Morgunblaðið - 25.09.1980, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1980
7
Bylting í
prenttækni
Jónas Kristjánsson rit-
ar athyglisveröa forystu-
grein um tæknimál
prentiönaðarins í Dag-
blaöiö í gær, þar sem
hann segir m.a.:
„Engin félagsleg eöa
önnur vandamál hafa
komiö ( kjölfar tveggja
byltinga áttunda áratugs-
ins í prenttækni hér á
landi. Þrátt fyrir vinnu-
sparandi tækni hefur full
atvinna haldizt hjá böka-
geröarmönnum og raun-
ar rúmlega það.
Fyrir áratug héldu
tölvuritvélar innreið sína
og ruddu setjaravélum úr
vegi. Nú eru tölvtengdar
skermaritvélar komnar til
viöbótar. í bæöi skiptin
sömdu málsaöilar um
skipan mála, sem staöizt
hefur dóm reynslunnar.
Þannig hefur verió búið
um hnútana, aó fram-
leiöniáhrif hinnar nýju
tækni hafa nýtzt nokkurn
veginn til fulls. Jafnframt
hefur veriö tryggt, að
enginn missti atvinnu
sína. Bæöi atvinnurek-
endur og launamenn
fengu sitt fram.
Um þetta gildir þekkt
lögmál tæknibyltinga.
Þær fækka að vísu hand-
tökum vió hvert verkefni,
en fjölga svo aftur á móti
verkefnum. Útkoman er
sú, aó heildaratvinna I
greininni eykst fremur en
hitt — vegna útþenslu
greinarinnar.
Hin nýja tækni hefur
eflt prentun og útgáfu
hér á landi. Vinnusparn-
aöurinn hefur drukknaö í
aukinni prentun og út-
gáfu. Og satt aó segja er
ekki fyrirsjáanlegt, aö
frekari tækniþróun muni
leióa til atvinnuskorts.
Um leið hefur tæknin
gert innlenda prentun
mun samkeppnishæfari
en áóur. í mörgum þátt-
um er framleiönin sam-
bærileg við nágranna-
löndin og jafnvel betri. Á
þeim sviðum gætu ís-
lendingar farið út í fjöl-
prent fyrir alþjóðamark-
aö.“
Tilefni
breytinga
er ekkert
Síöan segir Jónas
Kristjánsson:
„í Ijósi þessa tvöfalda
árangurs sýnist ekki rétt
að aö efna til verkfalla til
aó reyna að breyta þegar
geróum tækniþróunar-
samningum, sem hafa
reynzt til þess fallnir aö
gæta hagsmuna beggja
málsaóila. Tilefni breyt-
inga er ekkert.
Þessi reynsla er líka
svipuó og í nágranna-
löndunum, þar sem sam-
Jónas Kristjánsson
komulag um tækniþróun
hefur náöst á svipuðum
nótum. Núverandi skipan
mála hér á landi er hin
sama og á Norðurlönd-
um. Ekki er þar aö finna
fordæmi fyrir breyting-
um.
Dæmin um Berlingske
Tidende og London Tim-
es eru undantekningar,
þar sem víótækar upp-
sagnir áttu aó fylgja
tæknibreytingu. Hér á
landi kæmu slíkar upp-
sagnir ekki til greina,
einmitt vegna gildandi
samnings um tækni-
þróun.
Hió ótímabæra verkfall
í prentiónaóinum gengur
líka þvert á hægan og
markvissan gang al-
mennra kjarasamninga í
landinu. Þar líóur varla
svo dagur, að ekki náist
árangur í einum eöa fleiri
þáttum samninganna.
Þaó er verið aó semja
samtímis á nærri öllum
sviðum hins almenna
vinnumarkaðar. Það er
verió aó samræma launa-
flokka innan samtaka og
milli samtaka. Þetta er
gífurlega mikió verk, sem
hlýtur að taka nokkurn
tfma.
Stundum hafa forystu-
menn einstakra samtaka
eöa félaga oróió óþolin-
móöir. Þeir hafa minnzt á,
aó verkföll þyrfti aó til aö
flýta málum. Ekki hefur
þó komíð til aögeröa, því
aó þeir hafa séö, aö
gangurinn er raunar
furöu góöur.
