Morgunblaðið - 12.10.1980, Síða 48
Síminn á afgreiðslunni er
83033
SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1980
PLAST
ÞAKRENNUR
Sterkar og endingargóðar
Hagstætt verð
cSþ Nýborg?
O Armúla 23 — Sími 86755
«i
¥
K.
39,5% af benzín-
tekjum ríkisins
til vegamála
— Hlutdeild vegagjalds í benzínverði
hefur stöðugt farið minnkandi
AF ÞEIM tekjum, sem
ríkið hefur af henzínsulu
renna 39,46% til vegamála
ok hefur hlutdeild vega-
tíjalds í henzínverði stöð-
UKt farið minnkandi á
undanförnum árum, að því
er Mbl. fékk upplýst hjá
Hafsteini Vilhelmssyni,
framkvæmdarstjóra FIB í
>fær. Eftir síðustu benzín-
hækkun kostar hver benz-
ínlítri 515 krónur og af
þeirri upphæð fara 112,47
krónur til vegamála. Til
samanburðar má nefna að
árið 1972 var hlutdeild
vegagjalds 73,1% af tekj-
um ríkisins af hverjum
benzínlítra, 45,8% árið
1975 og 41,4% árið 1979.
„Það virðast engin takmörk
vera fyrir því hversu mikið ríkis-
valdið telur sig geta þjarmað að
bifreiðaeigendum og haft þá að
féþúfu,“ sagði Hafsteinn Vil-
helmsson í gær. „Okkur er reynd-
ar ljós tekjuöflunarþörf ríkissjóðs
til hinna ýmsu þarfa þjóðfélags-
ins, en skattlagning á benzín og
olíur er óheyrilega há eða um 55%
af heildarbenzínverði. Menn
skyldu ætla, að stór hluti þeirra
tekna, sem ríkið hefur af benzín-
sölu, rynni til vegamála. Sú er þó
aldeilis ekki raunin eða aðeins
tæplega 40% af tekjum ríkisins af
hverjum benzínlítra.
Á hinn bóginn nemur söluskatt-
urinn einn 121,02 krónum af
hverjum benzínlítra og afgangur-
inn, sem er um 50 krónur, skiptist
í tolla og landsútsvar. Okkur er
því spurn hvað líði störfum þeirra
þriggja ráðherra, sem skipaðir
voru í nefnd, sem ætlað var að
endurskoða skattlagningu á benz-
íni og olíum. Er ekki tímabært að
þeir háu herrar fari senn að láta
frá sér heyra?" sagði fram-
kvæmdastjóri FÍB að lokum.
Stúlkan lét heimsins ys og óróa ekki trufla sig i búðarferð i gær. Á meðan móðir hennar skoðaði
varning í Popphúsinu, brá sú litla sér inn i sýningargluggann og kannaði nánar ásjálega skó sem þar
voru í hoði. Ljósmynd Mbl.: Emilia Björnsdóttir.
Steingrímur HermannSvSon, samgönguráðherra, um aðstoðina við Flugleiðir:
Stjórn Flug-
leiða ræðir
bréf f jár-
málaráðherra
STJÓRN Flugleiða mun á
fundi sínum nk. þriðjudag
fjalla um bréf fjármálaráð-
herra til stjórnar Flugleiða,
en frá bréfinu var sagt í
Morgunblaðinu í gaer. Sig-
urður Helgason, forstjóri
Flugleiða, kvaðst ekki vilja
tjá sig um málið á þessu
stigi.
„Óhress að f jármála-
ráðherra flæki málið
Búið að samþykkja afgreiðslu 3 millj.
dollara bakábyrgðar í rikisstjórninni
„ÞAÐ ,ER búið að sam-
þykkja það í ríkisstjórn-
inni að opnaður verði
vaxtalaus reikningur í
Seðlabankanum til þess að
greiða til Flugleiða á
næstu 6 mánuðum þrjár
milljónir dollara sem verð-
ur bakábyrgð ríkisstjórn-
Tveir ökumenn voru fluttir i slysadeild eftir árekstur á
Fálkabakka um hádegisbilið i gær. og tók Emilia meðfylgjandi
mynd. þegar annar billinn var fluttur af staðnum. en hinn valt og
kviknaði i honum. Kona, sem var i öðrum hílnum. skarst mikið í
andliti.
