Morgunblaðið - 25.10.1980, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 1980
23
Haustmót T.R.:
Margeir örugg-
ur fyrir síð-
ustu umferð
ÞEGAR ein umferð var ótefld á
haustmóti TaflfélaKs Reykjavikur i
Kær hafði MarKeir Pétursson þegar
tryKKt sér sÍKur.
Hann hafði þá hlotið 8‘A vinning
af 10 mögulegum, en þeir Björn
Þor9teinsson, Gunnar Gunnarsson
og Ásgeir P. Ásbjörnsson 6‘A v.
Úrslitin réðust á fimmtudagskvöld-
ið, en þá voru tefldar biðskákir.
Margeir hélt þá jafntefli í erfiðri
biðskák við Stefán Briem, en Björn
Thorsteinsson varð hins vegar að
lúta í lægra haldi fyrir Sævari
Bjarnasyni. Síðustu umferð á mót-
inu átti að tefla í gærkvöldi.
Utanríkis-
ráðherra til
Búlgaríu
UTANRÍKISRÁÐHERRA, Ólafur
Jóhannesson, mun fara í opinbera
heimsókn til Búlgaríu í byrjun
nóvember n.k. í boði utanríkisráð-
herra Búlgaríu, Petar Mladenov.
í fylgd með ráðherranum verða
frú Dóra Guðbjartsdóttir, kona
hans, og Hörður Helgason, ráðu-
neytisstjóri og frú Sarah Helgason,
segir í frétt frá utanríkisráðuneyt-
Þorvaldur Mawby:
Fáist ekki byggingar-
leyfi eða önnur lóð
er úti um Byggung
Vr vo óffoa vGífl óott tá ió sKflWjo'flflivdvi
YRfí 50 Kfl/UfJOVÍ VlflVM? 6flF W FflKfl ÓT/'Sb0Í%I
EINS og kunnugt er af fréttum
hefur borgarráð synjað Bygg-
ung, byggingarfélagi ungra
sjálfstæðismanna, um bygg-
ingu háhýsis við Eiðsgranda. í
því tilefni hafði Mbl. samband
við Þorvald Mawby, fram-
kvæmdastjóra Byggung og
innti hann eftir gangi máia:
„Við höfðum sótt um bygg-
ingarleyfi fyrir 100 íbúða hús
þarna við Eiðsgrandann og fengið
leyfið, en þegar til kom varð það
ljóst að grafa þurfti 12 metra
niður til að komast á fast og það
er augljóst mál að út í svo mikinn
kostnað er ekki hægt að ráðast,
nema að fá að fjölga íbúðunum.
Það kostar um 900 milljónir að
komast niður á fast og það þýðir
að íbúðarverðið vex verulega og
segja má að húsnæðismálastofn-
unarlánið, 8 milljónir alls, fari því
í að moka drullunni burt og við
það ræður enginn venjulegur mað-
ur.
Vegna þessa sóttum við uhi að
fá að byggja stærra til að geta
haldið íbúðaverðinu aðeins niðri,
en við fengum synjun frá borgar-
ráði, en skipulagsnefnd var jafn-
framt gert að hafa samband við
okkur og reyna að leysa vandann
innan ramma skipulagsins.
Það hefur ekki enn verið haft
samband við okkur og því bíðum
við átekta. Hins vegar er það alveg
ljóst, að ef ekki fæst leyfi til að
byggja stærra, eða að önnur lóð
fæst mjög fljótlega, er útséð um
framtíð fyrirtækisins," sagði
Þorvaldur að lokum.
ö
INNLENT
Ragnar Arnalds um barnaskattana:
Tekjuskatturinn hækkar um
þess að staðgreiðslan hefur
SKATTAR á börn, sem nú hafa verið lagðir á í fyrsta skipti, eru
6.5% hærri en gert var ráð fyrir í skattalögum þeim er samþykkt
voru árið 1978. að því er fram hefur komið í fréttum. Samkvæmt
þeim lögum var gert ráð fyrir að skatturinn yrði 5%, en hann er
nú 11.5%. Hækkunin er þannig til komin, að skatturinn sjálfur er
hækkaður um 2%. og bætt er við 1.5% sjúkratryggingagjaldi og
3% útsvari. M»>rgunblaðið sneri sér í gær til Ragnars Arnalds
f jármálaráðherra, og spurði hann hverju þetta sætti.
„Það er ósköp einfalt mál að
tekjuskattslögin sem lögð voru
fram veturinn 1978 voru miðuð við
staðgreiðslukerfi skatta," sagði
Ragnar, „og allar prósentutölur í
lögunum miðuðust við að skattur-
inn yrði innheimtur af tekjum
líðandi árs en ekki liðins árs. Þar af
leiddi, er staðgreiðslukerfið kom
ekki til framkvæmda eins og þá var
gert ráð fyrir — raunar var flutt
frumvarp um það samhliða tekju-
skattsfrumvarpinu — varð að
breyta öllum prósentutölum til
samræmis við þá staðreynd að verið
var að skattleggja tekjur liðins árs.
