Morgunblaðið - 25.10.1980, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 1980
Ekki er ráð nema i tima
sé tekið. TiskukónKarn-
ir eru þegar farnir að
huKsa til næsta vors.
Fatatfskan fyrir vorið
og sumarið 1981 var
kynnt á tiskusýningum
i Paris um sl. helgi.
Eins og sjá má á með-
fylgjandi myndum,
sumum til hrellinKar en
öðrum til ánægju, eru
pilsfaldarnir á uppleið
á ný, en skóhælarnir á
niðurleið.
Sumarklæðnaður stúlk-
unnar á efri myndinni
er verk tiskuhönnuðar-
ins Kenzo. En á neðri
myndinni má sjá dragt-
ir eins ok Guy Laroche
vill að konur kla-ðist
næsta vor.
Steve McQueen
Krabbamein Steve
McQueens stöðvað
San FranHÍaco, Kaliíorníu. 23. okt. AP.
LlKUR benda til þess að tekist
hafi að stöðva útbreiðslu krabba-
meins, sem hrjáð hefur leikarann
kunna. Steve McQueen. undan-
farna mánuði.
Læknirinn, sem hefur umsjón
með meðferð McQueens, sagði að
leikarinn gæti nú gengið um
aftur, hefði þyngst talsvert og liti
nú mun betur út en þegar hann
kom á spítalann fyrir þremur
mánuðum. Hann vildi þó ekki spá
um hverjar lífslíkur hans væru.
McQueen þjáist af sjaldgæfri teg-
und krabbameins, sem býr um sig
í himnum sem liggja milli lungna
og rifbeina.
Mataræði ieikarans býggist að-
allega á hráu kjöti, fjölbreyttu
grænmeti, steinefnum og miklu af
vitamíni.
íram fór í vöruhúsi einu í
bænum. Var það eina hús-
ið sem rúmaði allan
mannfjöldann.
„Þetta er harmleikur sem halda
mætti að gerst hefði í stríði,"
sagði presturinn Jose Muro sem
jarðsöng.
49 börn á aldrinum 6—8 ára og
2 fullorðnir biðu bana í spreng-
ingunni. Um 30 börn eru enn á
sjúkrahúsi og eru 6 þeirra í
lífshættu.
Mikil sorg ríkti í Ortuella eftir
slysið. Fáir hinna 5.000 íbúa
bæjarins áttu svefnsama nótt og
víða mátti heyra úr húsum bæna-
hróp hinna mörgu aðstandenda
fórnarlambanna.
Elísabet II Bretadrottning
sendi Juan Carlos konungi á
Spáni samúðarskeyti vegna
harmleiksins og Jóhannes Páll
páfi og um 200 biskupar á ráð-
stefnu í Vatikaninu sameinuðust í
bæn fyrir fórnarlömbunum er
fréttist um slysið.
Um 130 skólabörn hafa látist í
»••**»* * »«•
Sprengingin í Ortuella:
Útförin
OrtueHa, Spáni. 24. okt. AP.
ÚTFÖR fórnarlamba
sprenKÍnRarinnar í skóla-
húsinu í Ortuella á Norð-
ur-Spáni var gerð í dag.
Um 10 þúsund manns voru
viðstaddir athöfnina sem
Ander-
son með
forystu
Buenrn Aires, 24 okt. AP.
SVÍINN Ulf Anderson hefur tekið
forystu eftlr 6 umferðir á alþjóð-
lega skákmótinu i Argentinu. And-
erson gerði jafntefli við Vlastimil
Hort frá Tékkóslóvakiu i sjöttu
umferð og skák Andersons og
Friðriks Olafssonar úr fjórðu um-
ferð lauk einnig með jafntefli. Þar
með hefur Anderson hlotið 3‘/4
vinnlng.
Friðrik Ólafsson tefldi við Miquel
Quinteros frá Argentínu í sjöttu
umferð og fór skák þeirra í bið.
Aðeins ein önnur skák var tefld í
sjöttu umferð, Karpov og Najdorf
frá Argentínu gerðu jafntefli eftir 23
leiki.
