Morgunblaðið - 26.09.1980, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1980
11
„Á báðum skipum þessum
munu samtals 26 menn hafa haft
atvinnu. Ekkert er það, sem e.t.v.
sýnir betur og sannar, hve þil-
skipaveiði er ábatasöm og heilla-
vænleg en kaupstaðarreikningar
þeirra, sem á þilskipunum hafa
atvinnu. Á þessum aflaleysisár-
um hafa kaupstaðarskuldir
manna vaxið svo, að fádæmum
þykir sæta, eins og kunnugt er.
Af þessum 26 mönnum, sem eru
á skipum Geirs eru margir
heimilisfeður, og vér höfum fyrir
satt, að reikningar þeirra standi
svo í búð þeirri þar sem þeir
hafa aðalverzlun sína, að skuldir
séu ekki teljandi. Sumir eiga
inni, en sumir skulda dálítið, og
þegar reikningar skipshafnanna
eru skoðaðir í einu lagi, þá mun
allt jafna sig svo hér um bil, eða
skipshafnirnar heldur eiga lítið
eitt inni í verzluninni."
Geir gamli Zoega og eiginkona
hans Helga áttu fimm börn:
Geir, sem lézt aðeins þriggja ára
að aldri, þá þrjár dætur Guð-
rúnu, Hólmfríði og Kristjönu og
yngstur var Geir, en hann fædd-
ist 1896 eða síðar það sama ár og
Geir bróðir hans lézt. Yngsti
sonurinn, Geir Soéga gengur enn
til starfa á skrifstofu sinni að
Vesturgötu 10, en það hús byggði
faðir hans einnig. Hann segir þó
sjálfur, að sonur hans sjái í raun
um þetta allt, eins og hann
orðaði það. Við hittum Geir að
máli og spurðum hann hvaða
mynd hann bæri í huga sér af
verzlun föður síns frá barnæsku.
„Slæmt að
byggja upp
ofan frá“
„Ég man að pabbi sagði, að
það væri slæmt að byggja upp
stór fyrirtæki í landinu ofan frá
og með erlendum peningum. Á
þessum tíma voru tvö stór maga-
sín í Reykjavík, Thomsen-maga-
sín og Edinborg og þau voru
byggð upp með enskum pening-
um. Pabbi varð fyrstur til að rita
verzlunarbækur á íslenzka vísu.
Ég man líkast til aftur til
ársins 1903. I búðinni var þá
matvara, vefnaðarvara, vaðmál
og pabbi hafði líka allt í íslenzka
búning kvennanna.
En ég vildi verða sjómaður,
verzlunin heillaði mig ekki. Lík-
lega fékk ég aldrei tækifæri til
að læra af föður mínum. Hann
var 66 ára að aldri þegar ég
fæddist. Ég fór síðan aðra braut.
Geir sagði að húsasamstæðan
frá Vesturgötu 6 og upp að
Vesturgötu 10 hefði verið byggð í
mörgum áföngum, eftir því sem
umfang atvinnurekstrarins
jókst. Þar sem Naustið er í dag
var í þann tíma geymdur þurrk-
aður fiskur, en verzlunin sjálf
var alla tíð í neðsta hluta
húsalengjunnar. Þá keypti Geir
gamli húsið Hól, sem er litla
húsið næst Naustinu. Síðar kom
húsið þar við hliðina og byggði
Geir gamli ofan á það 1913 fyrir
Verzlunarskólann, er skortur
varð á húsrými fyrir skólann.
Ekki er unnt í stuttri blaða-
grein sem þessari að rekja sögu
Verzlunar Geirs Zoega þessi 100
ár. Verzlunin er í dag í eigu
afkomenda Geirs gamla Zoega
og er hún enn í gamla húsnæð-
inu að Vesturgötu 6. Miklar
breytingar hafa þó orðið á
rekstrinum og í dag er að finna í
Verzlun Geirs Zoéga postulín og
leir- og glervörur frá þekktum
fyrirtækjum, aðallega dönskum
og finnskum.
Messur á sunnudag
DÓMKIRKJAN: Kl. 11 messa. Dóm-
kórlnn syngur, organleikari Marteinn
H. Friöriksson. Sr. Hjalti Guömunds-
son.
LANDAKOTSSPÍTALI: Messa kl. 10.
Organleikari Birgir Ás Guömundsson.
Sr. Hjalti Guömundsson.
ÁRBJEJARPRESTAKALL: Guösþjón-
usta í safnaöarheimili Árbæjarsóknar
kl. 11 árd. Sr. Guömundur Þorsteins-
son.
ASPRESTAKALL: Messa kl. 11 árd.
aö Noröurbrún 1. Sr. Grímur Gríms-
son.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL: Fjöl-
skylduguösþjónusta í Breiöholtsskóla
kl. 2. Skólafólk, ung hjón, fermingar-
börn og foreldrar þeirra sérstaklega
hvött til þátttöku. Sr. Lárus Halldórs-
son.
