Morgunblaðið - 29.11.1980, Síða 1

Morgunblaðið - 29.11.1980, Síða 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK 267. tbl. 68. árg. LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Percy spáir Salt-fundum Moskvu, 28. nóv. — AP. CHARLES Percy öldungadeildar- maður. væntanlegur (ormaður utanríkisnefndar öldungadeild- arinnar. spáði þvi i dag, eftir þriggja daga viðræður við sov- ézka leiðtoKa. að Rússar yrðu fljótlega reiðubúnir til viðraeðna i þvi skyni að endursemja Salt-2. Percy sagði að Salt-2 samningur- inn væri „steindauður" og taldi sig hafa sannfært sovézka leiðtoga um það. Hann ræddi í fjóra tíma í dag við Andrei Gromyko utanríkisráð- herra og hefur áður talað við Leonid Brezhnev forseta og Dmitry Ustinov landvarnaráðherra. Hann sagði að valdbeiting í Póllandi mundi kalla fram mesta vígbúnað- arkapphlaup sem þekkzt hefði frá stríðslokum og kvaðst hafa tjáð Rússum að hófsemi þeirra til þessa væri viturleg. Jafnframt kvaðst hann hafa út- skýrt nákvæmlega hvernig afskipti af olíuflutningum frá Persaflóa yrðu skoðuð sem ógnun við þjóðar- öryggishagsmuni. Hann sagði að honum hefði ekkert orðið ágengt í viðræðum um Afghanistan. Um Salt-2 sagði hann að nýjar viðræður gætu orðið óformlegar fyrst í stað og taldi að þegar Rússar sæju að þeir gætu náð sanngjörnu samkomulagi í vissum meginmálum yrði tímabært að hefja formlega fundi. Hann sagði að í slíkum viðræðum mætti einnig ræða kjarnorkuvopn, sem eru að- eins ætluð til nota í Evrópu. Simon hai'nar William Simon Santa Barbara, 28. nóv. — AP. WILLIAM Simon fyrrum fjár- málaráðherra gaf til kynna í dag að hann mundi ekki taka boði um setu í ríkisstjórn Reagans. Simon sagði í samtali við út- varpsstöð í New York að hann vildi ekki rífa fjölskyldu sína upp með rótum og opinber embættis- störf væru ógeðfelld vegna um- fjöllunar blaða um þau og laga, sem eiga að afstýra hagsmuna- árekstrum í stjórnsýslustörfum. „New York Daily News“ segir, að Reagan hafi hringt í Simon og sagzt vilja fá hann öðrum fremur í stöðu fjármálaráðherra. Enginn ráðherra hefur verið valinn. Simon er í „eldhúsráðuneyti" ráðgjafa, sem sömdu skrá um ráðherraefni handa Reagan. Geimskutlunni „Columbia“ ekið út úr verksmiðjubyggingu í Kennedy-geimstöðinni á Florida í aðra byggingu þar sem eldsneytisgeymum hennar verður komið fyrir. Tveir geimfarar eiga að ferðast með geimskutlunni í marzbyrjun á næsta ári. Fréttir um framsal gíslanna stangast á London, 28. nóv. — AP. ^ SENDIFULLTRÚI írans í Bonn. Mehdi Nawab, sagði á blaðamannafundi í London í dag, að „verið væri“ að afhenda írönskum stjórnvöldum bandarísku gíslana í Teher- an, en neitaði að segja hvar þeir væru hafðir í haldi. Nawab sagði, að leitað væri að „hentugu húsnæði“ handa gíslunum og kvað ekki hægt að segja nákvæmlega frá dvalarstað þeirra af ótta við bandaríska íhlutun. Hann aeitaði að segja hvenær gíslarnir yrðu látnir lausir. Wallenberg talinn á lífi Madrid, 28. nóv. — AP. NINA Lagergren, systir sænska stjórnarerindrekans Raoui Wall- enbergs. sem bjargaði þúsundum Gyðinga frá útrýmingarbúðum nazista i síðari heimsstyrjöldinni, en hvarf þegar hann var í hönd- um Rússa er sögðu siðar að hann væri látinn. sagði i dag að hún hefði „nýiegar sannanir um að hann væri á lifi og honum liði sæmilega“. Frú Lagergren sagði frétta- mönnum að mál Wallenbergs „væri orðið raunverulegt mál í fyrsta skipti". Hún varpaði þó litið nýju ljósi á hvarf Wallenbergs, en sagði að halda yrði því leyndu