Morgunblaðið - 11.09.1980, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1980
ÍR-sveit sló
íslandsmet
SVEIT ÍR setti í fyrrakvöld
nýtt íslandsmct í 1500 metra
boöhlaupi á innanfélagsmóti
ÍR á frjálsíþróttavellinum i
LauKardal. Hljóp svcitin á
3:24,4 mínútum og bætti
eldra metið um hálfa sek-
úndu en það mct var i eigu
tveggja KR-sveita og komið
verulega til ára sinna. {sveit
ÍR hlupu Stefán t». Stefáns-
son (100). Jónas Egilsson
(200), Gunnar P. Jóakims-
son (400) og Ágúst Ásgeirs-
son (800). í svigum er til-
greind vegalengd sem hver
hlaupari hijóp. Sveinasveit
frá IR reyndi við eigið ald-
ursflokksmet i hlaupinu, en
lauk ekki keppni.
Best aftur
til Hibs
GEORGE Best, fyrrverandi
knattspyrnusnillingur, er nú
kominn aftur til skoska liðsins
Hibernian og var honum þar
vel tekið. Átti Best að mæta á
sina fyrstu æfingu hjá Hibs á
þriðjudaginn og er ekki vitað
betur en að Best hafi mætt.
Best, sem nú er 33 ára gamall,
hefur að undanförnu leikið i
bandarfsku deildarkeppninni
með liði San Jose Earthquakes.
Best gekk til liðs við Hibs undir
lok siðasta keppnistimabils, lið-
ið var i bullandi fallhættu og
tókst Best ekki að afstýra
voðanum sem fyrir dyrum var.
En Best lék 13 leiki, skoraði 3
mörk og þótti hafa staðið fyrir
sinu. Það siðasta sem hann
gerði áður en hann hélt tii San
Jose, var að lýsa yfir eigin
áfengisvandamáíi. Fór hann i
nokkurra vikna meðferð og fer
fáum sögum af drykkjuskap
hans síðan.
• %
v.#-
Þjálfarinn og
miðvörðurinn
dæmdir í bann
FYLKISMENN íóru ekki var-
hluta af leikbönnum þeim sem
aganefnd KSÍ útbýtti í fyrra-
kvöld. Einar Hafsteinsson, mið-
vörður liðsins, var dæmdur í
tveggja leikja bann og þjálfari
liðsins i eins leiks bann.
Þá var Nói Björnsson, leik-
maður með Þór á Akureyri,
dæmdur i eins leiks leikbann.
Firmakeppni
KR-inga
HIN árlega firmakeppni
knattspyrnudeildar KR
verður haidin helgina 20. og
21. sept. Keppt verður í
riðlum. En úrsiitakeppnin
verður viku siðar.
Keppt er utanhúss
Skulu 7 leikmenn vera i
hverju liði auk 4ra skipti-
manna, leiktimi er 2x15 min.
Þátttöku skal tilkynna i
sima 22195, þriðjud., mið-
vikud. og föstud. frá kl. 2—4
e.h. fyrir 18. sept.
„Leikmaóur íslandsmótsins 1980“
Spennandi keppni
fimm leikmanna
FIMM leikmenn í 1. deild berjast
um titil Morgunblaðsins, „leik-
maður íslandsmótsins i knatt-
spyrnu“. Ein umferð er eftir á
íslandsmótinu og eru þeir Sig-
urður Grétarsson hjá UBK og
Trausti Haraldsson hjá Fram
efstir og jafnir með 104 stig hvor
úr 15 leikjum. Það gerir 6,9 i
meðaleinkunn. Marteinn Geirs-
son kemur fast á hada þeirra með
117 stig úr 17 leikjum, eða 6,8 i
meðaleinkunn.
Auk þessara þriggja, eiga aðrir
tveir góða möguleika. Það eru þeir
Magnús Bergs og Guðmundur
Þorbjörnsson hjá Val. Magnús
hefur 115 stig úr 16 leikjum, eða
6.6 í meðaleinkunn og Guðmundur
hefur 97 stig úr 15 leikjum, eða
6,5. Ragnar Margeirsson ætti
mikla möguleika ef hann gæti
leikið síðasta leik IBK. Ragnar
hefur 115 stig úr 17 leikjum, eða
6.7 í meðaleinkunn, en hann hefur
lokið þátttöku sinni í mótinu.
