Morgunblaðið - 29.11.1980, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 29.11.1980, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1980 29 Jón Ingi Einarsson oddvífí: Vamir Víkurkauptúns Á því hausti sem nú er að líða hefur Kötludraugurinn enn risið upp, í þetta sinn á þann hátt að mikið hefur verið ritað um eldgos í Kötlu og hættu þá sem af því myndi leiða fyrir lifandi verur og mannvirki. Ekki ætla ég með þessum línum mínum að gerast spámaður um það hvenær Katla gýs, hversu stórt gosið verður né hvert flóðið fer, það eftirlæt ég mér vitrari og reyndari mönnum. Ætlun mín er hins vegar að greina frá því hverju hreppsnefnd Hvamms- hrepps er að reyna að koma í verk til að tryggja öryggi hreppsbúa og eignir þeirra. Hætta í Víkurkauptúni vegna Kötlugoss skiptist í tvennt að því að talið er: 1. Hætta vegna flóðöldu af hafi sem skylli á kauptúninu. 2. Hætta vegna flóðs sem kæmi vestur með Víkurhömrum og flæddi vestur yfir neðri hluta kauptúnsins. Varðandi fyrri liðinn þá er það að segja að í skýrslu sem Þorbjörn Karlsson, verkfræðingur vann fyrir Almannavarnir ríkisins og skilaði í ágúst 1974, þá kemst hann að þeirri niðurstöðu að ekki sé líklegt að flóðaldan nái nema um þriðjung af þeirri vegalengd sem er frá fjöruborði að byggð- inni. Von mín er að sú niðurstaða verkfræðingsins sé rétt og sé því ekki ástæðu til að fjölyrða meir um það. Um seinni liðinn sýnist mér aftur á móti, eftir að hafa lesið skýrslur sérfræðinga þar um, að menn greini meira á um hversu mikið flóð vestur með hömrum gæti orðið. Sjálfsagt getur enginn sagt fyrir um það með neinni vissu og því verður að sýna ýtrustu varkárni, hvort sem menn vilja trúa eða ekki að þessi hætta sé fyrir hendi. Um varnir vegna þessa flóðs eru menn að ég hygg nokkuð sammála um, að öflugur varnargarður milli Höfðabrekkujökuls og fjalls og annar garður frá Víkurkletti til sjávar myndu auka mikið öryggi Víkurkauptúns. Árið 1964 var gerður varnargarður, 5 metra hár, milli Höfðabrekkujökuls og fjalls og síðan gerðist það að árið 1972 fluttu þingmenn Suðurlands til- lögu til þingsályktunar á Alþingi um varnargarða vegna Kötlu- hlaups og skilst mér að þá hafi verið veittar 2 milljónir króna til verksins, en þær fóru í mælingar og ekkert fé varð þá eftir til að framkvæma fyrir. Síðan hefur mikið verið rætt um Kötlu og Kötlugarða, en ekkert þokast í áttina ennþá svo sjáan- legt sé. Haustið 1979 ákvað hreppsnefnd Hvammshrepps að reyna til þrautar að þoka þessu áfram og vinna að því að útvega fjármagn til framkvæmda og koma þessu máli af umræðustigi til raunveruleikans. í marsmánuði sl. var svo farið með þingmenn Suðurlands á stað- inn og þeim kynnt málið og gerð grein fyrir því að umsókn um fjárveitingu yrði send til fjárveit- inganefndar. I maímánuði var síðan farið fram á kostnaðaráætl- un frá Vegagerðinni vegna hækk- unar á varnargarðinum við Höfða- brekkujökul og barst fljótlega svar þar sem áætlun frá árinu 1974 var umreiknuð á verðlag 1980. í júnímánuði óskaði hrepps- nefndin eftir umsögn Almanna- varna ríkisins um þessa fram- kvæmd. í ágúst barst svar frá Almannavarnaráði og segir þar orðrétt: „Almannavarnaráð mælir eindregið með að veitt verði fé til styrkingar og hækkunar á varn- argarðinum við Höfðabrekkujök- ul, vegna þýðingar hans sem vörn við Vík.“ I ágúst er síðan sótt um fjárveitingu til Alþingis og jafn- framt var farið þess á leit við Viðlagatryggingu íslands að hún leggði fram fé til framkvæmda. Á fundi með fjárveitinganefnd 3. okt. sl. var beiðnin um fjárveit- ingu ítrekuð. Um svipað leyti barst jákvætt svar frá Viðlaga- tryggingu með því skilyrði að fé fengist einnig annars staðar frá. Það síðasta sem gerist svo í þessu máli er að 16. nóv. sl. birtist grein um þetta efni í Morgunblaðinu og þar segir orðrétt: „Við höfum átt marga duglega og framsýna at- orkumenn ekki síður en aðrir, en það er eins og þessi hætta gagn- vart Víkurþorpi hafi verið og sé þeim að mestu hulin." Skemmtileg tilviljun er það að sama dag og þetta birtist þá heiðruðu þing- menn Suðurlands okkur sveitar- stjórnarmenn í Mýrdal með heim- sókn sinni, og enn var þetta mál rætt ítarlega með tilliti til kom- andi fjárlaga og var enn farið á staðinn