Morgunblaðið - 12.10.1980, Page 42

Morgunblaðið - 12.10.1980, Page 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. OKT0BER 1980 Tónlistarskóli F. I. H. Brautarholti 4 Fullorðinsfræðsla í tónlist Fyrsta námskeiö fulloröinsfræösludeildar tónlistarskóla F.Í.H. hefst þriöjudaginn 14. október næstkomandi. Námskeiöiö tekur alls níu vikur og er kennt einu sinni í viku. Innritaö verður í tvo hópa sem skiptast á þessa daga: A — þriöjudaga kl. 20—22. B — fimmtudaga kl. 18—20. Námskeiðið skiptist sem hér segir: 1., 2. og 3. vika: Atli Heimir Sveinsson spjallar um sinfóníu klassíska tímabilsins. 4., 5. og 6. vika: Jón Múli Árnason rekur sögu djasstónlistarinnar. 7. og 8. vika: Kvöld meö Jónasi Ingimundarsyni píanóleikara. 9. vika: Manuela Wiesler kynnir flautuna og tónlist hennar. Skráning í námskeiðið fer fram, í dag og næstu daga, aö Laufásvegi 40 milli kl. 14 og 17 eöa í síma 23780 á sama tíma. aukne cht eldavél med blástursofni Blásturofn ★ Kældur með loftstreymi ★ Tímarofi Barnaöryggislæsing^ Nýtískulegt útlit^ Bakstur auðveldur, hægt að baka á fjórum plötum sam- tímis^ Auðvelt að losa innréttingu og hurð sem gerir þrif auðveld. Hæð 85 cm Dýpt 60 cm Breidd 60 cm ★ Blásturofn notar 32% minna rafmagn til steikingar ★ Blásturofn notar 48% minna rafmagn til baksturs. ★ Sér geymsluhólf fyrir potta og pönnur. Utsölustaðir DOMUS, og kaupfélögin um land allt Véladeild Sambandsins Ármúla 3 Reyk/avik Simi 38900 Þráinn Sigurðsson og Ásmundur Ásgeirsson aö tafli. Ljósm. Mbi. Kristján. íslandsmeistarar frá 1931 til 1980 á helgar- móti Skáksambandsins Helgi — Ingi R. 1—0 Margeir — Jóhann 'k— 'k Stórmeistararnir tefldu úr- slitaskák mótsins. Friðrik, sem hafi hvítt, blés snemma til sóknar og lét síðan kné fylgja kviði í góðri sóknarskák. Skák Helga og Inga var mjög svipt- ingasöm. Eftir athyglisverða byrjun varð Helgi peði yfir, en hann gerðist síðan of bráður á sér og Ingi átti kost á þvingaðri vinningsleið. Hann missti hins vegar af því tækifæri og Helgi gaf honum ekki annað. Margeir náði sókn, en missti af vinningi í tímahraki. Staðan fyrir síðustu umferð var því sú, að Friðrik hafði þrjá vinninga, Helgi tvo og hálfan, Guðmundur og Jóhann tvo, Mar- geir einn og hálfan og Ingi einn. 5. umferð: Jóhann — Friðrik xk — xk Guðmundur — Helgi 'k — 'k Ingi — Margeir 'k — 'k Friðrik víxlaði leikjum í byrj- uninni og varð að teljast góður að fá jafntefli eftir það. Helgi tefldi hvasst gegn Guðmundi, en varð um síðir að gera sig ánægð- an með jafntefli. Ingi fékk erfiða stöðu eftir byrjunina, en tefldi vörnina vel og gaf sig hvergi. Lokastaðan varð því þessi: 1. Friðrik 3 'k v. 2. Helgi 3 v. 3—4 Jóhann og Guðmundur 2'k v. 5. Margeir 2 v. 6. Ingi 1 'k v. Friðrik var óneitanlega mjög vel að sigrinum kominn og virð- ist vel undir skákmótið í Buenos Aires búinn, en þangað heldur hann á næstunni. Helgi hefur teflt betur í sumar, en var þó jafnan fljótur að hugsa á tvísýn- um augnablikum að vanda. Broddinn virtist vanta hjá Guð- mundi, en Jóhann kom á óvart, t.d. velgdi hann stórmeisturun- um undir uggum. Fimm jafntefli gefa þó ekki rétta mynd af skákstíl hans og e.t.v. bar hann á köflum fullmikla virðingu fyrir andstæðingum sínum. Margeiri og Inga R. tókst heldur ekki að vinna skák, er. réyndu þó báðir mikjð Fjno Qg Jóhan.n þ. Jóns- son skákstjóri benti á eftir mótið hefði ekki þurft mikið til þess að gæfuhjólið færi að snúsat í gagnstæða átt við það sem uppi varð á teningnum. Ingi R. hefði t.d. orðið efstur ásamt Friðriki hefði hann nýtt vinningsstöðu sína gegn Guðmundi og gripið tækifæri það sem Helgi gaf