Morgunblaðið - 25.10.1980, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 25.10.1980, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 1980 17 Ríkisstjórnin hefur tvívegis komið í veg fyrir þá hækkun vaxta, sem æskileg var talin með hliðsjón af þessu lagaákvæði, 1. mars og 1. september. Þegar útflutnings- atvinnuvegir landsmanna eiga við mikla erfiðleika að glíma og telja vaxtabyrðina eina af orsökum vandans, taldi ríkis- stjórnin ekki fært að leggja á þá enn meiri vaxtabyrði, sem valda mun enn meiri gengislækkun en orðið hefur. Kjarasamningar Varðandi kjaramál mótaði ríkisstjórnin afstöðu sína í stjórnarsáttmálanum á þessa lund: „Ríkisstjórnin leggur höfuðáherslu á að leysa launamál með samstarfi og samráði. Skal í því sambandi lögð áhersla á eftirgreind meginatriði. Ríkisstjórnin mun leita eftir samkomu- lagi við aðila vinnumarkaðarins um niðurstöður í kjarasamningum, sem geta samrýmst baráttunni gegn verðbólgu og þeirri stefnu stjórnarinnar að jafna lífskjör og bæta kjör hinna lakast settu í þjóðfélaginu. Til þess að draga úr almennum pen- ingalaunahækkunum er ríkisstjórnin reiðubúin til þess að beita sér fyrir eftirtöldum ráðstöfunum í tengslum við kjarasamninga." Eru þessi atriði svo rakin nánar í hinum prentaða stjórnarsáttmála á bls. 4, en hér er um margvíslegar félagslegar umbætur að ræða. Viðræður um kjarasamninga hafa tekið langan tíma. Um miðjan ágústmánuð tókust samningar milli ríkisins og opin- berra starfsmanna, sem samþykktir voru í allsherjar atkvæðagreiðslu hjá Banda- lagi starfsmanna ríkis og bæja. Þessir samningar voru gerðir af ábyrgðartilfinn- ingu og hófsemi af hálfu beggja aðila og voru mjög í samræmi við fyrrgreinda stefnu stjórnarinnar. Hinum almennu kjarasamningum er enn ekki lokið. Leggja verður áherslu á, að ekki dragist lengi enn að Ijúka þeim, og að þar verði einnig gætt hófs, svo að ekki valdi verðþenslu. Gjaldmidilsbreyting um áramót og aðgerðir í sambandi við hana Sú breyting á íslenskri krónu, sem verður nú um næstu áramót, er í meginatriðum forbreyting, en hefur einn- ig raunverulegt gildi. Hún á í fyrsta lagi að auka traust manna á krónunni. Þegar hver króna verður hundrað sinnum meira virði en nú, þá er hún komin í hóp annarra gjaldmiðla á Norðurlöndum. En þessi hugarfarsáhrif geta því aðeins orðið að gagni, að aðrar ráðstafanir fylgi, sem sannfæri almenning um, að alvara sé á ferðum til þess að treysta gildi krónunnar og veita verðbólgunni viðnám. Samfara þessari breytingu hefur ríkisstjórnin í huga margháttaðar efnahagsaðgerðir. Gagnger athugun og endurskoðun er nú hafin á þeirri víðtæku sjálfvirkni, sem nú á sér stað, ýmist samkvæmt lögum, samningum eða venjum, um verðlag, vexti, kaupgjald, lán og önnur atriði, er verulega skipta um þróun efnahagsmála. Þessi sjálfvirkni og víxlhækkanir eiga sinn mikla þátt í verðþenslunni. Um þessi mál verður haft samráð við þau samtök, sem hlut eiga að máli. Unnið er að nýjum vísitölugrundvelli, sem ætti að geta gengið í gildi kringum áramótin. Orkumál Ahersla hefur verið lögð á orkufram- kvæmdir, m.a. til að flýta fyrir, að innlendir orkugjafar komi í stað inn- fluttrar orku. Þannig er áætlað, að framkvæmdamagn í raforkuframkvæmd- um sé nálægt 50% meira í ár en í fyrra og um fimmtungi meira í varmaveitufram- kvæmdum. Ríkisstjórnin mun áfram leggja mikla áherslu á framkvæmdir í orkumálum, einnig til að tryggja öryggi notenda. Sérstakar ráðstafanir hafa verið gerðar til að auka raforkuvinnslu á komandi vetri með uppsetningu gufuaflsstöðva og með borúnum fyrir Kröfluvirkjun. Vest- firðir hafa veirð tengdir landskerfinu nú í haust og einnig Vopnafjörður, og unnið er að framkvæmdum við Suðausturlínu milli Héraðs og Hornafjarðar. Framkvæmdir við Hrauneyjarfossvirkjun ganga sam- kvæmt áætlun og á 1. áfanga hennar að komast í notkun að ári. Rannsóknum vegna fyrirhugaðra virkj- unarkosta fyrir landskerfið miðar vel. Samkvæmt stjórnarsáttmála er að