Morgunblaðið - 12.10.1980, Síða 22

Morgunblaðið - 12.10.1980, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1980 Þing brezka Verkamannaflokksins Endurspeglar „hina dökku hlið Bretlands“ Stormasomu þingi brezka Verkamannaflokksins lauk á föstudag. Deilur og flokkadrætt- ir settu sip sinn á þingið og fréttir aí þinginu voru helst forsíðuefni brezkra blaða aila síðustu viku. Þá vöktu íréttir af þinginu athyxli um alla Evrópu — vöktu í senn kvíða og von- brÍKði. RinKulreiðin i Biackpool var alKjör ok hinar striðandi fylkinKar innan Verkamanna- flokksins voru ósparar á KÍfur- yrðin. Vinstri armur flokksins undir stjórn Anthony WeKdwood Benn. fyrrum orkumálaráðherra i stjórn James CallaKhan. náði að knýja fram róttækar samþykktir ok — það eru fréttaskýrendur sammála um hvar i flokki sem þeir standa nema helst til vinstri — óraunsæjar. Hinn hófsami armur flokksins undir forustu James CallaKhans fomanns flokksins. átti mjöK í vök að verjast ok „þremenninKarnir“ — Shirley Williams, David Owen og WiIIiam RoKers, urðu að sæta móðKunum ok hauli. Úrsögn úr EBE og einhliða kjarnorkuafvopnun Vinstri armurinn náði að knýja fram eftirfarandi samþykktir. • Samþykkt um úrsöKn Bretlands úr EfnahaKsbandalagi Evrópu. • Samþykkt um einhliða kjarn- orkuafvopnun Bretlands og stefnt skuli að því, að hafa ekki kjarnorkueldflaugar á brezkri grund. Hins vegar var tillaga um úrsögn úr NATO felld með yfirgnæfandi meirihiuta. • Samþykktar voru breyttar regl- ur um leiðtogakjör. Það tókst að vísu ekki að ná samkomulagi um hvernig skuli að slíku stað- ið. Þess í stað var samþykkt að boða til aukaþings um nýjar reglur um leiðtogakjör í janúar næstkomandi. • Samþykkt var að leggja niður einkaskóla, einkapraxís lækna og víðtæk þjóðnýtingaráform. Hinum hófsamari í Verka- mannaflokknum tókst að koma í veg fyrir að framkvæmdastjórnin, sem vinstrisinnar ráða, mótaði stefnuskrá flokksins. Tony Benn beitti sér mjög fyrir því, að framkvæmdastjórnin fengi að móta stefnuskrá flokksins fyrir næstu þingkosningar, sem fram eiga að fara 1984. Honum tókst hins vegar ekki að fá vilja sínum framgengt í þessu máli og réðst harkalega á hófsama verkalýðsforingja, sem greiddu at- kvæði gegn þessu valdi til fram- kvæmdastjórnarinnar. David Warburton, einn af leiðtogum bæjarstarfsmanna, sagði, að það væri „fáránlegt og ólýðræðislegt", að framkvæmdastjórnin mótaði stefnuskrána. „Þetta er ekki spurning um hægri eða vinstri — þetta er spurning um rétt og rangt," sagði hann ennfremur. Það er því óvíst hvort vinstri armi flokksins tekst að fá fram- gengt sigrum sínum — að úrsögn úr EBE verði í stefnuskrá flokks- ins og einhliða afvopnun Breta, auk annarra samþykkta. Frétta- skýrendur eru sammála um, að lítið þýði að bjóða brezkum al- menningi upp á slíka stefnuskrá — það væri sama og færa Ihalds- flokknum sigur á silfurfati. „Verkamannaflokkurinn hefur nú kastað frá sér öllum möguleikum á að sigra frú Thathcer í næstu kosningum," sagði Shirley Willi- ams eftir samþykktir landsþinsins í Blackpool og William Rogers sagði, eftir samþykkt um einhliða afvopnun — „Þessi dagur stjórn- leysis tryggir 13 ára valdaferil íhaldsins.“ Verkamannaflokkur- inn var í stjórnarandstöðu í 13 ár á árunum 1951 til 1964. Þá tókst þeim að koma í veg fyrir, að verkalýðsfélögin réðu um leiðtoga- val. Hingað til hefur þingflokkur Flokksþingið samþykkti að boða til sérstaks aukaþings í janúar næstkomandi, til að móta nýjar reglur um leiðtogavalið. Calla- ghan er nú undir þrýstingi að halda áfram formennsku flokksins og berjast gegn vinstriarmi flokksins. Lagt hefur verið að honum að halda áfram, að minnsta kosti þar til nýjar reglur um leiðtogaval hafa verið mótað- ar. En gerir hann það? Þeirri spurningu velta brezkir fjölmiðlar nú mjög fyrir sér og á meðan kýs Cailaghan að bíða átekta. Á þinginu í Biackpool jókst hreyfingu gegn Healey styrkur og vinstri armur flokksins mun berj- - segir The Times í leiðara um þing brezka \ Yerkamanna- flokksins Tony Benn — undir hans stjórn hefur vinstri armi Verkamanna- flokksins vaxið ásmegin. Tony Owen ráðherra — um? — fyrrum utanríkis- fer hann úr flokkn- James Callaghan — hefur átt undir högg að sækja. Verkamannaflokksins kosið leið- toga flokksins. Málamiðlunartil- lögur komu fram en þær voru felldar. Þeirra á meðal má nefna tillögu um, að verkalýðsfélögin réðu 50% um leiðtogavalið, þing- menn 25% og kjördæmin 25%. Á síðasta degi þingsins, föstu- degi, var samþykkt tillaga um þriggja ára bann við stjórnlaga- breytingum