honum. Efst í kvennaflokki varð Guð- laug Þorsteinsdóttir, en aðrir þátttakendur í kvennaflokki voru þær Ólöf Þráinsdóttir, Ás- laug Kristinsdóttir, Birna Nor- dahl. Islandsmeistari kvenna, Sigurlaug Friðþjófsdóttir og Svana Samúelsdóttir. Skáksamband íslands gekkst um helgina fyrir æfingaskák- móti fyrir þátttakendur Islands á Ólympíumótinu á Möltu í vetur. Mótið fór fram í Víghóla- skóla í Kópavogi og var teflt í þremur flokkum, karlaflokki, kvennaflokki, en í honum tóku þátt fjórir kunnir meistarar af eldri kynslóðinni. Það voru þeir Ásmundur Ásgeirsson, Baldur Möller, Sturla Pétursson og Þrá- inn Sigurðsson. Þeir voru meðal þeirra sem riðu á vaðið fyrir hönd íslands hvað þátttöku í Ólympíumótum varðaði, en nú eru liðin fimmtíu ár síðan Is- lendingar tóku fyrst þátt í þeirri keppni. Urslit í heiðursflokknum urðu þessi: 1. umferð: Sturla — Baldur 0—1 Þráinn — Ásmundur 1—0 2. umferð: Ásmundur — Baldur 'k — 'k Þráinn — Sturla 'k — 'k 3. umferð: Baldur — Þráinn 'k — 'k Sturla — Ásmundur 'k — 'k Úrslitin urðu því þau að þeir Baldur og Þráinn hlutu tvo vinninga hvor, en Ásmundur og Sturla einn hvor. Allir komust fjórmenningarnir því býsna vel frá mótinu, en eins og gefur að skilja háði æfingarleysi þeim á köflum, sérstaklega Ásmundi, sem ekkert hefur teflt lengi. Þeir Sturla og Þráinn eru enn býsna seigir hraðskákmenn, þó úthald- ið sé aðeins farið að minnka og Baldur Möller virtist litlu hafa gleymt. Þess má geta að þátttakendur á Víghólaskólamótinu hafa sam- tals verið Islandsmeistarar í 28 ár! Ásmundur Ásgeirsson varð fyrst íslandsmeistari 1931 og Jóhann Hjartarson er nú ís- landsmeistari, fimmtíu árum síðar! Ásamt Eggert heitnum Gilfer hefur Baldur Möller oftast orðið íslandsmeistari eða sjö sinnum, en fast á hæla þeirra koma þeir Friðrik Ólafsson og Ásmundur Ásgeirsson, sex sinn- um hvor. Mótið í VíghólaskÓia var því gagnmerkt fyrir margra hlúta sakir, og verður vonandi endurtekið eftir nokkur ár. í karlaflokknum tefldu fimm af sjö titilhöfum íslands auk Jóhanns Hjartarsonar, ís- landsmeistara. Vonir höfðu stað- ið til um að allir titilhafarnir gætu verið með, en því miður forfölluðust þeir Jón L. Árnason og Haukur Ángantýsson. Mesta athygli vakti þátttaka Inga R. Jóhannssonar, en hann hefur lítið sem ekkert teflt síðan á Reykjavíkurskákmótinu 1976 þar sem hann stóð sig með prýði. 1. umferð: Friðrik — Margeir 1—0 Sigurvegarinn, Friðrik ólafsson Fremur friðsæl umferð þar sem öryggjð virtist 3itja í fyrir- rúrr.i á öllurc borðtim. 3. umferð: Guðmundur — Jóhann 'k — 'k Helgi — Margeir 'k — 'k Ingi — Friðrik 'k — 'k Viðureign gömlu keppinaut- anna Inga og Friðriks vakti mesta athygli. Báðir ætluðu greinilega sjálfum sér stóran hlut, en jafnteflið varð ofan á eftir nokkrar sviptingar. Helgi missti peð í byrjuninni, en Mar- geir lék síðan illa af sér og hélt síðan aðeins naumlega jafntefli. Jóhann sótti fast að Guðmundi, sem þó sem fyrr var fastur fyrir í vörninni. 4. umferð: Friðrik — Guðmundur 1—0 Helgi — Jóhann 'k — 'k Ingi R. — Guðmundur 0—1 Margeiri voru illa mislagðar hendur í byrjuninni og sá aldrei til sólar. Helgi náði betri stöðu snemma, en lék síðan af sér og varð að berjast hatrammlega fyrir jafnteflinu. Af skák þeirra Inga og Guðmundar er það skemmst að segja að Ingi yfir- spilaði stórmeistarann af miklo öryggi og fékk gjörunnið tafl, en undir lokin sagði æfingarleysið til sín og Inga tókst á ótrúlegan hátt að klúðra skákinni í tap. 2. umferð: Jóhann — Ingi 'k — 'k Margeir — Guðmundur 'k — 'k Friðrik — Helgi 'k — 'k

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.