Morgunblaðið - 26.09.1980, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1980
47
r
Sættum okkur við
ekkert annað en
sigur gegn Noregi
— segir Hilmar Björnsson um
landsleiki helgarinnar
• Gunnar Lúðviksson, eini nýiiðinn í landsliðshópnum, á fullri ferð í
undanúrslitum Evrópukeppninnar í fyrra !íe>?n Atletico Madrid.
„Er alveg óhræddur
við íslendingana,,
— segir John Sindig þjálfari Hvidovre
„VIÐ eÍRum alltaf að gansa til
leiks með því hugarfari að si)?ra
og sætta okkur við ekkert annað.
Ef menn eru búnir að sætta sig
við nokkurra marka tap fyrir-
fram. erum við ekki á réttri leið.
Auðvitað á að stefna að því að
landsliðið sýni sitt besta þegar
mest reynir á, en við eigum að
stefna að sigri í hverjum einasta
landslcik." sagði Hilmar Björns-
son landsliðsþjálfari i hand-
knattleik á blaðamannafundi
sem að haldinn var fyrir skömmu
í tilefni tveggja landsleikja gegn
Noregi um helgina.
ísland og Noregur hafa löngum
eldað grátt silfur saman. Oft hafa
íslendingar borið sigur úr býtum.
Síðast á síðustu Baltic-keppni, en
þá sigraði íslenska liðið undir
stjórn Jóhanns Inga Gunnarsson-
ar með 6 marka mun og tók í
„VIÐ ERUM ákveðnir í því að
komast áfram og sigra danska
liðið á sunnudag." saði þjálfari
Fram í spjalli við Mbl. „Við
höfum allt að vinna og engu að
tapa. Við munum sækja og taka
áhættu i leiknum og dæmið verð-
ur að ganga upp. Við vonum hara
að heilladísirnar verði okkar
megin," sagði Ilólmbert Frið-
jónsson þjálfari sem náð hefur
góðum árangri með Fram-liðið
síðastliðin tvö ár. Vonandi tekst
Fram að gera dönsku leikmönn-
unum lífið leitt á sunnudag eí
liðin mætast i Laugardalnum kl.
14.00.
Fram þarf að sigra í
leiknum, 2—0, til þess að komast
áfram. A því ættu að vera góðir
möguleikar með góðum stuðningi
sannleika sagt það norska í
kennslustund. Miklar breytingar
hafa orðið á íslenska liðinu síðan,
auk þess sem að þjálfaraskipti
hafa átt sér stað. Margar af eldri
og reyndari kempunum eru komn-
ar í slaginn á ný á sama tíma og
menn eins og Viggó og Sigurður
Gunnarsson eru fjarri. Kjarninn
sem Jóhann Ingi barði saman er
þó enn til staðar og er engin
ástæða til að ætla að liðið sé
lakara en áður, þvert á móti, það
hefur stundum vantað illilega
reynda kappa síðustu árin, eða
eftir að þeir Óli H, Árni, Axel og
fleiri h'Settu að gefa kost á sér.
Leikirnir við Norðmenn eru
fyrstu landsleikirnir á þessu
keppnistímabili. Báðir fara fram í
Laugardalshöllinni og hefst sá
fyrri á morgun klukkan 15.00 og á
sunnudaginn klukkan 20.00.
áhorfenda.
I danska blaðinu Berlingske
Tidende var skrifað eftir leik
Hvidovre og Fram að það yrði
skömm fyrir danska knattspyrnu
ef eitt af bestu liðum Danmerkur
yrði slegið út úr Evrópukeppninni
af íslensku liði. Það sýnir með
hvaða augum Danir líta leikinn.
Heiðursgestur Fram á leiknum
á sunnudag verður Erlendur Ein-
arsson framkvæmdastjóri SIS. Þá
mun söngtríóið Þú og Eg skemmta
gestum áður en leikur hefst og
Þorgeir Ástvaldsson mun kynna
létta tónlist. Það verður því ýmis-
legt um að vera á Laugardalsvell-
inum á sunnudag. Lið Fram í
leiknum á sunnudag verður skipað
eftirtöldum leikmönnum:
DÖNSK knattspyrnualþýða var
ekki ánægð með frammistöðu
Hvidovre gegn Fram í fyrri leik
liðanna í Evrópukeppni bikar-
hafa. Ilvidovre vann sem kunn-
ugt er aðeins 1—0 og má félagið
grínlaust hafa sig allt við ef það
ætlar sér að halda áfram i
krppninni. því Fram er vel fært
um að vinna stærri sigur, takist
liðinu vel upp á Laugardalsvell-
inum.
