Morgunblaðið - 25.10.1980, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 25.10.1980, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 1980 sem við erum nú að leggja í, og óskiljanlegt hvernig það tókst. Af brúnum liggur leið okkar áfram niður Kollumúlann, þar sem Víði- dalsfeðgar beittu fé og urðu að liggja við í allt að 2—3 vikur á vetrum, því of langt var að ganga til fjárins. Við sneiðum múlann, sem efst er úr blágrýti og móbergi, og höldum svo niður litfagrar líparítskriður milli gilja. Spurnir hafa borist af þvi, að Jökulsá hafi í Leiðatungum breytt farvegi og liggi nú alveg uppi við móbergs- klöpp, Brenniklett, þar sem hægt var áður að fara fyrir framan með aðstoð kaðals, sem þar hefði verið strengdur til hagræðis fyrir ferða- fólk. Venjulega leiðin því lokuð, þar sem snarbrött líparítskriða tekur við upp af móbergshausn- um. Við paufumst því niður snar- brattar skriðurnar, sem eru lausar í sér og skríða undan fæti. En bót er í máli, að þar eru víða leifar af birkiskógi og grípa má i hríslurn- ar til að ná jafnvægi, þegar laust er undir fæti og jafnvægi í hættu við að bakpokinn tekur slink. Þótt betra sé að gæta fóta sinna, er ekki hægt að hafa augun af litadýrðinni í skriðunum og af háum fjöllunum, sem gnæfa með klettum og tindum í kringum þennan djúpa dal. I kvöldsólinni glóir allt í ljósu, rauðu, gulu, gráu og grænu bergi. Skortir mig orð til að lýsa slíkri dýrð. Það liggur við, að hægt sé að líkja för okkar niður skriðurnar að eyrum Jökulsár við hrap, því dalurinn er í aðeins 150—300 m hæð. Þessi djúpi, lokaði dalur milli hárra fjalla er mótaður af jöklum og vatnsaga. Kolmórauð jökulsáin byltist í dalbotninum og í hlíðum samfellt birkikjarr. Leitarkofi Lónsbænda er á góðri grund, skammt neðan við, þar sem við komum niður. Ferðafólk víkur úr húsinu, svo við getum hitað okkur mat í rólegheitum, áður en tjaldað er á flötinni. Húsið í Nesi er lítið og þrifalegt. Þar er eins gott að hafa skjól, þvi Lónsbænd- ur nota það í smalamennskum. Fara stundum inn eftir þegar komið er fram yfir áramót, því fé gengur þar langt fram á vetur. Skammt frá kofanum í Nesi er göngubrú yfir ána, sem Lóns- bændur komu sér upp 1953. Fluttu allt efni til hennar að vetri. En áður hafði verið kláfur á ánni. Brúna tók af í vatnavöxtum 1964. Þeir komu þá bara fyrir annarri hærri 1967 og er hún þar enn. Bæði brúin og leitarmannakofinn eru til mikils gagns og öryggis fyrir göngufólk, sem nú er farið að sækja mjög á þenna dýrðarstað í Lónsöræfum. Hópur á vegum Ferðafélags íslands var nú þarna utar í dalnum, undir Ulakambi. Hafði maður látist í svefni hjá þeim fyrstu nóttina, en til að ná í aðstoð björgunarsveitarinnar í Höfn til að koma líkinu til byggða, urðu fararstjórinn, Ingvar Teits- son læknir, og hinn aldni ferða- garpur, Páll Jónsson, að ganga í 7 tíma og vaða Skyndidalsárkvíslar í mitti, áður en þeir náðu sam- bandi við byggðamenn. Má segja, að ekki hafi það sakað í það sinn, þótt boðin tækju tíma, enda farar- stjórinn læknir. En fyrir nokkrum árum brenndist þarna stúlka og tók langan tíma að ná í hjálp. Við Náttúruverndarráðsmenn áttum því umræður við bændur úr Lóni og sýslumann í Höfn um nauðsyn þess að hafa neyðarstöð í leitar- kofanum og fyrirkomulag á slíku. Áður hafði þetta komið til tals og nú mun Náttúruverndarráð, björgunarmenn og bændur leggj- ast á eitt um að bæta úr. Lóns- bændur mundu þá líta eftir og prófa reglulega talstöðina, sem yrði í kofa þeirra. Vonandi verður hún látin í friði og ekki notuð nema í neyðartilfellum. Þegar við vöknuðum í tjöldun- um í Nesi