Einstaka uppákomur
hafa tafiö gang mála, svo
sem skyndileg afturköll-
un atvinnuleyfa erlends
farandverkafólks. Menn
hafa þó fljótt jafnað sig
aftur og afsakaó slíkar
uppákomur sem kláöa í
gikkfingri.
Fyrsti alvarlegi hnekkir
kjarasamninganna eru
verkföllin, sem boðuö
hafa verið í prentiönaöi.
Þau munu ekki leiða til
árangurs, aöeins til tjóns,
enda ekki í stíl hinna
almennu viðræöna. Þau
eru hættulegur kláöi í
gikkfingri.“
Völundar gluggar
Smíðum glugga úr furu, oregonpine og teakviði. ®
Einnig smíðum við glugga úr gagnvarinni furu,
sem fjórfaldar endingu glugganna. |
Stuttur afgreiðslufrestur. Hagstætt verð.
Valin efni, vönduð smíð og yfir
75 ára reynsla tryggir gæðin.
Gjörið svo vel og leitið tilboða.
Timburverzlunin Yolundur hf.
KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244
Tapast hefur
steingrár 4ra vetra foli úr Geldingarnesi. Hesturinn
er ómarkaður en með klippt F-94 í vinstri síðu.
Þeir sem hafa orðið varir við hann, eru beðnir að
hringja í síma 81274.
qífarskóli
ÖLAFS GAUKS
SÍMI 27015 KL.5-7
Innritun í skólanum, Háteigsvegi 6, daglega kl. 5—7,
síðdegis, sími 27015. Upplýsingar á öðrum tímum í síma
85752.
Kvöldtímar fyrir fulloröna. Hljóðfæri á staðnum. Eldri
nemendur sem halda áfram, hafi samband sem fyrst.
É«j þakka öllum sem ylöddu mit/ á 70 ára afmœlinu
mínu 17. september s.L, meö heimsóknum, yjöfum og
maryvíslegum vinahótum. Sérstaklega þakka ég börn-
um, tengdabörnum oy barnábörnum sem gerdu mér
daginn ógleymanlegan.
Siffurbjarni Tómasson.
Ný baðstofa
Heilsurækt í Breiðholti
Opnum nýja baétfofu aö Þangbakka 8 (Mjóddinni) laugardaginn
27. sapt. n.k.
Saunabaö, heitur pottur (vatnsnudd), sóllampar, æfingatæki o.fl.
Karlatímar: Miövikud. — föstud. og laugard.
Konutímar: Mánud. — þriöjud. og fimmtud.
Opiö frá kl. 13.00—21.00 laugard. 9.00—18.00.
Tímapantanir í sóllampa í síma 76540.
Varið velkomin.
Baðstofan Breiðholti, s. 76540.
Skipulag
skjalavistunar-
kerfa
Dagana 2. október kl. 09—17 og 3. október
kl. 09—12 heldur Stjórnunarfélag islands
námskeiö um Skipulag skjalavistunarkarfa.
Námskeiöiö veröur haldiö aö Hótel Esju 2.
hæö.
Leiöbeinendur á námskeiöinu veröa ráögjaf-
arnir Michael S. Preston og Kevin Batchelor L
hjá bandaríska fyrirtækinu Alexander Grant
& Co.
— Fjallaö verður um grundvallaratriöi viö
skipulagningu og stjórn skjalavistunar.
— Gerö veröur grein fyrir hinum ýmsu
tækjum til skjalavistunar, m.a. kostum og
göllum míkrófilma og örskyggna.
— Kynnt veröur hvernig nýta má ritvinnslu-
tæki viö skjalavistun og almenn skrifstof-
ustörf og sýndar kvikmyndir um notkun
slíkra tækja.
— Fjallaö verður stuttlega um tímastjórnun
og sýnd kvikmynd sem fjallar um tíma-
stjórnun.
Námskeiöiö er ætlaö skrifstofustjórum,
deildarstjórum. framkvæmdastjórum og öör-
um peim sem skipuleggja skjalavistun og
annast innkaup á tækjum og öörum útbún-
aöi fyrir skjalavistun.
Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfélagsins, sími 82930.
ASTJÓRNUNARFÉLÁG ÍSIANDS
SÍOUMÚLA 23 105 REYKJAVÍK SÍMI 82930