Morgunblaðið - 25.10.1980, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 1980
HLAÐVARPINN
Alþingishúsið 100 ára:
Landshöfðingjanum þótti
Arnarhóll of afskekktur
Alþingishúsið okkar íslendinga
er 100 ára um þessar mundir, en
það var í október árið 1880 sem
húsið komst undir þak. Nú á
dögum finnst trúlega flestum sem
Alþingishúsið við Austurvöll geti
hvergi annars staðar verið, svo
samgróið sem það er orðið borg-
inni, en á því herrans ári 1879 fór
því fjarri, að allir væru á einu
máli um hvar húsið skyldi standa.
réð mestu um það. Gamli Grímur
fór þó ekki í launkofa með þá
skoðun sína, að afstöðu landshöfð-
ingjans hefði ráðið að hann hafði
nytjar af Arnarhólstúninu og vildi
ekki skerða þær. Finsen hélt því
aftur fram, að Arnarhóll væri allt
of afskekktur fyrir húsið og er
þess ekki getið að sú staðhæfing
hafi þótt neitt hlægileg fyrir einni
öld enda hefur nú margt breyst í
henni Reykjavík.
Það var þó F. Bald, danski
yfirsmiðurinn, sem kvað upp sinn
salómonsdóm eftir að hann var
kominn hingað til lands og hafði
kynnt sér alla málavöxtu. Hann
lagði til, að húsið skyldi rísa við
tjarnarendann, á lóðinni sunnan
dómkirkjunnar við Austurvöll þar
sem það nú stendur. Húsið var
reist á 17. ríkisstjórnarári Krist-
jáns konungs IX. og ber merki
hans enn þann dag í dag.
Með ályktun Alþingis 1879 var
ákveðið að ráðast i þinghús- og
safnabyggingu og var skipuð
byggingarnefnd til að annast mál-
ið. Arkitekt að byggingunni var
ráðinn F. Meldahl, einn kunnasti
listamaður Dana á sviði húsagerð-
arlistar á þessum tíma, og yfir-
smiður var F. Bald, danskur mað-
ur einnig. Samkomulag náðist um
það í byggingarnefndinni að húsið
skyldi risa í brekkunni norðan
Bakarastígs (þar sem Ingólfs-
stræti sker nú Bankastræti) og
hafin vinna við grunninn.
Ekki var samt full eining í nefnd-
inni um hússtæðið og eru fyrir því
heimildir, að árið 1979 hefðu
flestir þingmenn valið Arnarhól
sem þinghússtað og í þeirra hópi
var Grímur Thomsen, sem sæti
átti í byggingarnefndinni. En hús-
ið reis ekki á Arnarhóli og það var
Hilmar Finsen landshöfðingi sem
Grími Thomsen
orð í Ísafold 21.
mai 1880 eftir að
endanlega hafði
verið ákveðið hvar
Alþingishúsið I
skyldi standa.
Það var kátt á hjalla við varðeldana.
Minntust afmælisins með
því að klífa Helgafell
Haldið ofan af Helgafelli.
VÍÐISTAÐASKÓLI í Hafnarfirði
átti tíu ára afmæli nú i haust. Til
að minnast afmælisins var kosin
nefnd kennara, foreldra og nem-
enda og stakk hún upp á því, að í
stað dansiballs eða sýningahalds
af einhverju tagi skyldi efnt til
fjölskylduferðar á Helgafell fyrir
ofan Hafnarfjörð.
Afmælisnefndin hafði verið að
gera sér vonir um sæmilega þátt-
töku en hún fór þó vissulega fram
úr öllum vonum því að rúmlega
600 manns voru mættir við skól-
ann á tilsettum tíma laugardaginn
2. þessa mánaðar, algallaðir og
tilbúnir í slaginn. Lagt var af stað
í 10 rútum og ekið upp í Kaldársel
og þaðan var svo gengið á Helga-
fell, sem er 340 metra hátt mó-
bergsfjall. í ferðinni var fólk á
öllum aldri, allt frá öldungum
ofan í ungabörn, og af þeim sökum
ekki allir jafn brattir í fjallaklifri.
Sumir létu sér því nægja að príla
upp á fellin i kring en hinir hættu
ekki fyrr en tindinum var náð
_Sjáift tindinn.
þarna fór ok án
þess að blása úr
nös. er sá litli lik-
lexa að huKsa.
Hnrður skólastjóri
með dótturson
sinn.
þaðan sem sér vítt og breitt yfir
nálægar sveitir.
Að fjallgöngunni lokinni var
safnast saman í girðingu, sem
hafnfirskir fjárbændur hafa kom-
ið upp við réttina í Kaldárseli. Þar
voru kveiktir varðeldar og farið í
leiki og hljómsveit, skipuð foreldr-
um og kennurum, lék undir þegar
lagið var tekið.
Að loknum eftirminnilegum
degi var haldið heim og var það
mál manna, að hér mætti ekki láta
staðar numið. Svona skemmtun
yrði að endurtaka sem allra fyrst.
Hver
er
maðurinn?
Hver skyldi hér vera á ferðinni?
Matthías Á. Mathiesen að leiða
Ragnari Arnalds fyrir sjónir
alla leyndardóma fjárlagagerð-
ar? Nei, raunar ekki. Þetta er
kollega hans, John Crosbie,
fyrrv. fjármálaráðherra í stjórn
íhaldsflokksins kanadíska, sem
hér segir starfsbróður sínum í
stjórn frjálslyndra til syndanna.
Hver veit nema allir góðir
fjármálaráðherrar líti einmitt
svona út?
DÝRIGARÐUR?
AJlir kannast við Gamla Garð, já og Nýja Garð og jafnvel
Tanngarð, hú.s Tannlæknadeildar Háskólans. En hvað skyldu
margir kannast við Dýragarð? Ja. Albert Guðmundsson I það
minnsta, en svo nefnir hann Vonarstræti 12, gamalt timburhús,
sem Alþingi er að gera upp fyrir litlar 300 milljónir króna.
Fáskrúðsfjörður
íleíðinni...
Reiðhjólaþeysa og
umferðarfræðsla hjá hjólaklúbbnum
Fáskruósfirói. 22. október.
UNDANFARIÐ hefur verið
starfandi „hjólaklúbbur" i
Grunnskólanum hér undir leið-
sögn tveggja kennara, þeirra
Skafta Skúlasonar og Rúnars
Reynissonar. Krakkarnir hafa
þó að mestu leyti séð um starfið
sjálfir og fyrsti formaður félags-
ins var Júlíus Garðarsson, en
núverandi formaður er Margeir
Margeirsson. Stjórnarskipti
hafa verið tíð í félaginu, en
bróðerni ríkir eigi að síður á
þessu heimili og mikill áhugi.
40—50 krakkar hafa starfað í
félagsskap þessum.
Tvær reiðhjólaþeysur hafa
verið haldnar og ein sand-
spyrnukeppni. Meðfylgjandi er
af hluta félagsmanna og var
myndin tekin við hjólaskoðun,
en hana annaðist Benedikt H.
Benediktsson lögregluþjónn, og
er mikill áhugi hjá krökkunum
að hafa hjólin sín í góðu lagi og
fara þau í einu og öliu eftir
ábendingum lögreglunnar. Á
myndina vantar þó bæði núver-
andi og fyrrverandi formenn, en
þeir voru báðir í vinnu í síldinni
ásamt mörgum öðrum krökkum.
Fyrirhugað er að hafa umferð-
arfræðslu í skólanum í vetur, en
slíkt hefur ekki verið áður.
— Albert