Morgunblaðið - 25.09.1980, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 25.09.1980, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1980 7 Bylting í prenttækni Jónas Kristjánsson rit- ar athyglisveröa forystu- grein um tæknimál prentiönaðarins í Dag- blaöiö í gær, þar sem hann segir m.a.: „Engin félagsleg eöa önnur vandamál hafa komiö ( kjölfar tveggja byltinga áttunda áratugs- ins í prenttækni hér á landi. Þrátt fyrir vinnu- sparandi tækni hefur full atvinna haldizt hjá böka- geröarmönnum og raun- ar rúmlega það. Fyrir áratug héldu tölvuritvélar innreið sína og ruddu setjaravélum úr vegi. Nú eru tölvtengdar skermaritvélar komnar til viöbótar. í bæöi skiptin sömdu málsaöilar um skipan mála, sem staöizt hefur dóm reynslunnar. Þannig hefur verió búið um hnútana, aó fram- leiöniáhrif hinnar nýju tækni hafa nýtzt nokkurn veginn til fulls. Jafnframt hefur veriö tryggt, að enginn missti atvinnu sína. Bæöi atvinnurek- endur og launamenn fengu sitt fram. Um þetta gildir þekkt lögmál tæknibyltinga. Þær fækka að vísu hand- tökum vió hvert verkefni, en fjölga svo aftur á móti verkefnum. Útkoman er sú, aó heildaratvinna I greininni eykst fremur en hitt — vegna útþenslu greinarinnar. Hin nýja tækni hefur eflt prentun og útgáfu hér á landi. Vinnusparn- aöurinn hefur drukknaö í aukinni prentun og út- gáfu. Og satt aó segja er ekki fyrirsjáanlegt, aö frekari tækniþróun muni leióa til atvinnuskorts. Um leið hefur tæknin gert innlenda prentun mun samkeppnishæfari en áóur. í mörgum þátt- um er framleiönin sam- bærileg við nágranna- löndin og jafnvel betri. Á þeim sviðum gætu ís- lendingar farið út í fjöl- prent fyrir alþjóðamark- aö.“ Tilefni breytinga er ekkert Síöan segir Jónas Kristjánsson: „í Ijósi þessa tvöfalda árangurs sýnist ekki rétt að aö efna til verkfalla til aó reyna að breyta þegar geróum tækniþróunar- samningum, sem hafa reynzt til þess fallnir aö gæta hagsmuna beggja málsaóila. Tilefni breyt- inga er ekkert. Þessi reynsla er líka svipuó og í nágranna- löndunum, þar sem sam- Jónas Kristjánsson komulag um tækniþróun hefur náöst á svipuðum nótum. Núverandi skipan mála hér á landi er hin sama og á Norðurlönd- um. Ekki er þar aö finna fordæmi fyrir breyting- um. Dæmin um Berlingske Tidende og London Tim- es eru undantekningar, þar sem víótækar upp- sagnir áttu aó fylgja tæknibreytingu. Hér á landi kæmu slíkar upp- sagnir ekki til greina, einmitt vegna gildandi samnings um tækni- þróun. Hió ótímabæra verkfall í prentiónaóinum gengur líka þvert á hægan og markvissan gang al- mennra kjarasamninga í landinu. Þar líóur varla svo dagur, að ekki náist árangur í einum eöa fleiri þáttum samninganna. Þaó er verið aó semja samtímis á nærri öllum sviðum hins almenna vinnumarkaðar. Það er verió aó samræma launa- flokka innan samtaka og milli samtaka. Þetta er gífurlega mikió verk, sem hlýtur að taka nokkurn tfma. Stundum hafa forystu- menn einstakra samtaka eöa félaga oróió óþolin- móöir. Þeir hafa minnzt á, aó verkföll þyrfti aó til aö flýta málum. Ekki hefur þó komíð til aögeröa, því aó þeir hafa séö, aö gangurinn er raunar furöu góöur. Einstaka uppákomur hafa tafiö gang mála, svo sem skyndileg afturköll- un atvinnuleyfa erlends farandverkafólks. Menn hafa þó fljótt jafnað sig aftur og afsakaó slíkar uppákomur sem kláöa í gikkfingri. Fyrsti alvarlegi hnekkir kjarasamninganna eru verkföllin, sem boðuö hafa verið í prentiönaöi. Þau munu ekki leiða til árangurs, aöeins til tjóns, enda ekki í stíl hinna almennu viðræöna. Þau eru hættulegur kláöi í gikkfingri.“ Völundar gluggar Smíðum glugga úr furu, oregonpine og teakviði. ® Einnig smíðum við glugga úr gagnvarinni furu, sem fjórfaldar endingu glugganna. | Stuttur afgreiðslufrestur. Hagstætt verð. Valin efni, vönduð smíð og yfir 75 ára reynsla tryggir gæðin. Gjörið svo vel og leitið tilboða. Timburverzlunin Yolundur hf. KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244 Tapast hefur steingrár 4ra vetra foli úr Geldingarnesi. Hesturinn er ómarkaður en með klippt F-94 í vinstri síðu. Þeir sem hafa orðið varir við hann, eru beðnir að hringja í síma 81274. qífarskóli ÖLAFS GAUKS SÍMI 27015 KL.5-7 Innritun í skólanum, Háteigsvegi 6, daglega kl. 5—7, síðdegis, sími 27015. Upplýsingar á öðrum tímum í síma 85752. Kvöldtímar fyrir fulloröna. Hljóðfæri á staðnum. Eldri nemendur sem halda áfram, hafi samband sem fyrst. É«j þakka öllum sem ylöddu mit/ á 70 ára afmœlinu mínu 17. september s.L, meö heimsóknum, yjöfum og maryvíslegum vinahótum. Sérstaklega þakka ég börn- um, tengdabörnum oy barnábörnum sem gerdu mér daginn ógleymanlegan. Siffurbjarni Tómasson. Ný baðstofa Heilsurækt í Breiðholti Opnum nýja baétfofu aö Þangbakka 8 (Mjóddinni) laugardaginn 27. sapt. n.k. Saunabaö, heitur pottur (vatnsnudd), sóllampar, æfingatæki o.fl. Karlatímar: Miövikud. — föstud. og laugard. Konutímar: Mánud. — þriöjud. og fimmtud. Opiö frá kl. 13.00—21.00 laugard. 9.00—18.00. Tímapantanir í sóllampa í síma 76540. Varið velkomin. Baðstofan Breiðholti, s. 76540. Skipulag skjalavistunar- kerfa Dagana 2. október kl. 09—17 og 3. október kl. 09—12 heldur Stjórnunarfélag islands námskeiö um Skipulag skjalavistunarkarfa. Námskeiöiö veröur haldiö aö Hótel Esju 2. hæö. Leiöbeinendur á námskeiöinu veröa ráögjaf- arnir Michael S. Preston og Kevin Batchelor L hjá bandaríska fyrirtækinu Alexander Grant & Co. — Fjallaö verður um grundvallaratriöi viö skipulagningu og stjórn skjalavistunar. — Gerö veröur grein fyrir hinum ýmsu tækjum til skjalavistunar, m.a. kostum og göllum míkrófilma og örskyggna. — Kynnt veröur hvernig nýta má ritvinnslu- tæki viö skjalavistun og almenn skrifstof- ustörf og sýndar kvikmyndir um notkun slíkra tækja. — Fjallaö verður stuttlega um tímastjórnun og sýnd kvikmynd sem fjallar um tíma- stjórnun. Námskeiöiö er ætlaö skrifstofustjórum, deildarstjórum. framkvæmdastjórum og öör- um peim sem skipuleggja skjalavistun og annast innkaup á tækjum og öörum útbún- aöi fyrir skjalavistun. Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfélagsins, sími 82930. ASTJÓRNUNARFÉLÁG ÍSIANDS SÍOUMÚLA 23 105 REYKJAVÍK SÍMI 82930

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.