Morgunblaðið - 26.09.1980, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 26.09.1980, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1980 37 Sigga mágkona mín var góð kona, glöð og kát í vinahópi og barngóð var hún svo um var talað, öll systkinabörnin hennar minn- ast hennar með þakklæti. Engan var eins gott að heimsækja og Siggu, ávallt káta og glaða og ánægða með að sjá fólkið sitt. Sigga var barn að aldri þegar ég kom í fjölskylduna. Mér finnst sem góð systir sé kvödd. Við hjónin munum sakna hennar sem var svo fljótt kölluð burtu. Sérstakar kveðjur frá dætrum okkar sem í fjarlægu landi búa og geta ekki verið við útför hennar. Eg bið góðan Guð að styrkja eiginmann hennar, einkadóttur og barnabörnin. Bjargey Stefánsdóttir. Kveðja frá bekkjarsystrum EnKÍnn timi. enginn staður, enxinn hiutur dauða ver. Bú þis héðan burt, ó, maður, hrautarlensd þú eisi sér. Vera má, að vegferð sú verði skemmri en ætlar þú. /Eakan jafnt sem ellin skundar eina leið til banastundar. Þetta erindi í sálmi sr. Björns Halldórssonar í Laufási minnir okkur á það, hve lífið endar stundum snögglega. Og alltaf stöndum við eftir í undrun og spurn: Hvers vegn er kippt í burtu lífsglöðu fólki, sem enginn veit til að hafi kennt sér nokkurs mein? E.t.v. er skýringin sú, að meiri þörf sé fyrir það á öðru tilveru- stigi. Veikindi Sigríðar Guðmunds- dóttur, sem í dag, 26. sept., verður kvödd hinztu kveðju frá Hafnar- fjarðarkirkju, bar að mjög óvænt. Hún missti skyndilega meðvitund á heimili sínu og andaðist fáum dögum síðar á Borgarspítalanum án þess að hafa komizt til meðvit- undar. Sigríður fæddist í Reykjavík 18. ágúst 1929. Foreldrar hennar voru hjónin Guðmundína Oddsdóttir og Guðmundur Grímsson, fisksali, sem bjuggu lengi á Laugavegi 74, en eru nú bæði látin. Sigríður var yngst sex systkina, en eitt þeirra lézt á barnsaldri. Hún ólst upp við mikið ástríki foreldra sinna og samband systkinanna var alla tíð óvenju gott. Haustið 1944 settist Sigríður í 1. bekk Kvennaskólans í Reykjavík og lauk þaðan prófi 1948. Hóf hún þá vinnu á skristofu Mjólkursam- sölunnar í Reykjavík, en vann þar ekki lengi, því að 7. jan. 1950 giftist hún Ingva Jóhannessyni og fluttist þá til Hafnarfjarðar og byggðu þau hjónin sér hús við Hringbraut 34 og hafa búið þar síðan. Þau Ingvi og Sigríður eign- uðust eina dóttur, Jónu, sem búsett er í Florida. Fyrir um það bil fimmtán árum hóf Sigríður störf á bæjarskrif- stofunum í Hafnarfirði og vann þar til dauðadags. Sigriður var barngóð, alltaf hressileg og kát og leit björtum augum á lífið og tilveruna. Hún var mjög félagslynd og átti auð- velt með að blanda geði við fólk og kynnast því. Hún tók virkan þátt í starfsemi Slysavarnafélags ís- lands um margra ára skeið og sat í stjórn slysavarnadeildarinnar Hraunprýði í tólf ár. Ennfremur var hún formaður kvenfélags Hafnarfjarðarkirkju í sjö ár. Sigríður sótti mjög vel reglulega fundi okkar bekkjarsystranna og kæmi hún ekki, lágu til þess ærnar ástæður. Hún bar alltaf með sér hressilegan andblæ og engin logn- molla var í kringum hana. Víst er um það, að við munum sáriega sakna hennar úr hópnum, en hún er sú fyrsta okkar, sem kveður þennan heim. Vissulega hefðum við kosið að eiga lengri samleið með henni, en minningin lifir og við bekkjarsysturnar eigum að- eins góðar minningar um Sigríði, og góðar minningar eru alltaf mikils virði. Nú að leiðarlokum viljum við bera fram innilegar þakkir okkar fyrir hartnær 40 ára vináttu. Feðginunum Ingva og Jónu og dóttursonunum báðum, svo og systkinum Sigríðar, sendum við innilegar samúðarkveðjur og biðj- um Guð að styrkja þau í sorg þeirra. t Bróöir okkar, HARALDUR GUÐMUNDSSON, Hétúni 10 b, lést 25. september. Filippus Guómundsson, Skúli Guömundsson, Kjartan Guömundsson. t Eiginmaöur minn