Morgunblaðið - 12.10.1980, Blaðsíða 23
23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1980
taka í notkun nýjar meðaldrægar
kjarnorkueldflaugar, sem beint er
að höfuðborgum V-Evrópu. Það
væri í sjálfu sér virðingarvert að
taka kjarnorkuvopn úr notkun, en,
— eins og einn ræðumanna komst
að orði, — „við hreinsum okkur og
ætlumst til, eins og önnur ríki
V-Evrópu, að kjarnorkuvopn
Bandaríkjanna veiti okkur vernd.“
Tony Benn —
himnasending
til Thatcher
Antony Wegdwood Benn hefur
staðið að baki vinstribyltingunni í
Blackpool og er ótvíræður leiðtogi
vinstri arms flokksins. Frétta-
skýrendur eru sammála um, að ef
Benn yrði formaður flokksins, þá
mundi hann tapa fylgi. Ýmsar
hugmynda hans eiga lítt upp á
pallborðið hjá brezkum kjósend-
um, svo sem víðtækar þjóðnýt-
ingar, kommisarakerfi með ráð-
herrum, nokkurs konar eftirlits-
kerfi þingmanna með einstökum
ráðherrum og ráðuneytum, afnám
lávarðadeildarinnar, afnám einka-
skóla, afnám einkapraxíss lækna,
úrsögn úr EBE, einhliða afvopnun
og svo framvegis. Fréttaskýrendur
eru sammála um, að Tony Benn
yrði sem sendur af himnum ofan
til bjargar Margréti Thatcher í
vandræðum hennar. Tony Benn er
lýst sem pólitískum draumóra-
manni og skoðanir hans eiga lítt
skylt við raunveruleika bresks
Shirley Williams — fyrrum fé-
iagsmáiaráðherra — fer hún úr
fiokknum?
efnahagslífs. Sú hætta sé, að
Verkamannflokkurinn einangrist
undir stjórn Tony Benn — enginn
flokkur á Bretlandi gæti gengið til
samstarfs við Verkamannaflokk,
sem hefði það á stefnuskrá sinni,
að ganga úr EBE og afvopna
Breta.
Það er vissulega raunhæfur
möguleiki, að málamiðlun um leið-
togaval verði uppi á teningnum.
Einkum eru þeir Peter Shore og
John Silkin nefndir í því sam-
bandi, menn, sem hugsanlega hin-
ir hófsamari í flokknum geta sætt
sig við.
Hinar dökku
hliðar Bretlands
Hið virta Lundúnablað, The
Times, birti leiðara um þingið í
Blackpool undir fyrirsögninni,
„Hin dökka hlið Bretlands". Þar
sagði m.a.:
„Enginn, ekki einusinni harð-
asti íhaldsmaður, á að gleðjast
yfir atburðarásinni í Blackpool.
Það sem gerst hefur skaðar ekki
aðeins Verkamannaflokkinn og
verkalýðshreyfinguna, heldur allt
Bretland. Þróun mála í Blackpool
er án nokkurs vafa afleiðing
félagslegrar, pólitískrar og efna-
hagslegrar hnignunar. Hættu-
merkin eru til staðar: Fyrirboðinn
er ógnvænlegur." Blaðið segir það
tákn nútímans, þeirrar hnignun-
ar, sem átt hefur sér stað í bresku
samfélagi, að Verkamannaflokk-
urinn er nú klofinn í herðar niður.
Blaðið var gagnrýnið á vinstri
arm flokksins og sagði vinstri
mennina hafa sýnt eindrægni og
þvermóðsku. Meðal annars skrif-
aði The Times: „Þeir sem fóru til
Blackpool komust ekki aðeins að
hinu neikvæða, heldur átti sér
stað einstæður atburður. Á stund-
um var líkast sem Blackpool væri
í órafjarlægð frá veruleikanum,
reikistjarna full af vitfirringum.
Fulltrúarnir voru sjálfir lengstum
eðlilegir. Þeir eru hinu dæmigerðu
Bretar, sem eiga sínar fjölskyldur
og íbúð og finnst gott að fá sér
bjórglas á sunnudagsmorgni, rétt
eins og gengur og gerist, en þrátt
fyrir það vaða þeir vinstrivillu, —
allt í senn uppfullir heilagri reiði,
hugarburði, grunsemdum, móður-
sýki, hatri í garð kollega, sem
greinir á í smáatriðum, hvað þá í
stórum málum, hræsni og fráleitri
vandlætingu, sem ekki hefur
þekkst í Bretlandi frá því á 17.
