Morgunblaðið - 26.09.1980, Side 12

Morgunblaðið - 26.09.1980, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1980 Haustsýning FÍM á Kjarvalsstöðum Haustsýning FÍM opnar að Kjarvalsstöðum á morgun laugardag, 27. sept. kl. 15. Ekki eru þeir FÍM menn klárir á því, hversu gamlar uppá ár haustsýningarnar eru, en það var byrjað á stríðsárunum, segja þeir, og haustsýningar FIM hafa verið flest árin síðan. NÝJABRAGÐIÐ Sýningin nú verður með nýju sniði, þannig að gestir hennar verða fimm og þeir mynda kjarna nú í sýningunni. Þessir gestir eru Ásgerður Búadóttir, Guðmundur Benediktsson, Leifur Breiðfjörð, Valtýr Pétursson og Þórður Hall. Formaður sýninganefndar, Örn Þorsteinsson, sagði að annars væri hverjum og einum frjálst (líka utanfélagsmönnum FÍM) að senda myndir til sýn- ingarinnar sem dómnefnd veldi síðan úr. LÍKA PÓSTKORT Sýningin er fjölbreytt mjög; málverk, teikningar, vatnslitamyndir, glermyndir, vefnaður, myndir unnar í leir, pastelmyndir, höggmyndir o.fl. Og í tilefni nýja bragðsins á haustsýningu FIM, hefur félagið látið prenta fimm póstkort af verkum gestanna og verða þau seld á sýningunni, ennfremur póstkort af verkum Sigurjóns Ólafssonar, sem FÍM lét vinna í sumar. — Er eitthvað skemmtilegt sem FÍM menn vilja segja að lokum? — Neí, okkur vantar Valtý. FÍM menn og þrír af kjarnanum sitjandi, Leifur, Ásgerður og Þórður. Ljósm. ól. K.M. r Vid minnum á vctrar skodunina eigendur SKODA og ALFA ROMEO Auk mælingar á 28 gangstigum vélarinnar með fullkomnum mælingartækjum er vélarþvottur, vélarstilling, Ijósastilling og athugun á 26 öðrum atriðum bifreiðar- innar innifalið í skoðuninni, sem er seld á föstu gjaldi, kr.38.000 með söluskatti og gildir fram til 1. desember n.k. Markús Úlfsson, móttökustjóri þjónustu- deildar. tekur við bókunum og veitir allar frekari upplýsingar um vetrarskoðunina. Með fullkomnum rafeindamælitækjum sem tengd eru við vélina og rafkerfi hennar má mæla ÖH gangstig af mikilli nákvæmni. Auk þess sem „Vetrarskoöunin" ætti að fyrirbyggja alls kyns hugsanleg óþægindi sem óneitanlega fylgja vetrarakstri, er ástæöa til að vekja athygli bifreiða- eigenda á þeim bensínsparnaði sem rétt stillt vél hefur í för með sér. Vanstillt vél getur hæglega kostað eigandann tug- þúsundir króna ( óþarfan bensínkostnað á tiltölulega skömmum tíma. JÖFUR hf AUOBREKKU 44-46 - KOPAVCX5I - SÍMI 42600 * Þá FÍM menn vantaði Valtý í eigin persónu, en áttu hann í þessari útgáfu. Þorp 1978 e. Valtý Pétursson. Þakkir til Gísla í Ási Við undirritaðar sendum Gísla Sigurbjörnssyni, forstjóra og frú, ásamt starfsfólki þeirra, hjartanlegustu þakkir fyrir sæluvikuna svokölluðu, þ.e. höfðinglegt boð á einu af hinum myndarlegu Ás-heimilum í Hveragerði. Megi Guð og lukkan fylgja starfsemi Gísla Sigurbjörnssonar framvegis, sem hingað til. Margrét Jóhannesdóttir, Randí Þórarinsdóttir Rósa Guðmundsdóttir Sigurlaug Helgadóttir Snjófriður Jónsdóttir Svava Schiöth Svíi í FÍM-salnum LARS Hovsjö opnar á morgun sýningu í FIM-salnum að Laug- arnesvegi 112. Hann er Svíi, og hefur fengist mikið við skreyt- ingar opinberra bygginga. Hann hefur haldið fjölda einkasýn- inga í heimalandi sínu, og á öðrum norðurlöndum, og var formaður Norræna myndlistar- bandalagsins um árabil. Á sýningu Lars Hovsjö í FÍM-salnum verða teikningar af stórum veggskreytingum hans, vatnslitamyndir, grafík og nokkur veggteppi. Sýningin stendur til 12. okt. og verður opin virka daga frá kl. 17—22 og 14—22 um helgar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.