morguninn eftir, heyrist í næsta tjaldi, að Brynhildur eldri er að láta systkinabörn sín velja sér ljóð og les þau upphátt. Meðan við hin vorum að telja grömmin í burðarpokum okkar, hefur hún ekki látið sig muna um að stinga niður ljóðabók. Leiðin liggur yfir göngubrúna góðu, en handan hennar er há, sleip móbergsklöpp óg nokkuð örðugt upp að komast, ekki síst nú í bleytunni. Nú skil ég hvers vegna Austfirðingarnir okkar, Magnús og Bragi, hafa borið með sér kaðal. Þeir hafa hann á milli sín og láta okkur ganga innan við hann til öryggis, meðan við paufumst upp skorninginn. Það veitir öryggis- tilfinningu. Nú eru fleiri komnir til aðstoðar. Leiðin liggur inn með jökulsánni og að Illakambi. Upp þennan háa, bratta rana verður að ganga, því miður, Illakamb komast ekki einu sinni bestu torfærubílar. Illikambur! Hvílíkt heiti! Kamb- urinn sá ber nafn með rentu. Framan í kambsnefinu liggur tæpur götuslóði. Maður fetar sig upp eftir honum úr 150—200 m hæð yfir sjávarmáli upp á Kjarr- dalsheiðina, sem hæst er í 720 m hæð. Þó er sú hækkun ekki tekin öll í þessum áfanga. Göngufólki nægir að taka um 200 m hækkun í næstum lóðréttri brekku. En þótt vissara sé að hafa hugann við að sjá fótum sínum — og hjarta — forráð, þá freistar þetta stórkost- lega útsýni til að líta í kringum sig yfir í líparítskriðurnar fögru, hrikaleg gljúfrin beggja vegna, fjallasýnina norður af til Kollu- múlans, sem við komum niður daginn áður, og niður á Jökulsá á dalbotninum. Það er því vel þegið að losna við bakpokann sinn upp kambinn þann og geta um frjáls- ara höfuð strokið á göngunni. Formaður Reykjanesfólkvangs, sem var á teið upp lausbeislaður, tekur bakpokann. Árni Reynisson bendir mér á, að þarna geti ég séð að alltaf fái maður fyrr eða síðar umbun erfiðis sins. Ef ég hefði ekki á sínum tíma lagt svo mikið amstur, tíma og fyrirhöfn í að ná saman Reykjanesfólkvangi, hefði ég vísast nú þurft að paufast með þungar byrðar upp slíka torfæru. Þótt ég sé alls ekki sammála þessari skýringu á riddaraskap Vilhelms Andersen, er kenningin uppörvandi. Þykist jafnvel í sjálfsánægjunni yfir að hafa sloppið úr þessari öræfagöngu tiltölulega ósár — aðeins með blöðru hér og blöðru þar á fótum — viss um að hafa haft þetta upp síðustu brekkuna, líka með fyrir- ferðamikla farangurinn á bakinu, þótt brekkan sú sé vissulega há. En það er óþarfi að vera að sýna meiri hetjuskap en ítrasta nauð- syn krefur. Uppi á Kambinum bíða Lóns- bændur ferðafélagsfólksins með jeppa og hann Óskar Valdimars- son, landvörður Friðlandsins í Lónsöræfum eftir okkur náttúru- verndarráðsfólki, Eyþóri Einars- syni, Svandísi konu hans, Árna Reynissyni og Elínu Pálmadóttur. Óskar hefur sumarsetu í Þórisdal, handan vatna og veitir ferðafólki, sem ætlar inn á friðlandið leið- beiningar. Stofnað var til Frið- landsins í Lónsöræfum í janúar 1977, sem nær allt norðan frá vatnaskilum, vestur í Grendil í Vatnajökli og að ármótum Jökuls- ár og Skyndidalsár, og suður fyrir Illakamb semsagt yfir það svæði, sem sagt er frá í þessari grein. En einn tilgangur gönguferðarinnar var einmitt að skoða með Völundi Jóhannessyni, formanni Ferðafé- lags Austurlands möguleikana á að gera göngufólki og fjallafólki auðveldara að fara um og njóta þessa stórkostlega landsvæðis með því að koma upp gönguskál- um á hæfilegum stöðum, sem mætti tryggja sér og losna við að bera tjöld, og með göngubrúm yfir erfiðar ár. Um friðlandið gilda m.a. þær reglur, að umferð Víða er hrikalegt við austurbrún Vatnajökuls. Brynhildur Stefánsdóttir ijósmóðir tekur upp tjald sitt með systkinabornun sinum Brynhildi og Trausta. 