Morgunblaðið - 25.10.1980, Qupperneq 32
HVAD ER AD GERAST UM HELGINA?
32
Frá sýningu Braga Ás-
Keirssonar á Kjarvalsstöðum.
SýninKÍn er ein viðamesta
einkasýninK sem hér hefur
verið haldin.
Sýning-
ar um
helgina
Kjarvalsstaöir: Yfirlitssýning
á verkum Braga Ásgeirssonar.
Sýningin er í öllu húsinu og
lýkur henni 2. október.
Norræna húsið: Palle Nielsen
sýnir grafíkmyndir í anddyri.
Sýningin stendur til mánaða-
móta.
Jón Reykdal sýnir 21 olíu-
málverk og 27 grafíkmyndir í
kjallara. Sýningunni lýkur ann-
að kvöld.
Djúpið: Magnús Kjartansson
sýnir málverk og silkiprent.
Sýningunni lýkur 29. þ.m.
Mokka-kaffi, Skólavörðustíg:
Gunnar Hjaltason sýnir 33
myndir málaðar á japanskan
ríspappír. Sýningin stendur til
mánaðamóta.
Listaskáli ASÍ, Grensásvegi 16:
Sigurður Thoroddsen verkfræð-
ingur sýnir vatnsiitamyndir.
Sýningin stendur til 9. nóvem-
ber.
Sigríður
Björnsdóttir
sýnir um þess-
ar mundir 70
landslags-
myndir og 7
afstrakt-
myndir í List-
munahúsinu i
Lækjargötu.
Listmunahúsið, Lækjargötu:
Sigríður Björnsdóttir sýnir 70
landslagsmyndir og 7 afstrakt-
myndir. Sýningunni lýkur 9.
nóvember.
Nýlistasafnið, Vatnsstíg 3:
Hollensk myndlistarsýning,
Hollensk myndlistarsýning,
Vídd á pappír. Sýningin stend-
ur til 16. nóvember.
Kirkjustræti 10: Sigrún Gísla-
dóttir sýnir collage-myndir.
Sýningin stendur til 18. nóv-
ember.
Nautið, Keflavík: Jesús Pot-
enciano sýnir olíumálverk.
Sigurður Thoroddsen held-
ur um þessar mundir sýningu
á vatnslitamyndum i Lista-
skála Alþýðusambands ís-
lands, Grensásvegi 16.
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 1980
Þjóöleikhúsiö:
30. sýning á
Smalastúlkunni
Á morgun, sunnudag, verður 29.
sýning á leikriti Sigurðar Guð-
mundssonar og Þorgeirs borgeirs-
sonar, Smalastúlkunni og útlogun-
um, sem frumsýnt var á 30 ára
afmæli Þjóðleikhússins i april sl.
Sýningar á þessu verki hafa
gengið vel og aðsókn verið góð.
Smalastúlkan og útlagarnir hafa
„reynst hin besta fjölskyldu-
skemmtun, enda hefur komið á
óvart hve nútímaleg umræðan er í
þessu rúmlega 100 ára gamla verki
um valdið, frelsið og ástina," segir í
fréttatilkynningu frá Þjóðleikhús-
inu.
Þriðjudaginn 28. þ.m. verður þrí-
tugasta sýningin á Smalastúlkunni.
Leikstjóri þessarar sýningar er Þór-
hildur Þorleifsdóttir, en leikmynd
og búningar eru eftir Sigurjón
Jóhannsson og lýsingu annaðist
Kristinn Daníelsson. Með helstu
hlutverkin fara Árni Blandon,
Tinna Gunnlaugsdóttir, Helgi
Skúlason, Þráinn Karlsson, Rúrik
Haraldsson, Arnar Jónsson, Krist-
björg Kjeld, Róbert Arnfinnsson,
Baldvin Halldórsson o.fl.
I.jósm. Mbl. Kristján
Valdið og hatrið hirtast i margs konar myndum. Foreldravaidið,
kirkjuvaldið og hatrið tengjast hér i þessu atriði. Leikendur eru, f.v.:
Gunnar Eyjólfsson. Baidvin Halldórsson og Guðrún I>. Stephensen.
Kvikmyndir:
30 ára afmœlissýningar á
Síðasta bænum í Dalnum
UM helgina verður efnt til afmæl-
issýninga á kvikmyndinni „Síðasti
ha rinn í dalnum" í kvikmyndahús-
inu Regnhoganum. Tilefnið er að á
þessu ári eru 30 ár liðin frá
frumsýningu myndarinnar.
Kvikmyndina gerði Oskar Gísla-
son eftir sögu Lofts Guðmundssonar
rithöfundar. Kvikmyndahandrit
gerði Þorleifur Þorleifsson. I^eik-
stjórn annaðist Ævar Kvaran. Tón-
list samdi Jórunn Viðar. Hljómsveit-
arstjórn var í höndum dr. Viktors
Urbantschitch. Hljómsveit frá Fé-
lagi íslenskra hljóðfæraleikara.
