Morgunblaðið - 12.10.1980, Page 26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1980
„Flest finnsk
ungmenni vilja
heimsækja IslancT
Heimsfræjíur finnskur
harna- or unKlingakór,
Tapiolakórinn. gisti ís-
land í sl. viku ok hélt
nokkra tónleika. Söng kór-
inn m.a. á Ilvolsvelli, i
Norræna húsinu, Há-
teÍKskirkju ok við messu á
Bessastöðum.
Tapiolakórinn er nokk-
urs konar skólakór frá
horginni Tapiola í Finn-
landi (8 kílómetra norður
af Ilelsinki). Fyrir þrettán
árum vann hann keppni
harnakóra á Norðurlönd-
unum oK árið 1971 alþjóð-
legu kórakeppnina „Let
the People Sin>j“. Eftir þá
sijjra hefur kórinn ferðast
víða um heiminn, m.a.
haldið tónleika í Banda-
ríkjunum ojí Japan.
Stjórnandi og stofnandi
kórsins er Erkki Pohjola
tónlistarkennari við
grunnskólann í Tapiola.
Blaðamaður ræddi við
hann og spurði fyrst að því
hvað hefði orðið til þess að
kórinn var stofnaður:
„Áður en ég kom til
Tapiola hafði ég kennt tón-
list og stjórnað barnakór-
um í tveimur litlum bæjum
í Finnlandi. Þegar ég kom
til Tapiola var ég ákveðinn
í að stofna kór sem sýndi
það og sannaði að finnsk
börn geta sungið vel. Ég
hafði heyrt í mörgum frá-
bærum barnakórum víðs
vegar að úr heiminum og
var sannfærður um að
finnsk börn hefðu jafn
mikla sönghæfileika og
þau.
En tilgangurinn með
kórnum er ekki aðeins að fá
fram góðar kórraddir. Flest
börnin í kórnum læra líka á
eitthvað hljóðfæri svo þau
geti bæði tjáð sig í söng og
hljóðfæraleik. Kórinn æfir
aðeins einu sinni í viku en
öll börnin eru þess utan við
tónlistarnám, annað hvort
einkanám eða við tónlist-
arskóla. Við viljum þjálfa
upp góða tónlistarmenn og
höfum þegar fengið að sjá
nokkurn árangur. Tveir af
fyrrverandi kórfélögum eru
nú tónskáld að atvinnu, 6
hafa náð einleikaraprófi og
marglr aðrir eru á leið með
að verða góðir atvinnutón-
listarmenn."
— Er kórstarfið hluti af
tónlistarmenntun barn-
anna?
„Kórstarfið er hluti af
tónlistarmenntun innan
grunnskólans í Tapiola.
Flest börnin eru úr þeim
skóla og í byrjun voru
kórfélagar aðeins úr hon-
um. Nú er kórinn hins
vegar opinn öllum þeim
sem vilja taka þátt í kór-
starfinu. En við verðum að
takmarka fjöldann og
börnin verða að standast
- Rætt við Erkki
Pohjola stjórnanda
Tapiola kórsins
ingar frá níu ára aldri til
tvítugs og aðstoðarmenn
mínir tveir eru komnir yfir
tvítugt."
— Hver er ástæðan fyrir
komu ykkar hingað?
„ísland er eitt þeirra
landa sem flest finnsk ung-
menni vilja heimsækja.
Okkur finnst líka mikil-
vægt að styrkja það menn-
ingarsamband sem er milli
Norðurlandanna. Egill
Friðleifsson stjórnandi
kórs Öldutúnsskóla í Hafn-
arfirði er mikill vinur minn
og hann skipulagði ferðina
fyrir okkur.
Við höfum átt ánægju-
lega daga hér. Sérstaklega
hefur okkur fundist ánægju-
legt að búa á íslenskum
heimilum og kynnast þann-
ig Islendingum betur en
ella.“
— Kórinn hefur unnið
mikla sigra og sungið víða
um heiminn. Hver er
stærsta stund þín með
kórnum?
strangt inntökupróf til þess
að fá að syngja með kórn-
um.
Það er algengt að börnin
hætti í kórnum um leið og
þau hafa lokið námi í
grunnskólanum. Nú eru í
kórnum þó börn og ungl-
„Ferð okkar til Japans
árið 1977 er mér efst í huga
þessa stundina. Við héldum
þar 30 tónleika á 6 vikum.
Við sungum þar m.a. fyrir
keisarafjölskylduna. Sú
ferð er mér minnisstæðust
af öllum ferðum sem kór-
inn hefur farið hingað til,“
sagði Erkki Pohjola að lok-
um.
Minna Pekonen og Matti-Petteri Kontu: „Ferðirnar eru lang
skemmtilegastar.“
Jsland hefiur
vinninginn “
„Ég hef lika farið til Sviss með kórnum en mér finnst
miklu skemmtilegra að vera hér. ísland hefur örugglega
vinninginn,“ sagði Matti-Petteri Kontu 9 ára gamall
kórfélagi í Tapiola-kórnum er blm. ræddi við hann og Minnu
Pekonen 16 ára. Matti hefur sungið í kórnum í eitt ár en
Minna i 2 ár.
Minna var einnig ánægð með Islandsdvölina. Hún sagði að
landslagið hefði heillað sig sérstaklega, það væri svo
frábrugðið því í Finnlandi.
— En hvers vegna fóru þau að syngja með kórnum?
„Mig langaði til að syngja í góðum kór,“ sagði Minna. „Ég
hafði heyrt mikið talað um Tapiola kórinn og ákvað því að
reyna að komast í hann.“
Og hún sagðist ekki hafa verið svikin. Það væri mjög gaman
og mikil upplifun að syngja með Tapiola kórnum.
„Ferðirnar eru lang skemmtilegastar en stundum svolítið
þreytandi. í Finnlandi byrja t.d. allir tónleikar kl. 7 á kvöldin
en hér ekki fyrr en kl. 8.30. Og ekki nóg með það heldur er
klukkan hér tveimur klukkustundum á eftir klukkunni í
Finnlandi," sagði hún.
Matti sagðist hafa byrjað að syngja í kórnum vegna þess að
tvær eldri systur hans syngja þar líka. Hann var sammála
Minnu um að ferðirnar væri það lang skemmtilegasta við
kórstarfið þótt hann hefði ekki farið í þær margar. En hann
sagðist líka oft verða þreyttur á ferðalögunum.
Þau Minna og Matti eru bæði við tónlistarnám og leika bæði
á píanó. Minna var ákveðin í að leggja ekki píanóleik fyrir sig
í framtíðinni en Matti vildi ekkert um það segja.
Að lokum voru þau spurð um það hvers konar lög kórinn
syngi.
„Við syngjum aðallega nútímatónlist. Mörg finnsk tónskáld
semja sérstaklega fyrir kórinn, mestmegnis nútímatónverk."
— Og finnst ykkur gaman að slíkri tónlist?
„Auðvitað," svöruðu þau bæði fljótt og ákveðið.
Errki Pohjola.
Tapiola kórinn á æfingu fyrir tónleikana i Norræna húsinu. Nokkrir kórfélaganna hafa þegar
Vuokko kjólum sem voru sérstaklega hannaðir fyrir kórinn.
' i f
klæðst einkennisfötum kórsins, bláum
Ljósm. Emilia.