Morgunblaðið - 26.09.1980, Síða 22

Morgunblaðið - 26.09.1980, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1980 EGYPTALAND OG ÍSRAEL: Deng Xiao-ping, forsætisráðherra Kína, sagði nýlega í viðtali, að ástandið í Miðausturlöndum gæti orðið kveikja nýrrar heimsstyrjaldar. Mikil ólga hefur ríkt fyrir botni Miðjarðarhafs, síðan gyðingar hófu að fljtjast til Palestínu á fyrri hluta þessarar aldar og Israel var stofnað 14. maí 1948. Fjórum sinnum hefur komið til ófriðar milli ísraelsmanna og Arabaþjóðanna á svæðinu síðan þá. Yfirvofandi skortur á olíu hefur gert þjóðir á Vesturlöndum, ojí í heiminum öllum, háðar Araba- löndunum. Sífelldar verðhækkanir á olíu og hótanir um að stöðva olíuframleiðslu hafa aukið spenn- una á svæðinu. Byltingin í Iran fyrir tæpum tveimur árum og innrás Sovétríkjanna í Afganistan fyrir tæpu ári bættu gráu ofan á svart. Israel hefur löngum verið undir verndarvæng Bandaríkjanna og átt tryggan stuðning þeirra. Stríð- ið milli Arabaþjóðanna og Israels 1973 leiddi til beinnar þátttöku Henry Kissingers, þv. utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, í frið- arviðræðum, og síðan hafa Banda- ríkin verið aðilar að þeim. Anwar Sadat, forseti Egypta- lands, ávarpaði þing Israels- manna, Knesset, í Jerúsalem í nóvember 1977. I september 1978 hittust hann og Menachem Begin, forsætisráðherra Israel, í boði Jimmy Carters, Bandaríkjafor- þeirra, sannfærðu Sadat um, að gagn yrði að nýjum samningavið- ræðum. Grunur leikur á, að ákvörðun Israelsmanna um að reisa aðeins fjórar nýbyggðir til viðbótar þeim, sem fyrir eru á vesturbakkanum og láta þar stað- ar numið, og loforð Verkamanna- flokksins, sem er í stjórnarand- stöðu, um að beita sér gegn tillögu í Knesset um innlimun Golan- hæða í Israel, hafi fengið Sadat til að fallast á samningaviðræður. Óstaðfestar fréttir herma, að Beg- in hafi einnig gefið í skyn, að hann mundi ekki flytja skrifstofu sína til Austur-Jerúsalem í náinni framtíð, en hann hefur neitað þeim orðrómi. Linowitz sagði eftir heimkom- una, að Sadat og Begin hefðu fallizt á nýjar viðræður, því „þeir væru báðir friðarsinnar". Aðilar í báðum löndunum fengu tillögur Bandaríkjanna til umræðu. Lino- witz lagði áherzlu á, að Bandarík- in myndu ekki þröngva sínum Lehanon Vesturbakkinn Jórdanáin ■■ Jerúsalem -i Dauðahafið Jórdanía ísrael 1917 ísrael eftir vopnahléssamningana 1949. Samningar virðast langt undan seta, í Camp David og undirrituðu samning, sem átti að vera undir- staða frekari samningaviðræðna í framtíðinni um lausn ófriðarins fyrir botni Miðjarðarhafs. Síðan hefur litlu verið áorkað. En von- arneisti var kveiktur á ný í byrjun september, þegar leiðtogar land- anna féllust á að hefja samninga- viðræður að nýju. Fallist á nýjar viðræður Sol M. Linowitz, sem er sérstak- ur sendiboði Bandaríkjaforseta til Miðausturlanda, fékk Anwar Sad- at til að fallast á nýjar samn- ingaviðræður við ísraelsmenn í ferð sinni til Israels og Egypta- lands í byrjun september. Utan- ríkisráðherrar landanna munu hittast í New York í lok mánaðar- ins, og viðræður munu væntanlega standa fram yfir miðjan október. Fjallað verður um framtíð svæð- anna, sem ísraelsmenn hertóku í Sex daga stríðinu 1%7. Leiðtogar landanna munu síðan hittast í Washington eftir bandarísku for- setakosningarnar. Camp David-samningurinn leiddi til friðarsáttmála Egypta- lands og Israels, sem var undirrit- aður í mars 1979. Eftir það áttu viðræður um rétt Palestínumanna og herteknu svæðin að hefjast. Ekki varð af því vegna megnrar óánægju Sadats með sífellt fleiri nýbyggðir ísraelsmanna á her- teknu svæðunum, sérstaklega þó á vesturbakka árinnar Jórdan. Hon- um var síðan öllum lokið, þegar Knesset samþykkti í júlí sl. að innlima austurhluta Jerúsalem í eitt skipti fyrir öll í ísrael, og Begin ákvað að flytja skrifstofu sína í þann hluta borgarinnar, sem var