Kvikmyndun og framkvæmdastjórn
Óskar Gíslason. Aðalhlutverk: Þóra
Borg, Valdimar Lárusson, Friðrikka
Geirsdóttir, Valur Gústafsson, Jón
Aðils og Erna Sigurleifsdóttir.
I sýningarskrá sem gerð var fyrir
30 árum og er hin vandaðasta segir
Óskar Gíslason:
»l>ar Kom „Síóasti harinn í dalnum" or
fyrsta kvikmynd skáldsoKuloKs cfnis. som ck
hofi unniö art. þótti mór rótt aó efnivirturinn
skyldi vera af fammislcn/.kum rótum — í
likinvru þjoösaKnanna. EinnÍK vakti þaó
fyrir mór. aó K<*ra kvikmynd. som vcl væri
vió harna ha fi ok unKÍinKa. þvi satt aó scKja
er skortur slíkra mynda. þótt kvikmynda-
sýninKar sóu ónoitanlcKa hclzta skcmmtun
flcstra unKlinKa.
I»aó cr jafnframt von mín. aó cfnisvalió
falli fullorónu fólki vcl í k<*ó — þóitt a*fintýri
só. fjarri hvcrsdaKslcKum raunvcrulcika —
(því hvcr cr sá. scm ckki vill. stoku sinnum.
losa sík úr viójum raunvcrulcikans!).
I>«ks cr rctt aö taka fram. aó oll taka
myndarinnar «K ýmsar ta-knilcKar hrcllur.
cr alKorlcKa íslcnzk vinna. þott hrácfnió
sjálít (filman) sc crlcnd framlciósla. svo ok
framkollun hcnnar. Kn þcssi tcKund litfilmu
(Kodachromc) cr cinK«»nKu framkólluó hjá
vcrksmiójunni: cóa útihúum hcnnar. þar
sem verksmiójan hcfir cinkalcyfi til vcrks-
ins."
AfmælissýninKarnar í Regnbog-
anum veröa tvær, hin fyrri í dag kl.
15, en hin síðari á morKun, sunnu-
dag, á sama tíma.
Úr kvikmyndinni Síöasti bærinn í dalnum: Björn bóndi (Valdimar
Lárusson), Gerður móöir hans (Þóra Borg) og Grímar vinnumaöur
(Jón Aöils).
Þorlákur kveður sumarið
í kvöld sýnir Leikfélag Kópavogs Þorlák þreytta i 48. sinn. Sýningin
hefst kl. 20.30. Næsta sýning verður á fimmtudagskvöldið.
Jón Reykdal við tvö verka sinna i kjailara Norræna hússins; þau
heita: „Lóuþankar" (t.v.) og „Við andapollinn".
Norræna húsið:
Sýningu Jóns
Reykdals að ljúka
Annað kvöld lýkur sýningu Þetta er fyrsta meiriháttar sýn-
Jóns Reykdals í kjallara Nor- ing Jóns Reykdals, en hann sýnir
ræna hússins. Aðsókn hefur verið þarna 21 olíumálverk og 27 grafík-
góð og eru sýningargestir komn- myndir.
ir yfir 1100.
Tónlist:
Fyrstu Háskólatón-
leikar vetrarins
Fyrstu háskóiatónleikar vetrar-
ins verða í Félagsstofnun stúd-
enta á morgun og hefjast kl. 17.00.
Jean Mitchell. mezzósópransöng-
kona frá Englandi, mun ásamt
Ian Sykes píanóleikara flytja
enska söngva frá 17., 18. og 20. öld
og Ijóðaílokkinn Chants de Terre
et de Ciel, cða söngva um jörðu og
himin eftir franska tónskáldið
Olivier Messiaen.
Jean Mitchell er frá Liverpool og
stundaði tónlistarnám við háskól-
ana í Edinborg og Birmingham og
söngnám í London. Hún hefur
ásamt undirleikara sínum, Ian
Sykes, haldið tónleika víða í
Norður-Englandi og í London. Jean
Mitchell og Ian Sykes kenna bæði
við tónlistarskóla í Liverpool.
Þessir fyrstu háskólatónleikar
vetrarins verða haldnir á sunnu-
degi, en háskólatónleikar verða
framvegis á laugardögum í vetur
eins og undanfarin ár.
Djúpið:
Sýning Magnúsar
framlengd um viku
Sýning Magnúsar Kjartanssonar i Djúpinu i Hafnarstræti
hefur verið framiengd um viku og lýkur henni á miðvikudaginn i
næstu viku.
Á sýningu Magnúsar í Djúpinu eru málverk og silkiprent. Fjöldi
sýningargesta er kominn yfir eitt þúsund.
Magnús Kjartansson við tvö verka sinna i Djúpinu i
Hafnarstræti; „Penni eða peddi“ (t.v.) og „í dag“.