því stefnt, að næsta virkjun verði utan eldvirkra svæða. Er þess vænst, að unnt verði að taka ákvörðun þar að lútandi á næsta ári. Stjórnarsáttmáli gerir ráð fyrir fram- kvæmdaáætlun í orkumálum til næstu 5—10 ára og að mörkuð verði samræmd orkustefna til langs tíma. Er undirbún- ingur hafinn um þau efni. I undirbúningi er stefnumörkun um áframhaldandi rannsóknir vegna hugsan- legra olíulinda á íslenska landgrunninu í samræmi við stjórnarsáttmála. Sjávarútvegur og fiskvinnsla Þorskafli Islendinga verður, að öllum líkindum, 380—400 þúsund lestir á þessu ári. Miðað við síðustu niðurstöður Haf- rannsóknastofnunar er ekki ástæða til að ætla að þorskstofninum sé ofgert með þessari veiði. Virðist eðlilegt að stefna að svipaðri veiði árið 1981. Utgerðin hefur átt í verulegum rekstr- arerfiðleikum síðustu mánuði, og stafar það fyrst og fremst af hækkun á olíu og öðrum útgerðarkostnaði. Með ákvörðun fiskverðs 1. október er brúttóafkoma útgerðar orðin jákvæð, að mati Þjóð- hagsstofnunar. Skreiðar- og saltfiskverkun hefur staðið vel og virðist ástæða til að ætla að svo verði einnig á næsta ári. Gerðir hafa verið viðunandi samningar um sölu á saitsíld. Frystingin hefur átt í verulegum erfiðleikum. í lok síðasta árs var verðhækkunum innanlands og stöðn- un fiskverðs á Bandaríkjamarkaði ekki mætt með nauðsynlegri aðlögun gengis. Með ýmsum aðgerðum stjórnvalda, miklu gengissigi undanfarnar vikur, minnkandi birgðum og hagkvæmari framleiðslusam- setningu, telur Þjóðhagsstofnun, að rekstrargrundvöllur frystingarinnar sé að verða jákvæður að nýju. Unnið er að mörkun fiskveiðistefnu, fyrst og fremst með tilliti til þorskveiða. Að því er stefnt að samræma veiðar og vinnslu, að reyna að tryggja, að heildar- markmið veiða standi, og að gæði afla og framleiðslu séu sem mest. í þessu skyni mun einnig gæða- og framleiðslueftirlit verða hert. Fátt er mikilvægara fyrir okkur íslendinga en að framleiðsla sjáv- arafurða hér á landi sé ætíð til fyrir- myndar. Landbúnaðarmál Ríkisstjórnin hefur gripið til ráðstaf- ana í landbúnaðarmálum, sem hafa það að markmiði að laga búvöruframleiðsluna eftir markaðsaðstæðum. M.a. þess vegna varð samdráttur í mjólkurframleiðslu á nýliðnu verðlagsári landbúnaðarins um 5,2% eða 6 millj. lítra. Til þess að vega upp á móti þeim erfiðleikum, sem samdrætti í hefðbundn- um búgreinum eru samfara, er unnið að aukinni fjölbreytni í framleiðslugreinum og atvinnustarfsemi sveitanna. Jafnframt verður útvegað fé til að mæta hluta af þeim halla, sem varð af útflutningi búvara á síðasta verðlagsári, svo sem gert var vegna ársins á undan, eftir að ríkisstjórnin tók við í febrúar. Á þessu Alþingi mun landbúnaðarráð- herra leggja fram af hálfu ríkisstjórnar- innar tillögu um stefnu í landbúnaðar- málum og munu væntanlega fylgja henni lagafrumvörp, er miða að breytingum á landbúnaðarlöggjöfinni, m.a. í þá átt að ákvarðanir um verðlagningu á búvörum verði teknar með beinni aðild fulltrúa ríkisins. Iðnadur I iðnaði hefur verið við ýmsa örðugleika að etja á þessu ári í kjölfar kostnaðar- hækkana innanlands. Ríkisstjórnin beitti sér f.vrir ýmsum ráðstöfunum til að létta á þessum erfiðleikum, m.a. voru niður- greiðslur auknar á ull til iðnaðar og hraðað endurgreiðslu á uppsöfnuðum söluskatti. Staðan hefur breyst til hins betra í útflutningsiðnaði að undanförnu. Einstakar greinar iðnaðar hafa átt í vök að verjast vegna harðnandi samkeppni við innfluttar vörur í kjölfar tollalækkana, svo sem sælgætisiðnaður og húsgagnaiðn- aður. Til að bregðast við þessu og auka svigrúm til aðlögunar var settur á tíma- bundinn toilur á innflutt sælgæti og hafið þróunarátak í greininni. Að margháttuð- um endurbótum er nú unnið með sam- vinnu fyrirtækja og samtaka iðnaðarins, og stuðningi stjórnvalda og þjónustu- stofnana iðnaðarins. Markmiðið er að styrkja stöðu iðnaðarins á heimamarkaði og í útflutningi, auka framleiðni og afköst. Þrátt fyrir tímabundna erfiðleika