arinnar vegna Atlants-
hafsflugsins næstu 12
mánuði ef stjórn Flugleiða
fellst á þetta fyrirkomulag
og síðan verður dæmið
gert upp að loknu þessu
tímabili, en ég er mjög
óhress yfir því að fjár-
málaráðherra sé að flækja
þetta mál með bréfi sinu
til Flugleiða, það á að
ganga hreint til verks og
þetta mál liggur fyrir af-
greitt í ríkisstjórninni,“
sagði Steingrímur Her-
mannsson, samgönguráð-
herra, í samtali við Mbl. í
gær um bréf fjármálaráð-
herra til stjórnar Flug-
leiða en það var birt í Mbl.
í sær.
„Samþykktinni var vísað til mín
og fjármálaráðuneytisins og mið-
að er við að samgönguráðuneytið
gangi síðan endanlega frá þessu,"
sagði Steingrímur, „en það er ljóst
að Flugleiðir þurfa á þessum
peningum að halda yfir vetrar-
mánuðina."
Aðspurður um það hvort ríkis-
stjórnin vissi um einhvern kaup-
anda að eigum Flugleiða á næstu
vikum eða væri tilbúin í lánafyr-
irgreiðslu til nýrra eigenda, þar
sem sala á eignum Flugleiða er
skilyrði fyrir ríkisábyrgð sam-
Steingrímur Hermannsson
kvæmt bréfi fjármálaráðherra,
sagði Steingrímur: „Ég tel eðlilegt
að Flugleiðir leiti leiða í sínu eigin
búri út úr sínum vanda en ég tel
að þetta atriði sé ekki skilyrði
nema að því leyti að samkomulag
náist um að Flugleiðir sýni vilja
til þess að selja hluta af sínum
eignum sem til greina kemur að
selja. Ég tel ekki að það sé nokkur
sem vill kaupa Hótel Esju, skrif-
stofuhúsnæði Flugleiða, en það
væri viðleitni að auglýsa. Mér er
kunnugt um að verið er að kanna
möguleika á að selja hlut Flug-
leiða í Aerogolf í Luxemborg, en
persónulega tel ég að félagið eigi
ekki að selja hlut sinn í Cargolux
sem er líklega einhver verðmæt-
asta eign félagsins. Ég hef hins
vegar heyrt að bílaleigumenn vilji
kaupa bílaleiguna og að starfsfólk
Arnarflugs vilji kaupa stærri hlut
í því félagi og allt er þetta
athugandi. Það er einnig mitt mat
að það séu mikil mistök að allt
utanlandsflug hér sé á einni hendi,
ég treysti engum einum aðila til
slíks.
Skilyrðið um sölu eigna til þess
að fá ríkisábyrgð er óframkvæm-
anlegt eins og það er sett fram í
bréfi fjármálaráðherra og það er
ljóst að Flugleiðir verða að fá
þessa ríkisábyrgð mjög fljótt, því
ella er mikil hætta á því að félagið
verði stopp á næstu vikum. Hins
vegar er eðlilegt að kanna veðhæfi
eigna. í bréfi fjármálaráðherra er
þess krafist að félagið standi við
greiðslu opinberra gjalda eins og
aðrir og það er allt annað mál og
eðlileg krafa, en í heild liggur
málið hreint fyrir og það er óþarfi
að vera með nokkurn feluleik í því
sambandi. Ég harma ef bréf fjár-
málaráðherra er misskilið."
Sjá ritstjórnargrein á
bls. 24.
Drengur stór-
slasast
DRENGUR var fluttur mikið
slasaður i slysadeild Borgarspit-
alans i gær eftir að hann hafði
hjólað í veg fyrir bíl á Vesturgöt-
unni.
Tveir drengir á hjólum voru
samferða um Vesturgötu laust
eftir hádegið í gær og skyndilega
beygði annar yfir á hinn götu-
helminginn og lenti framan á bíl,
sem þar kom.
f