Morgunblaðið - 25.10.1980, Qupperneq 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK
237. tbl. 68. árg.
LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 1980
Prentsmiðja Morgunhlaðsins.
Sovézk sókn
í Afganistan
Nýju Delhi. 21. október. AP.
IIÉRLIÐ búið hundruðum sovézkra skriðdreka og herbíla
hefur hafið stórsókn nálægt austurlandamærunum til að
stöðva ferðir skæruliða til og frá Pakistan samkvæmt
fréttum frá Kabul í dag.
Rússar hófu sóknina í síðustu viku frá Gardez, 100 km
suðaustur af Kahul. um Paktiya-hérað með aðstoð „sjálf-
hoðaliða.. úr flokki kommúnista og málaliða úr ættflokkum.
Mikill hluti einnar milljónar afganskra flóttamanna í
Pakistan fór um Paktiya. sem er landamærahérað.
Mikilvæg flutningaleið skæruliða liggur um héraðið.
Stjórnin í Kabul hefur reynt að lokka ættflokkamenn i
Paktiya til herþjónustu og boðið þeim margfalt hærri laun
en greidd eru afgönskum hermönnum.
Landamæraráðherrann,
Faiz Mohammad, var veginn í
september, þegar hann reyndi
að kaupa stuðning eins ætt-
flokksins í Paktiya, Zadrana.
Ráðherrann mun hafa fengið
minnst tvo aðra ættflokka í
suðausturhluta landsins til
samvinnu við stjórnina. Til-
raunir stjórnarinnar til að
lokka ættflokkana í Paktiya
fóru út um þúfur eftir tilræð-
ið og stórsókn Rússa var
hafin.
Rússar hafa einnig aukið
stórskotaliðsárásir í Logar-
héraði, sem er á valdi skæru-
liða, undanfarna daga. Marg-
ir Afganir, sem mættu til
bænahalds á trúarhátíð sl.
sunnudag, biðu bana eða
særðust, þegar Rússar gerðu
stórskotaliðsárás á bænahús.
Skæruliðar hafa ráðizt á
nokkrar flokksskrifstofur . í
Kabul síðustu daga og minnst
fjóra jeppa með „sjálfboðalið-
um“, og mannfall varð á báða
bóga.
Stjórnin segir, að miklum
fjölda skæruliða hafi verið
„útrýmt“ í norðausturhérað-
inu Laghman og mikið magn
vopna og skotfæra gert upp-
tækt.
íraskir hermenn virða fyrir sér drasl sem skilið hefur verið eftir af irönskum hersveitum á flótta á
þjóðveginum milli Abadan og Khorramshahr. Myndin er tekin í nágrenni Abadan. íranir hafa viðurkennt
að írakar hafi náð þjóðveginum að Ahadan á sitt vald.
Fáni íraks dreginn að
húni i Khorramshahr
Beirút, 24. október. AP.
ÍRAKAR lýstu þvi yfir i dag. að
þeir hefðu náð borginni Khorr-
amshahr i íran að öllu leyti á sitt
vald „í mesta sigri“ sínum hingað
til í striðinu við írani er staðið
hefur yfir i rúman mánuð. Pars-
fréttastofan íranska lýsti því hins
vegar yfir seinna, að iranskar
hersveitir verðust enn í borginni
<>K hefðu i daK hrint hliðarárás
irasks hcrliðs austan við borKÍna.
Minntist fréttastofan þo í enKU á
yfirlýsingar íraka.
„Fáni Irans var dreginn niður af
stjórnarbyggingunni í Mohamm-
ara, en svo nefnist Khorramshahr
á arabísku, og sá íraski dreginn að
húni. Verður borgin að eilífu á
valdi Araba héðan í frá,“ sagði í
frétt útvarpsins í Baghdad af töku
Khorramshahr.
Af hálfu íraka hefur því oft
verið lýst yfir að borgin væri fallin
Walesa vísaði á bug
breytingum dómara
Varsjá. 24. október. AP.
DÓMSTÓLL i Varsjá samþykkti i
dag stofnskrá stærsta óháða
verkalýðsfélagsins i Póllandi.
„Samstöðu“, en leiðtogi félagsins.
Lech Walesa. hafnaði samþykki
dómstólsins ok saKði, að breyt-
ingar. sem dómarinn gerði á
stofnskránni, brytu i bága við
samningana um lausn verkfalls-
ins i sumar.
Walesa sagði, að úrskurði
Zdzislaw Koscielniak dómara yrði
áfrýjað til hæstaréttar. Ilann
sagði, að einhliða breytingar
dómstólsins á siðustu stundu
„væru gegn vilja okkar ok án
samþykkis okkar og okkur finnst
þessi staðreynd viðbjóðsleg.“
Walesa sagði, að stjórn Sam-
stöðu mundi ræða næstu skref á
fundi á mánudag. Hann vildi ekki
ræða þetta nánar og sagði „Við
erum dálítið taugaóstyrkir eftir
þetta."
Hann sagði, að yfirvöld „bæru
alla ábyrgð á spennunni samfara
skráningu Samstöðu." Hann sagði,
að dómarinn hefði strikað út
ákvæði stofnskrárinnar um verk-
fallsrétt og sett viðauka aftan við
þess efnis, að verkföll yrðu að vera
lögum samkvæmt. Dómarinn mun
hafa átt við vinnulöggjöf, sem er í
smíðum.