eru horfur á, að iðnaðarframleiðsla vaxi í heild um nálægt 4% á þessu ári. Gætir þar aukningar kísiljárnsframleiðslu, en framleiðsla á öðrum iðnaðarvörum hefur einnig vaxið verulega á árinu. Jafnhliða því sem ríkisstjórnin beitir sér fyrir bættum starfsskilyrðum í iðnaði er unnið að stefnumörkun um iðnþróun til lengri tíma. Verður þingsályktunartillaga um iðnaðarstefnu lögð fram á þessu þingi. Unnið er að gagnasöfnun og mati á meiriháttar nýiðnaði, er m.a. byggi á innlendri orku og hráefnum, eins og kveðið er á um í stjórnarsáttmála. Athugun á hagnýtingu orkulinda landsins til eflingar íslensku atvinnulífi er mikil- vægt verkefni, og brýnt að fá sem skýrasta mynd af þeim kostum, er til álita koma. I undirbúningi er reglugerð um iðn- garða og unnið er að stefnumótun um opinber innkaup. Flestar innlendar skipasmíðastöðvar hafa haft næg verkefni á árinu og aðgang að stofnlánum til endurbóta á aðstöðu sinni. Athugun á framtíðarstöðu skipa- smíðaiðnaðarins stendur yfir og tengist m.a. stefnumörkun um viðhald og endur- nýjun fiskiskipastólsins, ekki síst báta- flotans. Lánasjóðir iðnaðarins hafa verið efldir á árinu með fjármagni og ný lög verið sett um Iðnrekstrarsjóð, sem ætlað er að styðja undirstöðuverkefni varðandi iðn- þróun. Félagsmál Frá því að ríkisstjórnin tók við, hefur margt gerst á sviði félagsmála, sem markar þáttaskil. Þar ber fremst að nefna lögin um húsnæðismál. í þeim lögum er gert ráð fyrir stórauknum framlögum til verkamannabústaða, tryggt að gert verði átak til útrýmingar heilsuspillandi hús- næðis, og í lögunum er ákvæði um verðtryggingu skyldusparnaðar. í annan stað ber að nefna lögin um aðbúnað á vinnustöðum, en þar eru skapaðar forsendur fyrir verulegum áhrifum starfsmanna á nánasta starfs- umhverfi á vinnustað. í þriðja lagi skal hér bent á framkvæmd laganna um aðstoð við þroskahefta, þar sem þegar er um að ræða myndarlegar athafnir, en í fjárlaga- frumvarpinu er enn gert ráð fyrir auknu átaki á þessu sviði. Þá skal þess getið, að alþjóðaár fatlaðra hefur þegar verið undirbúið og skipuð sérstök framkvæmdanefnd vegna þess. Tekjutrygging hefur hækkað, og áfram verður stigið nýtt skref í þá átt á næsta ári. Samgöngumál Á sviði samgöngumála hefur erfiðleika Flugleiða borið einna hæst. Vegna þess hve Norður-Atlantshafsflugið frá Lux- embourg til New York hefur haft mikla þýðingu fyrir íslenskan þjóðarbúskap, ákvað ríkisstjórnin að bjóða aðstoð til þess að því mætti halda áfram á meðan framtíð flugsins er skoðuð nánar. Rekstr- arfjárstaða Flugleiða er mjög erfið, svo að innanlandsflug og nauðsynlegustu tengsl við umheiminn eru í hættu. Við þeim vanda ber stjórnvöldum skylda til að bregðast. Því hefur verið lagt fram á alþingi frumvarp til laga um aðstoð við Flugleiðir. í ár er lagt bundið slitlag á 92 km af vegum. Það er yfir tvöfalt meira en áður hefur verið gert á einu ári. Slíkum framkvæmdum þarf að halda áfram með svipuðum eða auknum krafti, samhliða öðrum verkefnum á sviði vegamála. í dómsmálum. kirkjumálum. mennta- málum og heilbrigðismálum eru margvís- legar umbætur fyrirhugaðar og verða ýmis frumvörp um þau efni lögð fyrir Alþingi í vetur. Islenska þjóðin á við mikla og marg- háttaða örðugleika að etja. Verðbólgan er þar verstur Þrándur í Götu. Hún er að verulegu leyti okkar eigin smíð, íslend- inga. Til þess að vinna bug á þessum alvarlegu erfiðleikum þurfa allir að taka á sig skyldur og byrðar. En hins vegar megum við ekki einblína á erfiðleika og dökkar hliðar. Við eigum því láni að fagna, að meðan flestar grannþjóðir okkar stynja undir böli at- vinnuleysis, hefur hér á landi tekist að tr.VRKja næga atvinnu og afstýra atvinnu- leysi. En einnig þetta lán er fallvalt, ef við sjáum ekki fótum okkar forráð. Með samhentum átökum, stillingu og festu mun íslenska þjóðin nú sem fyrr sigrast á örðugleikum og andbyr og sigla fleyi sínu í farsæla höfn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.