Morgunblaðið - 25.10.1980, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 1980
41
félk í
fréttum
Austur í Peking
+ VALERY Giscard d’Estaing, Frakklandsforseti er nú í opinberri heimsókn í Kína. Myndin var
tekin þegar fyrsti fundur d’Estaings, sem er til hægri og Zhao Ziyang, forsætisráðherra (sá
brosmildi með gleraugun) hófst. Fundurinn fór fram í þinghöllinni í Peking.
Bók um Maríu Callm
+ ÚT er komin ný bók sem
nefnist „Maria Beyond the Call-
as Legend“ og fjallar um óperu-
söngkonuna Maríu Callas. Höf-
undur bókarinnar er grísk
blaðakona Ariahna Stassino-
poulos að nafni.
í bókinni kemur meðal annars
fram að María Callas fékk leyni-
lega fóstureyðingu árið 1966,
eftir að elskhugi hennar, sem
var enginn annar en skipakóng-
urinn Aristoteles Onassis, sagði
henni að hann vildi ekki að
barnið fæddist. María Callas var
þá 43 ára gömul. í bókinni segir:
„Hann varaði hana við, að ef hún
eignaðist barnið myndi það þýða
að sambandi þeirra væri lokið.
Bókin segir ennfremur að
tveimur árum eftir fóstureyð-
inguna hafi Callas yfirgefið auð-
jöfurinn, sðkum vaxandi sam-
bands hans við ekkju Kennedys
forseta, Jacqueline. Höfundur
bókarinnar segir að Onassis hafi
gifst Jacqueline álitsins vegna,
en samt hafi samband hans við
Maríu Callas ekki endað. Onass-
is hafi fundist hann vera notað-
ur, vegna þess hve gífurlegum
fjármunum Jacquelie eyddi.
Onassis er sagður oft hafa
haft í huga að skilja við Jacquel-
ine. sú varð þó ekki raunin, en
Onassis lést árið 1975. Tveimur
árum síðar lést María Callas.
I jarðskjálftabænum
+ ÞESSI AP-fréttamynd var tekin í rústum Alsírsku
borginni E1 Asnam. — Bræðurnir hafa fundið rúmdýn-
urnar sínar í rústum heimilisins, sem jarðskjálftinn
mikli þar á dögunum, lagði í rústir.
Ekki
sakamaður
+ ÞESSI fréttamynd er ekki af
handtöku sakamanns. — Hér er á
ferðinni einn af leiðandi stjórn-
málamönnum í olíuríkjaheimin-
um, forsætisráðherra Iran Mo-
hammad Ali Rajai. — Hann er hér
að leggja af stað frá aðsetri
írönsku sendisveitarinnar i New
York á fundinn í Öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna á dögunum,
er hann ávarpaði það vegna ríkj-
andi styrjaldar við granna sína,
íraka. Borgaralega klæddu menn-
irnir einbeittu eru öryggisverðir
ráðherrans, en fyrir dyrum úti
héldu vörð um húsið vopnaðir
lögreglumenn úr New York-lögg-
unni.
Varði
doktors-
ritgerð
NÝLEGA varði Bjarni Reyn-
arsson skipulags- og landa-
fræðingur doktorsritgerð við
háskólann i Illinois í Banda-
rikjunum. Doktorsritgerð
hans heitir „Residental mobii-
ity. life cycle stages. housing
and the changing social patt-
erns in Reykjavik 1974 to
1976“. og fjallar um búferla-
flutninga á höfuðborgarsvæð-
inu 1974 - 76.
Dr. Bjarni Reynarsson er
fæddur í Reykjavík 5. maí 1948,
sonur Reynars Hannessonar og
Sigríðar Sigfúsdóttur. Hann
lauk kennaraprófi frá Kenn-
araskóla íslands 1969 og stúd-
entsprófi þaðan árið eftir. Árið
1973 lauk hann BS-prófi í
landafræði frá Háskóla ís-
lands. Árið 1976 lauk dr. Bjarni
MA prófi í landafræði með
skipulagsfræði sem hliðargrein
frá Háskólanum í Ulinois.
Bjarni er nú starfsmaður Borg-
arskipulags Reykjavíkur.
Dr. Bjarni er kvæntur Jó-
hönnu Einarsdóttur kennara
og eiga þau einn son.
Komið — sjáið
og sannfærist
Allir velkomnir með eda án
hjólaskauta
OPIÐ
alla virka daga vikunnar
2—6 og 8—11.30.
Sunnudaga frá kl. 1—6 og
8—11.30.
Veitingar, kúluspil og hjóla-
skautaleiga á staönum.
Síöumúla 33.
GRAM
FRYSTIKISTUR
FYRSTA FLOKKS FRÁ
FÖNIX
HÁTÚNI 6A.SÍMI 24420
Svedbergs
Baöskápar
henta öllum
100 mismunandi einingar
sem hægt er aö raöa saman ,
eftir yöar þörfum á hverjum
tíma. Fáanlegar í furu eik og
hvítlakkaöar. Þrjár geröir af
huröum: sléttar, rimla og reyr.
Spegilskápar meö eöa án
Ijósa. Færanlegar hillur.
Framleitt af stærsta framleiö-
anda á Norðurlöndum.
Lítiö viö og takið
litmyndabækling.
Nýborg?
Ármúla 23
Sími86755
*★★★★★★★★★★★★★★★★★*