Staðgreiðslufrumvarpið dagaði
uppi og því varð að áætla verð-
bólguhlutfall. Það þýðir að sú tala
sem var 5% miðað við staðgreiðslu-
kerfi, verður 7% miðað við að lagt
sé á tekjur síðasta árs. Þannig er
þessi 2% hækkun til komin.“
— En hvað þá með 3% útsvarið
og 1,5% sjúkratryggingagjaldið?
„Um það veit ég satt að segja ekki
svo mikið, ég satt að segja þekki
ekki nægilega vel hvenær sjúkra-
tryggingagjaldið kom inn en ég
man þó ekki til að það hafi komið
til í minni fjármálaráðherratíð.
Útsvarið þekki ég ekki heldur
vegna þess að það er á vegum
félagsmálaráðuneytisins og hefur
væntanlega verið í því frumvarpi
þar sem færð voru til samræmis við
tekjuskattslögin, ýmis ákvæði lag-
anna um tekjustofria sveitarfélaga.
— Það mál hefur sjálfsagt verið til
meðferðar hjá fleiri en einni ríkis-
stjórn, þremur liklega.
Ymsar tæknilegar breytingar
þurfti að gera á lögunum um
tekjustofna sveitarfélaga við það að
nýtt skattakerfi tók gildi og ég
reikna með að þar hafi meðal
annars verið fjallaö um útsvarið.
Útsvarið er nú innheimt af báðum
hjóna, og við þá breytingu að nú er
hver og einn einstaklingur í fjöl-
skyldunni skattlagður hlaut að
koma inn ákvæði um hvernig ætti
að leggja útsvar á tekjur barnanna.
Það er óhjákvæmileg og sjálfsögð
afleiðing af samþykkt tekjuskatts-
laganna vorið 1978. — Það er því
hinn mesti útúrsnúningur að segja
að þessi ríkisstjórn hafi bætt svo og
svo miklu við. Skatturinn'á börnin
er í dag nákvæmlega eins og hann
var hugsaður á sínum tíma. Lögin
um sjúkratryggingagjald og tekju-
stofna sveitarfélaga urðu auðvitað
að breytast til samræmis við tekju-
skattsíögin, og taka mið af því að
nú er ekki lengur verið að skatt-
leggja fjölskylduna sem heild. Það,
sem hins vegar er ekki enn komið,
er staðgreiðslukerfið."
— Hefur þú eða ríkisstjórnin í
heild einhver áform uppi um að
leggja þennan skatt niður eða að
létta skattbyrðinni sem honum
fylgir nú?
„Það hefur ekki verið rætt um
það. Þessi gjöld eru lögð á í fullu
samræmi við þau lög sem sett voru
1978 og ég hef ekki neina heimild til
að breyta þeim eða létta álagning-
unni. Mér þykir ákaflega ólíklegt að
þessu verði breytt, en þó getur verið
að þetta verði talið eitt af því sem
þykir ósanngjarnt. En á það hefur
ekki verið bent enn sem komið er,
að minnsta kosti. Aðalgallinn er á
hinn bóginn sá, hve þetta kemur
seint, en þar er um að kenna
stjórnarkreppunni í landinu, og sú
2% vegna
tafist
staðreynd að skattalögin voru ekki
tilbúin fyrr en í vor. En vonandi
verður hliðrað til ef þetta kemur
illa við fólk núna, í sambandi við
innheimtuna og ekki nema eðlilegt
að svo verði gert.“
Brautskráning
frá Háskóla
Islands
AFIIENDING próískírteina til
kandídata fer fram við athöfn í
hátíðarsal Iláskólans í dag kl.
14.00. Háskólarektor, prófessor
Guðmundur Magnússon. ávarp-
ar kandídata en síðan afhenda
deildarforsetar prófskírteini.
Að þessu sinni verða braut-
skráðir 65 kandídatar og skiptast
þeir þannig: Embættispróf í guð-
fræði 1, embættispróf í lögfræði 1,
B.A.-próf í heimspekideild 16, próf
í íslensku fyrir erlenda stúdenta 4,
lokapróf í rafmagnsverkfræði 3,
fyrrihlutapróf í efnaverkfræði 1,
B.S.-próf í raungreinum 15,
kandídatspróf í viðskiptafræði 14,
aðstoðarlyfjafræðingspróf 1,
B.A.-próf í félagsvísindadeild 9.