MbL rakst á stutt spjall við
þjálfara Hvidovre í danska blað-
inu BT. „Þetta var lélegur leikur
og við lékum sjálfir ömurlega. En
(■uAmundur Baldursson. 21 árs verzlun-
arskólanemi. Hefur sýnt þaó í undanförnum
leikjum að hann er markmaóur i landsliós-
klassa. 82 leikir meö meistaraflokki Fram
ok •’> unKlinKalandsleikir.
Július Marteinsson. 20 ára verzlunarmaó-
ur. Varamarkvörður. Ilefur leikið 11 leiki
meö meistaraflokki. Lék landsleik í sumar á
móti Grænlandi.
Simon Kristjánsson, 27 ára skrifstofumaó-
ur. IlæKri hakvörður i liöi Fram. 112 leikir
meó meistaraflokki. Lék sinn fyrsta lands-
leik í sumar.
Trausti Ilaraldsson. 23 ára símamaóur.
Ilinn marKrómaði vinstri bakvördur Fram
oK landsliósins. 127 leikir meö meistara-
ég er bjartsýnismaður og tel að við
eigum að geta unnið þetta íslenska
lið í Reykjavík," sagði John Sind-
ig, þjálfari Hvidovre, í BT, og hélt
áfram:
„íslendingarnir komu
hingað með aðeins eitt markmið,
að ná 0—0 jafntefli, og litlu
munaði að það heppnaðist. En í
Reykjavík verða þeir að sækja og
reyna að skora. Þá losnar um
okkar menn í framlínunni og þá á
þetta allt að smella saman. Eg hef
ekki hinar minnstu áhyggjur af
því að við verðum slegnir út,“
sagði Sindig að lokum við blaða-
mann BT ...
flokki. 11 landsleikir ok 1 unKlinKalands-
leikur.
Marteinn Geirsson. 29 ára hrunavoröur.
Fyrirliói Fram ok landsliösins ok hinn
trausti hakhjarl heKKja lióa. Hefur leikió
251 leik meó meistaraflokki Fram. 52
landsleiki ok 3 unKlinKalandsleiki.
Jón Pétursson. 30 ára bakari. Hefur sýnt í
sumar. að hann er alls ekki dauóur úr öllum
æóum. Einn af lykilmonnum varnarinnar.
170 leikir meó meistaraflokki Fram. 25
landsleikir ok 5 unKlinKalandsleikir.
(■ústaf Björnsson. 22 ára iþróttakennari.
MiÓvallarspilari. 11 leikur meó meistara-
flokki Fram.
Gunnar (íuómundsson. 33 ára rafvirki.
ódrepandi vinnuþjarkur á miójunni. sem
hefur átt hvern leikinn öórum betri i sumar.
205 leikir meó meistaraflokki.
Hafþór Sveinjónsson. 19 ára nemi. Getur
leikió flestar stöóur. sem stendur mióvall-
arspilari. 32 leikir meö meistaraflokki
Fram. 1 landsleikur l)-21 árs. 1 unKlinKa-
landsleikir ok 1 drenKjalandsleikir.
Baldvin Eliasson. 28 ára verzlunarstjóri.
Leikur yíirleitt i stöóu kanttenKÍliós. 29
leikir meó meistaraflokki Fram.
Guömundur Torfason. 18 ára nemi. Heíur
verió mjöK vaxandi leikmaóur i sumar i
stöóu framherja. TryKKÓi Fram sÍKur í
Bikarkeppninni 1980 meó eftirminnileKU
marki. 40 leikir meó meistaraflokki. 3
unKlinKalandsleikir ok 1 drenKjalandsleikir.
Guömundur Steinsson. 20 ára nemi. Fram-
linuleikmaóur. 59 leikir meó meistaraflokki
Fram. 1 landsleikur ok 1 landsleikur G-21
árs.
Kristinn Atlason, 23 ára verzlunarmaður.