og faöir okkar, JÓN S. BJÖRNSSON, fré Laufési, Sólvallagötu 17, lést miövikudaginn 24. september. Agnes Oddgeirsdóttir, Magnús Jónsson, Sigríöur I. Jónsdóttir. t Eiginmaöur minn, faöir og afi, ÁGÚST KRISTJÁNSSON, bókbandsmeistari, Vföimel 51, lézt aö heimili sínu 23. sept. sl. Fyrir hönd vandamanna. Sigrfóur Þ. Viggósdóttir. t Faöir mlnn, FRIÐRIK HANNESSON, fré Sumarliöabæ í Holtum, Njélsgötu 60 B, lést á Landakotsspftala 20. september. Jaröarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Trausti Sig. Friöriksson. t AOALSTEINN BALDVINSSON, fré Brautarholti, Álfhólsvegi 82, Kópavogi, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 29. september kl. 10.30. Aóstandendur. t ÞORSTEINN GUÐJÓNSSON, Saurum, Helgafellssveit, veröur jarðsunginn frá Helgafellskirkju laugardaginn 27. sept- ember kl. 2. Systur hins látna. t Útför systur okkar, KRISTÍNAR BOGADÓTTUR, fyrrum kaupkonu, sem lést 17. september, verður gerö frá Fossvogskirkju mánudaginn 29. september kl. 1.30. Ólaffa Bogadóttir Breiófjörð Indriöi Bogason. t Faöir okkar, MAGNÚS STEINBOUCK, bakari, Bjargarstfg 3, Reykjavfk, sem lést 14. þ.m., verður jarösunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 29. þ.m., kl. 4.30 e.h. Sigrún og Oddfrfóur Magnúsdætur. t Útför fööur okkar, HALLDORS SVEINSSONAR, frá Sævarenda, Hjaröarhaga 32, fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 26. sept. kl. 13.30. Hjördfs Halldórsdóttir, Valdfs Halldórsdóttir. J t Móöir okkar, ANNA EIRÍKSDÓTTIR, Fagurgeröi 4, Selfossi, sem lést í Landspítalanum mánudaginn 22. september sl. veröur jarösungin frá Selfosskirkju á morgun, laugardag 27. september kl. 3 síödegis. Aldfs Bjarnardóttir, Anna Guörún Bjarnardóttir, Baldur Bjarnarson, Björn Bjarnarson, Sturla Bjarnarson. t Faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi, ELÍS R. GUDJÓNSSON, Garðabraut 13, Akranesi, ér andaöist 20. þ.m. verður jarösunginn frá Akraneskirkju þriöjudaginn 30. sept. kl. 14.15. Blóm og kransar afbeöin, en þeim sem vilja minnast hins látna er bent á Akraneskirkju. Ómar Elísson, Ingibjörg Þorleifsdóttir, Guórún M. Elísdóttir, Sverrir Jónsson, Vilborg Elfsdóttir, Sigurbjörn Sigurjónsson, Pétur Elísson, Guóríöur Jónsdóttir, Vilhelmína Elísdóttir, Jón B. Sigurösson, Ingvar Elfsson, Birna Óskarsdóttir, Guöbjörg Elísdóttir, Jón Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, JÓN HELGASON, Tryggvagötu 2, Selfossi, verður jarösunginn 27. september. Athöfnin hefst í Selfosskirkju kl. 1.30. Jarðsett verður á Eyrarbakka. Halldóra Bjarnadóttir, Bjarni Jónsson, Guórún Jóhannsdóttir, Erna Kristín Jónsdóttir, Bjarnfinnur Hjaltason og barnabörn. t Eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóöir og amma, MARGRÉT ÞORKELSDÓTTIR, Háagerði 33, andaöist á Borgarspítalanum 24. september. Veröur jarösungin frá Fossvogskirkju 1. október kl. 3. Péll Sigurósson frá Skarödal, Helgi Pálsson, Sigurbjörn Pálsson, Jónína Pálsdóttir, tengdabörn og barnabörn. t Hinum fjölmörgu vinum okkar, sem vottuðu konunni minni og móöur okkar, LILJU PÁLSDÓTTUR, viröingu sína og okkur samúö viö fráfall hennar og útför, færum viö okkar hjartanlegustu þakkir. Læknum og hjúkrunarfólki Sjúkrahúss Akraness fyrir frábæra umönnun og ástúö í veikindum hennar. Konunum í Kirkjunefnd Akraneskirkju þökkum viö sérstaklega fyrlr þeirra miklu og ómetanlegu hlutdeild. Þakklæti okkar til þeirra verður vart meö orðum tjáö. Guð blessi ykkur, vinir, fyrir hana og okkur. Jón M. Guöjónsson og systkinin. Vegna jaröarfarar HALLDÓRS SVEINSSONAR, verður skrifstofa okkar lokuð e.h. í dag, föstudag. Gunnar Eggertsson hf. Bæjarskrifstofurnar í Hafnarfirði verða lokaðar frá kl. 13.30 í dag vegna jarðarfarar Sigríðar Guömundsdóttur. Bæjarstjóri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.