-
framleiðslunni." Þarna er þó
nokkuð sannleikskorn. Hann var
helst ætlaður til að drepa niður
mjólkurframleiðslu þjóðarinnar,
og sem harkalegust stríðsárás á
hendur bænda, að ófyrirsynju og
ástæðulausu, og gat orðið stór-
hættuleg árás, ef bændur hefðu
tekið honum sem maklegt hefði
verið, og gæti orðið ennþá. Land-
búnaðarráðherra hefir hinsvegar
margsagt, að hann eigi að vera til
að styðja við graskögglaverk-
smiðjurnar og létta broddinn af
kvótakerfinu hjá þeim sem minnst
hafa búin. Er þá ekki þessi
vitlausasti skattur, sem á hefur
verið lagður, orðinn að tekjulind
fyrir þessa aðila. En vitanlega fær
smábóndinn aldrei neitt raunhæft
til sinna tekna úr vitleysunni
þeirri arna, enda þolir hann þetta
langverst, því 4,5 milljónirnar,
sem að framan getur eru bein
tekjuskerðing hjá honum, auk
þess sem rándýrir vextir gleypa til
sín ótalin hundruð þúsunda frá
því mélið væri keypt og þar til
Jens Guðmundsson
greiðsla kæmi frá fóðurbætis-
skatti, ef þá nokkurntíma yrði um
greiðslu þaðan að ræða. Hér ber
því allt að sama brunni, — sem sé
að skákað er í því sama skjólinu,
að hvað oft sem roðið er harðsnúið
fyrir bændur að naga, þá jóðla
þeir á því möglunarlaust, og það
nota þeir sér, sem ráðlausir
standa til nokkurrar raunhæfrar
úrlausnar vandamálum þeirra, og
þjóðarinnar í raun allrar.
Svo er ég stórorður um sögu
þessa, að mér finnst hér ómaklega
verið hafa vegið að okkar bænda-
stétt og ómannlega að staðið,
langt umfram nokkra þörf eða vit.
Ráðvilltir menn rölta um þann
eymdarveg, — sem úr öllum
tengslum er löngu frá slitinn því
litríka lífi, sem þeir í huga sér
mættu þó í fjarska líta fegurra
auga, — en svo, — að báðum þeir
lokuðu fyrir afdrifum þeim öllum,
sem af gætu hlotist, og röltu sem
blindir væru að þeirri feigðar-
strönd, sem auðnin ein speglaði
vanmátt þeirra og þekkingarleysi
á þeirri raunhyggju sem ekki
verður framhjá gengið í tímans
rás, hvort sem manni líkar svo
betur eða verr.
Slík stjórnun er ekki óáþekk þá
5 milljarðar séu á einu bretti
settir á herðar atvinnutækja þjóð-
ar okkar, — þá ein hitaveita þarf
til sinna þarfa 2 milljarða til
framtíðarheilla sínu byggðarlagi.
Væri vart umtalsverður áhall-
inn, þá báðir slíkir ráðsmennsku-
postular væru á sinn klakkinn
settir á Brúnku gömlu, og myndi
þá sl. aldrei um snarast, en miklu
frekar augun opnast fyrir því
hversu hér hefðu mislukkaðir
menn í pokann látnir verið.
Erksmiójusala ]
Rnviir ó allo olHnrehnna ^^***^^^
Jfc.Ml
Buxur a alla aldurshopa
Herrabuxur úr flaueli, kakí og denim.
Dömubuxur úr flaueli, flannel og kakí.
Unglingabuxur úr flannel, flaueli og denim.
Barnabuxur úr flannel, flaueli og denim.
Sumarjakkar á börn og karlmenn.
Gerið góö kaup í úrvalsvöru.
Opiö virka daga kl. 9—18. Laugardaga kl. 9—12.
BOT HF.
Skipholti 7.
Sími 28720.
Þú getur dregið hlutina - og tapað!
Kauptu SANYO litsjónvarp í dag.
Okkur tókst aö semja um ótrúlegt verö á nokkrum
SANYO litsjónvörpum.
^SANYO CTP6213
Verö aöeins 668.000.- (gengi 2.9. 80).
Staögr. 629.500 - (gengi 2. 9. 80)
®SANYO CTP6217
Verö aðeins 769.500.-
(Fullkomin fjarstýring).
Þetta eru ódýrustu litsjónvörpin — og þau eru japönsk
gæöavara íkaupbæti. Þú skalt athuga þaö!!!
Gunnar Asgeirsson h/f. Suöurlandsbraut 16, sími 35200