Leikur i stöóu mióvarðar. 100 leikir meó
meistaraflokki Fram. 1 unKlinKalandsIeik-
ur.
Gunnar Bjarnason. 27 ára útvarpsvirki.
llann leikur í stöóu miövaröar. 33 leikir meö
meistaraflokki Fram.
Friörik Egitoon. 22 ára verkamaöur. 6
leikir meó meistaraflokki Fram.
Gunnar Orrason. 22 ára nemi. lx*ikur i
stöóu framherja. 31 leikur meó meistara-
flokki Fram.
Lárus Grétarsson. 18 ára verkamaöur.
Leikur i stööu framherja. Bikarmeistari meó
2. flokk Fram 1980. 3 leikir meó meistara-
flokki.
Sigurinn
vekur
mikla
athygli
Sigur íslenska landsliðsins í
knattspyrnu yfir Tyrkjum í-
hcimsmeistarakeppninni i
knattspyrnu hefur vakið
mikla athygli erlendis. í
fréttatima BBC var greint
frá sigri íslands. Leikmenn
íslenska liðsins voru vænt-
anlegir til landsinsH gær-
kvöldi. Tveir leikmenn þeir
Albert Guðmundsson Val, og
Sigurður Grétarsson UBK
koma þó ekki heim strax þar
sem þeir munu þreifa fyrir
sér með atvinnumcnnsku i
knattspyrnu í Þýskalandi og
Belgíu. Sigurður mun halda
til Dortmund, liðs Atla Eð-
valdssonar. til að ræða mál-
in og kynna sér aðstæður en
Albert mun þreifa víða fyrir
sér. Það er Willie Reinke, sá
er bauð Atla samning, sem
hefur með mál félaganna að
gera.
McNab kærður
Brightonleikmaðurinn Neil
McNab hefur verið kærður
fyrir breska knattspyrnusam-
handinu fyrir það athæfi sitt,
að stjaka við dómaranum Eric
Read i leik Brighton og Nor-
wich i 1. deild fyrir skómmu.
Virðist vera um einhvers konar
tísku að ræða, því að fyrir
skömmu gerði Palace-ieikmað-
urinn Vince Hilaire sig sekan
um hið sama og var dæmdur i
fjögurra leikja hann. Má búast
við þvi að NcNab fái svipaðan
dóm, en fjölgi afhrotum af
þessu tagi gagnvart dómurum,
má búast við þvi að viðuriög
verði hert til muna.
Er erfitt að skilja karla eins
og McNab, því að lið hans stefndi
í öruggan sigur er hann lét
eitthvað smáatriði fara í taug-
arnar á sér með umræddum
afleiðingum.
Athugasemd
VEGNA bréfs frá Herði
Hilmarssyni knattspyrnu-
manni í Sviþjóð, er birtist
hér á síðunni fyrir skömmu.
er rétt að taka fram að fyrri
hluti þess var hugsaður af
hálfu sendanda sem einka-
bréf til Þórarins Ragnars-
sonar blaðamanns. — Bréfið
birtíst hins vegar í blaðinu
vegna mistaka. og er Hörður
beðinn afsökunar á þvi.
West Ham
leikur í
Sunderland
SVO SEM skýrt hefur verið frá,
var enska knattspyrnuliðinu
West Ham, gert að leika tvo
næstu heimaleiki sina i Evrópu-
keppni. a.m.k. 300 kílómetra
frá Lundúnum. Var félaginu
gert að gera þetta vegna hroða-
legrar framkomu áhangenda
liðsins er Castilla og West Ham
áttust við 1 Evrópukeppni bik-
arhafa fyrir skömmu.
West Ham hefur að sjálfsögðu
áfrýjað dómnum, en haft vaðið
fyrir neðan sig og samið við 1.
deildar liðið Sunderland um af-
not af velli þess, Roker Park, er
West Ham mætir Castilla á
nýjan leik í næstu viku.
Marteinn Geirsson skýtur þrumuskoti að marki Hvidovre í fyrri leik liðanna i Danmörku. Marteinn átti
stórleik með íslenska íandsliðinu á móti Tyrkjum.
Evrópukeppnin Fram — Hvidovre
„Erum ákveðnir í
að leggja danskinn“
— segir Hólmbert þjálfari