og málið rifjað upp með þingmönnum og skorað á þá að reyna að tryggja fé í þessa fram- kvæmd. Þegar hér var komið og mér varð ljóst hversu lítið heimamenn vissu um í hvaða stöðu þetta mál nú er, þá taldi ég nauðsynlegt að upplýsa hvernig hreppsnefndin hefur reynt að koma málinu áfram. Ég held að þessar línur sýni vissulega að við heimamenn gerum okkur grein fyrir hættunni og reynum að tryggja okkur gagn- vart henni, en hitt er svo annað mál að ég held að erfitt sé að segja um hvar hættan sé mest, það hefur gosið í Vestmannaeyjum og Mývatnseldar sýnt okkur, og sem betur fer er það ekki eina leiðin fyrir Kötluflóð að flæða vestur til Víkur og vissulega hlýtur bjart- sýni okkar á því að flóðið geri það ekki að eiga rétt á sér samhliða því að efla varnir kauptúnsins ef svo illa færi að flóðið færi í vesturátt. Að lokum vil ég taka undir áskorun Brands Stefánssonar í grein hans í Morgunblaðinu 16. nóvember sl. á þingmenn okkar og vona eindregið að varnir Víkur- kauptúns verði efldar í tæka tíð, því enginn veit hvenær Katla ber næst að dyrum og eftir tuttugu ára umræðu af og til, þá hlýtur að fara að verða tímabært að ráðast í svo nauðsynlega framkvæmd sem þessa. Vík í Mýrdal, 21. nóv. 1980, Jón Ingi Einarsson. oddiviti. smáauglýsingar — smáauglýslngar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Fíladelfía Suöurnesjum Laugardaga- og sunnudagaskól- ar Fíladelfíu: Hafnarskóli laugar- dag kl. 2, Njarövíkurskóli sunnu- dag kl. 11, Grindavfkurskóli sunnudag kl. 14. Muniö svörtu börnln. Öll bðrn velkomin. Kristján Reykdal FERDAFÉLAG ÍSLANDS ___ÖLDUGÖTU 3 SÍMAR11798 og 19533. Dagsferð sunnudag 30. nóv. kl. 11 f.h. Eklö aö Kaldárseli, síöan genglö á Stórabolla (551 m) v/Grinda- skörö. Fararstjórl: Siguröur Kristjánsson. Fariö frá Umferö- armiöstööinnl austanmegln. Fram. v/bfl. Verö kr. 3.500. Heimatrúboöiö Óöinsgötu 6A. Almenn sam- koma á morgun kl. 20.30. Allir velkomnir. ÚTIVISTARFERÐIR Sunnud. 30.11. kl. 13 Lsekjarbotnar — Rauöhólar. Létt ganga fyrir alla. Verö 3000 kr. Frítt f. börn m. fullorönum. Farlö frá BSÍ vestanveröu. Happdraatti Útivistar. Drættl frestaö til 23. des. Heröiö söl- una. Útivist Kökubazar Systrafélag Fíladelfíu heldur kökubazar f dag 29. þ.m. kl. 14.00 aö Hátúni 2. Stjórnln Kristniboössambandið Samkoma annaökvöld kl. 20.30 f húsl KFUM og K vlö Amtmst. Samkoman veröur helguö minn- ingu Gunnars Slgurjónssonar. Alllr hjartanlega velkomnlr. Til sölu stálgrindarsperrur, breidd 12 m. Vegghæö 4 m. Uppl. s. 99-4475. Ódýrar bækur Útnesjamenn, Marína, Sval- helmamenn og Ijóömæli systr- anna. Fást á Hagamel 42, sími 15688. húsnæöi í boöi Keflavík 2ja herb. íbúö, 81 fm í mjög góöu ástandi á góöum staö. 3ja herb. íbúö viö Lyngholt. Björt og skemmtlleg íbúö. 3ja herb. íbúö auk riss viö Ásabraut. Sér inngangur. Laus strax. 3ja herb. (búö f fjórbýlishúsi ásamt bílskúr Sér inngangur. Glæsileg eign. 3ja herb. íbúö vlö Skólaveg. Sér Inngangur. Urvaliö er hjá okkur. Eignamiölun Suöurnesja, Hafn- argötu 57 Keflavík, síml 3868. M (.I.VSINI. VSIMINN KK: 22480 JflorjjttnhUttitö raðauglýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsingar bilar | kennsla Tilboö óskast í eftirtaldar bifreiöar, sem skemmst hafa í umferðaróhöppum: Range Rover árg. 1974 BMW 320 árg. 1976 Datsun 120Y árg. 1977 VW 1200 árg. 1974 Mazda 323 árg. 1978 Cortina árg. 1970 Daihatsu árg. 1979 Austin Mini árg. 1974 Bifreiðarnar verða til sýnis aö Skemmuvegi 26, Kópavogi, mánudaginn 1. desember 1980 kl. 12—17. Tilboöum sé skilað til Samvinnutrygginga gt., Ármúla 3, Reykjavík, fyrir kl. 17, 2. des. ’80. Hússtjórnarskóli Reykjavíkur Sólvallagötu 12 Umsóknir um hússtjórnardeild, sem hefst 5. jan., þurfa að berast sem fyrst eða eigi síðar en 15. des. Öll námskeið í matreiðslu, fatasaumi, vefnaði og jurtalitun eru fullskipuö til jóla. Námskeiö eftir áramót verða auglýst í byrjun janúar. Upplýsingar í síma 11578 kl. 10—14. Skólastjóri. Vélar og áhöld Til sölu vélar og áhöld til aö steypa alls konar gúmmíhluti. Uppl. í síma 54287 eftir kl. 7 í kvöld og næstu kvöld. EF ÞAÐER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU Al GLYSINGA- SÍMLNN KR: 22480

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.