Morgunblaðið - 26.09.1980, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1980
V erzlun
Geirs Zoega
100 ára
Geir ZoeKa.
I>rir ættliðir, afkomendur Geirs Kamla Zoéga, og allir bera þeir nafn
hans. Myndin var tekin, er afkomendurnir komu saman 26. maí sl. í
Naustinu til að fagna 150 ára fæðingarafmæli Geirs gamla.
Þessi mynd er tekin árið 1916. Geir Gamli Zoéga stendur i dyrum verzlunar sinnar, á bak við hann
stendur sonur hans og nafni.
Verzlun Geirs Zoega í dag. - Ljdsm. Mbi. rax
í DAG eru liðin 100 ár írá því athafna- og útgerðarmað-
urinn Geir Zoéga opnaði sölubúð í geymsluskúr hjá
íhúðarhúsi sínu í Reykjavík. Vistarvera þessi mun ekki
hafa verið sérlega reisuleg, en kröfur manns voru
einnig fremur litlar í þá daga, en svo segir í bókinni
íslenzkir athafnamenn I, útgefinni af Akranesútgáf-
unni 1946. Geir Zoéga var fæddur 26. maí 1830 og lézt
25. marz 1917. Geir var einn af okkar mestu
athafnamönnum þess tíma, og var upp á sitt bezta er
örlítið fór að rofa til hér í landi eftir alda eymd og áþján
erlendrar kúgunar.
Geir stundaði síðan verzlun
sína í litla geymsluskúrnum unz
þar kom að húsakynnin reynd-
ust ónóg, er viðskipti tóku að
vaxa. Þá reisti Geir hús það,
sem enn stendur við Vesturgötu
og verzlunin er enn þann dag í
dag. Þó var húslengjan sem þar
er, ekki reist öll í einu, heldur
aukin smám saman, eftir því
sem skipum Geirs fjölgaði og
þörf var á auknu pakkhúsrúmi.
Margar sögur eru til af
hnittnum tilsvörum Geirs og
eitt sinn er hann var spurður,
hvort hann ætlaði að sætta sig
lengi við gömlu búðina, þar sem
hvorki væri hátt til lofts né vítt
til veggja. Hann hlyti að reisa
bráðlega stórhýsi, eins og keppi-
nautur einn, sem reist hafði
stórt og veglegt verzlunarhús og
hugðist auka viðskiptin stór-
lega. Ekki hafði þó sú aukning
komið svo skjótt og ríkulega
sem hann hugði. Geir svaraði að
bragði: „Ég kann nú betur við að
græða í lítilli búð, en tapa í
stórri."
Blaðið ísafold getur um það,
er Geir opnaði fyrst verzlun
sína. Þar segir svo: (Isafold 16.
okt. 1880):
„Geir Zoega dannabr.m. hefur
í húsi sínu hjá Glasgow byrjað
verzlun með segldúk, færi, kaðla
o.fl., er snertir sjávarútveg, allt
frá Englandi, einnig með kaffi
og sykur. Vér höfum frétt — og
það mun satt vera — að þessar
nauðsynjavörur hans séu vand-
aðar og góðar, og að hann selji
þær við lægra verði en menn
hafa átt að venjast og einnig að
hann hafi í sumar keypt fyrir
peninga talsvert af saltfiski
með fullt eins háu verði og
kaupmenn hafa gefið, þó að þeir
ekki borgi peninga fyrir hann,
heldur ýmsar misjafnlega nauð-
synlegar vörur."
Þá mun Geir hafa verzlað með
áfengi í fyrstu, en hætti því
skjótt og sagði ástæðuna þá, að
• Ljúsm. Mbl. Kristján.
Geir Zoega sýnir okkur hér viðskiptamannabók föður síns frá árinu
1872.
Ljósm. Mbl. R.A.X.
í verzlun Geirs Zoega er í dag að finna postulfn og glervörur.
Verzlunarstjóri og einn eigenda er Þóra Magnúsdóttir t.h. á
myndinni. Asamt henni starfar i verzluninni Auður Jónsdóttir t.v.
hann vildi ekki borga mönnum
laun í áfengum drykkjum, en
Geir var ætíð mikill reglumað-
ur. Þá stundaði hann einnig
landbúnað og oft varð hann
mönnum til bjargar er hey-
skortur var.
Öðrum
kaupmönnum
birgari
Þegar verzlunin tók að dafna,
hóf Geir þann sið, að fara utan í
viðskiptaerindum svo oft sem
þurfa þótti. Hélt hann þá til
Englands og dvaldist þar um
skeið. Oft fór hann einnig til
Kaupmannahafnar. Kostaði
hann kapps um að hafa jafnan
miklar birgðir mætvæla og út-
gerðarvarnings í verzlun sinni.
Skýrir blaðið Suðri svo frá í
febrúar 1885 að fáist hvergi
steinolía eða kol nema í verzlun
Geirs Zoega. Er oftar vikið að
því í blöðum um þetta leyti, að
Geir sé öðrum kaupmönnum
birgari af ýmsum vörum.
Um þetta leyti var árferði
heldur bágborið og afkoma
tómthúsmanna í Reykjavík mjög
léleg. Kom þá glögglega í ljós, að
útgerð Geirs Zoega, en hann
gerði þá út tvö þilskip, Gylfa og
Reykjavík, veitti stórum betri
afkomuskilyrði en nokkur önnur
útgerð. Svo svo m.a. í Suðra 20.
sept. 1885: