Morgunblaðið - 26.09.1980, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.09.1980, Blaðsíða 1
56 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUM 217. tbl. 68. árg. FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Khorramshahr og^ hluti Abadan á valdi íraka ^ (ienf. UaKhdad. Beirút. 25. september. AP. ÍRASKT herlið náði stórum hluta Aba- dan, hinnar mikilvægu olíu- og hafnar- borgar írans, á sitt vald í dag, og fögnuðu íbúar hermönnunum innilega er þeir óku inn í borgina, að sögn sendi- herra íraks í Sviss í kvöld. Einnig náði íraskt herlið hinni mikilvægu olíu- og haf narborg Khorramshahr á sitt vald að sögn útvarpsins, í Baghdad. Fyrr um daginn höfðu írakar náð undir sig járnbrautinni er tengir Khorramshahr og Abadan við Teheran. írakar um- kringdu Abadan og Khorramshahr á þriðjudag. Séu fregnir þessar sannar, hafa írakar unnið meiriháttar sigur í dag í átökunum við írani, að sögn fréttaskýrenda. Hafa þeir þá kom- ið í veg fyrir að Iranir komi vopnum og liðsstyrk til Abadan á láði eða legi. Síðdegis varpaði útvarpið í Te- heran út sírenuhljóði og hvatti íbúa borgarinanr til að leita skjóls þar eð loftárás væri yfirvofandi. Um sama leyti hætti útvarpið sendingum, og töldu ýmsir í borg- inni sér trú um, að árás hefði verið gerð á bústað Khomeinis erki- klerks. Útvarpið hóf sendingar að nýju stundu seinna og tilkynnt að um æfingu hefði verið að ræða. í fregnum frá Baghdad segir, að óverulegt mannfall hafi orðið í átökum írana og íraka í dag. Fregnir um töku Khorramshahr og hluta Abadan voru ekki stað- festar í Teheran, en Pars-frétta- stofan sagði að íranir hefðu frem- ur sótt í sig veðrið og herlið íraka hörfað er til harðra átaka kom á Qasr Shirin-svæðinu þar sem a.m.k 40 skriðdrekar íraka voru eyðilagðir. íranskar orrustuþotur gerðu loftárásir á gashreinsun- arstöðina í Ayn Zala, norðvestur af Baghdad, að sögn útvarpsins í Baghdad, og sjálfir sögðust íranir hafa tekið landamærabæ í írak. í bréfi yfirvalda í írak til Sameinuðu þjóðanna, er kunngert var í kvöld, sagði, að írakar hefðu Rússar sprengja Stokkhólmi. 25. september. AP. SOVÉTMENN sprengdu í morgun þriðju kjarnorku- sprengjuna á hálfum mánuði á tiiraunasvæðinu i Semipal- atinsk i Síberíu og komu skjálftar af völdum spreng- ingarinnar fram á jarð- skjálftamælum i Hagfors rannsóknarstöðinni í mið- hluta Svíþjóðar. Skjálftar af völdum spreng- ingarinnar jafngiltu jarð- skjálfta af stærðargráðunni 4,9 stig á Richter-kvarða, en síðastliðinn laugardag komu fram merki um álíka stóra sprengingu á mælum stöðvar- innar í Hagfors. Fyrir hálfum mánuði sprengdu Rússar hins vegar enn öflugri sprengju, sem jafngilti sjö stiga skjálfta á Richter-kvarða, sem er meiriháttar skjálfti. enga landvinninga í íran í huga, hér væri fyrst og fremst um sjálfsvarnaraðgerð að ræða, og væru yfirvöld reiðubúin að skýra afstööu sína fyrir Öryggisráðinu, en búizt er við að ráðið komi saman á morgun, föstudag, til að fjalla um átök Irana og Iraka. Tarek Aziz, varaforsætisráð- herra Iraks, sagði á fundi með fréttamönnum í París í dag, að Irakar væru þess fúsir að hætta bardögum og hverfa á brott með lið sitt úr íran að undangengnum ýmsum skilyrðum. Hins vegar sagði sendiherra íraka í Indlandi, að írakar hættu aðeins bardögum ef „sanngjarnar breytingar yrðu gerðar á landamærum ríkjanna" en í því sambandi er átt við að írakar fái vesturbakka ósa Shatt- Al-Arab-fljótsins og þrjár eyjar við mynni Hormuz-sunds. Saudi-Arabía og ýms önnur ríki við Persaflóann settu heri sína í viðbragðsstöðu í öryggisskyni og af ótta við að átök írana og íraka eigi eftir að magnast og breiðast út, að sögn háttsettra embætt- ismanna í Bahrain. Hin opinbera fréttastofa Iraks sendi þessa mynd frá sér i dag og sagði hana vera af braki úr „enn einni íranskri" orrustuþotu sem írakar hefðu skotið niður i nágrenni Baghdad. Símamynd-AP. Komust á kaðalstiga yfir múrinn Bírlin. 