innan flokksins. Þetta var gert vegna valdabrölts vinstri- armsins og beitti Anthony Wegdwood Benn sér mjög gegn þessari samþykkt. Loks má nefna, að einnig var samþykkt, að þing- menn verða að sækja traustsyfir- lýsingar í kjördæmum.sínum fyrir hverjar kosningar. Callaghan undir þrýstingi að halda áfram formennsku Enn er alveg á huldu hvort James Callaghan hyggst halda áfram formennsku flokksins en hann hugðist draga sig í hlé fyrir áramótin. Hann er nú 68 ára gamall, og hafði vonast til að láta stjórn flokksins í hendur sam- herja sínum og félaga, Denis Healey, fyrrum fjármálaráðherra. Healey nýtur trausts innan þing- flokksins, og hefur verið talinn líklegastur arftaki Callaghans. Hins vegar hefur samþykkt flokksþingsins um að taka leið- togavalið úr höndum þingflokks- ins, dregið úr möguleikum Heal- eys. ast hatrammlega gegn honum, með Tony Benn í broddi fylkingar. Healey á því undir högg að sækja og rnargir fréttaskýrendur eru á þerri skoðun, að með sigrum vinstriarmsins í Blackpool hafi möguleikar hans á leiðtogaem- bættinu horfið út í veður og vind. Callaghan kallaði Benn lygara James Callaghan var harðorður í garð Tony Benns í Blackpool og kallaði hann lygara. í ræðu á fimmtudag ásakaði hann Benn um ósannsögli. „Mér þykir fyrir því að verða að segja þetta, en hjá því verður ekki komist. Eg hafna því alfarið, og harma það, að ég skuli hafa verið borinn þeim sökum að hafa uppi einræðistilburði. Tony Benn sagði ekki sannleikann um undirbúning sefnuskrár flokksins fyrir síðustu kosningar," sagði Callaghan. Þremenningarnir úr flokknum? „Þremenningarnir" svokölluðu — Shirley Williams, David Owen og William Rogers — hafa hótað að segja sig úr flokknum og þannig kljúfa hann. Shirley Willi- ams hefur lýst því yfir, að verði Tony Benn næsti formaður Verka- mannaflokksins þá muni hún segja sig úr flokknum. Þá hefur hún sagt, að verði samþykktirnar um úrsögn úr EBE og einhliða kjarnorkuafvopnun í næstu stefn- uskrá flokksins, þá muni það færa íhaldsflokknum valdastöðu um ókomna tíð. „Atburðirnir í Black- pool hafa fært frú Thatcher von um sigur í næstu kosningum, jafnvel þó algjört efnahagslegt hrun verði," sagði Shirley Willi- ams. Þremenningarnir lýstu því yfir, að þeir myndu berjast áfram gegn vinstri armi flokksins, á meðan „flokkurinn er þess virði að bjarga". Hótanir um úrsögn hafa valdið heilabrotum um hvort nýr miðju- flokkur verði stofnaður. En annar möguleiki er einnig fyrir hendi og hann er sá, að klofningsarmur úr Verkamannaflokknum gangi til liðs við Frjálslynda flokkinn, sem raunar hefur boðið óánægðum meðlimum Verkamanr.aflokksins til liðs við sig. „Ekkert nema niðurlæging bíður hófsamra í Verkamannaflokknum," sagði í tilkynningu Frjálslynda flokksins á föstudag. Svar hefur vitaskuld ekki borist — og það kemur væntanlega ekki fyrr en í janúar næstkomandi þegar aukaþingið hefur ákveðið nýja tilhögun á leiðtogavali. r Ahyggjur vegna vaxandi áhrifa vinstrisinna Samþykktir þingsins í Black- pool hafa vaidið áhyggum meðal bandalagsþjóða Breta í Atlants- hafsbandalaginu jafnt sem Jafn- aðarmanna í ríkjum EBE. Þannig lét formaður sósíalískra flokka, sem sæti eiga á EBE-þinginu í Brússel í ljós von um að Verka- mannaflokkurinn léti ekki verða af því, að hafa úrsögn úr banda- laginu á stefnuskrá sinni. Umræður um einhliða kjarn- orkuvopnaafvopnun Breta voru heitar á landsþinginu. Talsmaður flokksins í varnarmálum, William Rogers mátti sæta móðgunum og framíköllum þegar hann flutti ræðu, þar sem hann varaði við einhliða afvopnun. Hann sagði til lítils að byggja upp lýðræðislegan sósíalisma ef menn væru ekki reiðubúnir að verja hann. Ein- hliða afvopnun færði Rússum ein- ungis vopn í hendur og yrði mikið áfall fyrir Atlantshafsbandalagið og vestræn lýðræðisríki. Nú hafa þrjú bandalagsríki NATO yfir kjarnorkuvopnum að ráða. Þau eru Bandaríkin, Bret- land og Frakkland. Raunar heyra kjarnorkuvopn Frakka ekki undir Atlantshafsbandalagið, en það gera hin bresku og eru einungis ætluð í varnarskyni. í umræðum var á það bent, að Kremlherrum væru einungis færð vopn í hendur með einhliða afvopnun og það væri þversögn, að samþykkja áframhaldandi aðild að NATO en á sama tíma samþykkja einhliða kjarnorkuafvopnun. Bretland og Atlantshafsbandalagið væru ein- ungis að kasta frá sér mikilvægu vopni í samningum um afvopnum á sama tima og stórkostlegur vígbúnaður á sér stað austan járntjalds og á síðustu misserum hefðu Sovétmenn einmitt verið að

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.