„Frétt frá Háskóla íslands).
Útborgunardagur í síldinni
og þykk umslög hjá mörgum
UskifirAi. 24. október.
SÍLDVEIÐIFLOTINN var í
Norðfjarðarflóa í nótt og margir
bátanna inni á Hellisfirði og
Víðifirði. Sildin hefur þvi hlaup-
ið norður aftur og virðist enn
ekki vera á suðurleið.
í dag er saltað hér hjá einni
stöð, þ.e. Auðbjörgu, en unnið er
við frágang á því, sem saltað
hefur verið hjá Friðþjófi og
Sæbergi, en unnið var til ídukkan
4 í nótt í síðarnefndu stöðinni. Nú
eru til um 100 tunnur hjá Sæ-
bergi, en hinar stöðvarnar eiga
tunnur í sem nemur 1—2 daga
söltun. I dag er útborgunardagur
hjá söltunarfólkinu og margir fá
þykk umslög enda hefur mikið
verið unnið. _ ,Evar.
Ekkert eftir til að hrygna í vor
ef aflahámark verður óbreytt
Rætt við Hjálmar Vilhjálmsson
um mælingar á loðnustofninum
SAMEIGINLEGUM leiðangri ts-
lendinga og Norðmanna til mæl-
inga á stærð islenzka loðnu-
stofnsins lauk á miðvikudag, en
berKmálsmælingar voru gerðar á
loðnunni eins og undanfarin ár.
Helztu niðurstöður lciðangursins
benda til mikiliar minnkunar
stofnsins frá þvi siðasta haust og
er Morgunblaöið spurði Hjálmar
Vilhjálmsson fiskifræðing að þvi
i gær hvort ekki mætti tala um
hrun á stofninum i sambandi við
þróunina siðustu misserin, sagði
hann að það myndi eflaust ein-
hvern timann hafa verið gert.
í leiöangrinum var svæðið milli
Íslands-Grænlands-Jan Mayens
skoðað og hafði Hjálmar eftirfar-
andi að segja um þennan leiðang-
ur og loðnustofninn:
„I stuttu máli eru helztu niður-
stöður þær, að alls mældist
stofnstærðin rúmlega 675 þúsund
tonn og þar af voru rúmlega 500
þúsund hrygningarloðna, en á
henni byggist veiðin. Mælingarnar
fóru fram við mjög góð veðurskil-
yrði, en talsverður rekís var yfir
grænlenzka landgrunninu. Því er
hugsanlegt, að eitthvað af loðnu
hafi verið undir ísnum og sé þess
vegna ekki með í mælingunni. Það
er þó samdóma álit okkar, að sá
hluti sem þar kann að hafa verið
geti ekki verið það stór, að hann
hafi afgerandi áhrif á niðurstöð-
urnar.
í júní í sumar var ákveðinn 775
þúsund tonna leyfilegur hámarks-
afli úr íslenzka loðnustofninum á
vertíðinni sumar og haust 1980 og
veturinn 1981. Þegar mælingin fór
fram höfðu Norðmenn veitt sinn
hluta eða um 120 þúsund tonn og
Íslendingar voru þá búnir að veiða
115 þúsund tonn. Því var eftir að
veiða um 540 þúsund tonn af
leyfilegum hámarksafla þegar
mælingin fór fram. Það er því
ljóst, að hrygningarstofninn
stendur engan veginn undir þeim
afla, sem ákveðinn hefur verið og
raunar er það ljóst að ef taka á
þann afla allan verður ekkert eftir
til að hrygna í vor.
Þá var það sameiginleg niður-
staða okkar að af þessum ástæð-
u’m þyrfti að taka leyfilegan há-
marksafla, sem ákveðinn var til
bráöabirgða í sumar, til endur-
skoðunar sem allra fyrst. Til þess
að óhætt sé að veiða það sem þá
var ákveðið og ef jafnframt er
miðað við að skilja eftir 300
þúsund tonna hrygningarstofn,
sem er það sama og skilið var eftir
í fyrravor, þá hefðum við þurft að
mæla rúmlega tvisvar sinnum
meira en við gerðum. Ef við
miðum við að skilja eftir 400
þúsund tonna hrygningarstofn,
sem okkur finnst eðlilegast, þá
hefðum við þurft að mæla 11-1200
þúsund tonn í staðinn fyrir þau
rúmlega 500 þúsund tonn, sem við
mældum.
Bera má þennan leiðangúr sam-
an við niðurstöður leiðangurs, sem
ég fór í síðari hluta októbermán-
aðar í fyrra. Þá mældist stofninn
um 1060 þúsund tonn og þar af um
840 þúsund tonn af hrygningar-
loðnu,“ sagði Hjálmar Vilhjálms-
son að lokum.