Morgunblaðið - 11.09.1980, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1980
37
essonar „Myglað eyrnakonfekt"
sem birtist í Mbl. 18/7 1980. Það
voru orð í tíma töluð og þó fyrr
hefði verið.
• Fyrir hverja er
Ríkisútvarpið
Ég tel það stórfurðulegt að
þessi þungmelta tónlist sem krefst
algers næðis og einbeitingar skuli
vera send út í tíma og ótíma þegar
vitað er og stutt með skoðana-
könnun að yfir 90% þjóðarinnar
hunsar þessa tónlist algjörlega í
flutningi ríkisútvarpsins. Fyrir
hverja er Ríkisútvarpið, þjóðina
eða örsmáan þrýstihóp? Ég vona
að fólk átti sig á þessu ófremdar-
ástandi og mótmæli kröftulega,
bæði í ræðu og riti. Minnist þess
að ríkisútvarpið á að vera fyrir
okkur öll.
• Ekki ljósglæta
í sósíalismanum
Húsmóðir skrifar:
„Nú er ekki lengur hægt að
saka mann um pólitískt ofstæki
þótt maður hafi í rúma hálfa öld
haldið því fram, að ekki væri
ljósglæta í sósíalismanum. Nú
lýsir sjálfur Gierek því yfir, að
það sé ekki hægt að veita verka-
mönnum Póllands almenn mann-
réttindi, því að þá sé stoðunum
kippt undan kommúnismanum.
• Lítið brauð —
ekkert réttlæti
I kommúnismanum finnst
sem sé ekkert réttlæti. í 40 ár
hefur hann ekki getað brauðfætt
alþýðuna, og valdníðsla og póli-
tískar ofsóknir eru það eina sem
fólkið fær.
• Blekkingar-
postular
Mig langar til að spyrja það
fólk, sem stærir sig af því að vera
ópólitískt, hvort ekki sé nálægt
sanni, að kalla þá, sem hafa haft
af því sitt lifibrauð og ýmsan
frama að prédika þessa helstefnu
sem einu sáluhjálp heimsins,
ofstækisfulla blekkingarpostula.
Hvaða sannleikur finnst í þeirra
munni?
• Ekki fyrr en
eftir jól
Af því að verkföllin í Póllandi
standa sennilega framyfir skóla-
setningu, þá mætti fara fram á
það við þessa, sem stunda heila-
þvottinn á unglingunum í staðinn
fyrir lögboðna kennslu, að byrja
nú ekki fyrr en eftir jól að láta
verkamannabörnin trúa því, að
verkfallsrétturinn sé af hinu illa
og frjáls verkalýðsforysta sé
ósamrýmanleg sósíalismanum og
þess vegna bönnuð í sósíalísku
ríkjunum.
• Eins og kærleiks-
rik móðurhönd
I kolaverkfallinu í Englandi
árið 1926 fór Freda Utley frá
Moskvu til þess að stappa stálinu í
verkfallsmenn. Stjórnin í Eng-
landi hafði sigur og mig minnir að
kolanámaverkamennirnir hafi lít-
ið fengið í sinn hlut, en Utley
sagði, að íhaldsstjórnin hefði verið
eins og kærleiksrík móðurhönd í
garð verkamanna, miðað við það
sem alþýða Rússlands mætti búa
við, og átti þó Stalín eftir að gera
kjör hennar miklu verri.
Ætlar hinn frjálsi heimur að
dæma alþýðu manna í sósíalísku
ríkjunum til eilífrar kúgunar, af
því að það kostar stríð við Rússa
að frelsa hana?
• Eins og í frjálsu
blöðin í A-Evrópu
Ég heyrði mér til mikillar
ánægju ieiðara Þjóðviljans í út-
varpinu hinn 30. ágúst, en allir
vita, að svona skrifuðu sósíalist-
arnir í frjálsu blöðin í Austur-
Evrópu, áður en þeir sviku löndin í
hendur Stalíns, með þeim árangri
sem núna sést í Póllandi. Hvað eru
margir verkamenn á meðal þeirra
334 milljóna manna, sem núna eru
ofurseldir Rússum? Enginn getur
nokkurn tíma treyst orði sem
sósíalistar segja, þegar þeir tala
um pólitík."
Þessir hringdu . . .
• Hringjarinn
í ham?
íbúi við Eiriksgötu hringdi
og undraðist leikgleði hringjarans
í Hallgrímskirkju undanfarið. Ég
held mikið upp á þetta guðshús og
hlakka til að sjá það fullgert að
utan sem innan. Én ég get ekki
gert að því að stundum finnst mér
nóg um bjöllutónlistina, sérstak-
lega á sunnudagsmorgnum. Ég
hélt jafnvel núna á sunnudaginn
að túristi eða unglingsprakkari
hefði komist í „græjurnar", slík
var leikgleðin, og í milli heyrðust
ferlegar orgelhrinur. Er nú ekki
hægt að fara mildilegar með þetta
spilverk?
SKÁK
Umsjón: Margeir Pétursson
í undankeppninni fyrir meist-
aramót Moskvu í ár kom þessi
staða upp í skák þeirra Smeljy,
sem hafði hvítt og átti leik, og
Lepeshkins.
27. He8! - Hxe8, 28. Hxe8 -
Dxe8 (Ef 28.... Dd7 þá 29. Bg4 -
f5, 30. Bxf5! - gxf5, 31. De5 -
Dg7, 32. Dxf5+ - Dg6, 33. Hh8+ og
vinnur). 30. Dxc7 og svartur varð
að gefast upp, því riddarinn á a5
fellur óbættur.
SIEMENS
Uppþvottavélin
* m w • Vandvirk.
T • Sparneytin.
SMITH &
NORLAND HF.,
Nóatúni 4, sími 28300.
íslenzka fyrir
útlendinga
Vinsamlegast segið erlendum vinum yðar frá íslenzku-
kennslu Mlmis. Nemendur eru þjálfaðir í talmáli allt frá
upphafi. Málfræðin er kennd með dæmum.
Sími 11109 og 10004
(kl t —7e.h.)
Hino 1980
Vörubílsstjórar, verktakar, fiskverkendur. Þessi
bíll er til sölu árg. 1980, ekinn 6 þús. km.
í knattspyrnu utanhúss 1980.
Hin árlega firmakeppni knattspyrnudeildar K.R.
veröur haldin helgina 20.—21. sept.
Keppt veröur í riölum, en úrslitakeppnin veröur viku
síðar. Keppt verður utanhúss. Skulu 7 leikmenn vera
í hverju liði auk 3. skiptimanna. Leiktími er 2x15 mín.
Þátttaka tilkynnist fyrir 18. sept. í síma 22194 á
þriðjud., miövikud. og föstud. milli kl. 2—4 eftir
hádegi og nánari upplýsingar.
Knattspyrnudeild K.R.