Morgunblaðið - 25.10.1980, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 25.10.1980, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 1980 * 3 ÞAÐ VORU íleiri á ferðinni á bókauppboðinu hjá Sothebys i London sl. mánudaK en Jón Sólness fyrrv. alþingismaður. Þar var einnÍK staddur Guð- mundur Axelsson i Klaustur- hólum ásamt Bóðvari Kvaran ok að söKn Guðmundar Kerði hann þar KÓð kaup ok komst yfir ýmsar fáK»'tar bækur. Blm. Mbl. ræddi litilleKa við Guð- mund um uppboðið ok þær bækur, sem honum voru sleKn- ar. „Já, þetta var mjög skemmti- Nokkrar bokanna. sem Guðmundur Axelsson keypti i London „I pakkanum leyndust fimm SkáJholtsprent“ lptrf nnnhnA “ aaorfti riiiíSmiinHiir legt uppboð," sagði Guðmundur. „Allar bækurnar, sem boðnar voru upp, voru úr safni sænsku Ihrefjöiskyldunnar, en ættfaðir hennar mun nú raunar vera skoti. Uppboðið fór þannig fram, að í hverju númeri voru aðeins til- greindar kannski tvær eða þrjár bækur af nokkrum tugum bóka og allt upp í hundrað, þannig að þeir, sem buðu í bækurnar, máttu allt eins eiga von á því, að þeir væru að kaupa köttinn í sekknum að öðru leyti.“ Keyptir þú ekki eitthvað af bókum á uppboðinu „Jú, og ég held að ég hafi sloppið sæmilega frá því þrátt fyrir þá annmarka, sem á því voru. Ég keypti t.d. Crymogaeu eftir Arngrím Jónsson, frá 1610, Annála Björns á Skarðsá, sem prentaðir voru í Hrappsey 1774, og orðabók eftir Guðmund Andr- ésson, gefin út í Kaupmannahöfn 1683. Sú bók er orðin afar fáséð en hún þykir nú kannski merkilegust fyrir það, að hún tekur öllum öðrum íslenskum bókum fram í prentvillum og alls kyns misskiln- ingi. Það var enda danskur mað- ur, sem sá um útgáfuna og kom þar hvergi íslendingur nærri. í einu númerinu var það aðeins Hrólfs saga kraka, sem ég hafði áhuga á, af þeim bókum, sem voru hafðar uppi við, en með í kaupun- um reyndust svo fylgja Historia Vinlandia frá 1705, Grönlandia antiqva frá 1706 og guðsorðabók, Cythræus, prentuð á Hólum 1600. Sömu sögu er að segja um annað númer, þar sem þrjár bækur voru nefndar, en þess hins vegar ekki getið, að í pakkanum leyndust fimm Skálholtsprent. Ég held að ég hafi ekki tapað á þeim kaup- um.“ Hverjir eru það, sem helst sækja svona uppboð? „Það eru nú einkum bókasafn- arar og fornbókasalar og að þessu sinni margir af Norðurlöndum, eins og líklegt má teljast. Á uppboðinu voru 537 númer og þau seldust öll og sá sem var stórtæk- astur, var Norðmaður, Torgrim Hannas að nafni, en hann er nú búsettur í Englandi. Annars voru það Svíar, sem buðu hvað grimmi- legast á móti Jóni Sólness í Guðbrandsbiblíu, og það má svona geta þess til gamans í lokin, að ætli það hafi ekki kostað Jón 6—700 þúsund í hvert sinn, sem hann rétti upp höndina,“ sagði Guðmundur Axelsson í Klaustur- hólum. Benedikt Gröndal: Stjórnir endurkjöm- ar í hverfafélögum sjálfstæðismanna TVÖ félög sjálfstæðismanna í hverfum Reykjavíkur héldu aðal- fundi sina á fimmtudagskvöld, I Laugarneshverfi og í Langholts- hverfi og voru stjórnir beggja endurkjörnar. Einnig var stjórn- in í félaginu í Vestur- og Miðbæj- arhverfi endurkjörin á aðalfundi á þriöjudagskvold. nema hvað nýr maður kom í stað annars. sem fluttur var úr hverfinu. Fundurinn í félagsheimilinu í Langholtshverfi var fjölmennur, fundarmenn á annað hundrað, enda hafði í dagblaði verið gefið í skyn að áformuð væri stjórnar- bylting. Það reyndist ekki rétt. Var formaður Árni Bergur Ei- ríksson endurkjörinn, svo og aðrir í stjórn, þ.e. Agnar Jónsson, Berg- ljót Ingólfsdóttir, Finnbjörn Hjartarson, Jóhannes Gunnarsson og Þóroddur Th. Sigurðsson. Var stungið upp á einum manni í viðbót, eftir að fundarstjóri hafði lýst eftir uppástungum, hinkrað við og lýst þessa réttkjörna. Var fundurinn beðinn um úrskurð um hvort endurtaka ætti kosningu og var því hafnað með 53 atkvæðum gegn 10. Ræðu kvöldsins flutti Olafur B. Thors. Á aðalfundinum í Laugarnes- hverfi sem var á Háaleitisbraut 1, flutti Ellert Schram aðalræðuna. Þar var stjórnin endurkjörin, en hana skipa Baldvin Jóhannesson, formaður, Þórður