BÚSTADAKIRKJA: Messa kl. 11
Organleikari Guöni Þ. Guömundsson.
Sr. Ólafur Skúlason.
ELLIHEIMILIÐ Grund: Messa kl. 10
árd. Sr. Sig. Haukur Guöjónsson
messar.
FELLA- OG HOLAPREST AKALL:
Guösþjónusta í safnaóarheimilinu aö
Keilufelli 1 kl. 11 árd. Sr. Hreinn
Hjartarson.
GRENSÁSKIRKJA: Guösþjónusta kl.
11. Organleikari Jón G. Þórarinsson.
Almenn samkoma nk. fimmtudag kl.
20:30. Sr. Halldór S. Gröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11.
Sr. Karl Sigurbjörnsson. Þriöjudagur
kl. 10:30. Fyrirbænaguösþjónusta.
Beðiö fyrir sjúkum.
LANDSPÍTALINN Messa kl. 10. Sr.
Karl Sigurbjörnsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr.
Arngrímur Jónsson. Organleikari
Orthulf Prunner.
KOPAVOGSKIRKJA: Guösþjónusta
kl. 11 árd. (Ferming og altarisganga).
Sr. Árni Pálsson.
LANGHOLTSPRESTAK ALL Guös-
þjónusta kl. 2. Organleikarl Jón Stef-
ánsson. Prestur sr. Sig. Haukur Guö-
jónsson. Sóknarnefndin.
LAUGARNESKIRKJA: Messa kl. 11.
Þriöjudagur 30. sept.: Bænaguös-
þjónusta kl. 18 og æskulýðsfundur kl.
20:30. Sóknarprestur.
NESKIRKJA: Guósþjónusta ki. 11.
Orgel og kórstjórn Reynir Jónasson.
Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Messa kl. 2
e.h. Prestur sr. Þorsteinn Björnsson.
Organleikari Sigurður ísólfsson.
NESKIRKJA: Messa kl. 11 árd. Orgel-
og kórstjórn Reynir Jónasson. Sr.
Guömundur Óskar Ólafsson.
FÍLADELFÍUKIRKJAN: Almenn guös-
þjónusta kl. 20. Samúel Ingimarsson
talar. Fíladelfíukórinn syngur.
DOMKIRKJA KRISTS Konungs
Landakoti: Lágmessa kl. 8.30 árd.
Hámessa kl. 10.30 árd. Lágmessa kl.
2 síöd. Alla virka daga er lágmessa kl.
6 síöd., nema á laugardögum, þá kl. 2
síöd. i októbermánuöi veröur lesin
Rósakransbæn eftir lágmessu kl. 6
síöd.
FELLAHELLIR: Kaþólsk messa kl. 11
árd.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudaga-
skóli kl. 10 árd. Helgunarsamkoma kl.
11 árd. Bæn kl. 20 og hjálpræöis-
samkoma kl. 20.30.
NÝJA POSTULAKIRKJAN: Háaleit-
isbr. 58: Messa kl. 11 árd og 17.
KAPELLA St. Jósefssystra í Garóa-
bæ: Hámessa kl. 2 árd.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa kl.
8.30. Virka daga er messa kl. 8 árd.
KAPELLAN St. Jósefsspitala í Hatn-
arfirói: Messa kl. 10 árd.
STRANDARKIRKJA: Messa kl. 2
síöd. Sóknarprestur.
KIRKJUHVOLSPRESTAKALL: Guös-
þjónusta í Hábæjarkirkju kl. 2.síðd.
Auöur Eir Vilhjálmsdóttir sóknar-
prestur.
INNRA-HÓLMSKIRKJA: Messa kl.
14. Sr. Jón Einarsson.
AKRANESKIRKJA: Barnasamkoma
kl. 10.30 árd. Messa kl. 2 síöd. Sr.
Hugh Martin predikar. Sr. Björn
Jónsson.
A eftir...
Við viljum ekki vera
eftirbátar nágrannaþjóða
okkar hvað nútímaþróun
varðar, hvorki í landbúnaði,
sjávarútvegi, iðnaði né
verslun.
Bætt skipulag og
endurbættur vélakostur hafa
stöðugt aukið framleiðslugetu
þjóðarinnar.
Hlutverk verslunar er að
koma framleiðslu hinna
atvinnuveganna á
neytendamarkað.
Aðbúnaður verslunarinnar
þarf því að vera í samræmi við
aukna framleiðslugetu og
þarfir neytenda.
Hún gegnir hér stóru
hlutverki í okkar daglega lífi -
hugsaðu um það næst
þegar
þú ferð út í búð
Búum betur að verslunirmi.
Þaö er okkar hagur.
viðskipti
&verzlun