25. september. AP. TVEIR Austur-Þjóðverjar flýðu í dag yfir Berlínarmúr- inn með hjálp vestur-þýskra félaga. Aðstoðarmennirnir höfðu komið sér fyrir uppi á þaki við múrinn. I þann mund sem flóttamennirnir nálguðust múrinn, hentu þeir kaðalstiga yfir hann. Öðrum flóttamann- anna tókst að komast klakk- laust yfir múrinn, en sá síðari datt úr stiganum. Komst hann yfir múrinn í annarri tilraun, en þá höfðu landamæraverðir komið auga á hann og hafið skothríð. Manninn sakaði ekki. Brunalið varð að koma á staðinn með stiga til að ná aðstoðarmönnunum niður af þakinu. Og fréttir herma að þegar lögregla og herlið komu á staðinn hafi austur-þýskir landamæraverðir verið að fjar- lægja kaðalstigann. Reza til í slaginn París, 25. september. AP. REZA Pahlavi prins, sonur fyrrum íranskeisara, hefur sent íranska hernum boð, þar sem hann segist vera fús til að fórna lifi sinu i haráttunni við iraska herliðið. I tilkynningu sem gefin var út í París, segir Reza: „Ég er viss um að ef faðir minn hefði verið við völdin í íran nú, hefði hann skipað mér að berjast samkvæmt skyidu minni sem herliðsforingja." Reza, sem er 19 ára, var við orustuflugþjálfun í Bandaríkjun- um, þegar föður hans var steypt af stóli. íranskir útlagar undirbúa innrás írakar styðja útlagastjórn Atlanta. GeorKiuriki. 25. september. AP. ÍRAKAR ætla að viðurkenna íranska útlagastjórn undir forsæti Shahpour Bakhtiar. fyrrverandi forsætisráðherra, og Gholam Oveissi hershöfðingja. sem bráðabirgðastjórn írans, að því er blaðið „Atlanta Constitution" hefur eftir irönskum útlögum í dag. írani, búsettur í írak, Ayatollah Khoeei, verður leiðtogi klerka- stéttarinnar samkvæmt fréttinni. Kunnir trúarleiðtogar í írak og íran, sem eru andvígir Khomeini trúarleiðtoga, ætla að fordæma Khomeini á þeirri forsendu að hann sé falsspámaður og skora á Shiita að slíta trúnaði við hann. Irakar hafa leyft Bakhtiar og Oveissi að útvarpa daglega til íran frá Bagdad á undanförnum mán- uðum. Irakar hafa einnig aðstoðað íranska útlagaleiðtoga og her- menn, sem fylgja þeim að málum í tilraunum þeirra til að ná aftur völdunum í íran, samkvæmt frétt- inni. írakar hafa ennfremur hjálpað Kúrdum, sem hafa barizt gegn írönum með stuðningi Bakhtiar og Oveissi. Samkvæmt öðrum írönskum heimildum safnast nú þúsundir íranskra liðsforingja og her- manna, sem flúðu vegna ofsókna Khomeinis, saman víða á Vestur- löndum til undirbúnings innrás í Iran, undir forystu Oveissi og annarra útlægra íranskra herfor- ingja. í París sagði Bakhtiar í útvarps- viðtali, að hann hefði komið „mörgum sinnum“ til Bagdad und- anfarna tólf mánuði, en ekki verið þar um helgina. Hann vildi ekki segja frá því, hvar hann hefði dvalizt um síðustu helgi, en sagði, að hann hefði verið „mjög langt frá Bagdad". Bakhtiar lagði áherzlu á and- stöðu sína gegn stríðinu og sagði, að hann mundi ekki láta af hendi „einn þumlung íransks lands". I Williamstown, Massachusetts, Bandaríkjunum, sagði fyrrverandi lífvörður fyrrverandi íranskeis- ara, David Balfour jr., að 19 ára gamall sonur keisarans tryði því staðfastlega, að hann kæmist ein- hvern tíma aftur til valda í íran. Prinsinn hyggst fara aftur til náms í Massachusetts.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.