Fyrstu viðbrögð við úrskurði
Koscielniaks dómara voru kampa-
kæti og fögnuðurinn var svo mikill
að dómarinn varð að gera hlé. En
að því loknu sagði hann frá viðauk-
unum og frestaði fundi.
Walesa og félagar undirstrikuðu
í réttinum, að stjórnarskráin væri
virt samkvæmt stofnskránni. Þeir
samþykktu auk þess sérstaka bók-
un með stuðningi við meginreglur
kommúnista, en sögðu að ekki
mætti fylla hina „ópólitísku"
stofnskrá með hugsjónafræðilegum
yfirlýsingum.
En stjórnin hefur sagt, að í
stofnskránni verði að vera skýlaus
yfirlýsing um hollustu við flokkinn
og ríkið. Ráðamenn gefa í skyn, að
það sé nauðsynlegt til að sefa
önnur kommúnistaríki.
þeim í hendur, en því jafnan verið
vísað á bug í Iran. Iranski herinn
tilkynnti í dag að barist hefði verið
í návígi á götum borgarinnar
sjöunda daginn í röð. Fjölmargir
hafa látið lífið í bardögum um
borgina, sem er helzta hafnarborg
Irans. Og talið er að flestallir
íbúar borgarinnar, sem eru um
150.000 hafi yfirgefið borgina áður
en írakar náðu höfninni og norður-
hluta borgarinnar á sitt vald.
Norðurhlutinn er aðskildur frá
öðrum hlutum borgarinnar við ána
Karun, en írakar sögðust hafa náð
aðalbrúnni yfir ána á sitt vald í
dag.
Ennfremur var því lýst yfir í
Baghdad að „hreinsunaraðgerðir"
á ýmsum stöðum við landamæri
landanna hefðu heppnast vel. Þá
var í Teheran skýrt frá hörðum
bardögum við Ahvaz, sem lægi
undir stórskotahríð íraka.
Útvarpið í Baghdad veittist
harðlega að Bandaríkjamönnun í
dag og sagði þá hafa tekið afstöðu
með írönum í stríð landanna
tveggja. Ræða McHenrys fulltrúa
Bandaríkjanna í Öryggisráðinu
„hefði verið ódýr og auvirðileg
aðferð til að freista þess að fá
gislana lausa úr haldi.“ Rosalynn
Carter forsetafrú sagði, að Banda-
ríkjastjórn myndi ekki freista þess
að fá gíslana lausa „með vand-
ræðalegri undanlátssemi." Jó-
hannes Páll páfi átti í dag fund
með sendiherra írana á Ítalíu og er
talið að lagt sé að páfa til að hafa
milligöngu í gíslamálinu.
Mexíkó skalf í eina minútu
MexikóborK. 24. oklóbrr. — AP.
IIÚS OG önnur mannvirki hrist-
ust <>K skuifu i meira en eina
minútu i meiriháttar jarðskjálfta
er fannst um alla Mexikó kl.
14.55 að islenskum tíma i dag.
eða kl. 08.55 að staðartíma. Vitað
er um að sex hafi farist i
jarðskjálftanum. margir særst «k
að mikið tjón hafi orðið á mann-
virkjum. óttast er að fleiri hafi
týnt lífi i skjálftanum.
Einn maður fórst í Mexíkóborg
er staur féll á hann og tveir fórust
í hinni sögufrægu borg Puebla er
veggur hrundi á þá, þar fórust þrír
til viðbótar. Mikið tjón varð á
mannvirkjum í hafnarborginni
Poza Rica við Mexíkóflóa. Miklar
truflanir urðu á rafmagni og
símasamband rofnaði á stórum
svæðum.
Upptök jarðskjálftans, sem
mældist 6,5 stig á Richterskvarða,
voru í 240 kílómetra fjarlægð til
suðausturs af Mexíkóborg. Mikil
skelfing greip um sig víða í
Mexíkó, einkum í höfuðborginni,
þar sem fólk forðaði sér út úr
byggingum.
Forsetinn
fékk ekki
hótelpláss
Osló. 24. október. AP.
ÞAÐ ER kunnara en frá þurfi
að segja, að erfitt Ketur verið
að fá hótelherbergi i norsku
höfuðborKÍnni að sumarlagi
ok þeKar um meiriháttar við-
burði er að ra>ða þar í borg á
öðrum árstíma. en því höfðu
yfirvöld Kleymt ok fengust því
ekki hótelherbergi fyrir Mas-
ire. forseta Botzwana ok föru-
neyti hans, yfir helgina i
höfuðborginni.
Masire kom í óopinbera
heimsókn til Óslóar í dag og
verður að grípa til þess ráðs að
senda hann og föruneyti hans,
alls 15 manns, með lest til
Lillehammer á morgun, þar
sem aðeins var hægt að fá inni
á hóteli fyrir komumenn í nótt.
Masire mun í fyrramálið eiga
viðræður við Frydenlund,
utanríkisráðherra og embætt-
ismenn, áður en hann heldur
til Lillehammer, en síðan kem-
ur hersingin til Óslóar á mánu-
dag til áframhaldandi við-
ræðna við yfirvöld.
Um helgina fer fram úrslita-
leikur norsku bikarkeppninnar
í knattspyrnu og af þeim sök-
um var búið að panta öll
hótelherbergi í borginni og
nágrannabæjum þegar fyrir
um tveimur mánuðum.