hvar síðustu sovézku vinnubúðirn- ar þar sem hann hefði sézt væru. „Þetta eru einangraðar búðir og ógerningur að smygla þaðan út orðsendingu," sagði hún. Með frú Lagergren var Clair- borne Pell öldungardeildarmaður, varaformaður sendinefndar Bandaríkjanna á Madrid-ráð- stefnunni, sem kvaðst telja að sovétstjórnin væri hrædd um að láta hanka sig þar sem hún lýsti því opinberlega yfir 1957 að Wall- enberg væri látinn. Sjö ríki, þeirra á meðal ísland hafa borið mál Wallenbergs upp á ráðstefnunni. Hin löndin eru Sví- þjóð, Sviss, Bandaríkin, Bretland, Luxemborg og Liechtenstein. Bandaríska utanríkisráðu- neytið kvaðst engar nýjar upp- lýsingar hafa fengið um gísl- ana, en talsmaður þess sagði að það yrði talið „jákvætt skref", ef þeir yrðu afhentir stjórn- völdum. Viðræður þriggja alsírskra milligöngumanna við banda- ríska embættismenn lauk í dag. Talsmaður utanríkisráðuneyt- isins sagði að unnið væri að næstu skrefum í þróuninni" og það tæki nokkra daga að svara spurningum írana formlega. Einn námsmannanna í bandaríska sendiráðinu í Te- heran sagði að gíslarnir hefðu enn ekki verið afhentir stjórn- völdum. Hann sagði, að náms- mennirnir mundu gefa út yfir- lýsingu, þegar gíslarnir yrðu afhentir. Starfsmenn íransstjórnar hafa sagt, að þeir væru að taka við umsjá gíslanna, og bandar- ískar sjónvarpsstöðvar segja, að þeir hafi verið framseldir stjórninni á síðustu þremur vikum. CBS hafði eftir „áreiðan- legum heimildum", að flestir gíslanna væru í Evin-fangelsi í Teheran og námsmennirnir úr sendiráðinu gættu þeirra. Símavörður í Evin-fangelsi, sem sagðist vita um allt, sem þar færi fram, sagði í símtali, að gíslarnir hefðu ekki verið færðir þangað. Spurt var í fangelsinu hvaðan svona fréttir kæmu. Dlviðri eykur hörmungar á jarðskjálftasvæðunum Napolf, 28. nóv. - AP. TUGIR þúsunda fórnarlamba jarðskjálftanna á SuÓur- Ítalíu bíða enn eftir tjöldum eða bráðabirgðahúsnæði og vöfðu sig innan í plastdúka eða ábreiður í dag, þegar úrhellisrigningu gerði á jarðskjálftasvæðinu, hávaðarok og snjókomu. „Við getum ekki veitt viðnám öllu lengur, hættan á lungna- bólgu og hjartaáföllum er of mikil," sagði Giovanni Inchin- colo, sjálfboðaliði sem starfar í Pescopagano í Potenza-héraði. Sveitarstjórnir lögðu hald á hótel til að hýsa hundruð heim- ilislausra í kvöld. Stjórnin hafði enn ekki gert upp við sig hvort hún ætti að taka mikinn fjölda hótela eignarnámi á ströndinni sunnan við Napoli, sem eru venjulega lítið notuð um vetrar- tímann. Ófærð tafði björgunarsveitir á þjóðvegum og nota varð keðjur á krókóttum vegum í fjöllunum austan við Napoli þar sem fyrsti vetrarsnjórinn féll. Yfirvöld greinir enn á um fjölda látinna: herstjórnin í Napoli segir að 2.904 lík hafi fundizt og 1.564 sé saknað, en ríkislögreglan í Róm segir að 2.285 hafi farizt, og 1.211 sé saknað. Þremur var bjargað úr rústum í dag, þar á meðal vanfærri konu. Alls hefur 95 verið bjargað úr húsarústum síðan á sunnu- dag, en enn er leitað að líkum í rústunum þrátt fyrir stækan óþef. Læknar halda áfram að bólu- setja þúsundir manna gegn taugaveiki og kóleru. í Laviano, þar sem óttazt er að 1.500 hafi farizt, var rotnunarvarnarefnum dreift úr þyrlum yfir rústirnar til að hægja á rotnun líkanna. „í mörgum tilfellum þræða leitarmenn rottuspor," sagði hjálparmaður. Líkkistur eru seldar á svörtum markaði og vegna skorts á líkkistum er látnum komið fyrir í fjöldagröf-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.