Hann tekur út leikbann er félagar
hans freista þess að halda sæti
sínu í 1. deild gegn ÍA um helgina.
írar sigruðu
Hollendinga
ÞRÍR LEIKIR fóru fram i gær-
kvöldi i riðlakeppni HM. Á
Wembley léku Englendingar við
Norðmenn og sigruðu Englend-
ingar, 4—0, eftir að staðan i
hálfleik hafði verið 1—0. Voru
leikmenn enska liðsins i hinum
mestu vandræðum með að brjóta
norsku vörnina niður. í siðari
hálfleik gekk mun betur og þá
hafði enska liðið yfirburði á
vellinum og sigraði mjög sann-
gjarnt, 4—0. Mörk Englendinga
skoruðu McDermott 2, Woodcock
1 og Mariner 1.
Lið íriands sigraði Hollendinga
mjög óvænt, 2—1. Hollenska lið-
inu gekk illa í leiknum og átti vörn
liðsins erfitt með írsku framlínu-
mennina sem gerðu oft usla í vörn
Hollands. Mörk íra skoruðu Daley
og Lawrenson. Mark Hollendinga
skoraði hinn kunni leikmaður
Thahamata.
Vestur-þýska landsliðið sigraði
lið Sviss, 3—2, eftir hörkuleik.
Staðan í hálfleik var 1—0 fyrir
Sviss. Mörk Sviss skoruðu Botter-
on og Pfister. Mörk Þjóðverja
skoruðu Múller 2 og Magath 1.
SKOTLAND SIGRAÐI SVÍÞJÓÐ,
1—0, mark Skota skoraði Gordon.
Leikurinn var jafn lengst af og
sýndu bæði liðin góða knatt-
spyrnu.
Badmintonfólkið
stoð sig
ÍSLENSKA landsliðið i badmint-
on fór i ágætlega heppnaða
keppnisferð til Austurrikis og
Ungverjalands fyrir skömmu.
Lék liðið tvo opinbera landslciki
við viðkomandi þjóðir, auk
tveggja leikja gegn úrvalsiiðum.
ísland sigraði Ungverja 6—5 í
landsleik og var það líklega mesta
afrek ferðarinnar. Hinn landsleik-
vel ytra
urinn var gegn Austurríki og
sigraði heimaliðið, 5—2. Leikurinn
var ekki eins ójafn og ætla mætti í
fljótu bragði, því að allir tapleik-
irnir töpuðust á oddahrinum. ís-
lenska liðið lék einnig gegn úr-
valsliðum Vínarborgar og Stier-
mark. Sigraði ísland fyrrnefnda
liðið 6—5 í spennandi keppni, en
síðarnefnda liðið 7—2 og sýndi þá
meiri yfirburði.
• Rainer Bonhof (t.v.) o'g Herbert Neumann þykja afburða góðir
knattspyrnumenn. en þeir mæta báðir Skagamönnum á Laugardals-
vellinum á þriðjudaginn.
„Ef Köln leikur vel
sést ekki betra liö“
VOLKER Hofferbert, þjálfari, sem náð hefur mjög góðum
árangri með Valsliðið i sumar, lærði iþróttafræði i Köln. Hann
hefur þetta að segja um lið Kölnar:
„Þegar ég var að læra í Köln fylgdist ég auðvitað mikið með
Kölnarliðinu. Min skoðun er sú, að á góðum degi geti liðið leikið
frábærlega vel, ekkert verr en landsliðið. Ef liðið fær hins vegar
mikla mótspyrnu er eins og leikmenn Köln gleymi hvað þeir
geta i rauninni spilað vel, þeir verða taugaóstyrkir og
andstæðingarnir eiga þá möguleika. En ef Köln leikur vel sést
ekki betra lið.
