Morgunblaðið - 26.09.1980, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1980
5
Bragi hjá nokkrum verka sinna sem verða á yfirlitssýninKunni.
Ljósmynd Mbl. RAX.
Bragi undirbýr
yfirlitssýningu
á Kjarvalsstöðum
„MÉR þætti vænt um að komast í samband við fólk
sem telur að það eigi markverð verk eftir mig,“ sagði
Bragi Ásgeirsson listmálari sem mun opna yfirlits-
sýningu á verkum sínum á Kjarvalsstöðum laugar-
daginn 18. október nk. og þar mun hann sýna mikinn
fjölda verka í öllu húsinu.
„Eg hef verið andvaralaus við
að skrá niður hvert verk mín
hafa farið og bið þá, sem þau
eiga, vinsamlega að hafa sam-
band við mig. Best er að
hringja á kvöldin og spyrja
eftir syni mínum, Fjölni Geir,
sem sér um þessa hlið fyrir
mig. Ég veit ekki í öllum
tilvikum hverjir eiga verk eftir
mig sem marka tímamót og ég
vildi gjarnan fá að hafa á
yfirlitssýningunni og til dæmis
hef ég ekki ennþá fundið fjögur
verk sem Nína Sæmundsdóttir
myndhöggvari keypti af mér
árið 1956.“
„Er þessi sýning af ákveðnu
tilefni?"
„A næsta ári kemst ég á
miðjan aldur og það er m.a.
tilefnið. Ég hafði hugsað mér
að halda sýninguna þá en þá
verða nokkrar mikilvægar
myndir eftir mig úr einkasafni
komnar til útlanda og þar sem
ég vil hafa þessar myndir á
yfirlitssýningunni dreif ég mig
í þetta. Það eru mörg fleiri
tímamót sem tengjast þessari
sýningu. Þrjátíu og þrjú ár eru
síðan ég hóf listnám og odda-
talan 3 og jafna talan 6 eru
happatölur mínar. Tuttugu og
fimm ár eru síðan ég hélt
fyrstu sýningu mína í Lista-
mannaskálanum og 18 ár eru
síðan ég hélt grafiska sýningu
eingöngu en þrisvar sex eru
átján! Fleira kemur til, en að
sjálfsögðu er þetta ekki loka-
mark heldur mikilvægur
áfangi, ég hyggst hrista upp í
hlutunum, líta yfir sviðið pg
brjóta allar brýr að baki. Ég
vona að ég eigi enn 33 þroskaár
eftir í listinni af fullum krafti,
en maður hefur gott af því að
líta til baka og sjá hvar maður
stendur og hvað maður hefur
gert.“
„Þú ætlar að leggja Kjarvals-
staði undir verk þín.“
„Sem fyrr segir legg ég allt
húsið undir mig og sýningin
stendur yfir í tvær vikur, þ.e.
þrjár helgar. Þessar 10 daga
sýningar eru allt of stuttar. Ég
óttaðist í fyrstu að mér tækist
ekki að sanka að mér nægilega
mörgum myndum, en ég sé hins
vegar fram á það að ég er búinn
að sprengja húsið, en vona að
Ein af eldri myndum Braga sem
hann veit ekki hvar er niður-
komin.
þetta verði markverð yfirlits-
sýning. Ég legg áherslu á að
hafa hana vel skipulagða.
Ég stefni nú að því að byrja
nýtt líf á margan hátt og m.a.
hyggst ég hverfa um stund frá
upphleyptu myndunum, fara í
klassísku greinarnar, tvívíð
málverk, grafik og skúlptúr. Þá
langar mig að setjast á skóla-
bekk aftur og læra veggmynda-
gerð. Myndlist er símenntun
allt lífið í gegn og maður verður
aldrei fullmenntaður."
„Er það ekki óhemju mikið
verk að setja upp yfirlitssýn-
ingu?“
„Jú, og best væri í rauninni
að vera iaus við slíkt, laus við
allt nema að mála og skapa, en
þó held ég að það sé mjög
heilbrigt að málarinn sjái sjálf-
ur um slíka sýningu, íáti ekki
aðra marka sér bás og ákvarða
hver þróunin hafi verið. Það er
fátítt hér að listamenn á besta
starfsaldri haldi yfirlitssýn-
ingar þó slíkt sé algengt erlend-
is og það á einnig að vera
sjálfsagður hlutur hér. Þar eru
mörg dæmi þess að menn á
aldrinum 35—40 ára haldi yfir-
litssýningar. Dregið saman í
hnotskurn legg ég áherslu á það
að fólk sem á myndir eftir mig
láti mig vita og gefi mér
tækifæri til að hafa þær með á
yfirlitssýningunni svo hún
verði eins yfirgripsmikil og
mögulegt er.“
OPIÐ TIL KL. 10
í KVÖLD OG
12 Á MORGUN
J
er nú til eftir allt. ... á
stór-útsölumarkaðnum
Sýningarhöllinni — Bíldshöfóa
Takið vel eftir
Byrjunar-
verð
U!ræ': / 6 6 Þaö er eins og
vina; / nyja kronan se
komin í gildi ^
íí Hér borgar sig aö
+ + \ gefa sér góöan
■ ■ Prúttiö \ tíma«*
einstaklega X. 77
skemmtilegur
viöskiptamáti j j T* □ Dömublússur
□ Herraföt
flestar stæröir .
□ Terelyne-buxur
herra öll númer
49.300.
13.900,
:
□ Stakir herrajakkar
flestar stæröir .. 31.900.-
□ Dömuullar-buxur
lítil og stór númer 8.900.-
□ Herraskyrtur
öll númer ..
6.900.-
6.900. -
8.900. -
öll númer ...............
□ Riflaður flauelisbuxur margir litir.
flest númer
□ Kakhi-buxur flest númer
margir litir .............................. 7.900.-
D Vesti margir litir og gerðir .. ............. 3.900.-
□ Sportjakkar margar geröir flest númer 13.900.-
□ Fallegt úrval af skóm í litlum númerum
□ Ullarefni ........................ 4.000.-
'□ Terelynefni ...................... 4.000.-
□ Fínflauel ....................... 4.200.- \
□ Fóðurefni ......................... 1.300,
□ Anorakkaefni .... ................... 1.300,
□ SkyrtuefniD GardínuefniD Kjólaefni
'J\ V mör9um 'itum °9 geröum
□ Ungbarnafatnaður — Plaköt
□ Nýlegar hljómplötur og
kassettur frá 500.-
>Verðgildi krónunnar
þinnar margfaldast
Og þú mátt
PRUTTA!