11 vélknúinna farartækja er bönnuð nema á ógronum áreyrum, vegum og öðrum merktúm slóðum innan svæðis, en að heimilt er að ganga um svæðið og fara um með hesta, þó þannig að ekki sé spillt gróðri, raskað dýralífi, minjum, mann- virkjum né öðrum verðmætum og gengið sé frá sorpi og rusli. En svæðinu annars stjórnað í sam- vinnu við landeigendur. Svo segir: Náttúruverndarráð skal í sam- vinnu við aðra er í hlut eiga, sjá um að haldið sé við vegaslóðum, göngubrún, gömlum götum og vörðum eftir nánara skipulagi. Á sama hátt skal tryggð önnur lágmarksaðstaða fyrir ferðafólk, svo sem afmörkun tjaldsvæða með hreinlætisaðstöðu samkvæmt skipulagi og í samráði við landeig- endur. Þá skal nátturuverndarráð tryggja vörslu og eftirlit á svæð- inu. Síðan 1966 þegar vegarslóð var rudd upp Kjarrdalsheiðina, hefur úrrennsli verið lagfært að vorinu og henni haldið færri yfir hásum- arið. Jeppalestin ekur nú niður Kjarrdalsheiðina. Vegurinn liggur í bröttum sneiðingum og gljúfrin beggja megin. En nú er komin þoka og rigning, sú fyrsta á 5 dága ferð okkar, svo við verðum af útsýninu, sem mun vera ákaflega fagurt suður yfir. En brattinn leynir sér ekki. Við erum að vísu réttu megin við Jökulsá í Lóni eða vestan hennar, en í hana rennur ofan úr skriðjöklum Vatnajökuls Skyndidalsá, sem flæmist yfir eyrar, viðsjál og oft illfær. Þarf því kunnuga á góðum jeppum eða torfærubílum til að þræða kvísl- arnar. Ætti enginn ókunnugur að leggja í árnar og inn yfir nema hafa tala af Óskari í Þórisdal og fá leiðbeiningar, því farvegirnir breyta sér mjög. Skyndidalsá liggur á kafla norð- ur undir Eskifelli og við leggjum lykkju á leið okkar til að líta á leyfarnar af býli einu austan í fellinu, þar sem Jón Markússon og Valgerður kona hans byggðu á tíma landleysis í bröttu klifi, milli jökulsánna og beittu þar fé. Jón stundaði jafnvel sjó, þótt sjávar- gatan hans væri 25 km löng og yfir Jökulsá í Lóni að fara, því hann réri í Hvalneskróki. Segir sagan að Jón hafi eitt sinn orðið svo seinn í róður að skipsfélagar hans voru rónir, þegar hann kom. Hafði einhver orð á því að skaði væri að hann missti róður. Jón svaraði: Það er nú ekkert skaðinn hjá skömminni! í Þórisdal þiggjum við góðar veitingar hjá Óskari og konu hans í hjólhýsinu, sem þau búa í meðan þau gæta friðlandsins á sumrin. Að því loknu fer Óskar beint til starfa á hafnarvigtinni í Höfn, en sem kunnugt er hefur hann ekki síður lagt fram krafta sína á sjó en landi. Var lengi með Gissur hvita. Við höfðum ætlað að tjalda á tjaldstæðinu i Þórisdal, því þar er eitt dýrðlegasta tjaldstæði á landinu. Aðstaða góð og meira að segja hægt að koma sér fyrir í afmörkuðum réttum uppi undir háum klettum, þar sem klettafrú- in — sú merka friðaða blómaprýði Austurlands — hangir niður úr klettaveggjunum. En þar sem við höfum komist yfir hálendið án þess að bleyta farangur og tjöld, þykir okkur óþarfi að vera að því nú og Óskar ekur okkur niður á Höfn. Þó rétt gjóum við augunum á einn dýrgripinn enn, klettaborg- ina Dímu, sem er friðað náttúru- vætti þarna á söndunum, sem hafa fengið nokkurn frið til að gróa eftir að varnargarður var gerður við jökulsána fyrir nokkrum ár- um. Díma gnæfir upp af sandinum fagurlega gróin og afgirt með merktum gönguleiðum. Hana þarf að skoða í góðu tómi. Raunar er ég ákveðin í að gera sérstaka ferð í Þórisdal, sem er rétt við hringveg- inn, dvelja þar um stund og skoða þau mörgu undur náttúrunnar, sem þar er að finna. En það bíður seinni tíma. — E. Pá.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.