öld.“
Formaður kommún-
istaflokks Bret-
lands stjórnaði
á bak við tjöldin
Verkamannaflokkurinn sam-
anstendur af mörgum skoðana-
hópum. Þar eru harðir trotskyist-
ar og marxistar jafnframt því að
innan flokksins eru margir
hægri-kratar. Þetta hefur í senn
verið veikleiki og styrkur Verka-
mannaflokksins.
Það vakti mikla athygli, að Mick
McGahey, „Rauði Mick“, vara-
formaður sambands námamanna
og formaður breska kommúnista-
flokksins var í Blackpool og freist-
aði þess að tjaldabaki, að breyta
samþykktum námamanna í kosn-
ingum innan Verkamannaflokks-
ins. „Rauði Mick“ átti ekki sæti á
landsþinginu en í fjarveru Joe
Gormley, formanns sambands
námamanna, kallaði „Rauði Mick“
nefnd sambandsins saman og ætl-
aði að freista þess, að fá hana til
að breyta afstöðu sinni til leið-
togavalsins. Fyrir landsþingið
höfðu námamenn samþykkt að
þingflokkur Verkamannaflokksins
skyldi kjósa formann fiokksins.
„Rauða Mick“ tókst ekki að fá
vilja sínum framgengt, og sam-
þykkt var með 20 atkvæðum gegn
17 að halda fyrri samþykkt.
Fjölmargir fulltrúar urðu æfir,
þegar þeir fréttu, að kommúnistar
væru að tjaldabaki og reyndu að
hafa áhrif á samþykktir lands-
þingsins. „Ég mun ekki líða það,
að kommúnistaflokkurinn geti
haft áhrif á leiðtogaval Verka-
mannaflokksins," sagði Shirley
Williams, einn þremenninganna,
þegar fréttist af tilraun kommún-
ista til að hafa áhrif á það,
hvernig leiðtogi flokksins skuli
kosinn.
Verkamannaílokkur-
inn á krossgötum —
og barmi klofnings
Verkamannaflokkurinn stendur
nú á krossgötum. Vinstriarmur
flokksins, sem hingað til hefur
orðið að láta sér nægja að mót-
mæla, hefur nú undirtökin í
flokknum. I krafti þessa hefur
hann hert tökin á flokknum og náð
að knýja fram samþykktir, sem
líklega einangruðu flokkinn og
yrðu til þess, að Verkamann-
aflokkurinn missi það fjöldafylgi
sem hann hefur notið.
Flokkurinn stendur á barmi
klofnings. Láti vinstrisinnar kné
fylgja kviði og takist þeim að ráða
vali leiðtoga flokksins, þá er ljóst,
að margir flokksmenn munu segja
sig úr flokknum. Þar fara fremstir
„þremenningarnir" en einnig má
nefna Roy Jenkins, sem var um
árabil einn helsti leiðtogi flokks-
ins og framkvæmdastjóri EBE.
Frjálslyndi flokkurinn lítur
ágirndaraugum á þessa liðhlaupa
og vel er hugsanlegt að óánægðir
verkamannaflokksmenn gangi í
raðir frjálslyndra, með fyrirsjáan-
legri fylgisaukningu flokksins.
Framtíðin ein sker úr um atburða-
rásina.
FÆREYJAR
DETTIFOSS FER
TIL FÆREYJA 16. 10.
Vörumóttaka í A-skála
fram til kl. 15.00 15. 10.
EIMSKIP
SIMI 27100
AF HVERJU
HAFA SVO MARGIR ÍSLENDINGAR
NOTFÆRT SÉR fllltú
HITABLÁSARA?
m. a. vegna þess að rafhitun er HAGKVÆMARI en olíukynding.
fflltD
fflltD
fflltD
fflltD
fflltD
fflltú
fflltD
hitablásarar hafa verið notaðir hér á landi í mörg ár og hitað
upp frystihús, verksmiðjur. iðnaðarhúsnæði hvers konar,
vöruafgreiðslur, bílskúra, og fjárhús bænda.
hitablásarar eru nýtnir orkugjafar.
hitablásarar eru hljóðlátir.
hitablásara er auðvelt að flytja milli staða.
hitablásara er hægt að tímastilla.
hitablásarar eru vinsælir, koma þægilega
á óvart og uppfylla ströngustu
hitagjafakröfur.
hitablásarar. 2—30 kW eru ávallt til í
birgðum okkar.
./^/"KÍÍLghf
'. Simi 84000 - 104 R*yk(avik