hertekin 1967. Linowitz átti á ferð sinni fyrst fund með Begin í Jerúsalem. Hugboð, sem hann fékk á fundi skoðunum fram, heldur yrðu lönd- in sjálf að finna lausn, sem þau gætu búið við. Bandaríkin væru tilbúin að veita þá aðstoð, sem óskað væri eftir. Hann sagði, að Sadat hefði óskað eftir öðrum fundi leiðtoganna þriggja, og Carter hefði fallizt á það. Begin mun verða í Bandaríkjunum í einkaerindum í nóvember og mun hitta Carter 11. nóvember. Sadat hefur þegið boð til landsins um 20. nóvember. Samningaviðræðurnar munu snúast um herteknu svæðin og framtíð Palestínubúa. Linowitz sagðist vera vongóður um, að Palestínumenn myndu hugsa al- varlega um nýjar tillögur Banda- ríkjamanna, áður en þeir sneru bökum við þeim, en þeir hafa hingað til ekki viljað taka þátt í samningaviðræðum Egypta og Israelsmanna og gagnrýnt þær harðlega. Linowitz sagðirað samn- ingarnir yrðu að höfða til Pale- stínubúa til að geta komið að fullu gagni. Hann sagði, að enn væri Anna Bjarnadóttir skrifar frá Bandaríkjunum ekki rétti tíminn kominn til að ræða framtíð Jerúsalem. Hann sagðist vona, að viðræðurnar fengju frið til að takast, en vildi ekki spá neinu um útkomu þeirra, heldur yrðu allir „bara að bíða og sjá hvað setur". Jerúsalem og herteknu svæðin Jerúsalem er helgur staður kristnum mönnum, múhameðstrú- armönnum og gyðingum. Allir vilja hafa rétt til að heimsækja hinn helga stað óhindrað. Múham- eðstrúarmenn sætta sig ekki við, að borgin öll sé höfuðborg ísraels og gyðingar ráði þar einir lögum og lofum. Jerúsalem var skipt milli Israels og Jórdaníu við vopnahléssamningana 1949, eftir Begin stofnun Ísraelsríkis. í stríðinu 1967 hertóku Israelsmenn austur- hluta borgarinnar, og í sumar ákvað Knesset að innlima þann hluta borgarinnar í Israel með 65 atkvæðum gegn 12. Um 100.000 arabar búa í austurhluta Jerúsal- em. Akvörðun þingsins leiddi til deilna í Sameinuðu þjóðunum. Öryggisráðið samþykkti með 14 atkvæðum gegn engu að skora á 13 aðildarlönd SÞ, sem höfðu sendi- ráð sín í Jerúsalem, að flytja þau til Tel Aviv í mótmælaskyni. Hollendingar þráuðust við, en gáfu undan þegar Saudi-Arabía, Irak, Kúwait og Líbýa hótuðu sambandsslitum og stöðvun olíu- sölu til Hollands. Edmunds Muskig, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, gagnrýndi samþykkt Sadat ráðsins í ræðu, en Bandaríkin sátu hjá við atkvæðagreiðsluna og beittu ekki neitunarvaldi sínu. Begin brást illa við afstöðu Bandaríkjanna og kallaði hana „furðulega". Miklar breytingar urðu í Pale- stínu, þegar gyðingar hófu að flytjast þangað í byrjun þessarar aldar og streymdu til svæðisins um og eftir daga Hitlers. Þeir reistu sér nýbyggðir og ræktuðu landið. Svæðið var þá undir stjórn Bretlands, en 1947 lagði sérstök Palestínunefnd Sameinuðu þjóð- anna til, að svæðinu yrði skipt milli gyðinga og araba. Útlínur ísraels voru dregnar í kringum nýbyggðirnar, sem gyðingar höfðu reist, og ísrael var stofnað 1948. Til ófriðar kom við araba á svæðinu. ísrael bætti nokkru landsvæði við sig og hlaut t.d. Galileu og hluta Jerúsalem við gerð vopnahléssamninganna 1949. í stríðinu 1967 bættu ísraels- menn enn við sig. Þeir tóku Gaza og Sinai-skagann frá Egyptalandi, Golan-hæðir frá Sýrlandi og vest- urbakka Jórdanárinnar frá Jór- daníu. Mestar deilur ríkja um framtíð vesturbakkans. Þar búa um 720.000 manns . auk hinna 100.000 í Austur-Jerúsalem. Síðan svæðið var hertekið, hafa ísraels- menn reist 72 nýbyggðir. Þær hafa lengi þótt standa í vegi friðarvið- ræðna. Stjórn Carters Banda- ríkjaforseta er andvíg þeim, en mikið fjaðrafok varð á síðasta vetri, þegar sendiherra Carters í SÞ studdi tillögu, sem skoraði á ísraelsmenn að hverfa frá ný- byggðunum. Carter sagði síðar, að Bandaríkin hefðu átt að sitja hjá við atkvæðagreiðsluna, þar sem tillagan náði einnig til Jerúsalem.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.