Styrkleiki liðsins liggur í frábærum framlínumönnum og
tengiliðum. Dieter Múller og Woodcock eru geysilega skæðir í
framlínunni og Littbarski er að verða einn af bestu framlínu-
mönnum Þýskalands. Á miðjunni eru þeir Schuster, Botteron,
Bonhof eða Cullmann, allt geysisterkir leikmenn og aukaspyrnur
Bonhofs eru frægar. Vörnin er aftur á móti veikari og þess vegna
er ekki óvanalegt að Köln vinni leiki sína t.d. 5:2 og 4:3, liðið
skorar jafnan mikið en fær líka á sig of mikið af mörkum.
Yfirleitt er þá ekki við markvörðinn Schumacher að sakast, hann
er að mínu mati besti markvörður Þýskalands nú.
Ég held að það væri rétt hjá Akranesliðinu að leika fasta vörn,
maður á mann, og liðið verður að vera óhrætt að sækja að marki
Kölnar og reyna að finna veiku blettina á vörninni."
Óskar og Hreinn
sigruðu í kúlunni
ÍTALIR sigruðu íslendinga i landskeppni i kastgreinum um síðustu
helgi, en keppt var á Sikiley. íslendingar,sigruðu aðeins í einni grein,
kúluvarpi, en þar sigraði Óskar Jakobsson og Hreinn Halldórsson
varð annar. Varpaði Oskar kúlunni 20,08 metra, en Hreinn varpaði 20
metra slétta.
F.C. Köln er talið dýrasta
knattspyrnulið Evropu í dag
v>
Markvörður F.C. Köln, Harald
Schumacher. lék sinn fyrsta
landsleik i knattspyrnu á Laug-
ardalsvellinum. er ísland mætti
Vestur-Þýskalandi.
FYRRI leikur Akraness og 1. FC
Köln i UEFA-keppninni i
knattspyrnu fer fram á Laugar-
dalsvelli þriðjudaginn 16. sept-
ember og hefst klukkan 18. Dóm-
ari verður norður-irskur, Jim
Haughey og linuverðir eru einnig
norður-irskir. Forsala aðgöngu-
miða að þessum stórleik verður i
verzluninni Óðni á Akranesi á
mánudag og þriðjudag og á
Laugardalsvellinum frá klukkan
13, daginn sem leikið er.
Akurnesingar hafa áður keppt
við 1. FC Köln. Það var i
Evrópukeppni meistaraliða árið
1978. Þá vann Köln fyrri leikinn
úti í Köln 4:1 en jafntefli varð i
seinni leiknum, 1:1, á Laugar-
dalsvelli. Þóttu Skagamenn
standa sig mjög vel i leikjunum
gegn Köln.
12 landsliðsmenn
Margir þekktir leikmenn voru í
Kölnarliðinu þegar það kom
hingað 1978 en í dag eru ennþá
frægari menn hjá félaginu. Má
sem dæmi nefna að af 26 leik-
mönnum á launaskrá eru 12 lands-
liðsmenn. Kevin Keegan, knatt-
spyrnumaður Evrópu, hefur sagt í
blaðaviðtali að hann telji Köln
besta lið Vestur-Þýskalands og
þau orð standa þrátt fyrir slaka
byrjun hjá Köln í deildarkeppn-
inni, sem hefur komið verulega á
óvart.
Frægustu leikmenn 1. FC Köln
eru eflaust þeir Rainer Bonhof,
sem varð heimsmeistari með liði
Vestur-Þýskalands 1974, enski
landsliðsmiðherjinn Tony Wood-
cock og Bernd Schúster, nýjasta
stórstjarnan í þýskri knattspyrnu
og nú þegar einn besti knatt-
spyrnumaður Evrópu, aðeins 20
ára gamall. Schúster var var-
amaður þegar Köln kom hingað
síðast, en hann lék með vestur-
þýska landsliðinu á Laugardals-
vellinum í fyrravor, þegar Þjóð-
verjarnir unnu 3:1. Annar kappi í
Kölnarliðinu lék þá sinn fyrsta
landsleik, markvörðurinn Harald
Schumacher. Hann kom inn á í
hálfleik í staö grínfuglsins Sepp
Maier.
Kölnarliðið er talið dýrasta
knattspyrnulið Evrópu og það má
einnig nefna, að fyrir auglýsinga-
samning sinn við Pioneer fær
Köln meiri peninga en nokkurt
annað þýskt lið fær fyrir auglýs-
ingar, eða 300 milljónir ísl. kr. á
ári.
M