Einarsson, Halldór Leví Björnsson, Margrét Ákadóttir, Garðar Ingvarsson, Pétur B. Magnússon og Elva Guðbrandsdóttir. Aðrir sem stungið var upp á, gáfu ekki kost á sér. Um 40 manns sóttu fundinn. Aðalfundur félagsins í Vestur- og Miðbæjarhverfi var haldinn í- Valhöll 21. okt. Endurkjörnir voru formaðurinn Jón B. Stefánsson og aðrir í stjórn Áslaug Cassada, Ásgeir Bjarnason, Ingimundur Sveinsson, Jón Ólafsson, Svanur Þór Vilhjálmsson og Sveinn Kjartansson, sem var kosinn i stað Þorkels Sigurbjörnssonar, sem er fluttur úr hverfinu. Er aðeins einum fundi ólokið í hverfafélögum sjálfstæðismanna í Reykjavík. Verður aðalfundur fé- lagsins í Smáíbúða-, Bústaða- og Fossvogshverfi 29. október. Nafn piltsins sem lézt PILTURINN, sem beið bana í vinnuslysinu í Hrauneyjafoss- virkjun sl. fimmtudag hét Björgvin Sigvaldason til heimilis að Öldugerði 19, Hvolsvelli. Björgvin heitinn var 17 ára gamall, fæddur 19. nóvember 1962. Formannskosning myndi sundra og veikja, hvern- ig sem úrslitin yrðu BENEDIKT Gröndal. formaður Alþýðuflokksins, gaf i gær út eftirfarandi yfirlýsingu: „Það er nú ljóst, að flokksþing Alþýðuflokksins, sem kemur sam- an eftir viku, verði að kjósa milli núverandi formanns og varafor- manns í stöðu formanns fyrir næsta tveggja ára kjörtímabil. Alþýðuflokkurinn hefur langa reynslu af innri átökum í forustu- liði, sem ávallt leiða til sundrung- ar. Hefur þetta valdið flokknum óbætanlegu tjóni og haldið fylgi hans og starfi niðri. Hvernig sem kosning formanns færi nú, mundi hún draga á eftir sér slóða sund- urþykkni og vandræða og veikja flokkinn. Eftir kosningar síðustu þrjú ár er Alþýðuflokkurinn fjöldahreyf- ing og sterkt afl í þjóðmálum. Flokksþing og flokksforusta bera þá skyldu gagnvart kjósendum að standa saman og láta heill flokks- ins og jafnaðarstefnunnar ganga fyrir öllu. Til að forðast flokkadrætti, sundrungu og deilur hef ég ákveð- ið að gefa ekki kost á mér til endurkjörs sem formaður Alþýðu- flokksins. Ég mun sem alþingis- maður og flokksstjórnarmaður vinna áfram að samheldni og styrk flokksins." Kjartan Jóhannsson: Drengskapur og flokkshollusta af hálfu Benedikts „ÉG hef lengi þekkt drengskap og flokkshollustu Benedikts og veit að hann vill framar öllu öðru bera hagsmuni Alþýðuflokksins fyrir brjósti. YfirlýsinK hans sýnir Klöggt þessa eðliskosti, sem allt Alþýðuflokksfólk virðir og metur,“ saKði Kjartan Jóhanns- son, varaformaður Alþýðuflokks- ins, er Mbl. ræddi við hann i gær eftir að Benedikt Gröndal. for- maður Alþýðuflokksins. gaf út yfirlýsingu um það að hann drægi framboð sitt til áframhald- andi formennsku til baka. „Með tilliti til breyttra tíma og þess, að við höfum tekið upp mjög lýðræðislega háttu í Alþýðu- flokknum hef ég talið og tel enn, að val milli manna myndi ekki valda klofningi í flokknum. En ég skil það vel, að yfirlýsing Bene- dikts stilli kvíða þeirra flokks- manna, sem eru sama sinnis og hann,“ sagði Kjartan. „En allir hljótum við að vera sammála og samtaka um að gera veg Alþýðu- flokksins sem beztan." Mbl. spurði Kjartan, hvort hann vænti mótframboðs í formanns- embættið eftir þessa síðustu at- burði. „Um það hef ég ekki minnstu hugmynd. Það verður þá bara að koma í ljós,“ svaraði hann. Mbl. spurði Kjartan um vara- formannskjör, en hann kvaðst ekkert hafa um það mál að segja. SEJJUM UPP HATIÐAR- SVIPINN itæka tfó Nýr Htur á stofuvegg, eöa skalann, setur nýjan svip á heimiiió EFNí- Hin viöurkenda VITRETEX plastmálning. Clært lakk á tréverkió friskar pað upp og viöarlitaö lakk gef ur því nýjan svip. EFNt CUPRINOL coodwood polyurethanelakk. m *GOODWOOD: Glæsileg nýjung frá Cuprinol ætluð á húsgögn, gluggapósta, hvers konar annað tréverk og þilplötur. 3 áferðir í glæru: glansandi, hálfmatt og matt. 6 viðarlitir, sem viðarmynstrið sést í gegnum. Dósastærð: allt frá 'A lítra. GOODWOOD SPECIAL: Grjóthörð nýjung frá Cuprinol. Sérstaklega ætlað á parkett og korkgólf. S/ippfé/agið Málningarverksmiðja Sími 33433

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.