Staðan á mótinu er því þannig:
Anderson er í 1. sæti með 3'Æ
vinning, Kavalek, Karpov og Hort
eru í 2.-4. sæti með 3 vinninga
(Karpov og Kavalek, Karpov og Hort
eru í 2.-4. sæti með 3 vinninga
(Karpov og Kavalek eru með eina
biðskák hvor). Larsen, Ljubojevic og
Najdorf eru í 5.-7. sæti með 2Vi
vinning hver (Larsen á þrjár bið-
skákir en hinir eina hvor), Timman
og Quinteros eru í 8.-9. sæti með 2
vinninga (Timman á þrjár biðskákir
en Quinteros eina), Balashov, Panno,
Girdelli og Friðrik Ólafsson eru í
10,—13. sæti með 1(6 vinning og
Brown er í 14. sæti með 1 vinning og
tvær biðskákir.
Enginn
árangur
Frá Jan Erik Lauré.
fréttaritara Mbi. i Ósló 24. okt.
Samningaviðræður milli Noregs
og Efnahagsbandalags Evrópu um
fiskveiðikvóta fyrir árið 1981 hafa
engan árangur borið. Ástæðan er
sú að EBE vill ekki gefa Norðmönn-
um það upp hve mikið sjómenn frá
löndum bandalagsins haft veitt á
norskum fiskimiðum þar til i ár.
Norðmenn fýsir mjög að vita hve
mikið hefur verið veitt þar sem
þrisvar hefur komið fyrir að sjó-
menn frá löndum EBE hafa veitt
umfram leyfilegt magn á norskum
fiskimiðum.
Ákveðið hefur verið að samn-
ingaviðræður hefjist á ný i Brussel
10. nóvember nk. Ef EBE vill ekki
gefa Norðmönnum upp tölur um
fiskveiði á norskum miðum eru
likur á því að Norðmenn meini
sjómönnum frá löndum EBE að-
gang að fiskimiðum sinum.
gerð í dag
slysum á Spáni á tæpum tveimur
árum. Um jólin 1978 fórust 29
skólabörn í umferðarslysi og fjór-
um mánuðum seinna fórust önnur
52 er skólabíll keyrði út í á.
Hart á daln-
um í norskum
sjávarútvegi
Osló. 21. októher. AP.
ODDVAR Nordli. forsætisráðherra, varaði norska sjómenn í dag við
bjartsýni og sagði að framundan væru breyttir tímar i norskum
sjávarútvegi. I fyrra hefði afkuma fiskiðnaðarins verið slæm. en Ijóst
væri að árið í ár yrði það erfiðasta hingað til. Stjórnvöld hefðu þó fullan
skilning á vandamálunum er að steðjuðu og hefðu þegar gripið til ýmissa
ráðstafana er ættu að verða til hjálpar.
Þrátt fyrir að innan við 3% vinnufærra Norðmanna starfi að
sjávarútvegi og að hlutur sjávarútvegsins i þjóðarframleiðslunni sé
aðeins um 2%, er afkoma heilu byggðarlaganna. einkum í Norður-Nor-
egi. undir fiskvinnslunni komin.
Af þessum sökum hefur versn-
andi afkoma útgerðar og fisk:
vinnslu víða vakið ugg í Noregi. I
fyrra náðu endar ekki saman nema
hjá rækjuskipum er frystu aflann
jafnóðum um borð. Verst var af-
koma nótabáta, sem fækkað hefur
verið um 10% á þessu ári. Ljóst er
að afkoma skipanna verður enn
verri í ár. Uppi eru áætlanir um að
fækka nótabátum enn frekar, eða
um fjórðung.
Margir útgerðarmenn hafa gripið
til þess ráðs að brenna skipum
sínum eða sökkva vegna taprekst-
urs og öðrum hefur verið lagt, en í
framhaldi af því hefur fjármála-
ráðuneytið gert tillögur um skatta-
lagabreytingar er koma ættu í veg
fyrir að útgerðarmenn grípi til
Veður
víða um heim
Akureyri 0 snjókoma
Amsterdam 12 skýjað
Aþena 24 heióskírt
Barceiona vantar
Berlín 10 heióskírt
BrUasel 14 rigning
Chícago 20 rigning
Feneyjar 14 þokumóóa
Frankfurt 13 rigning
Færeyjar 14 þokumóóa
Genf 12 skýjaó
Helainki 9 rigning
Jerúsalem 24 skýjað
Jóhannesarborg 24 tkýjaó
Kaupmannahöfn 10 heiöskýrt
Las Palmas vantar
Lissabon 20 rigning
London 14 heióskirt
Los Angeles 29 heióskírt
Madrid 21 rigning
Malaga 26 rigning
Mallorca 22 skýjaó
Miami 29 skýjaó
Moskva 6 skýjaó
New York 12 skýjaó
Osló 2 anjókoma
París 15 skýjaó
Reykjavík 1 akýjaó
Ríó de Janeiro 33 skýjaó
Rómaborg 19 heiðskírt
Stokkhólmur 6 rigning
Tel Aviv 26 skýjaó
Tókýó 17 skýjaó
Vancouver 13 þokumóóa
Vínarborg 11 heiðskírt
örþrifaráða af þessu tagi.
Þá lagði Eyvind Bolle, sjávarút-
vegsráðherra, til að sjómönnum
yrðu í framtíðinni tryggðar lág-
markstekjur er hverju sinni væri
samið um og tryggðar yrðu með
atvinnuleysisbótum og öðrum opin-
berum framlögum. Hann sagðist
mundu setja á laggirnar sérstaka
nefnd til að finna lausn á þessu
máli.
„Við verðum að tryggja að sjó-
menn hverfi ekki til landverka
þrátt fyrir aðsteðjandi örðugleika,"
sagöi Bolle. Nordli lýsti því yfir á
fundi sjómanna, að vonlaust væri
að halda áfram á þeirri braut að
ætla að tryggja afkomu sjómanna
með því að auka veiðikvóta, eða með
beinum fjárframlögum til sjávar-
útvegsins. Flotinn væri miklu
stærri og afkastageta vinnslufyrir-
tækjanna miklu meiri en þörf væri
á fyrir þann afla sem væri fyrir
hendi.
Loks lagði Nordli áherzlu á miklu
betri stjórnun veiða í framtíðinni,
og að aflinn yrði betur nýttur.
Einkum yrði að leggja áherzlu á
framleiðslu úrvals afurða til neyzlu
heima fyrir og til útflutnings, og að
hlutdeild matvælaframleiðslunnar
yrði að vera meiri á kostnað
dýrafóðurs o.þ.h.
Noregur:
Fjölskyldu-
harmleikur
Ósló. 24. október. AP.
FÁNAR blöktuf hálfa stöng á
eynni Austvágoey á Lófót i dag
eftir fjölskylduharmleik, sem
kostaði fimm mannslif f gær og
varð til þess að fjórir aðrir
fjölskyldumeðlimir voru fluttir i
sjúkrahús.
Fimmtugur fiskimaður kveikti í
húsi frænda síns í gærmorgun,
skaut af riffli á alla fjölskyldumeð-
limina, þegar þeir flúðu úr brenn-
andi húsinu, og framdi síðan
sjálfsmorð.
Maðurinn skaut til bana frænda
sinn, Peder Jacobsen, konu hans og
tvö barnabörn þeirra, 12 og 13 ára
stúlkur.
Sonur Peder Jacobsens, kona
hans og fimm ára dóttir voru flutt
í sjúkrahús með skotsár. Fimmtán
ára dóttir þeirra er einnig á
sjúkrahúsi vegna taugaáfalls.
Tilræðismaðurinn bjó í næsta
húsi við frændfólk sitt. Rannsókn
er hafin á þessum harmleik, sem
virðist óskýranlegur.
Með tvö
höfuð
Pekinic. 24. október.
SVEINBARN sem fæddist mcð
tvö höfuð lést í dag á sjúkra-
húsinu i Tientsin i Kina eftir
að hafa lifað i 50 daga.
Barnið hafði eðlilegar hendur
og fætur en hafði tvo maga þótt
ekki sæist það utan á, segir í
daghlaði sem gefið er út í
Tientsin. Þar segir einnig að
þegar annar munnur barnsins
fékk mjólk þá grét hinn munn-
urinn. Og þegar barnið fékk
skell á vinstri rasskinnina þá
grét einnig vinstri munnurinn.
1